Morgunblaðið - 17.01.2008, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 17.01.2008, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 35 Krossgáta Lárétt | 1 slæpast, 4 binda, 7 brennur, 8 svíf- um, 9 hnöttur, 11 hina, 13 forboð, 14 jurt, 15 gamall, 17 smáskip, 20 töf, 22 ferma, 23 hagvirkni, 24 synja, 25 vitlausa. Lóðrétt | 1 svera, 2 geig- ur, 3 forar, 4 stórhýsi, 5 hljóðfæri, 6 formóðirin, 10 skömm, 12 elska, 13 tjara, 15 ólundin, 16 enda- sneið, 18 ekki gamlan, 19 klaufdýra, 20 hamagang, 21 rispa. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 geðveikar, 8 vonar, 9 lægja, 10 góa, 11 lirfa, 13 nurla, 15 solls, 18 safna, 21 ket, 22 rella, 23 efins, 24 kampakáta. Lóðrétt: 2 efnir, 3 varga, 4 iglan, 5 angur, 6 hvel, 7 bata, 12 fól, 14 una, 15 sorg, 16 lilja, 17 skaup, 18 stekk, 19 feitt, 20 assa. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Tjáðu þig í gegnum þinn einstaka stíl, alveg sama hvort einhver sé nálægt til að taka eftir því. Þér líður meiriháttar þeg- ar þú lítur meiriháttar út. (20. apríl - 20. maí)  Naut Samúð er þemað. Það þarfnast átaks að hafa meira af henni, en þú sérð ekki eft- ir að hafa reynt. Sjáðu vandamál frá þrem- ur sjónarhornum áður en þú leysir það. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Losaðu um streituna með æfing- um. Hugsaðu vel um líkamann og allt skýr- ist í hausnum. Í kvöld breytirðu reglunum. Þú mátt það, þetta er þinn leikur. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Draumar þínir tilheyra þér, eða frekar tilheyrir þú draumunum. Leyfðu þeim að leiða þig áfram. Ekki efast um að leiðin sem þú dast niður á sé sú rétta. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Samvinna er ást. Reyndu að láta þér koma vel saman við fólk án þess að hafna eigin sannleika. Þar mun lykillinn reynast fullt af samúð og húmor. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Neikvæðni er viðhorf sem sýgur ánægjuna úr líðandi stundu. Stöðvaðu hugsanir sem gefa þér samviskubit eða minnimáttarkennd. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Ástvinir eru ánægðir – í skýjunum reyndar – að fá að vera með þér! Þar sem þú fílar ekki væmni, vita þeir ekki hvernig þeir geta tjáð þér það. Þú gerir merka upp- götvun í kvöld. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þér bregður þegar þér er boð- in borgun fyrir eitthvað sem þú myndir gera frítt hvenær sem er. Þú getur ekki annað en grætt þegar þú gerir það sem þér finnst skemmtilegt. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Sambönd við ólíklegasta fólk mun færa þér velgengni. Vertu með opinn huga þegar þú ferð út að kynnast fólki. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er næstum ómögulegt að hafa yfirsýn yfir alla atburði dagsins ef þú hugsar of mikið. Hættu því að hugsa og stilltu inn á innsæið. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert í laumi að hlakka til tíma þegar þú þarft ekki að gera það sem þú ert að gera núna. Já, sá dagur mun koma. En reyndu samt að njóta nú-sins. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Hulu er svipt og við sjáum ná- kvæmlega hvers vegna vissar manneskjur leika viss hlutverk í lífinu okkar. Hvernig geturðu þroskast af sýninni og lært af henni? stjörnuspá Holiday Mathis Staðan kom upp á rússneska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Alexey Dreev (2606) hafði svart gegn Alexander Morozevich (2755). 29… f4! 30. gxf4 exf4 31. Bxd4+ Hxd4 32. Kf1 Hd2 svarta stað- an er nú mjög vænleg. Framhaldið varð:33. He6 Be3 34. Hxa5 Hxc2 35. h4 Hd8 36. Hd5 Ha8 37. Hd7+ Kh6 38. Ba6 Hf2+ 39. Ke1 Hxb2 40. h5 Hb1+ 41. Ke2 Hb2+ 42. Ke1 Hxb3 43. hxg6 hxg6 44. Hdd6 Hb1+ 45. Ke2 Hg1 46. Kd3 Hb8 47. Ke2 b3 48. Bd3 Hg8 49. He5 Ha8 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Svíningu hafnað. Norður ♠ÁD42 ♥62 ♦KG5 ♣ÁK96 Vestur Austur ♠73 ♠K8 ♥K98 ♥DG10754 ♦D8763 ♦Á4 ♣1087 ♣D42 Suður ♠G10965 ♥Á3 ♦1092 ♣G53 Suður spilar 4♠. „Ég játa að innákoman er létt, en ég var klaufi að vinna ekki 4♠,“ segir Bjarni Einarsson og dregur upp blað með spili frá Reykjavíkurmótinu. Aust- ur vakti á 1♥ og Bjarni kom fislétt inn á 1♠. Vestur hækkaði í 2♥ og norður stýrði svo sögnum í 4♠. Hvernig á að spila með ♥8 út og tíunni frá austri? „Útspilið virðist vera þriðja hæsta frá ♥K98 og það verður að slá því föstu að ♦D liggi rétt,“ segir Bjarni. „Vestur getur þá varla átt meiri styrk og þess vegna þýðir ekkert að svína í trompi.