Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 4
Vegagerð Í gær var gert við hringveginn við Svignaskarð. SKARÐ myndaðist í þjóðveg 1 við Svignaskarð í Borgarfirði í fyrri- nótt og lokaðist vegurinn af þeim sökum. Umferð var beint um Borgarfjarðarbraut á meðan. Við- gerð hófst strax í gærmorgun en ekki tókst að ljúka henni í gær. Samkvæmt upplýsingum Vega- gerðarinnar grófst vegurinn í sundur við ræsi nálægt Daníels- lundi. Ræsið var talið hafa stíflast af klaka og safnaðist mikið leys- ingavatn norðan við veginn og flæddi alveg upp að fjögurra metra hárri vegarbrúninni. Um 200 til 300 m3 af fyllingarefni runnu úr veginum og myndaðist nærri tveggja metra djúp geil í veginn. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar í Borgarnesi átti að setja stærra ræsi í stað þess sem stíflaðist og fylla aftur í veg- arstæðið. Tjónið var talið hlaupa á nokkrum milljónum króna. Víðar um Borgarfjarðarhérað urðu vatnavextir en flestar ár höfðu rutt sig með miklum látum. Þannig stíflaðist brúin á Litla- fljótinu neðan við Fljótstungu vegna íss og fór að flæða þar yfir veginn. Þá hækkaði mikið í Hvítá og fór að renna yfir tún og engjar við Hvítárvelli. Eysteinn Bergþórsson, bóndi á Högnastöðum, fór að bænum Kví- um í Þverárhlíð í gær til að ryðja íshröngli af heimreiðinni. Litla- Þverá ruddi sig með miklum látum á sunnudaginn var og fóru klaka- stykkin yfir tún og veg og eyði- lögðu girðingar. Einnig hafði flætt yfir túnin á Högnastöðum en Eysteinn gerði lítið úr því, sagði það alvanalegt og það hefði oft verið verra en þetta. Jakarnir bera með sér grjót sem verður eftir á túnunum. Ey- steinn sagðist vera vanur því. Hann sagði að allt væri farið að sjatna eftir flóðið á sunnudag. Hann taldi þetta hlaup lítið miðað við þau sem gætu orðið og hefðu orðið í gegnum tíðina. Þorsteinn Eggertsson, bóndi í Kvíum II, sagði í gær að áin væri að sjatna og farin að renna í far- vegi sínum. Hann sagði hlaupið einkum hafa valdið skemmdum á girðingum. Hann sagði að það yrði ekki vitað fyrr en færi að vora hvort túnin hefðu beðið var- anlegan skaða. Íshrönnin gæti enst fram eftir vetri. Þorsteinn sagði að síðast hefði áin farið svona líklega árið 1968. Það sem gerðist var að Litla-Þverá ruddi sig að hluta á milli jóla og nýárs og stíflaðist rétt við bæinn. Sú stífla er búin að frjósa vel saman. Á sunnudag kom flóð í ána í tveimur gusum. Sú fyrri stoppaði í gömlu stíflunni en sú seinni æddi yfir allt þar til gamla stíflan brast. Unnið að viðgerð á hringveginum við Svignaskarð í gær Hringveg- ur lokaðist í vatna- vöxtum Flóð Víða í Borgarfirði urðu flóð vegna leysinga um helgina. Mikill straumur var enn í Síkjunum vestan við Ferjukot í gær. Árvakur/RAX 4 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DANSKA sjónvarpsstöðin TV2 greindi frá því í gærkvöldi að ís- lenskir feðgar hefðu verið hand- teknir fyrir líkamsárás í Langebæk, skammt frá bænum Vordingborg á Sjálandi. Mennirnir eru sagðir hafa ferðast um 2.500 kílómetra leið frá Reykja- vík til að hitta þann sem ráðist var á. Að því er fram kom á fréttavef TV2 er fórnarlambið sambýlismað- ur fyrrum eiginkonu annars árás- armannsins. Feðgarnir réðust á manninn á heimili hans og veittu honum m.a. áverka með járnröri. Konan hringdi meðan á árásinni stóð á lögreglu og voru feðgarnir, fimmtugur karlmaður og átján ára sonur hans, handteknir á staðnum. Sá sem ráðist var á hlaut nokkra áverka og var fluttur á sjúkrahús. Feðgarnir hafa síðan verið látnir lausir þar sem ekki þótti ástæða til að krefjast gæsluvarðhalds, en þeir eiga yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi ef þeir verða fundnir sekir um árásina. Réðust á mann með járnröri í Danmörku Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Á SAMA tíma og minni vinnu er að fá hér á landi hefur atvinnuástand í Pól- landi batnað til muna með auknum hagvexti. Sökum þessa sækjast sí- fellt færri Pólverjar eftir því að koma til Íslands og vinna. Þetta segir Frið- rik Gunnarsson, kjörræðismaður Póllands