Morgunblaðið - 19.02.2008, Qupperneq 31
Við vitum að Jói var oft þreyttur
en heyrðum hann aldrei kvarta
enda leit hann aldrei á sig sem fatl-
aðan og við að sjálfsögðu ekki held-
ur. Hann fór alla stiga, bara aðeins
hægar en hinir, þáði enga hjálp.
Hann grínaðist með fótinn og annað
er að honum snéri en oft hlýtur
hann að hafa verið hryllilega þreytt-
ur er dagur leið að kvöldi.
Og svo kemur nótt.
Svartnættið er eins og svalandi veig,
er sál þín drekkur í einum teyg.
Þreytan breytist í þökk og frið,
þögnin í svæfandi lækjarnið,
haustið í vor …
Hafðu þökk fyrir öll þín spor.
Það besta, sem fellur öðrum í arf,
er endurminning um göfugt starf.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)
Elsku Gunna, Stjáni, Helgi og
fjölskyldur, við sendum ykkur sam-
úðarkveðjur og kveðjum eins og
hann gerði alltaf: „Takk fyrir okkur
og síðan þakki hver fyrir sig“.
Anna Kr. og Guðrún.
Það var haustið 1960 sem við hóf-
um nám í Bifröst. Horfðum björtum
augum til framtíðar og höfðum flest
heldur ungæðislegt viðhorf til lífs-
baráttu og hugsanlegra erfiðleika
sem síðar mættu svo flestum.
En strax fyrsta árið okkar í skól-
anum var ljóst að Jóhannes Gunn-
arsson gekk ekki heill til skógar, en
það var seinni veturinn sem við
virkilega fórum að hafa áhyggjur af
Jóa okkar.
Á úthallandi vetri 1962 greindist
Jói svo með sykursýki og fékk þá
viðundandi meðferð. Mikil var
gleðin í Bifröst þegar Jói kom aftur
eftir nokkra vikna spítalalegu, bros-
andi, að okkur fannst fullur orku og
tilbúinn að takast á við lífið með
þennan sjúkdóm að ævarandi fylgi-
fiski.
Þegar við kvöddumst að loknu
námi hinn 1. maí 1962 fannst okkur
Jói endurheimtur og jafn ákafur að
leggja af stað út í bjarta framtíðina
og við hin.
Og þannig varð það líka. Skóla-
félagarnir hittu Jóa af og til og
fréttir bárust milli okkur um hvern-
ig Jóa gengi, því öll óskuðum við
honum farsældar í hversdagslífinu
og óskuðum þess að sjúkdómurinn
yrði honum bærilegur baggi. Jói
reyndist í lífsbaráttunni jafn mikil
hetja og þegar hann tókst á við
fyrsta áfallið.
Nú við leiðarlok sendum við fjöl-
skyldu hans einlægar samúðar-
kveðjur og væntum þess að minn-
ingar um Jóhannes Gunnarsson sefi
sorgir.
Bekkjarfélagar úr Samvinnu-
skólanum 1960-1962.
Jóhannes Gunnarsson, félagi og
samstarfsmaður til margra ára, er
fallinn frá.
Jóhannes var góður vinnufélagi
og það var gott að leita til hans og
bera upp spurningar um menn og
málefni, því oftar en ekki hjálpaði
hann mér til að leysa þau mál sem
ég bar undir hann. Hann var mann-
glöggur og þekkti marga, enda ekki
erfitt að kynnast manni með hans
persónuleika. Þessi tápmikli maður,
sem tók virkan þátt í galsafengnum
umræðum í okkar þrönga hópi,
kunni að gera grín að sjálfum sér og
öðrum á þann hátt að allir hlógu.
Jóhannesi var margt til lista lagt.
Hann hafði mikið dálæti á tónlist og
þar kom ég ekki að tómum kof-
unum. Hann spilaði sjálfur á píanó
og orgel. Á sínum yngri árum var
hann í hljómsveit sem spilaði op-
inberlega á dansleikjum. Hann kom
oft inn á skrifstofu til mín í
vinnunni, þar sem ég hef opið fyrir
Rás 1, og spurði mig: Veistu eftir
hvern þetta er? Annað hvort reyndi
ég að svara, eða neitaði, og þá stóð
ekki á svarinu og svo bætti hann
við, og textinn er eftir..., síðan var
beðið eftir afkynningunni og hann
hafði ávallt rétt fyrir sér.
Hvernig áttum við að vita það á
fimmtudeginum 7. febrúar, þegar
við vorum að ræða um flutning Pet-
ers Sellers á bítlalaginu It́s Been a
Hard Days Night, að það yrði síð-
asta tal okkar um tónlist. Þú varst
eins og ég, hrifinn af Peter Sellers
og hermdir eftir honum í þessu lagi,
og svo var hlegið og þú sagðir: Ég
held að Party sé besta myndin sem
hann hefur leikið í. Söngur og kveð-
skapur féll Jóhannesi afar vel, en
það var alls ekki sama hvernig það
var framsett í hans eyru. Hann var
með næmt tóneyra og góða þekk-
ingu á hvernig kveðið var, svo að vel
færi. Hann fór oft með vísur fyrir
mig og spurði svo, Hvernig finnst
þér þessi? eða sagði Hér er ein góð.
