Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SERPENTINE-galleríið í Lund-
únum hélt í fyrra yfirlitssýningu á
verkum Hreins Friðfinnssonar
myndlistarmanns, eins og frægt er
orðið, og fékk hún víða afbragðs-
dóma í fjölmiðlum.
Þaðan var hún færð í Hafnarhúsið
í Reykjavík og nú er komið að
Malmö Konsthall. Sýning á verkum
Hreins verður opnuð þar 16. febrúar
nk. og lýkur 27. apríl. Í Malmö
Konsthall er nýr safnstjóri tekinn
við völdum, Jacob Fabricius. Hann
hefur starfað sjálfstætt sem alþjóð-
legur sýningarstjóri frá árinu 1995
og var forstöðumaður KBH Kunst-
hal í Kaupmannahöfn. Þá var hann
nýverið sýningarstjóri við lista-
miðstöðina Centre d’Art Santa Mo-
nica í Barselóna. Fabricius hefur
stýrt fjórum sýningum fyrir Malmö
Konsthall á seinustu þremur árum.
Sýningin á verkum Hreins er unn-
in í samvinnu við Serpentine gall-
eríið og myndlistarmanninn Ólaf
Elíasson.
Hreinn
til Malmö
Yfirlitssýningin úr
Serpentine fer víða
Hreinn Nemur víða lönd.
SEAN O’Brien
varð í vikunni
fyrsta skáldið til
að vinna tvenn
helstu ljóðaverð-
laun Breta sama
árið. Áður hafði
hann hlotið The
Forward Prize og
nú var röðin kom-
in að T.S. Eliot
verðlaunum.
Verðlaunin hlaut O’Brien fyrir bók-
ina The Drowned Book sem dóm-
nefnd lýsti sem fullri af eldmóði,
húmor og djúpri melankólíu.
O’Brien kennir skapandi skrif við
Newcastle-háskóla og bar sigurorð
af skáldum á borð við Fionu Samp-
son og Edwin Morgan, lárviðarskáld
Breta.
Meðal fyrri handhafa T.S. Eliot
verðlaunanna eru Seamus Heaney
og Ted Hughes.
Að drukkna
í verðlaunum
Breska ljóðskáldið
Sean O’Brien
ÞORVALDUR Þorsteinsson
mun opna myndlistarsýn-
inguna Leikmyndir í Populus
tremula, sem er menning-
arsmiðja í Listagilinu á Ak-
ureyri. En þar að auki kemur
einnig út bók eftir hann sem
ber titilinn Mónólógar. Sýn-
ingin verður opnuð næsta laug-
ardag og stendur aðeins yfir
helgina. Um kvöldið munu
stórleikarar lesa upp úr nýút-
kominni bók ásamt höfundi og Sickbird leikur eig-
in tónlist með stórsveit, skipaðri þeim Arnari
Tryggvasyni, Kristjáni Edelstein, Ingva Rafni
Ingvasyni, Pálma Gunnarssyni og Togga skyttu.
Húsið verður opnað kl. 21.30.
Myndlist
Leikmyndir
og mónólógar
Þorvaldur
Þorsteinsson
HJÁLMAR Þorsteinsson opn-
ar sýningu á málverkum sínum
í Galleríi List í Skipholti á laug-
ardaginn kl. 14. Hjálmar er að
mestu sjálfmenntaður í mynd-
list, en hefur markvisst unnið
að list sinni í nær hálfa öld.
Fyrstu sýninguna hélt hann á
Akranesi árið 1968 en hefur
síðan haldið fjölmargar sýn-
ingar á Íslandi og í Danmörku.
Hann fæddist á Siglufirði árið
1932 en fluttist til Akraness fjórtán ára gamall.
Hjálmar starfaði lengst af sem kennari á Akra-
nesi, m.a. við tilraunakennslu í skapandi listum og
hlutu nemendur hans mörg verðlaun og við-
urkenningar á alþjóðlegum sýningum.
Myndlist
Hjálmar sýnir mál-
verk í Gallerí List
Hjálmar
Þorsteinsson
SIGRID Valtengoyer graf-
íklistamaður hefur opnað sýn-
ingu á Start Art á Laugaveg-
inum. Sýning hennar byggist
á reynslu listamannsins og
upplifunum í Palestínu, en hún
fór þangað sem sjálfboðaliði
hjá ISM (International Sol-
idarity movement) árið 2003.
