Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jakob HrafnHöskuldsson fæddist í Reykjavík 1.12. 1988. Hann lést af slysförum 1.1. 2008. For- eldrar hans eru Höskuldur H. Hösk- uldsson, f. 16.5. 1956 og Aðalheiður Ríkarðsdóttir, f. 5.6. 1959. Systur Jakobs eru Rakel Sara, f. 16.8. 1990 og Lea Ösp, f. 20.10. 1994. Foreldrar Höskuldar eru Höskuldur Arnar Þórðarson, f. 27.7. 1926 og Sigrún Anna Guð- jónsdóttir, f. 12.8. 1928, d. 14.1. 1970. Seinni kona Höskuldar er Hafdís Guðmundsdóttir, f. 27.1. 1944, sonur hennar er Hilmar Þór Jónsson, f. 8.3. 1969. For- eldrar Aðalheiðar eru Ríkarður Jónatansson, f. 25.12. 1932, d. 28.7. 2002 og S. Þóra Magnús- dóttir, f. 19.8. 1932, d. 17.8. 2007. Systkini Höskuldar eru: Þórður Arnar, f. 14.11. 1950, d. 24.4. 1997, maki Unnur Ragnhildur Leifsdóttir, f. 25.10. 1958, d. 21.2. 1988, sonur þeirra Leifur Orri, f. 1.6. 1974, d. 16.12. 1999; Guðjón Már, f. 19.4. 1957, maki Ingibjörg Ósk Bjarnadóttir, f. 6.9. 1936, d. 3.6.2004; Kristjana Anna, f. 20.5. 1960, maki Viðar Karlsson, f. 4.5. 1957, syn- ir þeirra Arnar Narfi, f. 7.5. 1989 og Ívar, f. 25.3. 1993. Systir Aðalheiðar er S. Hugrún, f. 9.10. 1957, dóttir hennar er Surya Mjöll, f. 26.1. 1994. Jakob lagði drög að framtíð sinni með menntaskólanámi og flugnámi. Jakob verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Elskulegur vinur og náinn frændi okkar, Jakob Hrafn Höskuldsson, sem lést af slysförum 1. janúar sl. verður jarðsettur í dag. Jakob var nýorðinn 19 ára er guð tók hann til sín fyrirvaralaust. Stundum er sagt að þeir sem guðirnir elska deyi ung- ir og á það vel við hér. Við sem eftir lifum sitjum ráð- þrota og skiljum ekki hvers vegna svona hörmuleg slys verða, slys sem allt í einu kippir ungum og efnileg- um pilti burt frá samvistum með ættingjum og vinum. Jakob Hrafn var nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð þar sem hann hafði stundað nám sitt af stakri kostgæfni og hefði lokið stúdentsprófi á næsta ári ef honum hefði enst aldur til. Jakob var einstaklega geðugur og traustur ungur maður, vinmargur og reglusamur með námið og átti traust samband við fjölskyldu sína og nánustu ættingja. Hann lagði það m.a. í vana sinn að fara í reglu- legar heimsóknir til langömmu sinnar sem komin er á 105. aldursár og sýndi henni alla tíð mikla elsku og hlýju. Hún saknar nú Jakobs langömmubarns síns sárt og inni- lega og biður fyrir honum. Jakob var okkur hjónum mjög kær og áttum við með honum marg- ar ljúfar stundir. Við fylgdumst náið með þroska hans og framförum frá barnæsku. Hann var einstakur sómapiltur og hafði tvímælalaust alla burði og getu til að verða góður og gegn samfélagsþegn. Vinmargur var Jakob og var ein- staklega ánægjulegt að verða vitni að mikilli og innilegri hluttekningu margra góðra ungra vina á heimili fjölskyldunnar meðan beðið var nið- urstöðu langrar og umfangsmikillar og ómetanlegrar leitar fórnfúsra leitarflokka. Þetta unga fólk var einstaklega góðir fulltrúar ungu kynslóðarinnar og gefur fullvissu um að af henni þurfi ekki að hafa áhyggjur. Elskulegur Jakob Hrafn: Ljósið þitt bjarta og skæra lýsir hingað niður á vinahópinn kæra sem vakir nú og biður. Við færum elskulegum vinum, foreldrum Jakobs, Alley og Höska, og systrum hans Rakel Söru og Leu Ösp okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum guð að veita þeim styrk og huggun í mikilli sorg þeirra við missi hjartfólgins sonar og bróð- ur. Megi guð blessa okkar elskulega