Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 29 bjuggum uppi á Heiðarhvammi, ég var bara sirka fimm ára, Guðjón litli bróðir var að stríða mér og ég henti honum á stólinn hjá símanum og gerði gat á hausinn á honum og það voru jól svo ég átti eitt stk. jóladaga- tal en mamma var svo reið að hún henti því og þú vorkenndir mér svo mikið að þú fórst og keyptir nýtt handa mér. En nú situr þú uppi á himnum og lítur eftir okkur og við viljum öll að þú vitir að þú ert alltaf í hjarta okkar. Við elskum þig öll. Þín dóttir, Sara María Gunnarsdóttir. Í dag hveð ég Gunnar Inga bróður minn. Mér er enn í fersku minni þeg- ar mamma kom með hann heim af fæðingarheimilinu. Mér fannst hann svo fallegur með bollukinnar og dökkt hár. Þar sem ég var 11 árum eldri en Gunnar kom það í minn hlut að passa hann og var það alltaf jafn gaman. Hann var þægur og góður en átti þó til að vera mikill prakkari. Honum fannst gaman að gera mig reiða þar sem hann vissi vel að ég var aldrei reið lengi og fyrirgaf honum alltaf. Við ólumst upp á Drangsnesi og þar fór ég með hann á vit ævintýr- anna. Pollar, lækir, gatan og sjórinn. Ég kenndi honum að leika sér við sjó- inn en reyndi jafnframt að sýna hon- um hvað sjórinn gat verið hættuleg- ur. Það var margt sem við gerðum saman. Þegar ég flutti til Reykjavík- ur kom Gunnar og var oft hjá mér. Þá áttum við notalega tíma yfir nammi og ís. Það var margt sem við gerðum og þar sem við vorum góðir vinir bað hann mig um að fara með sér og kaupa fermingarfötin. Þau innkaup voru frekar fyndin því eftir fyrsta leiðangurinn komum við heim með gallabuxur og bol. Ekki alveg það sem foreldrar okkar höfðu vænst en við náðum þá að redda þessu og Gunnar var því glerfínn á ferming- ardaginn sinn. Við áttum saman góð- an dag frá því hann var lítið barn og fram á síðasta dag. Gunnar kynntist stóru ástinni í lífi sínu, henni Lindu, þá aðeins 19 ára. Þau eignuðust saman 4 yndisleg börn. Hann var mikill pabbi og átti fjölskyldan saman góðar stundir. Þau reyndu að fara flestar helgar í sum- arbústaðinn sinn og var gaman að koma þangað í heimsókn því þar var ævintýraheimur barnanna. Gunnari var margt til lista lagt. Mikill handverksmaður og duglegur til verka. Hann rak fyrirtæki sem framleiddi barnaleiktæki. þar var hann á heimavelli. Búa til snið af tækjum, hugmyndaríkur og tilbúinn í nýjungar. Allt til að gera sem flottast fyrir börnin. Fyrir 2 árum greindist Gunnar með illvígan sjúkdóm. Hann var ákveðinn í að sigra. Vel studdur af fjölskyldu og með Lindu sér við hlið háði hann mikla baráttu. Þó svo að Gunnar hafi ekki sigrað í þessari bar- áttu er hann mikill sigurvegari. Að láta aðstæður ekki buga sig og gefast ekki upp. Það er sigurvegari. Gunnar var trúaður og velti þvi fyrir sér hvort pabbi væri með traktor þarna uppi. Broslegt en nú gæti ég trúað að þeir þrír bræðurnir og pabbi væru byrj- aðir að smíða leiktæki fyrir litlu börn- in sem farið hafa allt of snemma. Saman geri þeir stóra kastala og flotta leikgarða fyrir litlu vini okkar sem nú eru hjá þeim. Elsku Linda og börnin. Ykkar missir er mikill og það er fátt sem getur bætt þennan missi. En þið eigið þó góðar minningar um mann sem var ástríkur og góður faðir og um fram allt góð fyrirmynd. Elsku mamma okkar. Þinn missir er líka mikill. Það er fátt erfiðara en að missa börnin sín. Munum þá að Gunnar skilur eftir sig mikið af minn- ingum og verkum. Hann skilur eftir sig konu og börn sem við þurfum að hugsa vel um. Minningin um þenna baráttuglaða dreng verður ekki frá okkur tekin. Eslku Gunnar minn, ég mun sakna þín. Guð blessi þig Hafdís Ingimundardóttir  Fleiri minningargreinar um Gunn- ar Inga Ingimundarson bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Elskulegur faðir okkar, BORGÞÓR ÁRNASON vélstjóri, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 