Morgunblaðið - 19.02.2008, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MATHIEU
Fauvel varði
doktorsverkefni
í verkfræði við
Grenoble Instit-
ute of Techno-
logy (INPG) 28.
nóvember sl., en
verkefnið var
unnið undir
sameiginlegri
handleiðslu leiðbeinenda frá
INPG og Háskóla Íslands og veita
skólarnir doktorsgráðuna sameig-
inlega. Er þetta í fyrsta sinn sem
Háskóli Íslands veitir sameig-
inlega prófgráðu. Fauvel flytur
doktorsfyrirlestur sinn í Háskóla
Íslands þriðjudaginn 19. febrúar
kl. 15, í Aðalbyggingu HÍ, hátíð-
arsal. Að loknum fyrirlestrinum
mun Ebba Þóra Hvannberg for-
seti verkfræðideildar veita Fauvel
doktorsskírteini frá verk-
fræðideild Háskóla Íslands.
Doktorsverkefnið ber titilinn
„Spectral and Spatial Methods for
Classification of Urban Remote
Sensing Data“ og fjallar um þró-
un aðferða til greiningar yfir-
borðs jarðar með flokkun fjar-
könnunarmynda frá þéttbýlis-
svæðum.
Mathieu Fauvel fæddist í
Toulouse í Frakklandi árið 1981.
Veita doktors-
gráðuna saman
Mathieu Fauvel
SVEITARSTJÓRN Skagafjarðar
samþykkti á fundi sínum á miðviku-
dag sl. að lækka gjaldskrá leikskól-
ans Barnabóls um 15% og að grunn-
gjald verði 2.417 kr. Sveitarstjórn
samþykkti einnig að systkina-
afsláttur gildi milli leikskóla og
dagheimilis.
15% lækkun
UNNIÐ er að undirbúningi þess að
sett verði á fót Tæknisafn Íslands,
en með því færi Ísland að dæmi
annarra ríkja þar sem tæknisöfn
hafa lengið verið rekin og hefur í
því skyni verið sett upp vefsíðan
www.tsi.is.
Tilgangurinn með þessari vef-
síðu er m.a. að kynna undirbúnings-
starfið, gefa innsýn í starfsemi
tæknisafna og að lokum að verða
hluti af starfsemi safnsins.
Tæknisafn
LILJA Karls-
dóttir líffræð-
ingur mun á
morgun, mið-
vikudag, flytja
fyrirlestur um
rannsóknir á
frjókornum ilm-
bjarkar og fjalla-
drapa. Lilja segir
frá tveimur að-
skildum rannsóknum á íslenskum
birkifrjókornum: erfðablöndun
birkitegunda og rannsóknir á frjó-
kornum í 7-10 þúsund ára jarðvegs-
sýnum. Fyrirlesturinn hefst kl.
12.15 í Möguleikhúsinu við Hlemm.
Fyrirlestur
um frjókorn
Lilja Karlsdóttir
STUTT
HAFIN er söfnun undirskrifta und-
ir áskorun til ríkisstjórnarinnar um
að hefja nú þegar rannsóknir og
undirbúning að jarðgangagerð milli
Súðavíkur og Ísafjarðar. Texti
áskoruninnar byggir á áskorun
sveitarstjórnar Súðavíkurhrepps
um sama efni þar sem vísað er til
bæði samfélaglegra hagsmuna og
öryggissjónarmiða og hafa bæjar-
stjórnirnar á Ísafirði og í Bolung-
arvík tekið undir.
Umræðan hófst í þessum mánuði
að nýju eftir nokkurt hlé í kjölfar
margra snjóflóða sem féllu á þjóð-
veginn um Súðavíkurhlíð. Í áskorun
sveitarstjórnar og íbúa er vakin at-
hygli á niðurstöðum rannsóknar
Veðurstofu Íslands þar sem fram
kemur að ekki er minni hætta fólgin
í því að aka milli Súðavíkur og Ísa-
fjarðar en milli Ísafjarðar og Bol-
ungarvíkur þegar litið er til snjó-
flóða og grjóthruns. Búið er að
ákveða að grafa göng um Óshlíð sem
lagfærir síðarnefndu leiðina og unn-
ið að samningum við verktaka.
Göng ekki á áætlun
Lengi hefur verið snjóflóða- og
grjóthrunshætta á veginum um
Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð en
báðar eru þessar hlíðar á Djúpvegi
milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Unnið
hefur verið að margvíslegum úrbót-
um á veginum til að minnka líkurnar
á slysum. Göng þarna um eru ekki á
samgönguáætlun.
Vinnuhópur sem vegamálastjóri
skipaði til að fjalla um öryggismál
Djúpvegar á þessari leið og raunar
einnig á leiðinni milli Ísafjarðar og
Bolungarvíkur skilaði niðurstöðum
undir lok árs 2002.