Bókamaður var hann og þegar
hann sýndi mér hreykinn íbúðina
sína, þá var það eina sem honum
fannst vanta, að hafa ekki herbergi
fyrir bækurnar sínar. Jóhannes
hafði ferðast víða og sagði oft sögur
frá þeim ferðalögum. Ef ég var að
fara í ferðalag til útlanda spurði
hann hvert ferðinni væri heitið og
svo stóð ekki á hjálpseminni um að
leiðbeina manni um það hvað væri
áhugavert og hvað við yrðum að
skoða.
Hann stóð við gluggann á skrif-
stofunni og horfði á fjallið og sagði,
Esjan er fallegt fjall. Já sagði ég.
En ég á fallegra fjall. Nú hvað,
spurði ég. Tindastól sagði hann
stoltur. Jóhannes var stoltur af sín-
um uppruna og talaði oft um sig og
sína og ekki síst blessuð barnabörn-
in sem hann var sérstaklega stoltur
af.
Ég þakka honum fyrir samferð-
ina sem var bæði fróðleg og
skemmtileg.
Ástvinum sendi ég samúðarkveðj-
ur.
Blessuð sé minning Jóhannesar
Gunnarssonar.
Kristbjörn.
Jóhannes var menntaður í versl-
unarfræðum frá Bifröst og starfaði
alla tíð við viðskipti og innflutning.
Fyrst í stað starfaði hann hjá öðr-
um við verslunarstörf og innflutning
en síðan við eigið innflutningsfyr-
irtæki. Í allmörg ár var Jóhannes
með sölubás í Kolaportinu, samfara
öðrum störfum sér til búdrýginda
en ekki síður sem áhugamál og
skemmtun. Hann vann nú síðast
sem tollendurskoðandi hjá embætti
Tollstjórans í Reykjavík og hafði
unnið þar tæpa tvo áratugi er hann
lést.
Jói eins og hann var oftast kall-
aður, var ekki allra, en hann var
hvatvís og kaldhæðinn, en undir
niðri glettinn og ljúfur. Ungur
greindist Jói með sykursýki sem
tók sinn toll, en af hennar sökum
þurfti að taka af honum annan fót-
inn fyrir allmörgum árum. Hann
sagði reyndar að orsökin hefði ver-
ið sambland af sykursýki og reyk-
ingum en hann hafði verið stór-
reykingamaður á fyrri árum en
hætti þegar læknirinn skipaði hon-
um að gera það og reykti ekki eftir
að hann kom út af læknastofunni,
staðfastur maður Jói. Ekki gerði
Jói mikið veður út af fótarmiss-
inum og vildi fá að starfa og lifa líf-
inu sem ófatlaður væri. Vinna var
honum kær, og sagði hann mér fyr-
ir skömmu að hann óskaði sér þess
helst að fá að vinna sem lengst.
Sem dæmi um húmor Jóa má
nefna söguna af því þegar hann
seldi blýanta í Kolaportinu á 20 kr.
stk. Þá útbjó hann stórt skilti þar
sem hann bauð 4 blýanta á sér-
stöku tilboði, 100 kr. samtals.
Nokkrir létu glepjast og vildu
kaupa eftir tilboðinu. Nokkrum
sinnum leysti ég hann af í Kolaport-
inu og þá komu margir og spurðu
um hann, enda kunningjahópurinn
stór og margir vanir að líta inn og
spjalla. Í seinni tíð átti fjölskyldan
hug hans allan og sérstaklega afa-
börnin sem hann talaði mikið um.
Oft áttum við hressileg símtöl um
vinnuna sem krydduð voru umbúða-
lausum húmor um menn og málefni.
Brotthvarf Jóa er svo skyndilegt
og ótímabært en einhvern vegin
samt í hans stíl. Hans er sárt sakn-
að á vinnustað og skarðið vandfyllt,
enda ekki á hverju strái jafn-
reynslumikið fólk og hann var.
Ég votta fjölskyldu hans mína
dýpstu samúð.
Árni Elísson.
Hver minning dýrmæt perla
að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf,
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum,er
fengu að kynnast þér.
(Ingibj.Sig.)
Saknaðar- og samúðarkveðjur,
Berglind Eymarsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 31
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti
107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Goðabraut 3, veitingahús. 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-4808), þingl.
eig. Guðbjörg Lára Ingimarsdóttir og Kristján Rúnar Kristjánsson,
gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Dalvíkurbyggð og Sýslumaðurinn á
Akureyri, föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 10:00.