22. febrúar kl. 13.00. Jarðsett verður í Grafarvogskirkjugarði. Fyrir hönd aðstandenda, Ágúst Heiðar Borgþórsson, Hrafnhildur Borgþórsdóttir, Aðalheiður Lóa Borgþórsdóttir, Guðrún Vilborg Borgþórsdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, ÁRMANN HALLDÓRSSON fyrrum kennari á Eiðum, Ljósheimum 22, Reykjavík, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli, föstudaginn 15. febrúar. Ingibjörg Kristmundsdóttir, Eygló Eiðsdóttir, Knútur Hafsteinsson, Kári, Vera og Elín Inga Knútsbörn. ✝ Okkar ástkæra, NIKOLÍNA HELGADÓTTIR frá Suður-Vík, lést á heimili sínu að Kumbaravogi miðvikudaginn 13. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtu- daginn 21. febrúar kl. 15:00, Matthildur Valfells, Sigríður Ásgeirsdóttir, Vigfús Ásgeirsson. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT SIGURVEIG SIGURÐARDÓTTIR frá Valhöll, síðast til heimilis að Austuvegi 5, Grindavík, verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 20. febrúar kl. 14.00. Hafsteinn Sigurðsson, Olga Siggeirsdóttir, Svanfríður Sigurðardóttir, Ásgeir Magnússon, Birgir Sigurðsson, Kristín Arnberg, Þórður M. Sigurðsson, Kristín Sigurjónsdóttir, Ólína Herdís Sigurðardóttir, Steinunn S. Sigurðardóttir, Ísak Þórðarson, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Föðurbróðir okkar, SIGURGEIR GUÐFINNSSON, fyrrum vélstjóri frá Keflavík lést laugardaginn 2. febrúar á Hrafnistu, Hafnarfirði. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðfinna Sigurþórsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Guðný M. Guðmundsdóttir, Jóhanna Sigurþórsdóttir, Þorgerður J. Guðmundsdóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SVENNA RAKEL SIGURGEIRSDÓTTIR Fífulind 2, Kópavogi, lést á heimili sínu laugardaginn 16. febrúar. Halldór Pálsson Þóranna Halldórsdóttir, Kolbeinn Sverrisson Heimir Halldórsson, Ragna Björk Ragnarsdóttir Sigurgeir Már Halldórsson, Hólmfríður Ása Guðmundsdóttir Daníel Snær, Halldór, Arnar Freyr, Rakel Björk og Ásdís Birta. ✝ Ástkær móðir okkar og amma, GUÐRÚN ELVAN FRIÐRIKSDÓTTIR, lést á gjörgæsludeild Landspítalans fimmtudaginn 14. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda, Arnar Haukur Ómarsson, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Fjóla Sigurbjörg Ómarsdóttir,Pétur Sigurðsson, Þröstur Ránar Þorsteinsson, Halldór Nordquist Grímsson, og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, LILJA JÓELSDÓTTIR frá Siglufirði, lést miðvikudaginn 6. febrúar. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 22. febrúar kl.14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahús Akraness E-deild. Marteinn Þór Kristjánsson, Ásta Óla Halldórsdóttir, Jóel Kristjánsson, Helga Sigurrós Bergsdóttir, Bryndís Hrönn Kristjánsdóttir, Þórólfur Tómasson, Kristján Haraldur Kristjánsson, Margrét Þorvaldsdóttir, Guðni Kristjánsson, Kristbjörg Kemp, Jónína Hafdís Kristjánsdóttir, Guðmundur Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur bróðir okkar og frændi, ÓLAFUR ÞORGEIRSSON frá Ísafirði, Brúnavegi 9, Reykjavík, sem varð bráðkvaddur laugardaginn 9. febrúar verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 21. febrúar kl. 15.00. Ása Fanney Þorgeirsdóttir, Jóhann Þorgeirsson, Þorgeir, Hildur, Páll Reynir og börn þeirra. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEINGRÍMUR HELGASON, stórkaupmaður, lést á dvalarheimilinu Eir að morgni 17. febrúar. Hann verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 21. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningar- sjóð FAAS (alzheimer.is) Unnur Heba Steingrímsdóttir, Nikulás Róbertsson, Helga Guðrún Steingrímsdóttir,Eiríkur Hauksson, Jón Hólmgeir Steingrímsson, Soffía Hilmarsdóttir, Ingunn Steingrímsdóttir, og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.