Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 25 skýrsla samgönguráðherra og borgarstjóra var birt 5. maí 2007. Þar eru tekin af öll tvímæli um að ekki er stætt á að stunda flug í Vatnsmýri. Fórnarkostnaður þjóðarbúsins er talinn a.m.k. 3,5 milljarðar kr. á ári. Aðrar sam- bærilegar rannsóknir benda til að fórnin sé amk. fjórfalt meiri. Samt gerist nú hið fáránlega að illa fenginn kosningasigur frá 2006 skolar Ólafi F. í stól borg- arstjóra með verulega vanhugs- uðu fulltingi D-lista. Í fyrsta sinn í sögu höfuðborgarinnar er kom- inn til valda fjandsamlegur borg- arstjóri án baklands en með ban- væn baráttumál í farteskinu, sem tróna efst á málefnaplaggi nýs meirihluta. Reykjavík fékk Vatnsmýr- arsvæðið úr jörðunum Þormóðs- stöðum, Nauthóli og Skildinganesi 1. janúar 1932 til þróunar byggð- arinnar. Ákvörðun ríkisstjórnar Ólafs Thors að gera hern- aðarmannvirki í Vatnsmýri að borgaralegum flugvelli 06.07.1946 mætti mikilli andstöðu á Alþingi og meðal bæjarfulltrúa og bæj- arbúa. Síðan þá hafa samgöngu- ráðuneytið og landsbyggð- arforkólfar misbeitt illa fengnu valdinu af misvægi atkvæða til að tvínegla borgarbúa á krossinn í misskilinni herferð gegn borg- arsamfélaginu. Völlurinn í Vatnsmýri var í ára- tugi misnotaður sem táknmynd í sókn bændasamfélags gegn borg- arsamfélagi. Hann var einnig sá fleygur, sem best dugði til að sundra byggðinni og samfélaginu í höfuðborginni til ólýsanlegs tjóns fyrir alla Íslendinga. En völlurinn dró hvorki úr fólksflótta né jók hann lífsgæði í dreifbýli, þvert á móti. Hags- munapotarar landsbyggð- arkjördæma í samgöngu- og fjár- laganefndum Alþingis, sem í áratugi töldu kjósendum sínum trú um að raunverulegt samband væri við höfuðborgina með innan- landsflugi í Vatnsmýri, beittu geðþótta og sjálftöku og fóru illa með almannafé við uppbyggingu þjóðvegakerfisins. Lengst af var beitt lögmáli allra smæstu eininga og fram- kvæmdum dreift á kjördæmin í hlutfalli við afl hagsmunapots á hverjum tíma, án tengsla við rétt- lætissjónarmið um arðsemi. Innri og ytri samgöngur komu allt of seint í byggðarlögin því víðast hvar var íbúatalan þá komin langt niður fyrir neðstu mörk sjálf- bærni. Og sumstaðar bólar ekki enn á samgöngubótum. Innanlandsflugið fékk áður beina styrki, en nú greiða ríki, sveitarfélög, stofnanir og stórfyr- irtæki fargjöld stórnotenda, sem eru verulegur meirihluti flug- farþega. Samkeppnisstaða þess er slæm, veltan einungis um 3,5 milljarðar kr., verð eldsneytis hækkar (eldsneytisþörf 1 bílf- arþega/km =1,5 flugfarþega/km), vegir batna og flugfarþegum fækkar. Skorað er á einlæga áhuga- menn um innanlandsflug að losa sig við loddarana, að láta af fjand- skap við borgarsamfélagið og snúa bökum saman til að finna góða lausn til frambúðar á Suð- vesturhorninu. Hvernig væri að samþætta innanlands- og milli- landaflug? Flugið verðskuldar jú allt það besta, eða hvað? Höfundur er arkitekt. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÞAÐ er með miklum ólíkindum að ekki skuli vera vilji til þess að koma á fót meðferðardagskrá fyrir fanga sem afplána á Litla-Hrauni. Hver er það sem situr svo fast á fjármununum að ekki skuli vera hægt að veita eina ein- ustu krónu til þess að styðja við það að fangar séu betur undirbúnir undir lífið þegar þeir koma úr fangelsinu heldur en þegar þeir hófu afplánun? Þarna væri einmitt hægt að slá þrjár flugur í einu höggi eins og sagt er. Afplánun, afeitrun og meðferð, það er málið. Er ekki alveg