Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 20
ferðalög
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
! " #
$ % &
'( )
( # &
#
*+,+ -. / . $0#
'1 $ 2 $ 2
2
)
" 0 3$ $
-#
#
$ $-# "
#
- - 3 04"5633/789!88
5 $ ( #
7:3;<"!837"= !> ?@+ *A,, 7:
3;6"!837BCD,":89!B!"
D+ D
D
DE
!
#$
%
&
!
! ' D,
- kemur þér við
Sérblað fyrir hús-
byggjendur fylgir
blaðinu í dag
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Kennarar á Selfossi í
svitakófi við tölvurnar
Norskur hafnsögu-
maður á flækingi
Lindsay Lohan situr
nakin fyrir
Haffi Haff hjálpar Gilz-
enegger í Eurovision
Dagvaktin gerist á
Hótel Bjarkarlundi
Eftir Fríðu Björnsdóttur
Berist fréttir af seinkunum íflugi til eða frá Íslandifyllast menn oftast pirr-ingi og reiðin sýður í
mörgum. Það er því gaman að geta
lýst því hvernig sólskinsbros getur
færst yfir andlit 189 flugfarþega,
kannski ekki alveg allra, þegar
þeim er tilkynnt að það verði 24
tíma seinkun á fluginu þeirra, og
þeir brosa þótt þeir séu komnir út á
flugvöll í miðri Flórída.
Menn hafa ekki farið varhluta af
vetrarveðrunum hér á Íslandi að
undanförnu, og reyndar ekki heldur
víða annars staðar, þar sem íslensk-
ar flugvélar hafa viðkomu. Yfirleitt
sitjum við heima í stofu og vorkenn-
um þeim sem lenda í þessu óförum
og þökkum fyrir að vera ekki
strandaglópar einhvers staðar í
kulda og trekk. En svo kemur röðin
að manni sjálfum og hvernig er þá
brugðist við?
Sólarhringsseinkun –
böl eða hamingja?
Fjögurra manna fjölskylda yf-
irgaf St. Pete Beech á vesturströnd
Flórída á laugardagsmorgni í
febrúarbyrjun. Það var leiðinlegt að
vera á heimleið en þó, það var
nefnilega farið að rigna, aldrei
þessu vant, á stað sem á met í yfir
700 samfelldum, þurrum sólskins-
dögum. Geri aðrir betur.
Á Sanford-flugvelli norðan Or-
lando var skundað upp að innrit-
unarborðinu og viti menn, íslensk
kona tók á móti farþegunum. „Því
miður, það verður ekki skráð í flug-
ið í bili. Það er 24 tíma seinkun!“
Veðrið hafði verið brjálað á Íslandi
síðasta sólarhringinn og menn ekki
komist lönd né strönd. „Dásam-
legt,“ hrópuðu ferðalangarnir, „þá
fáum við að vera hér í sólinni
áfram.“ Það rigndi nefnilega ekki í
Orlando. „Og Icelandair borgar
auðvitað fyrir hótelið, ekki satt?“
„Nei-ei, seinkunin er vegna veðurs
en ekki bilunar“ sagði konan og
kannski kom agnarlítill skelfing-
arsvipur á andlitið. Hún hefur
áreiðanlega búist við reiðikasti far-
þeganna. „Við erum búin að semja
við Mariott-hótelið hér nokkuð frá
sem býður „distress“ verð á gisting-
unni, ekki nema 87 dollara fyrir
herbergið í nótt.“ (Í orðabókinni
segir distress – kvöl, þjáning, erf-
iðleikar, bágindi, neyð, böl, ógæfa,
óhamingja. Ekkert okkar fann þó
fyrir neinu þessu.)
Tvær konur sem stóðu við hlið
okkur brostu og sögðu bara: „Þá
reynir á kortin.“ Ekki veit ég hvort
þær voru að hugsa um hvort þær
gætu fengið töfina bætta út á
greiðslukortin sín, eða hvort þær
voru búnar að eyða svo miklu nú
þegar að erfitt yrði að þyngja
skuldabaggann.
