Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Kristín Guð-mundsdóttir
fæddist í Birgisvík
á Ströndum 11. maí
1902. Hún lést á
Sólvangi í Hafn-
arfirði 8. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sigríður Ingimund-
ardóttir frá Veiði-
leysu, f. 14. ágúst
1874, d. 10. sept-
ember 1952, og
Guðmundur Jóns-
son bóndi í Birg-
isvík, f. 14. maí 1864, d. 28. októ-
ber 1952. Kristín var sjöunda í
röð sextán systkina og komust
þrettán þeirra á fullorðinsár,
þau eru nú öll látin.
Hinn 9. mars 1925 giftist
Kristín Viggó Guðmundssyni frá
Skarði í Kaldraneshreppi, f. 9.
nóvember 1899, d. 7. ágúst 1973.
Þau eignuðust fjögur börn, þau
eru: 1) Skúli, f. 27. ágúst 1927, d.
20. júní 1947. 2) Vigdís Ragn-
heiður, f. 28. nóv. 1930, maki
Finnbogi Guðmundsson, börn
þeirra eru Kristín,
f. 24. okt. 1949,
maki Kristinn
Magnússon, Skúli,
f. 8. júlí 1952, Rafn,
f. 24. okt. 1954,
maki Guðrún Pét-
ursdóttir og Guð-
rún, f. 7. mars
1961. 3) Lilja, f. 7.
júlí 1933, sambýlis-
maður Magnús
Indriðason. Börn
hennar og Val-
garðs Sigmars-
sonar eru Viggó, f.
14. apríl 1956, Valdís, f. 30. apríl
1959, maki Þorsteinn Eyjólfsson
og Hafsteinn, f. 20. nóvember
1962, maki Marit Káradóttir. 4)
Sigmundur, f. 22. des. 1939, d.
27. mars 2004. Eftirlifandi niðjar
Kristínar eru 37.
Kristín og Viggó fluttu til Ísa-
fjarðar árið 1935 og síðan til
Hafnarfjarðar árið 1954, þar
sem þau bjuggu til æviloka.
Kristín verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Elsku mamma, nú er komið að
kveðjustund, það er sárt að kveðja
þig en við vitum hversu heitt þú
þráðir hvíldina og að komast í faðm
pabba og bræðranna.
Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna
og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð.
Þú vaktir yfir velferð barna þinna,
þú vildir rækta þeirra ættarjörð.
Frá æsku varstu gædd þeim góða anda,
sem gefur þjóðum ást til sinna landa,
og eykur þeirra afl og trú,
en það er eðli mjúkra móðurhanda
að miðla gjöfum eins og þú.
Ég flyt þér, móðir, þakkir þúsundfaldar,
og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt.
Er Íslands bestu mæður verða taldar,
þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt.
Blessuð sé öll þín barátta og vinna,
blessað sé hús þitt, garður feðra minna,
sem geymir lengi gömul spor.
Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna,
– og bráðum kemur eilíft vor.
(Davíð Stefánsson.)
Að lokum viljum við systurnar
færa starfsfólki Sólvangs, 3. hæð,
sem mamma kallaði alltaf „hvítu
englana sína“, okkar innilegustu
þakkir fyrir ástríka umönnun.
Þínar elskandi dætur,
Vigdís og Lilja.
Elsku besta amma,
Lítill drengur lófa strýkur
létt um vota móðurkinn,
– augun spyrja eins og myrkvuð
ótta og grun í fyrsta sinn:
Hvar er amma, hvar er amma,
hún sem gaf mér brosið sitt
yndislega og alltaf skildi
ófullkomna hjalið mitt?
Lítill sveinn á leyndardómum
lífs og dauða kann ei skil:
hann vill bara eins og áður
ömmu sinnar komast til,
hann vill fá að hjúfra sig að
hennar brjósti sætt og rótt.
Amma er dáin – amma finnur
augasteininn sinn í nótt.
Lítill drengur leggst á koddann
– lokar sinni þreyttu brá
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir – amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Þökk fyrir allt og allt.