Hún tók þátt í að tína ólífur af
nær tíu alda gömlum ólíf-
urunnum á Vesturbakkanum.
Mikið af þessu landsvæði palestínskra bænda
hefur nú þegar horfið á bak við og undir aðskiln-
aðarmúrinn sem Ísraelsmenn eru að byggja í
trássi við alþjóðalög og úrskurð Alþjóðadómstól
SÞ í Haag. Sýningin stendur til 6. febrúar nk.
Myndlist
Sigrid Valtingoyer,
ferð án endurkomu
Verk eftir Sigrid
Valtengoyer.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
UPP úr aldamótunum 1900 samdi
Gustav Mahler söngva við ljóð þýska
ljóðskáldsins Friedrich Rückert, sk.
Rückert-söngva. Þá ætlar Rannveig
Fríða Bragadóttir að syngja í kvöld
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Rannveig segir ljóðmál Rückert
afskaplega djúpt og fallegt.
„Það sem er kannski einstakt við
Mahler eru þessir hljómsveitar-
söngvar hans. Þetta eru ekki aríur,
þetta eru ljóð með hljómsveit og í
rauninni, að einhverju leyti, skapar
hann nýja hefð með þessum söngv-
um sínum.“ Söngvana sé ekki hægt
að flytja án hljómsveitar og þeir geri
sig ekki með píanóútfærslu. Mahler
hafi fyrst og fremst verið hljóm-
sveitarstjóri og þá óperuhljómsveit-
arstjóri. Því hafi hann þekkt mögu-
leika hljómsveitarinnar afar vel og
nýtt sér það út í ystu æsar með lit-
brigðaríkri útkomu. „Þetta er allt
frá ástarsöngvum og út í þetta mjög
svo ljóðræna og melankólíska, vissa
depurð sem einkennir Mahler oft.“
Mjög erfitt verk að syngja
– Er þetta erfitt verk að syngja?
„Já, mjög. Þetta eru mjög langar
línur og innlifunarlega séð er það
erfitt, það er svo mikil breidd bæði í
raddsviði og -styrk, sífelldar tempó-
breytingar. Það krefst mikils af
manni af því maður getur aldrei far-
ið út fyrir ljóðaformið sem slíkt, þú
ert ekki að syngja aríur og ert alltaf
á þessu nána sviði sem ljóðsöng-
urinn krefst og í risastórum sal.“
Rannveig segir verkið í sínum víð-
asta skilningi falla undir konsept- og
ljóðasöng en í raun sé hægt að segja
að Mahler búi til nýtt hugtak, hljóm-
sveitarljóðasöng. Söngvarnir séu
taldir með því fegursta sem Mahler
samdi um ævina en hann var á há-
tindi ferilsins þegar hann samdi þá,
óperustjóri við Vínaróperuna og
einn af miðpunktum tónlistarlífsins í
borginni. Hann hafi á þessum árum
skrifað verk á sumrin þegar óperan
var lokuð, og alltaf úti á landi í suð-
urhluta Austurríkis og í nágrenni við
Salzburg. Þá varð hann ástfanginn
um þetta leyti af Ölmu, sem hann
kvæntist síðar, og er einn söngvanna
tileinkaður henni, „Liebst du um
Schönheit“. „Hann hafði þessa of-
boðslegu dýpt og tengsl við náttúr-
una,“ segir Rannveig.
Sinfóníuhljómsveitin fagnar í
kvöld sextugsafmæli konsertmeist-
arans Guðnýjar Guðmundsdóttur og
sjötugsafmæli tónskáldsins Þorkels
Sigurbjörnssonar með flutningi á
verkinu Ljósboga eftir Þorkel. Tón-
leikunum lýkur á Íslandsfrumflutn-
ingi 5. sinfóníu breska 20. aldar tón-
skáldsins Ralphs Vaughan-Williams.
Rannveig Fríða Bragadóttir syngur Rückert-söngvana með Sinfóníuhljómsveit Íslands
Ást og depurð Mahlers
Rannveig hefur sungið í mörgum virtustu óperuhúsum heims undir stjórn
manna á borð við Herbert von Karajan, Otto Schenk og Sir Georg Solti. Ár-
in 1989-91 var Rannveig ráðin einsöngvari við Ríkisóperuna í Vín, en síðar
var hún fastráðin við Óperuhúsið í Frankfurt.