Þar voru bornir saman nokkrir
kostir. Fram kemur að jarðgöng frá
Súðavík til flugvallarins á Ísafirði
eru eina fullkomna lausnin. Eftir
það færi vegurinn hvorki um mestu
hættusvæðin á Kirkjubólshlíð né
Súðavíkurhlíð en þó yrði áfram ein-
hver snjóflóðahætta ofan við flug-
völlinn í aftakaveðri. Um er að ræða
6 km göng og veg að þorpinu í Súða-
vík. Myndu göng stytta veginn milli
Ísafjarðar og Súðavíkur um 8 kíló-
metra en hann er nú um það bil 20
kílómetrar. Reiknað var með að
göngin gætu kostað rúma þrjá millj-
arða króna en sú áætlun hefur ekki
verið uppfærð síðan.
Einnig voru sýndir möguleikar á
ýmsum styttri og ódýrari göngum til
að ekki þyrfti að aka um Súðavíkur-
hlíð en fram kom að þau leystu ekki
nema hluta grjóthruns- og snjó-
flóðavandann og styttu leiðina lítið
eða ekkert. Þá voru skoðaðar aðrar
umbætur á hlíðunum með vegskál-
um og skápum og var það niður-
staða nefndarinnar að grafnir yrðu
skápar í helstu snjóflóðagilin.
Hátt í 600 hafa skrifað undir
Sveitarstjórn Súðavíkur hefur
ekki tekið afstöðu til þess hvaða kost
ætti að velja, verði ákveðið að grafa
göng. Ómar Már Jónsson sveitar-
stjóri segir mikilvægt að fundin
verði varanleg lausn og látið af
plástralausnum með því að fjölga
skápum í hlíðinni. „Það er verið að
setja mikla fjármuni í þessar end-
urbætur en það hefur sýnt sig að
þær eru ekki varanlegar,“ segir Óm-
ar Már.
Einstaklingar í Súðavík standa
fyrir undirskriftasöfnuninni á netinu
sem hófst á miðvikudag í síðustu
viku. Slóðin er http://gong.it.is/ Síð-
degis í gær höfðu 572 manns skrifað
undir áskorunina.
Skrifa undir áskorun
um göng til Súðavíkur
!"
#
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
FÆREYJAR sem áningarstaður í
flokki eyja fá hæstu einkunn Travel-
er, ferðablaðs National Geographic, í
vali sínu á bestu eyjum heims. Ísland
er í 9. sæti af 111 eyjum. Valdir voru
522 sérfræðingar til að meta áning-
arstaðina og voru stig gefin frá 0-100.
Færeyjar fengu 87 stig og Ísland 80. Í
öðru sæti voru Azoreyjar með 84 stig
og í því þriðja Lófóten með 82 stig.
Íbiza á Spáni var í næstneðsta sæti
og Phuket á Taílandi 106. sæti.
Notast var við einkunnastiga í sex
þrepum og í hæsta þrepi voru stig á
bilinu 96-100, þótt reyndar kæmist
engin eyja í þann flokk. Í næsta
þrepi, 86-95 stig, voru Færeyjar eini
áningarstaðurinn, en í þessum flokki
var gert ráð fyrir eyjum sem væru
„ekta og ósnortnar og líklegar til að
vera þannig áfram“. Í næsta þrepi
fyrir neðan, 66-85 stig voru eyjar þar
sem „minniháttar erfiðleikar“ voru
til staðar. Umsögnin sem Ísland fær
er á þá leið að um sé að ræða land
mikilla náttúrulegra skilyrða, s.s.
elds og íss, vinda, birtu og myrkurs.
Menningin eigi sér langa sögu og
fólk sé sér meðvitandi um umhverfi
sitt. Á hinn bóginn hafi ákvarðanir
um að setja upp stór álver klofið
þjóðina. Mikil sjálfbærni, bæði um-
hverfis- og félagsleg, vekja athygli
enda þótt stóriðja geti hinsvegar haft
áhrif á umhverfisleg gildi og landið
sem áfangastað. Á Íslandi eru þá fjöl-
breyttir ferðamöguleikar fyrir
hendi. Íslendingar verndi umhverfi
sitt og þjóðfélag og tryggi hagnað af
ferðaþjónustu án þess að valda
skaða. Færeyjar hljóta frábæra ein-
kunn sem fallegt ferðamannaland
þar sem menning blómstrar og kröf-
ur eru gerðar um að allar nýjar
byggingar haldi tryggð við bygg-
ingasögu. Áhyggjurnar eru þó af
hugsanlegu vandamáli við að flytja
ferðamannaskarann milli staða ef
farþegaskipum heldur áfram að
fjölga hratt. Siglingaskilyrði séu
einnig varasöm en Færeyingar séu
sér meðvitandi um hætturnar og séu
að leita lausna.
Færeyjar þykja betri en Ísland
Árvakur/RAX
ÍSLAND er á topp 10 lista National Geographic og vekur athygli fyrir nátt-
úru og menningu ásamt því að fjölbreyttir ferðamöguleikar eru fyrir
hendi. Stóriðja gæti hins vegar haft áhrif á ferðamannalandið Ísland. Ís-
lendingar séu sér einnig meðvitandi um umhverfi sitt og vilji vernda það
um leið og það sé hagnýtt í ferðamannaiðnaði.
Hundruð ferðasérfræðinga leggja mat
á bestu eyjar í heimi og setja
Ísland í 9. sætið en Færeyjar á toppinn
Land hinnar stórbrotnu náttúru
Það er
Stærsta GSM dreifikerfið