Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 17 SUÐURNES Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Þau skilaboð sem bæj- arstjórn er að senda okkur sem störfum inn- an þessa málaflokks eru þau, að menningar- málin séu það mikilvægur málaflokkur að hann þurfi sér-svið. Það eru líka mörg skemmtileg verkefni að koma til bæjarins, nýir sýningarsalir í bígerð, framkvæmdir hafnar við Hljómahöll og Víkingaheimar komnir vel á veg,“ sagði Valgerður Guð- mundsdóttir framkvæmdastjóri menningar- sviðs í samtali við Morgunblaðið, en menn- ingarsvið Reykjanesbæjar var skilið frá Íþrótta- og tómstundasviði nýliðin áramót og samfara því lyft um stjórnsýslustig. Stigvaxandi fjármagn Allt frá því að staða menningarfulltrúa Reykjanesbæjar varð til fyrir rúmum 7 árum hefur vegur menningar aukist jafnt og þétt í bæjarfélaginu. Fjármagn til málaflokksins hefur farið stigvaxandi og menningarrýmum fjölgað. Þá hefur föstum samningum við menningarhópa og einstaklinga á sama tíma fjölgað úr 2 í 15, að sögn Valgerðar Guð- mundsdóttur sem hefur gegnt stöðu menn- ingarfulltrúa frá upphafi. Menningarfulltrúi varð um áramótin framkvæmdastjóri menn- ingarsviðs. Enn stendur til að fjölga menn- ingarrýmum því framkvæmdir eru nú hafnar við Bryggjuhúsið, en það er syðsti og jafn- framt elsti hluti Duushúsa og var pakkhús Hans Peter Duus kaupmanns. Húsið verður gert upp í sinni upprunalegu mynd. Lofthæð hússins er fremur lítil og portið sem skipti húsinu í tvennt verður einnig látið halda sér, þannig að á neðstu hæð hússins verða tveir salir. Að sögn Valgerðar er hugmyndin að opna portið á sérstökum dögum, svo sem Ljósanótt, þannig að hægt verði að labba í gegn. Þá er á efstu hæðinni vörulyfta: stórt hjól sem notað var til þess að hífa vörurnar upp á efstu hæðina og er það í góðu ástandi. Óskar Bjarnason yfirsmiður sem nú vinnur við að styrkja grind Bryggjuhússins notar lyftuna til að flytja viðarkubba upp á efstu hæðina. Hann sagði jafnframt í samtali við blaðamann að grind hússins væri ótrúlega heilleg. „Það stafar af því að hér blæs vel í gegn og því lítill fúi. Auk þess hefur greini- lega verið notaður úrvalsviður í þessa bygg- ingu.“ Framkvæmdir utan húss hefjast með vorinu og er áætlað að taka Bryggjuhúsið í notkun vorið 2010 líkt og framtíðarsýn Reykjanesbæjar gerir ráð fyrir. Valgerður er ánægð með þróun menning- armála í Reykjanesbæ og sagði í samtali við blaðamann að uppbygging Duushúsa hafi verið mjög mikilvæg fyrir menningarlíf bæjarfélagsins. „Þegar ég tók við stöðu menningarfulltrúa voru bókasafnið og byggðasafnið á Vatnsnesi einu menningarhús bæjarins. Þó svo að þessar stofnanir séu al- veg frábærar þá þurfti viðbót. Nú höfum við að auki listasafn, sýningarsal með bátalíkön- um Gríms Karlssonar, Gryfjuna, Bíósalinn, SSV og Svarta pakkhúsið og fleiri hús. Þá fá nokkrir húsnæðislausir menningarhópar í Reykjanesbæ fyrsta flokks húsnæði á Vall- arheiði í næsta mánuði. Meðal annars mun Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ vera með allt námskeiðshald þar og ýmsir menn- ingarhópar fá starfsaðstöðu í húsinu, sem í dag gengur undir nafninu „Hobby center“.