Morgunblaðið - 19.02.2008, Side 10

Morgunblaðið - 19.02.2008, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þið eruð bara vanþakklátar grenjuskjóður, haldið þið að það þurfi ekki snilld og fjárútlát til að komast í Heimsmetabók Guinnes? VEÐUR Það eru viðsjárverðir tímar á fjár-málamörkuðum og slíkt ástand kallar á að þjóðarskútunni sé stýrt af festu. Undanfarið hefur helsta verkefni Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráð- herra, verið að eyða óvissu, bæði innan flokksins og í atvinnulífinu.     Það var mikilvægur áfangi aðljúka kjara- samningum. Rík- isstjórnin lagði sitt af mörkum til þess með aðgerð- um sem metnar eru á 20 millj- arða, hækkun persónuafsláttar og með því að skapa sóknarfæri fyrir atvinnulífið með skattalækkun til fyrirtækja.     En Geir hefur einnig staðið íströngu innan flokksins. Beðið hefur verið með óþreyju eftir því að hann beitti áhrifum sínum til að leysa þann hnút sem myndast hefur í borgarstjórnarflokki sjálfstæð- ismanna.     Auðvitað skipta tímasetningar höf-uðmáli í stjórnmálum. En óviss- an er orðin óþolandi, eins og heyra mátti á tveimur þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins um helgina, Bjarna Benediktssyni og Illuga Gunn- arssyni, sem sögðu að málið þyrfti að leysast hratt – hver dagur skipti máli.     Og Geir tók af skarið í Silfri Egilsá sunnudag, þó að hann talaði sem endranær mildilega og af still- ingu. Hann tók undir að óvissan væri slæm og að æskilegt væri að „ljúka þessu í þeirri viku sem nú er að hefj- ast“. Ef það tekst, og farsælar lyktir nást á þeim miklu átökum sem geis- að hafa í borgarstjórn frá því REI- málið kom upp á yfirborðið, styrkir það stöðu Geirs. Um leið verður rík- isstjórnin betur í stakk búinn til að takast á við óvissuna í efnahags- málum. Er eftir nokkru að bíða? STAKSTEINAR Geir H. Haarde Tekst að eyða óvissunni? SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                         *(!  + ,- .  & / 0    + -                   ! "                   12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (         ##  ! "    $            :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? % %   % % %  %    %  %  %  %      %  %  % %                          *$BC &&&                             !"   # $    %  *! $$ B *! '!( ) &   &( &    "* <2 <! <2 <! <2 ' ) #&+ , -&.#/   D8- E                  <7    & '       ' (   )               <     &  * $  '       )     $    & #     & '             )     +   ,  -  '    $      .   / 0  *  01##&!&22  # &"!&3  "&+ , Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Stefán Friðrik Stefánsson | 18. feb. Vissi Jón Ásgeir ekki alla söguna á bak við FL? Það var áhugavert að horfa á hádegisviðtalið við Jón Ásgeir. Það sem vakti mesta athygli mína er að þar gefur hann í skyn að hafa ekki vitað um hinn mikla rekstr- arkostnað FL Group er Baugur bjargaði fyrirtækinu frá hruni undir lok síðasta árs. Væri gott að hann talaði enn betur um þennan veigamikla þátt málsins. Meira: stebbifr.blog.is Eiríkur Bergmann Einarsson | 18. feb. Ekki eftir neinu að bíða Mér þykir skemmtilegt að vita til þess að Ísland hafi verið fyrst eða í hópi fyrstu ríkja til að við- urkenna ríki á borð við Eistland, Lettland, Lithá- en, Slóveníu og Króatíu. Í sjálfu sér er engin ástæða til að bíða með að viðurkenna sjálfstæði Kosovo eftir að ósk um það barst með