Hafsteinn.
Fyrstu minningar mínar um
ömmu mína Kristínu eru sólskins-
dagar á Flókagötunni í Hafnarfirði,
pönnukökuilmur úr eldhúsinu og
amma að rétta pönnukökur út um
eldhúsgluggann. Til þeirra sem
máttu ekki vera að því að koma inn,
því að það var svo gaman að leika sér
úti. Seinna flutti amma á Álfaskeiðið
en þá var ég orðin fullorðin og mætti
til hennar í heimsókn með börnin
mín, enn var sami ilmurinn í eldhús-
inu, pönnukökuilmur. En nú er hún
amma farin yfir í annan heim, hætt
að baka pönnukökur hérna megin,
aðrir sem fá að njóta. Ég sé hana fyr-
ir mér dansandi og með pönnuköku-
pönnuna í hendinni. Að dansa var
nefnilega hennar besta skemmtun
þegar hún var ung og fannst henni
að konur ættu að kanna það hvort
mennirnir sem þær hrifust af döns-
uðu. Þessi kjarnakona var fædd í
torfbæ á þeim tíma þegar Íslending-
ar voru varla farnir að uppgötva
hjólið. Hversu magnað er það að
verða vitni að öllum tækniframförum
síðustu aldar. Að vísu held ég að hún
hafi haft takmarkaðan áhuga á
tækninni, þótti þægilegt að geta sett
í þvottavél í stað þess að hita vatn og
þvo í höndum. Hún hafði mikinn
áhuga á spíritisma. Las alls konar
bækur og langaði afskaplega til að
vita hvað biði hennar hinum megin.
En nú þarf hún ekki að bíða lengur,
forvitni hennar hefur verið svalað.
Ég kveð ömmu mína með orðum
Sir James M. Barrie (1860-1937).
Þeir sem færa sólskin inn í líf annarra geta
ekki haldið því fjarri sínu eigin.
Guðrún Finnbogadóttir.
Blessuð sé minning þín, elsku
amma.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem.)
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
þín
Valdís.
Kristín
Guðmundsdóttir
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Elsku langamma, hvíldu í
friði, minning þín mun lifa og
ylja mér um ókomna tíð.
Hafðu þökk fyrir allt.
Lilja „litla“.
HINSTA KVEÐJA
MINNINGAR
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu, dóttur og systur,
BIRNU BJÖRNSDÓTTIR
Endurvarpsstöð Eiðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeilda
Landspítalans, Líknardeildar í Kópavogi og Heil-
brigðisstofnunar Austurlands á Egilsstöðum fyrir góða
umönnun í veikindum hennar.
Júlíus Bjarnason,
Magnfríður Júlíusdóttir, Vojislav Velemir
Bjarni Már Júlíusson, Jóna Björg Björgvinsdóttir,
Björn Starri Júlíusson, Bozena Teresa,
Ragna Valdís Júlíusdóttir,
Katla Þorvaldsdóttir,
Kolbrún Birna Bjarnadóttir,
Júlíus Freyr Bjarnason,
Jónína Guðmundsdóttir,
Páll Björnsson,
Kolbrún Björnsdóttir.
✝
Bróðir okkar og mágur,
HALLDÓR SVEINBJARNARSON
frá Ísafirði,
Austurströnd 8,
Seltjarnarnesi,
sem lést á Landakoti 11. janúar verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
21. janúar kl. 13.00.
Sigríður Sveinbjarnardóttir,
Jóhanna Sveinbjarnardóttir, Þorvaldur Tryggvason.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ERLENDU ODDBJARGAR ÞÓRUNNAR
ERLENDSDÓTTUR,
Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi 19. desem-
ber.
