Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 18
|þriðjudagur|19. 2. 2008| mbl.is daglegtlíf Ég leik stelpu, sem heitirBirna. Hún er alvegsvakalega reið við for-eldra sína. Hún er dópisti í fjárþörf og er mjög alvarlega að ráðgera strok að heiman,“ segir Auður Bergdís Snorradóttir, sem er einn af tólf leikurum Borgarbarna, sem nú sýna frumsamda forvarn- arleikritið Alsælu á litla sviði Borg- arleikhússins. Auður Bergdís, sem er 17 ára nemandi í Verslunarskóla Íslands, hefur undanfarin fjögur ár verið að læra söng og leiklist hjá Sönglist sem hún segir að sé mjög skemmti- leg iðja. Boðskapur leikritsins sé þó háalvarlegur enda sé heimur dópist- ans bæði óæskilegur og lítt skemmtilegur. „Ég þekki eilítið til þessa heims í gegnum nákomna vini sem hafa lent út af sporinu. Þennan heim ber að forðast í lengstu lög enda hefur fíkniefnaneysla unglings ekki bara neikvæð áhrif á hann sjálf- an, heldur á alla nákomna í kringum hann,“ segir Auður. Lést eftir aðeins eina E-pillu Mikil eftirvænting lá í loftinu þeg- ar Borgarbörnin tólf stigu fram á litla svið Borgarleikhússins laug- ardagskvöldið 9. febrúar og frum- sýndu leikritið sitt sem þau hugsa sem sitt lóð á vogarskálar í forvarnarskyni gegn fíkniefnaváinni. Auður segir að vinnan við uppsetn- inguna hafi verið einkar gefandi og skemmtileg. „Og þó það sé hugsað sem forvörn, er það sko alls ekki leiðinlegt. Það er mjög lifandi með tíu þekktum lögum og fullt af döns- um.“ Að sögn Auðar Bergdísar kvikn- aði hugmyndin að verkinu í kjölfar blaðagreinar um unga stúlku, sem lést eftir að hafa tekið aðeins eina E- pillu. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar um forvarnir, vímu- efnaneyslu og aðgengi að fíkniefnum meðal 18 til 20 ára ungmenna hefur um 60% ungmenna verið boðin fíkni- efni og um 38% þekkja vel til þess hvernig nálgast má slík efni hér á landi. Unglingaleikritið Alsæla er sprottið upp af umræðum og hugs- unum sjálfs leikhópsins og síðan fært í viðeigandi leikbúning af leik- stjóranum Björku Jakobsdóttur. Leikhópurinn samanstendur af tólf unglingum á aldrinum 15-19 ára úr röðum Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúsi Sönglistar og Borgarleikhússins. Félagsskapurinn hefur áhrif „Til að ná markmiðum sínum þurfa forvarnir og fræðsla að vekja áhuga barna og unglinga, en með verkinu erum við einkum að höfða til barna allt niður í sjöunda bekk og upp úr, því að auðvitað þarf að byrgja brunninn vel áður en einhver dettur ofan í hann. Sölumenn fíkni- efna víla nefnilega ekkert fyrir sér ungan aldur krakkana. Þvert á móti gætu þeir hugsað sem svo að yngri krakkar væru auðveldari skotmörk en þau sem eldri eru. Á unglinga- stiginu breytist svo voða-margt því að þá þurfa margir að flýta sér að verða fullorðnir með því að prófa það sem aðrir hafa prófað. Og þá geta áhrif félagsskaparins verið fjöl- skyldutengslunum yfirsterkari,“ segir Erla og bætir við að í öllum forvörnum sé nauðsynlegt að nota aðferðir, leiðir og tungutak, sem ungmennin skilji til hlítar í stað þess að halda glærukynningu yfir svefn- vana ungmennum í dauðri skóla- stofu. „Við erum að bjóða upp á jafn- ingjafræðslu af bestu gerð sem sýnir fram á þá staðreynd að lífið hefur upp á svo margt að bjóða, ef réttar ákvarðanir eru teknar. Við eigum nefnilega bæði völina og kvölina og þurfum að vera manneskjur til að taka afleiðingum gjörða okkar ef við tökum þann pólinn í hæðina að vilja stíga út af sporinu með rangri ákvarðanatöku. Boðskapurinn snýst um að breyta rétt, þrátt fyrir pressu frá félögum um að gera annað,“ seg- ir Erla. Sýningin tekur um fimmtíu mín- útur í flutningi og inniheldur fjölda laga og dansatriða. Söngstjórn er í höndum Ragnheiðar Hall, danshöf- undur er Halla Ólafsdóttir og tón- listarstjóri er Valdimar Krist- jónsson. Árvakur/Árni Sæberg Borgarbörn Fíkniefnaheiminn ber að forðast eins og heitan eldinn, að mati leikenda. Sigurður Jakob Helgason, Þórdís Pétursdóttir, Stefán A. Pétursson, Rebekka Sif Stefánsdóttir, Dóra Sveinsdóttir, Edda M. Erlendsdóttir, Helena Ýr Gunnarsdóttir, Elín Ágústa Birgisdóttir. Fremst eru: Anna Steina Ingimundardóttir, Auður Bergdís Snorradóttir og Erna Líf Gunnarsdóttir. Spenntir Hugmyndin að verkinu vaknaði eftir að krakkarnir lásu blaða- grein um unga stúlku, sem hafði látist eftir að hafa tekið inn E-pillu. Stefán Arnar Pétursson og Sigurður Jakob Helgason eru einu strákarnir sem þátt taka í sýningunni á móti tíu stelpum. Æfing „Skemmtileg forvörn með þekktum lögum og fullt af dönsum.“ Hér eru þær Erna Líf Gunnarsdóttir, Helena Ýr Gunnarsdóttir, Edda Margrét Erlendsdóttir, Auður Bergdís Snorradóttir og Elín Ágústa Birgisdóttir. Fimmtíu mínútna forvörn „Við eigum öll bæði völina og kvölina, en ef við ákveðum að stíga út af sporinu verðum við líka að vera manneskjur til að taka afleiðingum gjörða okkar,“ segir skólastýran og leikkonan Erla Ruth Harðardóttir í samtali við Jóhönnu Ingvarsdóttur um boðskap leikverksins Alsæla, sem Borgarbörn sýna nú í Borgarleikhúsinu. Alsæla verður sýnd á litla sviði Borgarleikhússins mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 20.00 allan febrúarmánuð. Miða- sala fer fram í miðasölu Borg- arleikhússins. „Lífið hefur upp á svo margt að bjóða ef rétt ákvörðun er tekin“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.