Útlendingarnir brostu ekki
Víst voru útlendingar, fjölskyldur
með börn, þarna nærri og óhætt er
að fullyrða að ekki var gleðisvipur á
andliti þeirra. Kannski var tengi-
flug í hættu, kannski þurfti fólkið
að komast heim í flýti. Hver veit?
Milli 50 og 100 bókuðu sig inn á
Mariott-hótelið. Sumir fóru beint að
borða, aðrir út að sundlaug hótels-
ins í sólbað og enn aðrir fóru í
gönguferð um nágrennið.
Rétt er að taka fram að hefðum
við opnað tölvuna okkar á Don
CeSar-hótelinu, sem sumir kalla
The Pink Palace, á St. Pete hefðum
við séð tilkynningu frá Icelandair
þar sem farþegum var tjáð að flug-
inu frá Sanford til Reykjavíkur
þennan laugardagsmorgun í febr-
úar myndi seinka verulega og þá
hefðu við vissulega getað frestað för
út á flugvöllinn um sólarhring. Það
gerðu ótal glaðbeittir íslenskir golf-
arar sem komu himinlifandi glaðir á
sunnudaginn og tékkuðu sig inn.
„Dásamlegt að fá heilan dag til við-
bótar á golfvellinum,“ heyrðist sagt
um alla flugstöðina.“ Svona getur
það farið: Að seinkun verði að sól-
arfríi, ef seinkunin á sér stað í Flór-
ída!
Ljósmynd/Fríða
Sólarfrí Hér bíða farþegar eftir því að hótelskutlan aki þeim út á flugvöllinn í Flórída. Þótt bíllinn tæki 10 manns
komst hann ekki með nema 6 eða 7 í einu af því farangur margra var nokkuð mikill!
Þegar seinkun
breytist í sólarfrí
DRYKKJUM og matvælum þar
sem gervisætuefni eru notuð í stað
sykurs kann að fylgja aukin hætta á
að bæta á sig kílóum, sagði í breska
dagblaðinu Times á dögunum.
Vísindamenn við Purdue háskól-
ann í Indiana segja að þótt gervi-
sætunni sé ætlað það hlutverk að
draga úr þeim fjölda hitaeininga
sem við neytum, bendi ýmislegt til
þess að við borðum og drekkum
einfaldlega meira í staðinn.
Gerð var rannsókn á rottum sem
látnar voru borða jógúrt og sýndi
það sig að þær rottur sem fengu
jógúrt með gervisætu borðuðu
meira og þyngdust þar af leiðandi
meira en þær rottur sem voru látn-
ar borða venjulega jógúrt.
Að sögn þeirra Susan Swithers
og Terry Davidson, sem fóru fyrir
rannsókninni, virðist sú aðferð að
rjúfa tengslin milli sætutilfinning-
arinnar og hitaeiningafjölda með
því að nota gervisætu gera lík-
amanum erfiðara fyrir með að hafa
stjórn á því hversu margar hitaein-
ingar hann eigi að innbyrða. „Rann-
sóknin bendir greinilega til þess að
neyti maður matar sem gerður er
sætur með gervisætu geti það leitt
til meiri þyngdar- og fituvefsaukn-
ingar en ef neytt væri samskonar
fæðu sem sætt væri með venjuleg-
um sykri,“ segir í skýrslu vísinda-
mannanna sem birt var í fagtímarit-
inu Behavioural Neuroscience.
Þau Swithers og Davidson við-
urkenna að niðurstöðurnar kunni
að virka allt annað en hvetjandi og
eigi eflaust eftir að vekja litla hrifn-
ingu hjá næringafræðingum og
læknum sem hafa margir hverjir
mælt með gervisætu og hitaein-
ingasnauðri fæðu fyrir þá sem vilja
léttast.
Morgunblaðið/Jóra
Grennandi? Betra er að brenna sykrinum í stað þess að skipta honum út
fyrir sætu ef marka má breska vísindamenn sem hafa rannsakað málið.
Gervisætuefnin fitandi?