“ Menningarmál skapa jákvæða ímynd Valgerður tók þó fram að menningarlífið sé ekki bara menningarrýmin, heldur sé það háð grasrótinni. „Stöðugleikinn kemur hins vegar með stofnuninni sem menningarsviðið er og með því að gera það að sérsviði er bæj- arstjórn að senda bæði okkur og grasrótinni skilaboð um mikilvægi starfsins. Aðgerðin lyftir undir þá sem starfa að menningar- málum og það er staðreynd að fréttir af menningarmálum eru 99% jákvæðar fréttir og skipta því miklu máli þegar kemur að já- kvæðri ímynd bæjarfélaga. Vítamínsprauta fyrir starfsfólk Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Vörulyfta frá 19. öld Valgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri menningarsviðs, og Ósk- ar Pétursson, yfirsmiður Bryggjuhúss, við vörulyftuna á efstu hæð Bryggjuhússins. Í HNOTSKURN »Menningarsviði Reykjanesbæjar varlyft um stjórnsýslustig síðastliðin ára- mót. Menningarfulltrúi varð fram- kvæmdastjóri menningarsviðs. »Hafin er uppbygging á Bryggjuhúsinu,sem er elsti hluti Duus-húsa. Það var byggt árið 1877. »Menningarhúsum í Reykjanesbæ hefurfjölgað mjög á undanförnum árum. Menningarsvið er orðið að sérsviði hjá Reykjanesbæ LANDIÐ Hvolsvöllur | Fimmti riðill í Skóla- hreysti fór fram í Íþróttahúsinu Sólvöllum á Selfossi í gær, 14. febrúar. Alls öttu níu grunnskólar á Suðurlandi kappi í þessari keppni. Fjórir skólar leiddu keppnina sem var mjög jöfn og spennandi. Hvolsskóli sigraði að lokum en í öðru sæti varð Valla- skóli á Selfossi og í því þriðja Grunnskóli Vestmannaeyja. Með sigrinum hefur Hvolsskóli tryggt sér þátttökurétt í úrslitum Skóla- hreysti sem fer fram í Laugardals- höllinni 17. apríl næstkomandi. Hvolsskóli vann sigur í hraða- þrautinni, fór brautina á 2:34 mín- útum og telst það góður árangur. Bryndís Sigríksdóttir í Hvolsskóla sigraði bæði í hreystigreip og armbeygjukeppninni. Í hreysti- greip hékk Bryndís í 4:50 mínútur sem er annar besti árangur frá upphafi. Skólahreystimetið er 5:29 mínútur. Af öðrum úrslitum má nefna að Reynir Óskarsson í Grunnskól- anum Hellu sigraði í upphífingum og flestar dýfur tók Brynjólfur Ingvarsson í Vallaskóla. Keppnin var gríðarlega spenn- andi og voru áhorfendabekkir troðfullir. Gríðarleg keppni var milli skólanna og ljóst er að mikil stemning er fyrir keppninni meðal nemenda skólanna. Sýnt verður frá Skólahreysti á Skjá einum 19. febrúar kl. 20. Næsta keppni í Skólahreysti verður haldin í Íþróttahúsinu Tjarnarbraut á Eg- ilsstöðum 21. febrúar næstkom- andi. Nemendur Hvolsskóla hraustastir Íþróttir Nemendur Hvolsskóla eru komnir í úrslit í Skólahreysti. Eftir Kristbjörgu Sigurðardóttur Öxarfjörður | Við messu á Skinna- stað í Öxarfirði sl. sunnudag, var séra Jón Ármann Gíslason, sóknar- prestur þar, formlega settur inn í embætti prófasts Þingeyjarprófasts- dæmis af biskupi Íslands, Karli Sig- urbjörnssyni. Að athöfn lokinni var viðstöddum boðið að þiggja myndarlegar veiting- ar í boði sóknarnefndar. Séra Jón Ármann hefur gegnt starfi prófasts frá 1. desember 2005 er hann var settur sem slíkur vegna veikinda þá- verandi prófasts en síðan skipaður frá 1. ágúst 2006. Kirkjan á Skinnastað var endur- vígð eftir gagngerar endurbætur ár- ið 2004 en um það leyti voru liðin 150 ár frá byggingu kirkjunnar. Prófastur Þingey- inga í embætti Jón Ármann Gísla- son settur inn í emb- ætti prófasts Þing- eyjarprófastsdæmis Morgunblaðið/Kristbjörg Sigurðardóttir Skinnastaður Karl Sigurbjörnsson setur séra Jón Ármann Gíslason inn í embætti prófasts Þingeyjar- prófastsdæmis. Aðaldalur | „Það er gaman að gefa kindunum brauð,“ segir Hulda Ósk Jónsdóttir sem er nemandi í 5. bekk Hafralækjarskóla í Aðaldal. Þegar heim kemur á kvöldin er oft gott að fara í fjárhúsin en sumar kindanna kunna vel að meta brauðbita. Með brauðbita í vasanum Besta þjónusta farsímafyrirtækja Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2007

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.