Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gunnar IngiIngimundarson fæddist á Hólmavík 21. janúar 1969. Hann lést á Líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 10. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Ingimundur Lofts- son, f. 22. júlí 1921, d. 15. ágúst 1983, og Ragna Kristín Árnadóttir, f. 9. júní 1931. Þau stunduðu búskap á Hafn- arhólmi í Strandasýslu til ársins 1969 en þá fluttu þau á Drangsnes þar sem Gunnar ólst upp. Bróðir Gunnars samfeðra er Sigurður Jón, f. 3. febrúar 1944, d. 11. maí 1983. Systkini Gunnars eru Guð- rún, f. 19. apríl 1947, maki Þór- arinn Guðjónsson, þau eiga 2 börn; Hermann, f. 9. júní 1948, maki Kristina Stankiewicz, þau eiga 1 barn, Hermann á 4 börn frá fyrra hjónabandi; Árni, f. 2. mars 1950, maki Kristbjörg J. Magn- úsdóttir, þau eiga 4 börn; Guð- brandur, f. 14. maí 1951, maki Pálína Kristín Árnadóttir, þau eiga 3 börn; Svanur Hólm, f. 27. desember 1952; Loftur, f. 12. júní 1954, d. 17. desember 1977, maki Stefanía Jónsdóttir, þau eiga 2 börn; Hanna, f. 8. nóvember 1955, maki Jón H. Björnsson, þau eiga 2 börn; Hafdís, f. 17. apríl 1958, maki Sigurður R. Sigurbjörnsson, þau eiga 2 börn; og Erling, f. 15. september 1960. Gunnar gekk í Grunnskólann á Drangsnesi, Klúkuskóla í Bjarnarfirði, Reyk- holt og síðan Iðn- skólann í Reykjavík. Gunnar stundaði sjó og ýmis önnur störf á Drangsnesi. Í febrúar 1988 hóf Gunnar sambúð með Lindu Gúst- afsdóttur, f. 3. febr- úar 1968, og fluttu þau til Sandgerðis 1989. Á Suð- urnesjum vann Gunnar ýmis iðn- aðarstörf, en síðast- liðin 9 ár rak hann sitt eigið verkstæði við fram- leiðslu á útileiktækjum. Gunnar og Linda giftu sig hinn 4. nóv- ember 2006. Börn þeirra eru, Sara María, f. 29. maí 1990, unn- usti Egill Ragnar Brynjarsson, f. 27. apríl 1988, Guðjón Ingi, f. 28. mars 1994, Unnur Ágústa, f. 27. ágúst 1995, og Sverrir Svanhólm, f. 4. mars 1997. Foreldrar Lindu eru Unnur Guðjónsdóttir, f. 3. september 1951, gift Sverri Jóns- syni, f. 9. maí 1947, og Gústaf Adolf Ólafsson, f. 12. janúar 1949. Systkini Lindu sammæðra eru Ásdís, maki Baldur Andri Stef- ánsson, þau eiga 2 börn; Árný, maki Rushit Derti, og Sverrir Rúts. Systkini Lindu samfeðra eru Vilbert, maki Linda Sig- urbjörnsdóttir, þau eiga 2 börn; Arnviður, hann á 3 börn, Ólafía, hún á 1 barn, Jóhann, og Gústaf, maki Agnes Valgeirsdóttir, þau eiga 1 barn. Útför Gunnars Inga fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Gunnar minn. Tárin bara renna og renna. Kökkurinn í hálsinum verður sí- fellt stærri. Ég get ekki horft fram á veginn, það vantar faðminn þinn. Ég veit ég mun spjara mig en það verður erfitt. Við áttum eftir að gera svo margt saman, ekkert verður eins án þín. Hvers vegna þú, elsku Gunnar, hvers vegna? Börnin okkar svo ung, þau þurfa pabba, ég finn svo til með þeim. Ég mun reyna að vera þeim allt sem ég get og minna þau á ást okkar og væntumþykju og endalausa ást okkar á þeim. Elsku Gunnar, takk fyrir allt sem við áttum saman. Þín Linda. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi, pabbi minn. Vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú. Þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til. Nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut, gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar, pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir.) Við elskum þig pabbi. Sara, Egill, Guðjón, Unnur og Sverrir Svanhólm. Elsku pabbi minn, núna ertu kom- inn á þann stað sem alla dreymir um að sjá og vita um. Við munum aldrei gleyma því þeg- ar þú varst að vekja mig á hverjum degi fyrir skólann og varst alltaf al- veg rosalega þolinmóður við mig og svo endaði það með því að ég fékk ís- kalt vatn á mig og var alveg brjáluð og svo sá ég litla púkaglottið á þér, ha,ha,ha,ha, en við vitum öll að þetta var allt umhyggja frá þér. Svo fékk ég að heyra það um dag- inn að þú söngst næstum því á hverj- um degi fyrir mig og spilaðir á gít- arinn þegar ég var lítil, og það var alveg frábært að fá að vita það, ég man alltaf svo vel eftir því þegar við vorum oft tvö uppi í herbergi að spila og syngja saman, það var alveg ros- lega notalegt og svo þegar þú varst að spila öll uppáhaldslögin mín þá kom ég og kíkti á þig og það varst þú sem kenndir mér allt í sambandi við tóln- ist og mér leiðist það nú ekki að hafa genin hans pabba. Það er bara svo frábært að muna svona mikið þegar ég fer og lít til baka, t.d. þegar ég var í fótboltanum þá sá ég alltaf bros hjá þér og svo þegar ég gerði eitthvað þá pikkaðir þú í mig og sagðir: Sara, ekki vera svona hörð, þetta eru bara stelpur. Og svo hlógum við. Svo fannst þér alveg voðalega gott að vera í vinnunni en