frænda Jakob Hrafn að eilífu. Marta og Svavar. Kæri, góði drengurinn okkar. Þú komst sem sólargeisli inn í líf okkar, ömmu þinnar, Láru frænku og Óskars frænda. Skyndilega ert þú tekinn frá okk- ur. Hvers vegna? Við fáum auðvitað engin svör. Það stendur víst ekki til. Atburðurinn, sem gerðist um ára- mótin síðustu, var svo óvæntur og sársaukafullur að okkur er hann enn næstum óbærilegur. Þú varst okkur ávallt svo ljúfur og hress, til í allskyns boltaleiki og þess háttar. Vildir helst sigra í hverjum leik. Svo fórst þú að iðka alvarlegri íþróttir og við gátum auð- vitað ekki fylgt þér. „Hún amma er ótrúlega góð í markinu,“ sagðir þú mömmu þinni eitt sinn, Amma var reyndar hún langamma þín, þá hátt á tíræðis- aldri. Þá varst þú blessað barn og naust leiksins til fulls. Já, elsku Jak- ob. Þú varst okkur mikill gleðigjafi, gamla fólkinu á Rauðalæknum. Ekki varstu gamall þegar mamma þín sagði einhverju sinni af ákveðnu tilefni: Já, þú ert svo ríkur, Jakob minn. „Já mamma, en ríkast- ur er ég þó að eiga þig,“ sagði litli drengurinn á sinn hógværa hátt. Svo bættust okkur tveir sólar- geislar þegar litlu systur þínar tvær komu í heiminn og við fengum að njóta þeirra. Þegar þú komst á unglingsárin urðu samverustundir okkar auðvit- að færri og strjálli. Við tók skóla- gangan og golfið. Þú varðst mjög efnilegur golfari. Já, heimsóknir þínar urðu færri þegar skólinn, samveran og áhugamál með jafn- öldrum þínum tóku við. Þú eignaðist einstaklega góða og prúða vini, auð- vitað, þú varst góður, prúður dreng- ur. Við þökkum þér, elsku strák- urinn, allar ánægju- og gleðistund- irnar. Huggun okkar í sorginni eru góðu minningarnar allar. Þú varst tekinn svo snemma frá okkur á annað tilverustig að þú varst aðeins að hefja undirbúning- inn að ævistarfinu hérna megin. Biðjum góðan Guð að gefa þér nóg að starfa á því næsta með afa Rikka og ömmu Þóru, sem við vitum að hafa opnað þér ástríkan faðm sinn við komuna heim til þeirra. Við get- um auðvitað fúslega unnt þeim þeirrar sælu. Nú er hún amma þín orðin mjög gömul, meira en hundrað og fjög- urra ára. Hennar aldraði hugur dvelur mjög hjá þér núna, kæri strákurinn hennar. Biðjum góðan Guð að styrkja ást- kæra foreldra þína og systur. Lára og Óskar. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Kahlil Gibran.) Elsku Jakob Hrafn. Við biðjum góðan Guð að varðveita þig að eilífu. Minning þín mun alltaf lífa. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran.) Elsku Höskuldur, Aðalheiður, Rakel Sara, og Lea Ösp, við fjöl- skyldan viljum votta ykkur okkar dýpstu samúð við fráfall elskulega sonar ykkar og bróður, Jakobs Hrafns. Við biðjum Guð í bænum okkar að blessa ykkur og gefa ykk- ur styrk til að sjá ljósið í myrkrinu á þessari hræðilegu sorgarstundu. Megi minning um fallegan dreng lifa áfram. Guð varðveiti ykkur og blessi á þessum erfiðu stundum og alltaf. Berglind Ólafsdóttir, Svavar Egilsson og fjölskylda. Afmælisdagurinn minn síðasti, 2. janúar, mun mér seint gleymast. Ég fékk þær fréttir snemma morguns að þú værir týndur. Ég óskaði þess að þetta væri bara slæmur draumur og ég myndi brátt vakna. En veru- leikinn var þessi og stór hópur ætt- ingja, vina og hjálparsveitarmanna lagði sig fram við að leita að þér, elsku frændi. Vil ég þakka öllum þeim sem komu þar að fyrir sinn þátt. Þetta kvöld fannstu látinn. Mikill harmur helltist yfir okkar litlu fjölskyldu. Það var rúmri viku fyrr sem við hittumst í síðasta sinn, í