yfirlýs- ingu Kosovo-Albana í gær. Það stendur líka alveg sérstaklega upp á litla þjóð Meira: eirikurbergmann.blog.is Ingólfur Ásgeir Jóhannesson | 18. feb. Nýtt úthverfi Nú hef ég skoðað betur tillögur Skotanna um nýtingu landsins sem Reykjavíkurflugvöllur stendur á. Þær stað- festa það sem haldið hefur verið fram að svæðið verði ekki annað en eitt út- hverfið enn. Kosturinn við þær er ekki síst sá að það er alls ekki reynt láta líta út fyrir neitt annað. Annar kostur er sá að varðveita eigi mýr- lendi með nýrri tjörn. Og af þeim til- lögum ... Meira: ingolfurasgeirjohannesson.blog.is Hlynur Hallsson | 18. febrúar Var verið að hugsa um að hækka persónuafsláttinn um 500 kall? Mér finnst þetta nú heldur aumt hjá þessar slöppu ríkisstjórn. Per- sónuafslátturinn á að hækka um heilar 2.000 krónur, já og ekki fyrr en 2009! Og svo aftur um 2.000 árið 2010 og síðan heilar 3.000 árið 2011. Þetta telst nú varla ofrausn. Minna má það nú ekki vera. Hvert var planið ef þetta er meira en gert var ráð fyrir. 500 kall árið 2020? Maður ætti kannski að fagna því með miklum húrrahrópum að per- sónuafslátturinn verði hækkaður yf- irleitt? Ég veit það ekki. Það getur verið að ég sé óhóflega bjartsýnn maður að eðlisfari, því ég átti von á einhverri almennilegri hækkun á per- sónuafslættinum. Svona 20.000 núna og annað eins á næsta ári. Hið „gífurlega tap“ ríkissjóðs hefði mátt brúa með því að hækka hinn „voða háa“ fjármagnstekjuskatt um tvö pró- sentustig í 12% sem sagt en sleppa honum alveg fyrir þá sem eru bara með smotterí í fjármagnstekjur, segj- um af innistæðum upp á 5 millur. Þá hefði verið ástæða til að fagna en þetta er eitthvert það aumasta útspil frá Samfó og íhaldi sem hægt er að hugsa sér. Sorrý, þið getið kallað mig frekju en mér finnst þessi 18.000 kall hækkun á laun og svo 2.000 króna hækkun á persónuafslætti engin of- rausn. Ansi skítt væri nær lagi. Meira: hlynurh.blog.is BLOG.IS SAMTÖK ferðaþjónustunnar halda ráðstefnu sem nefnist „Dagur mennt- unar í ferðaþjónustu“ í dag, 19. febr- úar, kl. 14-17 á Grand hóteli Reykja- vík. Í tilkynningu kemur fram að markmiðið sé að ræða mikilvægi fræðslu og símenntunar í greininni. Til ráðstefnunnar er boðið tveimur gestum frá skosku hálöndunum, þeim dr. Craig Thompson og Wendy Syl- vester sem fjalla munu um góðan ár- angur starfsmenntunar í ferðaþjón- ustufyrirtækjum í heimalandi sínu. Í upphafi fundar flytur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála- ráðherra ávarp, nýtt grunnnám í ferðaþjónustu verður kynnt og fjallað verður um með hvaða hætti sé best að standa að starfsþjálfun erlends starfsfólks í greininni. Í lokin verður Starfsmenntaviður- kenning SAF afhent í fyrsta sinn því fyrirtæki sem þykir skara fram úr í greininni. Össur Skarphéðinsson iðn- aðarráðherra afhendir viðurkenn- inguna. Ræða hvort menntun í ferðaþjónustu er ábótavant FRÉTTIR Jenný Anna Baldursdóttir | 16. febrúar Að vera heiðarlegur … Það er voða gaman að vera heiðarlegur þegar maður er í góðum mál- um, en erfðara þegar maður sýslar með eitt- hvað það sem kallar ekki á uppklapp. Ég lofaði sjálfri mér að vera heið- arleg þegar ég bloggaði um alkóhól- isma, í þeirri von að ég myndi aldrei þurfa að vera annað en skemmtilega heiðarleg … En mér varð á … Meira: jenfo.blog.is Traustasta fjarskipta- fyrirtækið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.