þegar þú varst í fríi um helgar þá fórum við oft í ferða- lög sem var mjög gaman. Nema í eitt skipti þegar ég var að rifna úr gelgju og var aldrei heima, þá fóruð þið á Vigdísarvelli með mig, ekkert síma- samband og ekkert nema fellihýsi, kamar og tennis og ég var ekki alveg sátt, ég man svo vel eftir því þegar ég hljóp upp á kletta og öskraði og þá kallaðir þú: Sara, passaðu þig að reb- barnir komi ekki og bíti þig, og ég hljóp inn í fellihýsi og var þar allan daginn og þú hlóst bara en svo var þetta bara rosalega gaman. En svo kom þetta áfall þegar þú greindist með krabbamein og þá héldum við að allt væri búið hjá þér en svo virtist sko ekki því þú komst sí- fellt á óvart sem var alveg ótrúlegt. Þú ætlaðir að ná þér fyrir okkur, þú sýndir okkur öllum hversu heitt þú elskaðir okkur og við metum það til mikils. Og þú hefur alltaf gefið okkur góðan styrk. Þú hrósaðir mér alltaf hvað ég stóð mig vel í því sem ég gerði, t.d. með styrktartónleikana, ég sá hvað þú varst hamingjusamur og mér fannst frábært að ég gat glatt ykkur mömmu og það er ennþá talað um þetta í dag sem er rosalega gam- an að heyra. Svo verð ég bara að minna þig á hversu góður þú varst þegar við Gunnar Ingi Ingimundarson Elsku sonur minn. Takk fyrir alla þá ástúð og hetju- dáð sem þú hefur sýnt mér á þessum stundum. Það verður mér ómetanlegt þegar fram líða stundir. Nú veit ég að þú ert í öruggum höndum hjá föður þínum og bræðrum. Þakka þér fyrir allt, Guð blessi þig. Þín mamma. Ég óska þess að þú værir hér, vegna þess að þú brosir svo fallega, þú hlærð svo ljúft, þú ert svo fallegur, ljúf- ur og góður, af því að þú ert faðir minn. Þín Unnur. Elsku Gunnar minn. Nú ertu komin á betri stað eftir erfiða baráttu við veikindin. Þegar ég spurði þig hvernig þú hefðir það svaraðir þú ávallt bara fínt eða mjög gott. Þú kvartaðir aldrei og þú varst svo sterkur. Elsku Gunnar, mér þykir ótrúlega vænt um þig. Elsku Linda og börn, megi Guð hjálpa ykkur í gegnum sorgina og vaka yfir ykkur og fjölskyldum. Rushit Derti. Dimitri. HINSTA KVEÐJA ✝ Okkar ástkæri, JÓN HILMAR SIGURÐSSON, líffræðingur, frá Úthlíð, Sléttuvegi 13, Reykjavík, varð bráðkvaddur að heimili sínu miðvikudaginn 16. febrúar. Gísli Sigurðsson, Jóhanna Bjarnadóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Björn Sigurðsson, Sigrún Sigurðardóttir, Guðmundur Arason, Kristín Sigurðardóttir, Werner Rasmusson, Baldur Sigurðsson, Kristbjörg Steingrímsdóttir, Guðný Guðnadóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN BJARNASON, andaðist á Hrafnistu laugardaginn 9. febrúar. Bálför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Grensáss og Hrafnistu fyrir hlýhug og einstaka umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Kristlaug Vilfríður Jónsdóttir og fjölskylda. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ANNA HÄSLER, Sundstræti 36, Ísafirði, lést á fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði föstudaginn 15. febrúar. Bæring Gunnar Jónsson, Hans Georg Bæringsson, Hildigunnur Lóa Högnadóttir, Geir Elvar Bæringsson, Inga Lára Þórhallsdóttir, Gunnar Reynir Bæringsson, Guðrún Arnfinnsdóttir, Gertrud Hildur Bæringsdóttir, Valgeir Guðmundsson, Jón Sigfús Bæringsson, Edda Bentsdóttir, Henry Júlíus Bæringsson, Jóna Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær bróðir okkar, BENEDIKT JÓNASSON, Munkaþverárstræti 44, Akureyri, er látinn. Útför auglýst síðar. Jóna S Jónasdóttir, Jónas Jónasson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA HANNESDÓTTIR, Skálagerði 15, Reykjavík, áður til heimilis að Kolbeinsgötu 6, Vopnafirði, lést á Vífilsstöðum 14. febrúar. Hólmfríður Kjartansdóttir, Sigurður Adolfsson, Inga Hanna Kjartansdóttir, Kjartan Þórir Kjartansson, Áshildur Kristjánsdóttir, Baldur Kjartansson, Hrönn Róbertsdóttir, Erla Kjartansdóttir, Ágúst Borgþór Sverrisson, börn og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, BÁRÐUR SIGURÐSSON, lést á Vífilsstöðum mánudaginn 18. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Katrín Bárðardóttir, Magnús Einarsson, Björgvin Þorleifsson, Jón Gestur Björgvinsson, Natalía Ósk Ríkarðsd. Snædal, Bárður Þór Stefánsson, Jenna Huld Eysteinsdóttir, Pálína Sigurrós Stefánsdóttir, Veigar Grétarsson, Sylvía Kristín Stefánsdóttir, Óskar Sigurðsson og langafabörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, GEIR GÍSLASON, fyrrv. flugmaður, Strandgötu 73b, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 12. febrúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Erna Þorsteinsdóttir, Anna Geirsdóttir, Vilhjálmur Bjarnason, Geir Harrýsson, Erna Rut Vilhjálmsdóttir, Gísli Vilhjálmsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.