Hafnarbraut 7, verslun, Dalvíkurbyggð (222-4994), þingl. eig. Síma og
tölvuþjón. Rafhóll ehf, gerðarbeiðendur Stafir lífeyrissjóður og
Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 10:00.
Höskuldsstaðir, sumarbústaður, Eyjafjarðarsveit (215-9005), þingl.
eig. Elva Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn
hf, föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 10:00.
Óseyri 16, iðnaður, 01-0103, Akureyri (224-6160), þingl. eig. Protak ehf,
gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Sjóvá-
Almennar tryggingar hf, Slippfélagið í Reykjavík hf og Slippurinn
Akureyri ehf, föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 10:00.
Sjávargata 2, Hrísey, Akureyri (215-6341), þingl. eig. Kraka ehf,
gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, föstudaginn 22. febrúar 2008
kl. 10:00.
Skíðabraut 3, 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-5169), þingl. eig. Gísli Stei-
nar Jóhannesson, gerðarbeiðandi S24, föstudaginn 22. febrúar 2008
kl. 10:00.
Strandgata 49, geymsla, 02-0103, Akureyri (255-4639), þingl. eig.
Björgvin Ólafsson, gerðarbeiðendur Arnarfell ehf og Avant hf,
föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 10:00.
Sveinbjarnargerði III, eignahl. hús og bílskúr, Sval-
barðsstrandarhreppi (216-0393), þingl. eig. Jónas Halldórsson,
gerðarbeiðandi Húsasmiðjan hf, föstudaginn 22. febrúar 2008 kl.
10:00.
Vaðlabyggð B, lóð, Svalbarðsstrandarhreppi (204843) , þingl. eig.
Icefox á Íslandi ehf, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf,
föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 10:00.
Öldugata 18, verslun, 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-6660), þingl. eig.
Konný ehf, gerðarbeiðandi Dalvíkurbyggð, föstudaginn 22. febrúar
2008 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
18. febrúar 2008.
Til sölu
Bækur til sölu
Íslensk myndlist 1-2, Bj.Th., Textabók Megasar, Þorvaldur Thor-
oddsen, Ferðabók 1-4, Lýsing Íslands 1-4,. Landfræðisaga 1-4,
Árferði á Íslandi, allt frumprent, samstætt band, selst saman,
Búnaðarblaðið Freyr 1. - 73. árg. ib.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Tilboð/Útboð
Vopnafjarðarhreppur
Útboð
Vopnafjörður - leikskóli
Vopnafjarðarhreppur auglýsir eftir tilboðum
í innréttingar, viðbyggingar við leikskólann
Brekkubæ á Vopnafirði.
Viðbyggingin er 298 m².
Verkið felst í að ganga frá húsinu að innan
með innréttingum, raflögnum, lýsingu, hita-
og hreinlætislögnum.
Húsið er nú fullfrágengið að utan, einangrað
með rakavörn og lagnagrindum að innan.
Verklok eru 12. júní 2008.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Vopna-
fjarðarhrepps, Hamrahlíð 15 gegn
5.000,- króna skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sama stað fyrir
kl. 14.00 fimmtudaginn 28. febrúar n.k. þar
sem þau verða opnuð.
Sveitarstjóri
Vopnafjarðarhrepps
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Víkurtún 3, Strandabyggð, fnr. 212-8841, þingl. eig. Henry
Guðmundur Nielsen, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Hólmavík,
föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 14:15.
Sýslumaðurinn á Hólmavík,
18. febrúar 2008.
Ýmislegt
Ný fiskveiðistjórn!
Nýr óáfrýjanlegur úrskurður Mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna, um jafnan rétt
Íslendinga til fiskveiða, krefst tafarlausra
aðgerða. Aðeins talsmenn harðra öfgaafla
mæla fyrir veiðistjórn sem brýtur gegn
stjórnarskrá og alþjóðasáttmálum. Hér sem
víðar eru breytingar því óhjákvæmilegar.
Nú, þegar gamla veiðistjórnin hefur verið
staðfest sem lögbrotaferli, eiga löng
,,sólarlagsákvæði”, (10-25 ár), ekki við og
fordæmalaust er að brotaferli geti orðið
grundvöllur opinberra skaðabóta til þeirra,
sem tóku þátt í því.
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.
Félagslíf
HLÍN 6008021919 VI
I.O.O.F. Ob.1,Petrus 1882198
Nk.Fl. HAMAR 6008021919 II
FJÖLNIR 6008021919 I
EDDA 6008021919 Ill
Raðauglýsingar
augl@mbl.is
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
BRYNDÍSAR JÓNSDÓTTUR
frá Siglufirði.
Guð blessi ykkur öll.
Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Halldóra Jónasdóttir,
Edda Rósa Gunnarsdóttir, David Jarron,
Bettý Gunnarsdóttir, Óðinn Gústafsson,
Adam Jarron, Andri Jarron,
Arna Mjöll Óðinsdóttir, Freyja Óðinsdóttir,
Embla Óðinsdóttir.