magnað að það skuli ekki vera skilningur á því að þarna væri eflaust hægt að spara þjóðfélaginu stórfé með því að senda síðan margfalt sterkari einstaklinga aftur út þegar afplánun er lokið? Er ekki þarna verið að spara á röngum stað og hirða aurinn og kasta krón- unni? Kannski væri hægt að setja upp samskotabauk í einhverju ráðuneyt- anna og efna til söfnunar til að hrinda þessu máli í framkvæmd, fyrst ekki er hægt að fá fjárframlag eftir öðrum leiðum. Hver eru rökin fyrir því að ekki eru veittir fjármunir til með- ferðar fyrir fíkla á Litla-Hrauni? Gott væri að fá svar á síðum blaðsins. DAGRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Fífuseli 18, Reykjavík. Fangar í meðferð Frá Dagrúnu Sigurðardóttur MEÐ þessum línum langar mig að óska Reykvíkingum til hamingju með vinningstillöguna að skipulagi Vatnsmýrarinnar. Við Akureyringar höfum góða reynslu af slíkri samkeppni við end- urskipulagningu miðbæjarins okkar og ekki spillir fyrir að sami arkitekt sigraði á báðum stöðum. Það getur tæpast verið tilviljun að þessi sami maður fær fyrstu verðlaun í báðum tilvikum enda samdóma álit flestra, sem vit hafa á, að hann og félagar hans koma fram með mjög snjallar lausnir sem opna nýja og áhuga- verða möguleika til að koma til móts við óskir íbúa. Í vinningstillögunni í Reykjavík er athyglisvert hvernig vatn, land og byggð spilar saman og myndar vist- vænt og hlýlegt umhverfi. Á sama hátt er tenging miðbæjarins á Akur- eyri við Pollinn einn af grunnþáttum þeirrar útfærslu, sem sömu höf- undar lögðu til þar og síðan teng- ingin við Skátagilið, sem er ein af ófægðum perlum bæjarins. Allt ber að sama brunni: Bæði Reykvíkingar og Akureyringar geta fagnað því að hafa fengið snjallan arkitekt í sína þjónustu, sem leysir úr læðingi nýj- ar hugmyndir. Með því uppfylla bæði sveitafélögin óskir íbúa um vistvæna og skjólsæla byggð þar sem allt iðar af lífi og menningu og mannleg samskipti blómstra. Það er gæfa Akureyringa og Reykvíkinga að hafa fengið svo snjallan arkitekt í þjónustu sína sem Graeme Massie er enda hefur hann ekki aðeins unnið til verðlauna hér á landi heldur hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir verk sín. Hann er sannkallaður hvalreki og vonandi ber okkur gæfa til að koma tillögum hans og félaga hans til framkvæmda bæði í höfuðstað lýðveldisins og Norðurlands. RAGNAR SVERRISSON, kaupmaður á Akureyri. Til hamingju, Reykvíkingar Frá Ragnari Sverrissyni netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111AUGLÝSINGADEILD KETTLER VERSO 107 Segulviðnám með 12 kg kasthjóli. 10 þyngdarstillingar. Æfingatölva með púlsmæli. Fyrir allt að 110 kg. Segulviðnám með 10 þyngdarstillingum Æfingatölva með púlsmæli. Fyrir allt að 110 kg. Mótorstýrt segulviðnám með 14 kg kasthjóli. Æfingatölva með 6 kerfum, þyngdarstillingu, púlsmæli og fleiru. Fyrir allt að 130 kg. Mótorstýrt segulviðnám með 9 kg kasthjóli. Æfingatölva með 6 kerfum, þyngdarstillingu, púlsmæli og fleiru. Fyrir allt að 130 kg. KETTLER PASO 107 KETTLER VERSO 307 KETTLER PASO 307 Markið • Ármúla 40 • 108 Reykjavík • Sími 553-5320 • Opnunartími verslunar: mán. - fös. 10.00-18.00 laugardaga 11.00-16.00 P IPA R • S ÍA • 80297 ÁÐUR KR. 45.900 ÁÐUR KR. 62.400 ÁÐUR KR. 31.200 ÁÐUR KR. 45.900 TILBOÐ KR. 36.720 TILBOÐ KR. 49.920 TILBOÐ KR. 24.960 TILBOÐ KR. 36.720 www.markid.is VEGNA HAGSTÆ ÐRA INNKAUPA BJÓÐUM VIÐ 20 % AFSLÁTT AF FJÖLÞJÁLFUM O G ÞREKHJÓLUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.