Morgunblaðið - 17.01.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 13
ERLENT
MITT Romney, fyrrverandi rík-
isstjóri í Massachusetts, sigraði í
forkosningum repúblikana í Mic-
higan á þriðjudag og hlaut nær 39%
atkvæða. Annar varð John McCain,
öldungadeildarþingmaður frá Ari-
zona, með um 30%. Þriðji varð Mike
Huckabee með um 16%.
McCain sigraði í New Hampshire
en Huckabee, sem er fyrrverandi
ríkisstjóri í Arkansas, í Iowa og er
því ljóst að allt getur gerst í baráttu
repúblikana. Spá sumir að niður-
staðan verði ekki ljós fyrr en langt
er liðið á sumarið. Enn bíður Rudy
Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í
New York, eftir færi sem hann tel-
ur að muni gefast þegar kosið verð-
ur í Flórída í lok mánaðarins en
Giuliani var mán-
uðum saman tal-
inn líklegastur til
að verða forseta-
efni flokksins.
Romney, sem er
auðugur mor-
móni, stóð hins
vegar vel að vígi
í Michigan, faðir
hans var þar
lengi ríkisstjóri og eiginkonan er
frá ríkinu. Segja fréttaskýrendur
því að hefði Romney ekki sigrað á
þriðjudag hefði hann gefist upp. En
sigurinn mun, hvað sem því líður,
efla mjög baráttukjarkinn hjá
frambjóðandanum og liðsmönnum
hans.
Romney sigraði í forkosning-
um repúblikana í Michigan
Mitt Romney
FRANSKA olíufélagið Total og þrír
aðrir aðilar voru í gær dæmdir til
að greiða alls 192 milljónir evra, um
19 milljarða króna, í skaðabætur
vegna mengunarslyss í kjölfar þess
að olíuskipið Erika sökk við Bret-
agneskaga í desember 1999. 20-30
þúsund tonn af olíu láku í sjóinn og
drápust um 75 þúsund fuglar.
Alls voru 15 aðilar sóttir til saka í
tengslum við málið en þeir lýstu all-
ir yfir sakleysi sínu. Samkvæmt nið-
urstöðu dómsins átti Total að vera
ljóst hve slæmt ástand skipsins var
en það var 25 ára gamalt og viðhald
þess lélegt.
Slysið Skutur Eriku er skipið var
að sökkva í Biskajaflóa 1999.
Reuters
Greiða 19 milljarða króna
bætur vegna Eriku-slyssins
VETURINN á Grænlandi er sá
kaldasti í 10 ár og óvenju mikill ís á
Diskóflóa. „Frá árinu 2004 hefur
ekki verið ís á Diskóflóa en nú er ís-
inn allt að 50 cm að þykkt. Frá jól-
um hefur sterk norðanátt verið
ríkjandi og valdið nístingkulda á
svæðinu,“ segir segir Henrik
Matthiesen, starfsmaður dönsku
veðurstofunnar á svæðinu, í samtali
við fréttavef Jyllandsposten.
Ilulissat-jökullinn við Diskóflóa
hefur hopað mjög á undanförnum
tíu til tuttugu árum. Bráðnun jök-
ulsins hefur á undanförnum árum
oft verið nefnd sem merki um áhrif
hlýnandi loftslags.
Óvenju kalt
á Grænlandi
Reuters
Ísjakar Fiskibátur við mynni Jak-
obshafnarfjarðar, skammt frá Ilul-
issatfirði, í maí síðastliðnum.
BANDARÍSKUR dómari hefur úr-
skurðað að Líbýustjórn skuli greiða
aðstandendum fórnarlamba Loc-
kerbie-tilræðisins 1989 sex millj-
arða dollara í bætur. Líbýumenn
eru taldir hafa skipulagt tilræðið
sem varð 270 manns að bana.
Líbýa borgi
STJÓRNVÖLD í Afganistan hafa
bannað kvikmyndina Flugdreka-
hlauparann eftir sögu Khaled
Hosseinis. Segja þau að atriði þar
sem sýnd er nauðgun á ungum
dreng ýti undir kryt milli hinna
mörgu þjóðarbrota í landinu.
Banna hlaupara
JONATHAN
Motzfeldt hyggst
segja af sér emb-
ætti forseta
grænlenska
landsþingsins.
