Morgunblaðið - 19.02.2008, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● HAGNAÐUR Føroya banka eftir
skatta á síðasta ári nam 144 millj-
ónum danskra króna, tæplega 1,9
milljörðum íslenskra króna, og dróst
saman um tæplega 10% frá árinu
áður. Samdráttinn má meðal annars
rekja til aukins starfsmannakostn-
aðar sem er afleiðing þess að bank-
inn stofnaði dótturfélag í Danmörku
á liðnu ári.
Eignir bankans í lok síðasta árs
námu um 9,6 milljörðum danskra
króna en samkvæmt uppgjörinu varð
Føroya banki ekki fyrir áhrifum af
lánaólgunni að öðru leyti en því að
lánsfé er orðið dýrara.
Hagnaður dróst saman
! "#$%&''%
567 8 %8%7
6
A B C A B D
9?A B A
) 4&( B
%
EF
A B ;B@C ? )%
>
GHI
(C 91&)& J$( K 9 / 6 : ; !.- 6
F 6
F6L$
6
F
(:9
C
9
A B 9M $C EF
FA B IN1 J$(
O
5 % < 4 : =%,
P
$6
((P &
4CA 4(B1 > %&?
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
O B
J
)
;B
#&88"&/0/
,0&88,&/0+
!8-&008&!8"
+0#&8!#&.!"
#&/+#&.0+&-.0
+-&-8-&/""
,"&..!&-"-
#&+8-&8+"&-0!
.!+&0!!&.8+
,"&.+!&+-"
,/&"""&+//
,"+&-!!&8!8
#8&-8!&.""
+&+8#&,08
+&!8.&88/
#!&-8"&"""
,+#&+#!
##&"".&#-#
#+-&.#.
#&8!8&!""
+&-00&-""
8..&"""
#+&,-"&"""
/*8.
,-*8"
#+*,/
#"*+"
#0*!"
!"*""
+.*+-
/--*""
+8*#"
8,*!"
-*08
#+*-"
-*+0
8#*,"
#*-8
.*,-
#00*""
#-00*""
,!,*""
#*",
#!!*""
!*#,
,#8-*""
/*8/
,.*""
#+*-0
#"*+,
#0*,"
!"*,"
+.*-"
/-.*""
+8*+"
8-*""
-*8,
#+*."
-*!,
8+*""
#*."
.*-"
#8"*-"
#.#"*""
,!8*-"
#*"-
#!/*""
!*#0
+!*""
,+-"*""
.*""
91
B
-
#"
-"
-8
.0
-
#"
//
,"
0
++
,8
#+
!
,
!
+
/
#
+
#"
#
#
Q
&
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#0&+&+""0
#-&+&+""0
#0&+&+""0
.&#+&+""/
++&0&+""/
#-&+&+""0
+-&#&+""0
#,&#&+""0
H>R H>R
,+
, +
3
3
H>R CCR
, +
,+
3
3
Q LS I T
+
+
3
3
9J
Q6R
, +
, +
3
3
H>RD#-
H>R<,"
,+
, +
3
3
ÞETTA HELST ...
● ÍSLENSKI hlutabréfamarkaðurinn
styrktist í kjölfar fregna af kjara-
samningum en alls hækkaði úrvals-
vísitalan um 1,33% í gær og var við
lokun markaðar 5.184 stig. Mun
þetta vera í fyrsta skipti frá áramót-
um sem vísitalan hækkar á mánu-
degi. Mest hækkun varð á bréfum FL
Group 3,23% en bréf Marels lækk-
uðu mest, um 1,57%. Velta í kaup-
höllinni í gær var 16,1 milljarður
króna.
Skuldatryggingarálag allra bank-
anna hækkaði um 10 punkta í gær
og er álagið á bréf Kaupþings nú 565
punktar, Landsbanka 280 punktar
og Glitnis 530 punktar.
Fyrsti græni mánudag-
urinn frá áramótum
● SVAFA Grön-
feldt, rektor Há-
skólans í Reykja-
vík, mun taka
sæti í stjórn stoð-
tækjaframleið-
andans Össurar
hf. á aðalfundi fé-
lagsins. Þetta
kemur fram í til-
kynningu til kaup-
hallar OMX en sjálfkjörið verður í
stjórn þar sem aðeins bárust tillögur
um fimm aðalmenn.
Svafa kemur í stað Sigurbjörns
Þorkelssonar en auk hennar munu
Niels Jacobsen (núverandi stjórn-
arformaður), Kristján Tómas Ragn-
arsson, Þórður Magnússon og Össur
Kristinsson sitja í stjórninni.