á Íslandi. „Pólland er á upp- leið, þar er sterkur hagvöxtur og efnahagsástandið batnar með hverj- um mánuðinum, auk þess sem launin fara almennt hækkandi. Nú um stundir vantar margt starfsfólk í Pól- landi, sérstaklega í byggingarvinnu og skipasmíði,“ segir Friðrik. Í The Times var um helgina greint frá því að síðan Pólland gekk í Evr- ópusambandið í ársbyrjun 2004 hafi rúmlega 274 þúsund Pólverjar fengið atvinnuleyfi í Bretlandi. Nú hafi minnkandi efnahagsumsvif í Bret- landi, það að pundið hefur veikst og óvenjumikill efnahagsbati í Póllandi dregið úr áhuga Pólverja á að vera áfram á breskum vinnumarkaði og kjósi þeir því fremur að snúa aftur heim. Útgefin E-301-vottorð aldrei verið fleiri hérlendis Á vef pólsku hagstofunnar má sjá að vinnuhorfur hafa batnað mjög á sl. misserum. Þannig er ekki ýkja langt síðan atvinnuleysi í Póllandi mældist yfir 20% eða í árslok 2003. Í nóvem- ber 2007 mældist atvinnuleysi hins vegar rétt rúmlega 11%. Að sögn Drafnar Haraldsdóttur, yfirmanns EURES, stýrist fjöldi er- lendra ríkisborgara á íslenskum vinnumarkaði fyrst og fremst af at- vinnueftirspurn. Meðan næga vinnu sé að hafa og mikil eftirspurn eftir vinnandi höndum sé straumur er- lends vinnuafls til landsins mikill. Hins vegar sé að hægja á eftirspurn- inni, enda mælist atvinnuleysi hér- lendis aðeins um 1% á landinu öllu og 0,6% á höfuðborgarsvæðinu. Að mati Drafnar sjást skýr merki þess að þeir starfsmenn sem komið hafi til landsins til að vinna í tíma- bundnum verkefnum fyrir austan virðist langflestir snúa aftur heim. Bendir hún á að þetta merki starfs- menn Vinnumálastofnunar fyrst og fremst af stórauknum fjölda útgef- inna E-301-vottorða á sl. mánuðum, en þau vottorð nýtast einstaklingum sem hyggja á atvinnuleit í öðru EES- landi til að sýna fram á að þeir hafi verið atvinnuleysistryggðir á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum frá Jón- geiri H. Hlinasyni, deildarstjóra at- vinnuleysistrygginga hjá Vinnumála- stofnun, voru árið 2004 alls gefin út 377 E-301-vottorð, þar af voru 8 gefin út til Póllands, árið 2005 voru alls gefin 425 vottorð, þar af 8 til Pól- lands, árið 2006 voru alls gefin út 494 vottorð, þar af 50 til Póllands og árið 2007 voru alls gefin út 1.208 vottorð, þar af 798 til Póllands. Í janúar 2008 voru gefin út alls 370 vottorð, þar af 259 til Póllands. Að sögn Jóngeirs er mikill fjöldi umsókna um E-301-vott- orð fyrirliggjandi á þessari stundu. Aðspurður segir hann aukninguna fyrst og fremst skýrast af því að framkvæmdum fyrir austan sé að mestu lokið og Pólverjar að snúa til síns heima eftir vertíðina. Samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofunni voru erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í lok ágúst 2006 um 22 þúsund. Hjá Vinnumálastofnun áætla menn að yfir 17 þúsund erlend- ir ríkisborgarar séu á íslenskum vinnumarkaði og að í þeim hópi séu Pólverjar fjölmennastir eða um 70%. Að sögn kjörræðismanns Póllands á Íslandi skýrist aukinn hagvöxtur í Póllandi m.a. af því að mikið hafi ver- ið fjárfest í landinu og töluvert um að framleiðsla hafi verið flutt til Pól- lands frá bæði Þýskalandi og Norð- urlöndunum. Friðrik áætlar að á síð- ustu misserum hafi í kringum 20 þúsund Pólverjar dvalið hérlendis við störf á hverjum tíma. „Þar af er um helmingur skráður. Hinn helmingur- inn getur hins vegar komið og farið án nokkurrar skráningar, því það fólk komi hingað og vinni alltaf skem- ur en þrjá mánuði í einu og þurfi því hvorki dvalar- eða atvinnuleyfi. Þeir vinna þá myrkranna á milli, helst alla daga vikunnar, þann stutta tíma sem þeir eru hérna og fara svo aftur heim. Ef þeim byðist bara dagvinna hefðu þeir ekki áhuga á að dvelja hér og vinna, því þeir eru hér bara á vertíð,“ segir Friðrik. Pólverjar snúa í aukn- um mæli aftur heim Atvinnuleysi í Póllandi farið úr 20% í 11% á skömmum tíma       4( 54   %  6    % ( ()   78/ 788 7"# 7"- 7"/7"! ! !  !  "#!! " # "#! Alltaf í sambandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.