Af fjölmörgum hlutverkum hennar má nefna tónskáldið í Ariadne auf
Naxos eftir Richard Strauss, Cherubino í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart
og Perichole í La Perichole eftir Jacques Offenbach. Hún býr og starfar í
Austurríki, kennir þar meðal annars söng og segist njóta þess mjög. Mynd-
in tekin í gær af Rannveigu á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Nýtur þess að kenna söng
Á LAUGARDAGINN verður opnuð í Gerðar-
safni, Listasafni Kópavogs, sýning á verkum úr
eigu hjónanna Sævars Karls Ólasonar og Erlu
Þórarinsdóttur. Sýningin ber titilinn „Ég vel að-
eins það besta“, kunnuglegur frasi úr auglýs-
ingum Sævars Karls fyrir herrafataverslun sína,
sem hann seldi í fyrra.
Sævar hóf rekstur gallerís í versluninni árið
1988 og er það rekið enn af nýjum eigendum.
Sævar og Erla hafa safnað listaverkum und-
anfarin 40 ár, eiga m.a. úrval verka eftir Gunnlaug
Blöndal, Kristján Davíðsson og marga þekktustu
nútímalistamenn Íslands auk erlendra verka.
Meðal merkilegra, erlendra verka eru sjaldgæfar
litógrafíur eftir Salvador Dalí frá árinu 1971 í
gamansömum dúr, eins og hans var von og vísa. Í
litógrafíunum myndgerir hann hugmyndir sínar
um klæðnað spjátrunga framtíðarinnar. Þá er
ekki síður athyglivert að skoða röð veggspjalda
sem listamenn gerðu fyrstu ár gallerísins fyrir
sýningar sínar þar. Guðbjörg Kristjánsdóttir, for-
stöðumaður Gerðarsafns, segist hafa beðið hjónin
um að fá að halda sýningu á safni þeirra. Gerð-
arsafn hefur áður haldið slíkar sýningar á einka-
söfnum, m.a. á safni Þorvalds í Síld og fiski.
„Sævar hefur rekið gallerí um 20 ára skeið og
það er mjög merkur kafli í íslenskri myndlist-
arsögu,“ segir Guðbjörg. Henni hafi þótt ástæða
til að draga fram í dagsljósið þá starfsemi sem og
einkasafn hjónanna. Sævar valdi verk á sýn-
inguna að miklu leyti og Helgi Hjaltalín Eyjólfs-
son myndlistarmaður annaðist uppsetningu sýn-
ingarinnar með Sævari.
Í sýningarskrá, sem rithöfundurinn Guðbergur
Bergsson gerir að miklu leyti og skrifar í, segir
Sævar Karl að þau hjónin hafi ekki safnað mynd-
list á meðvitaðan og markvissan hátt en þó megi
greina ákveðinn rauðan þráð, fegurðarskynið hafi
líklega ráðið ferðinni. Guðbergur segir það ein-
kenna verkin á sýningunni að manneskjan komi
þar fram í fyrsta sinn af fullum krafti í íslenskri
málaralist. Sýningin sé dæmigerð fyrir það sem
var að gerast í myndlistinni eftir að konseptlistin
rann sitt skeið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra opnar sýninguna á laugardag kl. 15.
„Ég vel aðeins það besta“
Hengt upp Kristján og Helgi, starfsmenn Gerða-
safns, voru í óða önn að hengja upp verkin.
Árvakur/Kristinn
♦♦♦
Árvakur/Ómar
BRESKA bóka-
útgáfan Tank
gaf í fyrra út
bókaröð á stærð
við sígar-
ettupakka með
merkum bók-
menntaverkum
höfunda á borð
við Hemingway,
Tolstoj og
Kafka, um svip-
að leyti og reyk-
ingabann gekk í gildi í Bretlandi í
fyrrasumar. Allt gekk eins og í
sögu þar til BAT (British Americ-
an Tobacco), stærsti tóbaksfram-
leiðandi heims, rak augun í Hem-
ingway-pakkann. Hann er býsna
líkur Lucky Strike og vill BAT að
sá bókapakki verði tekinn úr um-
ferð því hann muni rugla neyt-
endur í ríminu.
Sígarettu-
Hemingway
Pakkinn sem
líkist Lucky
Strike
♦♦♦
Árvakur/Þorkell