Svafa í stjórn Össurar
Svafa Grönfeldt
● SJÓVÁ skilaði 4 milljarða króna
hagnaði á árinu 2007 en árið áður
nam hagnaður félagsins 11 millj-
örðum króna.
Iðgjöld félagsins jukust um 11% á
síðasta ári og rekstrarkostnaður og
tjónakostnaður í hlutfalli við iðgjöld
lækkaði milli ára. Tjóna- og rekstr-
arkostnaður var þannig 4% hærri en
iðgjöld ársins, en til samanburðar
var kostnaðurinn 15% hærri en ið-
gjöldin árið á undan. Batinn er rakinn
til hagræðingar sem hafi skilað sér í
umtalsverðri lækkun rekstrarkostn-
aðar. Tekjur af fjárfestingarstarfsemi
drógust einnig saman en afkoman
þykir þó ásættanleg, að því er segir í
tilkynningu.
Sjóvá með 4 milljarða
ASKAR Capital tapaði 800 millj-
ónum króna árið 2007, á sínu fyrsta
heila rekstrarári, og voru færðar
niður 2.100 milljónir króna vegna
fjárfestinga tengdum ótryggum
fasteignaveðlánum í Bandaríkj-
unum. Voru engar slíkar eignir
bókfærðar í efnahagsreikningi í
árslok, að því er fram kemur í til-
kynningu bankans til kauphallar.
Ef ekki hefði komið til þessarar
gjaldfærslu hefði hagnaður bank-
ans numið 900 milljónum króna.
Sé eingöngu litið til fjórða árs-
fjórðungs var tap þess tímabils tæp-
ur milljarður króna. Hreinar vaxta-
tekjur námu 600 milljónum króna
og þóknanatekjur 1,6 milljörðum.
Stærstan hluta þar á bílalánafyr-
irtækið Avant, dótturfélag Aska.
Heildareignir Askar Capital námu
34,3 milljörðum í árslok borið sam-
an við 15 milljarða árið áður. Eign-
ir í stýringu námu 33 milljörðum og
eiginfjárhlutfall á CAD-grunni var
18,5% í lok árs.
Í byrjun árs 2007 fjárfesti Askar í
skuldabréfavafningum tengdum
lánum á bandaríska húsnæðismark-
aðnum. „Eins og kunnugt er hafa
aðstæður á bandaríska húsnæðis-
markaðnum breyst mikið til hins
verra og hafa fjárfestingar tengdar
honum lækkað verulega í verði.
Vegna þessa var tekin ákvörðun
um að gjaldfæra allar eignir bank-
ans tengdar þessum eignaflokki til
að taka af öll tvímæli um áhættu
bankans,“ segir í tilkynningunni.
Áhersla Askar er á fjárfestingar í
fasteignum, innviðum og í fram-
taksfjármögnun á nýmörkuðum.
Gjaldfærðu 2 milljarða
vegna ótryggra veðlána
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
ÁKVÖRÐUN bresku ríkisstjórnar-
innar um þjóðnýtingu Northern
Rock, íbúðalánabankans sem varð
fyrir úttektarfári sl. haust, var mis-
vel tekið í gær. Stjórnarandstaðan
hafði ýmislegt við þjóðnýtinguna að
athuga sem og stór hluti hluthafa
bankans sem sumir hafa hótað að
leita réttar síns fyrir dómsstólum.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hafði Alistair Darling,
fjármálaráðherra Bretlands, til-
kynnt um helgina að Northern Rock
skyldi þjóðnýttur þar sem yfirtöku-
tilboð þau er borist höfðu í bankann
voru óviðunandi. Darling kynnti í
gær, ásamt Gordon Brown forsætis-
ráðherra, bráðabirgðalög sem gera
þjóðnýtinguna mögulega. Northern
Rock er fyrsta breska fyrirtækið
sem þjóðnýtt er síðan 1971 þegar
hreyflaframleiðandinn Rolls-Royce
hlaut sömu örlög.
