Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 11 FRÉTTIR SMÁFUGLARNIR eru sífellt á þönum í leit að æti og hefur fæðuöflunin eflaust reynst þeim erfið í frosti og snjókomu síðustu daga. Þessi litli einbeitti þröstur var á ferðinni við pylsuvagn í miðbæ Reykjavíkur og hefur eflaust haft nokkra brauðmola upp úr krafs- inu. Gert er ráð fyrir áframhald- andi frosti um allt land næstu daga og á að kólna víðast hvar þegar líður að helginni. Má því gera ráð fyrir að snjórinn haldist eitthvað fram yfir næstu helgi. Beðið eftir brauðmola Árvakur/Árni Sæberg Í FYRRA greindust 1.863 einstak- lingar hér á landi með klamydíu. Til- fellin voru því nokkru fleiri en árinu áður, að því er fram kemur í Farsótt- arfréttum. Alls greindust 1.108 kon- ur með klamydíu og 692 karlar en í 63 tilfellum var kyn óþekkt. Meðal- aldur kvennanna við greiningu var 22 ár en aldur karlanna 25 ár. Lekandatilfellum fækkar Í fyrra dró talsvert úr fjölda þeirra sem greindust með lekanda, en slíkum tilfellum hafði fjölgað hratt ár frá ári allt frá árinu 2003 til ársins 2006. Í fyrra greindist 21 einstaklingur með lekanda og voru í þeim hópi 15 karlar og fimm konur, en í einu til- viki var ekki vitað um kyn viðkom- andi einstaklings. Meðalaldur karla sem greindust með lekanda var rúm- lega 28 ár en meðalaldur kvenna sem reyndust hafa smitast var 27 ár. Flestar klamydíugreiningarnar voru gerðar á sýkladeild Landspítala en klamydía er einnig greind á sýkla- deild Sjúkrahúss Akureyrar. Klamydíutilfellum fjölgaði í fyrra ÍSLENSKU friðargæsluliðarnir sem starfað hafa í Srí Lanka leggja af stað til Íslands í dag, nema einn sem verður áfram í landinu við frá- gang, ásamt tíu norskum friðar- gæsluliðum. Er gert ráð fyrir að þeir verði næsta hálfa mánuðinn eða svo í landinu. Ganga þarf frá miklu af gögnum og eignum meðal annars. Ástæða þess að friðargæsluliðarnir eru kallaðir heim er vopnahlésrof uppreisnarhers Tamíl-Tígra og stjórnarhersins í Srí Lanka. Að sögn Önnu Jóhannsdóttur, yf- irmanns Íslensku friðargæslunnar, mun utanríkisráðuneytið funda með íslensku friðargæsluliðunum á morgun, föstudag. Í hópnum sem kemur til Íslands eru sex friðar- gæsluliðar, tvær konur og fjórir karlar. Að auki eru tvær konur til viðbótar í íslenska hópnum, sem fara frá Srí Lanka en taka sér frí erlendis áður en þær koma til Íslands. Sex ár eru liðin frá því fyrstu ís- lensku friðargæsluliðarnir fóru til Srí Lanka fyrir Íslands hönd. Hefur Anna bent á að friðargæsluliðarnir geti nýst í önnur verkefni á vegum Íslensku friðargæslunnar. Á vegum Þróunarsamvinnustofn- unar Íslands, ÞSSSÍ, starfa tveir Ís- lendingar, Árni Helgason umdæm- isstjóri og Gunnar Þórðarson verkefnastjóri fiskimála. Samkvæmt upplýsingum frá ÞSSÍ hefur hins- vegar engin ákvörðun ver ið tekin um það að hætta störfum ÞSSÍ á Srí Lanka. Gæslulið- arnir heim STJÓRN Norðurorku hf. hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna bilana í Sultartangastöð og boðaðrar raf- orkuskerðingar af hálfu Landsvirkj- unar á ótryggðu rafmagni til al- menningsveitna og afgangsorku til stóriðju á Suður- og Vesturlandi. Telur stjórn Norðurorku ástandið alvarlegt og segir í yfirlýsingu: „Það ástand sem ríkir í flutnings- kerfi Landsnets er með öllu óviðun- andi fyrir landsmenn alla. Nauðsyn- legt er að Byggðalína verði styrkt hið fyrsta þannig að hægt sé að flytja mun meiri raforku um hana en nú er. Áðurnefndar bilanir í Sultartanga- stöð Landsvirkjunar sýna glöggt að slík styrking kæmi ekki bara þeim svæðum sem nú búa við algerlega óviðunandi flutningsgetu, svo sem Norður- og Austurland, til góða heldur einnig Suðvestur- og Vestur- landi. Það er því mat stjórnar Norð- urorku hf. að óhjákvæmilegt sé að nú þegar verði ráðist í styrkingu á kerfi Landsnets og fjármunir til þess verks komi úr ríkissjóði. Hér er um að ræða sameiginlegt hagsmunamál allra landsmanna enda ber að líta á flutningskerfi raforku á sama hátt og þjóðvegi, hafnir og flugvelli lands- ins.“ Vilja styrkja Byggðalínu ♦♦♦ Staðgreiðsla 2008 Nánari upplýsingar eru á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is Um leið og ríkisskattstjóri óskar landsmönnum gæfuríks árs er minnt á að frá 1. janúar sl. tóku nýjar fjárhæðir gildi í staðgreiðslu. Skatthlutfall er óbreytt 35,72% Persónuafsláttur er kr. 408.409 fyrir árið eða kr. 34.034 á mánuði Skattleysismörk eru kr. 1.191.002 fyrir árið miðað við að greidd séu 4% af launum í lífeyrissjóð Sjómannaafsláttur er 874 kr. á dag. Frítekjumark barna 15 ára og yngri er 100.745 kr. Almennt tryggingagjald er 5,34%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.