“ Áætlunin er að svína í tígli og enda- spila austur svo með ♠Á og spaða. Fyrsti slagurinn er dúkkaður. Austur spilar áfram hjarta á ás suðurs og sagnhafi hleypir strax ♦10. Austur drepur og spilar tígli upp í KG (best), en það er aðeins stundarfriður. Sagn- hafi leggur niður ♠Á og spilar þriðja tíglinum. Væntanlega hendir austur, en hann lendir inni á ♠K í næsta slag og verður þá að spila frá ♣D. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Rækjuvinnslu hefur verið hætt á Akureyri. Hvað heitirfyrirtækið? 2 Framkvæmdastjóri Faxaflóahafna er ósammála því aðSundabrautaleið þurfi að fara í opinbert útboð. Hver er hann? 3 Níu sóttu um embætti sem forsætisráðherra munskipa í. Hvaða embætti er það? 4 Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur hleypt afstokkunum ímyndarátaki. Hver er formaður félagsins? Svör við spurn- ingum gærdagsins: 1. Íslenskum mynd- listarmanni hefur ver- ið falið að koma upp fjórum fjossum í ánni East River milli Man- hattan og Brooklyn. Hver er hann? Svar: Ólafur Elíasson. 2. Komist hefur upp um veiðiþjófnað í á í nágrenni Reykjavíkur. Hvaða á? Svar: Korpu. 3. Íslendingur fundaði með Al Gore um jarðhitamál. Hver var það? Svar: Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysir Green Energy. 4. Nýliði í handknattleikslandsliðinu fór mikinn í leiknum við Tékka og skoraði 7 mörk í 8 tilraunum. Hver er hann? Svar: Hannes Jón Jónsson. Spurter… ritstjorn@mbl.is Árvakur/Einar Falur dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR ÞRÓUNARSAMVINNUSTOFN- UN Íslands hefur ákveðið að fjár- magna og búa húsgögnum tuttugu skólastofur í níu grunnskólum í tveimur sveitarfélögum á Atlants- hafsströnd Níkaragva, Bluefields og Puerto Cabezas. Um er að ræða þríhliða samstarfssamning ÞSSÍ, menntamálaráðuneytis Níkaragva (MINED) og hvorrar sveitar- stjórnar um sig. Framlag ÞSSÍ, sem er um 80% af heildarkostnaði við verkið, verð- ur greitt til sveitarstjórnanna sem sjá svo um að ráða verktaka til verksins. Framkvæmd verkefnisins verður í höndum menntamálaráðu- neytisins sem leggur til 20% mót- framlag í verkefnið. Mótframlagið felst í vinnuframlagi en ÞSSÍ mun gegna eftirlitshlutverki út sam- starfstímabilið. Áætlað er að bygg- ing skólastofanna taki sex mánuði. Fram kemur í fréttatilkynningu að samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðuneytinu muni rúmlega 3.700 börn njóta góðs af byggingu þessara tuttugu skóla- stofa. Fjármagna byggingu skólastofa í Níkaragva Menntun Einn af skólapiltunum í Bluefields á Atlantshasströnd Ník- aragva sem kemur til með að njóta góðs af nýju skólastofunum. FÉLÖG Frjálslynda flokksins í Reykjavík norður og suður fagna því að Mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna hafi staðfest að gjafa- kvótakerfið er ólögmætt, ósann- gjarnt og brýtur gegn mannrétt- indum fólksins í landinu. Frjálslyndi flokkurinn hefur ávallt haldið því fram að kvótakerf- ið brjóti í bága við ákvæði stjórn- arskrárinnar um atvinnufrelsi og jafnrétti borgaranna. Félög Frjálslyndra í Reykjavík skora á ríkisstjórnina að líta til vandaðra tillagna Frjálslyndra í sjávarútvegsmálum þegar í stað, í þeim tilgangi að móta nýja og hag- kvæma fiskveiðistefnu, í sátt við þjóðina, þar sem mannréttindi eru virt í hvívetna. Kvótakerfið hefur leitt af sér byggðaröskun, helstu fiskistofnar eru í sögulegri lægð, útvegurinn skuldar þrefalda árs- veltu og er í miklum vanda. Nú þeg- ar staðfest hefur verið að í kvóta- kerfinu felast mannréttindabrot rennur Frjálslyndum blóðið til skyldunnar að bjóða ríkisstjórninni aðstoð sína við að koma þjóðinni úr þessum vanda, segir í fréttatilkynn- ingu. Frjálslyndir bjóða aðstoð ALMENNUR fundur á vegum 60+ í Hafnarfirði verður haldinn laug- ardaginn 19. janúar kl. 11 f.h. að Strandgötu 43 Hafnarfirði. Þar mun félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, halda ræðu: „Nýir tímar í félagsmálum á Íslandi“. Guðmundur Rúnar Árna- son, formaður fjölskylduráðs, skýrir stöðu og framtíðarsýn í öldrunarmálum í Hafnarfirði. Einnig munu flytja tölu Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og Gunnar Svavarsson formaður fjár- laganefndar Alþingis, segir í frétt frá stjórn 60+. Súpa, tónlist og ljóðalestur. Allir velkomnir. Eftirlauna- og öldrunarmál í brennidepli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.