Þeir Brown og Darling hafa sagt
þjóðnýtinguna vera besta kostinn í
stöðunni og jafnframt fullyrt að
bankinn muni starfa á eðlilegan
hátt, þótt eignarhaldið sé nú í hönd-
um ríkisins. Þá hefur þjóðnýtingin
sögð vera bráðabirgðaaðgerð og að
bankinn verði einkavæddur á ný
þegar öldurnar lægir á ólgusjó lána-
markaðanna. Gagnrýnendur draga
þetta hins vegar allt saman í efa,
sumir segja útilokað banki í eigu
hins geti starfað á eðlilegan hátt og
aðrir benda á að það tók 16 ár að
einkavæða Rolls Royce. Í Lex-dálki
Financial Times er það dregið í efa
að Northern Rock geti starfað eðli-
lega, í hvert skipti sem bankinn
verði áberandi muni keppinautar
hans kvarta undan eignarhaldi rík-
isins. Það er því mikilvægt að skýrt
verði nákvæmlega hvernig hið op-
inbera hyggist reka bankann að
mati Lex.
Eins og fram kom í upphafi telja
margir hluthafar bankans hætt við
að þeir verði hlunnfarnir en óháður
endurskoðandi mun ákveða verð-
mæti bankans og um leið hversu
miklar bætur hinu opinbera ber að
greiða hluthöfum.
Umdeild þjóðnýting
Hluthafar Northern Rock hóta að leita réttar síns Óháður endurskoðandi
mun verðmeta bankann Fyrsta þjóðnýtingin í Bretlandi í nær 40 ár
Í HNOTSKURN
» Evrópuráðið krefst þess að55 milljarða punda skuld
Northern Rock við Englands-
banka verði greidd eigi síðar en
17. mars nk.
» Ron Sandler, nýr yfirmaðurbankans, segir það hins veg-
ar munu taka nokkur ár að end-
urgreiða skuldina.
» Starfsmenn Northern Rockeru um 6.500 talsins en Sand-
ler hefur sagt að þeim verði
fækkað, jafnvel um helming.
Hluthafar bankans eru 180 þús-
und.
FL GROUP væri sennilega ekki til í
dag hefði Baugur ekki gripið til
þeirra breytinga sem urðu á félaginu
fyrir jólin. Þetta er mat Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, starfandi stjórnar-
formans Baugs og stjórnarformanns
FL Group, sem kom fram í viðtali við
hann í hádegisviðtali Markaðarins á
Stöð 2 í gær.
Þar sagði Jón jafnframt að senni-
lega hefði þurft að grípa til bruna-
útsölu á eignum FL Group til þess að
bjarga félaginu hefði ekki verið grip-
ið til þeirra aðgerða sem raun bar
vitni. Aðspurður hvort glannaskapur
hefði verið í rekstri FL Group sagði
Jón að gera hefði mátt miklu betur
og að hinn mikli rekstrarkostnaður
sem rætt hefði verið um hefði komið
verulega á óvart og að því yrði að
breyta. Sagt hefur verið að FL Gro-
up muni skera rekstrarkostnað nið-
ur um 50% en að mati Jóns þarf að
gera betur en það. Hann segir FL
Group jafnframt vera að koma þeim
skilaboðum til fyrirtækja sem félagið
er hluthafi í að skera niður og nefnir
í því samhengi sérstaklega Glitni.
Skylda að hagræða
„Við teljum að menn þurfi virki-
lega að taka til, sérstaklega á fjár-
málamarkaðinum, á næstu misser-
um.“ Aðspurður hvort hann sjái
framundan samþjöppun á fjármála-
markaði segir Jón að taka verði til í
sparisjóðakerfinu en jafnframt segir
hann augljós hagræðingartækifæri
felast í því að sömu aðilar eru ráð-
andi hluthafar í Landsbankanum og
Straumi-Burðarási. Það sé skylda
manna að hagræða þegar skulda-
álagið hækkar jafn mikið og það hef-
ur gert.
Rætt hefur verið um að staða
Baugs sé veik en því þverneitar Jón.
Hann segir að EBIDTA-hagnaður
fyrirtækja sem Baugur leiðir hafi á
síðasta ári verið um 60 milljarðar
króna.
Væri sennilega
ekki til lengur
Árvakur/Ómar
FL Group Jón Ásgeir Jóhannesson
segir félagið hafa stefnt í gjaldþrot.
Rekstrarkostn-
aður kom á óvart
● ALLAR helstu hlutabréfavísitölur
heimsins hækkuðu í gær, und-
antekningin var Hang Seng-vísitalan
í Hong Kong sem lækkaði um 1,6%.
Fyrst og fremst virðist það hafa verið
tilkynning breskra stjórnvalda um
þjóðnýtingu Northern Rock sem
kætti fjárfesta en FTSE-vísitalan
breska hækkaði um 2,8% og DAX-
vísitalan þýska um 2% og munu fjár-
málafyrirtæki hafa dregið vagninn.
Lokað var í Bandaríkjunum í gær.
Víðast hækkun í gær