Danskir fjöl-
miðlar segja
ákvörðun Motz-
feldts, sem er 69
ára, koma í kjöl-
far þess að grænlensk kona, sem
starfar á skrifstofu þingsins, hafi
sakað hann um kynferðislega
áreitni.
Konan segir að árásin hafi verið
gerð á salerni á heimili Motzfelds
er þar var haldin veisla. Motzfeldt
segir í yfirlýsingu að hann sé með
hreina samvisku, hann hafi ekki á
neinn hátt áreitt umræddan sam-
starfsmann sinn. Segist Motzfeldt
ætla að hreinsa mannorð sitt með
aðstoð réttarkerfisins.
Sakaður
um áreitni
Jonathan Motzfeldt
YFIRVÖLD í Víetnam hafa skipað
kaþólikkum í Hanoi að binda enda á
bænafundi þar sem krafist er þess
að kirkjan fái aftur eignir sem þjóð-
nýttar voru á sjötta áratugnum. Um
sex milljónir af alls 84 milljónum
íbúa landsins eru kaþólskar.
Andóf í Hanoi
MATVÆLA- og lyfjastofnun Bandaríkjanna, FDA, sagði í gær í yfirlýsingu
að kjöt- og mjólkurafurðir einræktaðra (klónaðra) dýra væru ekki hættu-
legri neytendum en hefðbundnar afurðir. Embættismaður FDA, Randall
Lutter, sagði að niðurstaðan byggðist á sex ára rannsóknum og ekki yrði
gerð krafa um að afurðir klónaðra dýra yrðu merktar sérstaklega. And-
stæðingar einræktunar mótmæltu harðlega úrskurði FDA og Barbara
Mikulski öldungadeildarþingmaður sakaði stofnunina um „fífldirfsku“.
Yfir 60% Bandaríkjamanna telja siðferðislega rangt að klóna dýr. Talið er
að mörg ár líði áður en afurðir einræktaðra dýra verði á boðstólum.
Leyfa afurðir klónaðra dýra
STUTT
STARFSEMI bresku menningar-
stofnunarinnar British Council lagð-
ist niður í Sankti Pétursborg í gær
þegar rússneska öryggislögreglan
yfirheyrði starfsmenn stofnunarinn-
ar. David Miliband, utanríkisráð-
herra Bretlands, mótmælti aðgerð-
um lögreglunnar. „Þvinganir eða
áreitni af þessu tagi er auðvitað al-
gerlega óviðunandi,“ sagði hann.
Áður hafði British Council neitað
að verða við kröfu rússneskra yfir-
valda um að loka skrifstofum stofn-
unarinnar í Sankti Pétursborg og
Jekaterínbúrg vegna meintra brota
á skattalögum. Loka þurfti þó skrif-
stofunni í Sankti Pétursborg um
stundarsakir í gær þegar rússneskir
starfsmenn hennar voru boðaðir til
yfirheyrslu hjá öryggislögreglunni,
FSB. Kvöldið áður yfirheyrðu emb-
ættismenn rússneska innanríkis-
ráðuneytisins starfsmennina á heim-
ilum þeirra.
Rússneska lögreglan yfirheyrði
einnig Stephen Kinnock, yfirmann
skrifstofunnar í Sankti Pétursborg,
vegna meints umferðarlagabrots.
Lögreglumenn, sem handtóku hann,
grunuðu hann um ölvunarakstur en
hann neitaði að gangast undir blóð-
próf og kvaðst njóta friðhelgi sem
stjórnarerindreki.
Stephen Kinnock er sonur Neils
Kinnocks, fyrrverandi leiðtoga
breska Verkamannaflokksins, og
eiginmaður Helle Thorning-
Schmidt, formanns danskra jafnað-
armanna. „Þetta er enn eitt dæmið
um áreitni rússneskra yfirvalda við
Stephen og aðra breska diplómata,“
sagði Thorning-Schmidt.
„Áreitni“ rússneskra
yfirvalda mótmælt
Starfsmenn British Council í Sankti Pétursborg yfirheyrðir
VOPNAHLÉSSAMNINGUR
stjórnvalda á Srí Lanka og samtaka
Tamíl-Tígra frá árinu 2002 rann út í
gær en stjórnin sagði honum upp
fyrr í mánuðinum. Samningurinn
hefur gilt frá árinu 2002 og höfðu
Norðmenn milligöngu um að koma
honum á koppinn.