skötuveislu hjá ömmu á Rauðó. Þar hélst þú á Hlyni litla og ég sá ekki betur en að þið næðuð bara vel saman. Við spjölluðum aðeins um flugið, en áhugann á því áttum við sameigin- legan ásamt afa þínum, Rikka heitn- um. Við ræddum um að með vorinu kæmir þú með mér í flug til annað hvort Bandaríkjanna eða Evrópu. Sú ferð hefði orðið okkur báðum ánægjuleg en því miður gripu örlög- in þar inní. Hvers vegna? – er mér ómögulegt að skilja! Þeir eru margir sem sakna þín sárt og munu minnast þín með hlýj- um hug um ókomin ár. Systur þínar, Rakel Sara og Lea Ösp, og foreldrar, Alley og Höski, eiga margar góðar minningar um þig sem ég veit að verða ljósið sem mun lýsa þeim og leiða áfram á komandi vikum, mánuðum og árum. Við fjölskyldan í Fálkahrauni sendum þeim okkar dýpstu samúð- arkveðjur. Óskar Tryggvi Svavarsson. Frændi minn Jakob Hrafn Hösk- uldsson lést af slysförum að morgni nýársdags. Það er mikill harmleikur þegar ungur maður fellur svo skyndilega frá í blóma lífsins. Jakob Hrafn var óvanalega vand- aður, heilsteyptur og góður dreng- ur. Hann hafði sig að jafnaði ekki mikið í frammi en fjölskylda, ætt- ingjar, vinir og aðrir sem hann þekktu vissu hve miklum mannkost- um hann var búinn og til hans var borið mikið traust. Samband hans við systurnar Leu Ösp og Rakel Söru var einstakt og fjölskylduböndin óvanalega sterk. Hann átti traustan hóp vina og kunningja eins og greinilega kom í ljós þegar þetta hræðilega slys bar að höndum. Skarðið sem Jakob Hrafn skilur eftir sig er stórt en minningin um hann mun lifa með öllum sem til hans þekktu. Ég og mín fjölskylda vottum fjöl- skyldu, ættingjum og vinum Jakobs Hrafns okkar innilegustu samúð og biðjum þeim allrar blessunar nú og ætíð. Þórarinn Magnússon. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Rifja hér upp nokkur leiftur af lífsljósi Jakobs Hrafns, ömmubarns Hafdísar systur minnar er á nýárs- dag lést af slysförum. Ég minnist gleði og eftirvænting- ar þegar von var á fyrsta barni All- eyjar og Höska. 1. desember 1988 fæddist svo lítill, yndislegur dreng- ur, sem var frá fyrsta degi hvers manns hugljúfi. Hlaut hann nafnið Jakob Hrafn. Hann fæddist og ólst upp á menningarheimili. Báðir for- eldrar hans eru greindar, góðar og heilsteyptar manneskjur. Fallegur, ljóshærður drengur með stór spyrjandi brún augu að passa litlu systur Rakel Söru sem fæddist tæpum tveim árum síðar. Hógvær og yfirvegaður frá fyrstu tíð og þegar Lea Ösp fæddist 1994, gættu þau Rakel Sara hennar svo einstaklega vel. Samrýndari systkinum en þeim þrem hef ég aldrei kynnst. Alltaf saman þau þrjú. Í afmælum, jóla- og áramótaboð- um, bæði heima hjá þeim og heima hjá ömmu Hafdísi og afa Höskuldi, voru þau þrjú alltaf saman. Inni í herbergi að leika sér, spila á spil, í tölvunni, eða bara einfaldlega að rabba saman, eða að sumrinu úti í garði með Midas sinn. Jakob Hrafn var snemma fullorð- inslegur og tók virkan þátt í sam- ræðum þegar landsmálin og heims- málin voru rökrædd, stundum af nokkrum hita ef ekki voru allir sam- mála. Farið var í spurningaleiki. Jakob Hrafn vann okkur alltaf í „Trivial Pursuit“, drengurinn var óþolandi góður og hafði miklu meiri almenna þekkingu en við hin sem eldri erum. Ekki má gleyma golfinu sem var eitt helsta áhugamál Jakobs. Hann var einfaldlega bestur (með 4 eða 6 í forgjöf). Frábær golfari. Ekki stærði hann sig af því og þegar ég sló því fram í gríni að hann ætti bara að gerast atvinnumaður og „sjá fyr- ir fjölskyldunni“, en því takmarki hefði hann auðveldlega getað náð, svaraði móðir hans: Það er alveg nóg fyrir Jakob að vita sjálfur hvað hann er góður. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með Jakobi sem unglingi. Fermingardagurinn hans var bjart- ur og fagur og fullur af eftirvænt- ingu og góðum fyrirheitum. Jakob var nú hálf „úllalegur“ næstu tvö ár- in, með hárið sítt niður í augu, eins og margir strákar voru þá. Svo hitti ég hann, já á 16 ára afmælisdegi Rakelar og þá var hann allt í einu orðinn ungur maður með stuttklippt dökkt hár, augun þau sömu; stór, brún og spyrjandi. Hann var falleg- ur ungur maður hann Jakob Hrafn. Fallegur í orðsins fyllstu merkingu, því sálin hans var líka svo falleg og góð. Ólýsanleg sorg hefur dunið yfir litla fjölskyldu og engin orð fá megnað að sefa hana. Eina hugg- unin er minningar um góðan dreng, þær lýsa í sorginni. Helga. Elskulegi góðhjartaði vinur minn er horfinn á braut. Ég kynntist honum fyrir 5 árum. Við urðum strax mjög góðir vinir. Hann spilaði golf á sumrin eins og ég og síðastliðið sumar kepptum við Kobbi í mörgum mótum. Okkur gekk misvel en skemmtilegasti völl- urinn og þar með léttasti völlurinn var í Hveragerði. Við gerðum margt saman og höfðum báðir sömu áhugamál. Við fórum austur í bústað til afa míns og fórum að veiða. Við vorum ágætar veiðiklær þó að við veiddum ekki neitt. Við veiddum bara hvor annan. Okkur fannst gaman að vera á snjóbretti og fórum alltaf í Bláfjöll. Hann var góður, en lítið betri en ég, því hann átti betra bretti. Við fórum vinahópurinn saman til Spánar, Benidorm. Þaðan á ég góð- ar minningar. Við höfðum mikinn áhuga á bílum og skoðuðum oft bílasölur. Það er með þakkarhug og söknuði sem ég kveð þennan besta vin minn, Kobba. Í bústað til afa við fengum að fara, við fórum á bretti í Bláfjöll á spretti, það alltaf var gaman að vera öll saman. Jakob vinur minn kær þú stendur mér nær, sem bróðir þú varst mér og það vil ég þakka þér. (P.Á.L.G.) Elsku Höskuldur, Aðalheiður, Rakel og Lea, ég sendi ykkur mínar samúðarkveðjur. Sölvi Leví Gunnarsson. Það var fyrir 12 árum sem leiðir okkar þriggja fyrst lágu saman. Bara 8 ára pjakkar á stjörnumótinu, Kobbi, Krissi og Gauji. Þegar komið var í síðasta leikinn höfðum við ekki fengið á okkur mark en skorað eitt- hvað um 50. Leikurinn var gríðar- jafn þangað til Fylkismenn tóku örugga forystu í hlutkesti og sigr- uðu leikinn. Með Jakob í marki og mig (Guðjón) í vörn var eins og múr- að væri fyrir netið, enda unnum við Jakob Hrafn Höskuldsson ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ERLENDUR GUÐMUNDSSON, Gullsmára 8, Kópavogi, er lést á Landspítalanum þann 12. janúar, verður jarðsunginn mánudaginn 21. janúar kl. 15:00 frá Digraneskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Heimahlynningu hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Inga H. Jónsdóttir, Gréta Erlendsdóttir, Hrafn Heiðar Oddsson, Jón Tómas Erlendsson, Guðrún Yrsa Sigurðardóttir, Guðmundur Rúnar Erlendsson, Margrét H. Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðursystir okkar, ELÍNBORG JÓHANNSDÓTTIR frá Krossi í Óslandshlíð, Freyjugötu 40, Sauðárkróki, sem lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks þriðjudaginn 8. janúar, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 19. janúar kl. 14.00. Þóra Ólafsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Jóhann Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.