Eysteinn Guðmundsson,
Erlendur Þór Eysteinsson, Elsa Guðmundsdóttir,
Ívar Eysteinsson, Guðný Jónsdóttir,
Árni Þór Erlendsson, Hildur Elísabet Ingadóttir,
Harpa Ýr Erlendsdóttir, Halldór Víglundsson,
Trausti Óskarsson, Ásta Bragadóttir,
Ísak Ívarsson,
Eysteinn Ívarsson,
Sóldís Lilja Árnadóttir og Una Traustadóttir.
✝
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
HALLDÓR KRISTJÁNSSON KJARTANSSON
markaðsfræðingur,
sem lést 12. janúar verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. janúar kl.
15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð
KR, reikn. 0111-15-372029, kt. 011036-3179.
Edda Birna Gústafsson, Magnús Gústafsson,
Birna Gústafsson,
Björn Kristjánsson Kjartansson,
Áslaug H. Kjartansson, Björn Björnsson
og fjölskylda.
✝
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
BJARNI JÓNSSON,
listamaður og kennari,
Ægisíðu 101,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn
18. janúar kl. 13.00.
Halldór Bjarnason,
Jón Haukur Bjarnason, Anna Lena Wass,
Lúðvík Bjarnason, Eileen Hooks,
Guðrún V. Bjarnadóttir, Jimmie D. White,
Erna Svala Ragnarsdóttir, Kristján Sverrisson,
stjúpbörn og barnabörn.
Siggi frændi, móð-
urbróðir minn, er nú
allur. Ég er fædd í
Brasilíu árið 1955.
Flestir sem ég kynntist sem barn
voru útlendingar, þ.e. ekki fæddir í
Brasilíu. Bestu vinir okkar voru Hol-
lendingar, nágrannarnir breskir og
ítalskir, skólasystkinin frá Þýska-
landi, Eistlandi, Póllandi o.s.frv.
Sigurður Þorkell
Guðmundsson
✝ Sigurður Þor-kell Guðmunds-
son fæddist 25. júní
árið 1930. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni í
Reykjavík 31. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Neskirkju 13.
nóvember.
Heima fyrir voru bæn-
ir lesnar á íslensku. Ís-
lenskir jólasveinar og
Grýla komu á jólun-
um. Þrátt fyrir þennan
mismunandi uppruna
fannst mér við öll vera
Brasilíubúar og allar
sögurnar af öðrum
löndum uppspuni einn.
Þar til einn góðan veð-
urdag 1964 á kjötkveð-
jutíð í Brasilíu birtust
Siggi frændi og Ragn-
heiður kona hans, glöð
og brosandi. Það var
mikið fjör og lífsgleði kringum þau.
Mér fannst þau hafa birst úr
draumaheimi! Landið Ísland, sem
mamma og pabbi töluðu um, varð allt
í einu að veruleika. Þessa mynd af
Íslandi og fjölskyldu minni þar
geymi ég alltaf í minningunni.
Seinna þetta sama ár 1964 komum
við til Íslands og fórum aldrei aftur
til Brasilíu.
Það var alltaf gott að vita af Sigga
á Íslandi, alltaf jafn alúðlegur, fjör-
ugur og hjálpsamur. Í fyrra fékk
hann alvarlegt heilablóðfall. Þegar
ég heimsótti hann gat hann ekki tal-
að, en hann brosti samt þegar hann
sá mig og augun urðu björt, eins og
fjörutíu og tveimur árum áður. Ég
var viss um að hann myndi ná sér en
því miður gerðist það ekki. Við höf-
um misst góðan frænda, góðan
lækni, góðan golfara og góðan Ís-
lending. Í indjánamenningunni hér í
Mexíkó, þar sem ég nú bý, er hjátrú-
in á þann veg, að þeir sem látast fara
bara í annað starf. Nýja starfið felst
aðallega í því að passa okkur sem eft-
ir erum á þessari jörðu. Siggi er
örugglega að vinna að læknastörfum
og passar vel upp á okkur öll.
Ég vil þakka öllum sem pössuðu
Sigga í hans veikindum, aðallega
Ninnu, sem tapaði aldrei voninni.
Elín Margrét Ingvarsdóttir,
Mexíkó.