Norðmenn og Íslendingar hafa
starfrækt samnorrænu eftirlitssveit-
irnar, SLMM, til að fylgjast með
vopnahléinu en Finnar, Danir og
Svíar hættu þátttöku að kröfu Tam-
íl-Tígra árið 2006. Var ástæðan sú að
Evrópusambandið, sem ríkin þrjú
eiga aðild að, hefur skilgreint sam-
tök Tígranna sem hryðjuverkasam-
tök. Báðir aðilar hafa síðustu árin
gagnrýnt eftirlitsmennina, stjórn-
völd í Colombo hafa sakað þá um að
standa með Tígrunum en hinir síð-
arnefndu hafa sagt þá of aðgerða-
litla. Talsmaður herja landsins,
Keheliya Rambuwella, kvaddi sveit-
irnar með því að segja SLMM vera
„gagnslausa“ stofnun.
Yfirmaður SLMM, Norðmaðurinn
Lars Johan Sølvberg, vísaði um-
ræddri gagnrýni á bug skömmu fyrir
brottförina í gær. Hann viðurkenndi
að sumir hefðu hatað sveitirnar en
liðsmenn þeirra hefðu ávallt reynt að
sýna algert hlutleysi. Hann lýsti von-
brigðum sínum með að aftur væru
hafin átök og sagðist vona að frið-
arviðræður yrðu hafnar á ný við
fyrsta tækifæri. Ekki væri hægt að
leysa þessa flóknu deilu með vopn-
um.
„Ég tel það skyldu mína að tjá
þessa niðurstöðu nú þegar við ljúk-
um störfum okkar enda þótt það sé
ekki hlutverk SLMM að gefa deilu-
aðilum eða öðrum ráð varðandi
vopnahléssamninginn og leiðir til að
finna lausn,“ sagði Sølvberg.
Mannskætt tilræði við Buttala
Alls voru undir lokin níu Íslend-
ingar og 22 Norðmenn á vegum
SLMM á Srí Lanka. Átökin hafa
staðið yfir í meira en tvo áratugi og
minnst 60.000 manns hafa látið lífið í
bardögum og hryðjuverkum.
Þrátt fyrir vopnahléið hefur verið
barist og um 5.000 manns hafa fallið
frá 2005. Var svo komið í fyrra að
talsmenn SLMM sögðu að þeir hefðu
ekki lengur tölu á vopnahlésbrotun-
um. Í gær féllu minnst 26 manns í
sprengju- og skotárás á rútu í suð-
austurhlutanum. Vegsprengja
sprakk nálægt borginni Buttala þeg-
ar rútan ók þar um. Farþegarnir
reyndu að forða sér út en þá var
skotið á hópinn.
Segja deiluna ekki
leysta með vopnum
Norræna eftirlitsliðið kveður Srí Lanka þar sem vopna-
hléssamningurinn frá 2002 er ekki lengur í gildi
Reuters
Kveður Lars Johan Sølvberg á
blaðamannafundi í Colombo í gær.
Í HNOTSKURN
»Tamíl-Tígrarnir vilja stofnasjálfstætt ríki þjóðarbrots
Tamíla, sem eru flestir hindúar
en mikill meirihluti Srí Lanka-
manna er af þjóðerni Sinhala og
játar búddatrú.
»Stjórnarhernum hefur orðiðtalsvert ágengt síðustu vik-
urnar og m.a. náð að fella eða
særa suma forystumenn and-
stæðinganna. Sögðu stjórnvöld í
desember að þau ætluðu að grípa
tækifærið og ganga milli bols og
höfuðs á samtökum Tígranna.
TVEIR menn biðu bana og nokkrir særðust þegar lög-
reglumenn hleyptu af byssum til að hindra fjöldamót-
mæli sem stjórnarandstaðan í Kenýa hugðist hefja í
gær vegna meintra svika í forsetakosningum 27. des-
ember. Mótmælendur í borginni Kisumu halda hér á
líkkistu sem þeir sögðu tilheyra Mwai Kibaki forseta.
AP
Byssum beitt til að hindra mótmæli