Morgunblaðið - 19.02.2008, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Bækur
Íslensk myndlist 1-2, BjTh.Texta-
bók Megasar, Þorvaldur Thor-
oddsen - Ferðabók 1-4, Lýsing
Íslands 1-4, Landfræðisaga 1-4,
Árferði á Íslandi, allt frumprent,
samstætt band, selst saman,
Búnaðarblaðið Freyr 1-73 árg. ib.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Heilsa
REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI
STREITU- OG KVÍÐALOSUN.
Notuð er m.a. dáleiðsla og
EFT (Emotional Freedom
Techniques).
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694-5494,
www.EFTiceland.com.
LR kúrinn hefur gjörbreytt mínu
lífi. Léttist um 45 kg á aðeins einu ári
sem var í raun mjög auðvelt með
vörunum frá LR. Hafði barist við
yfirþyngd allt mitt líf. Poul sími: 0045-
40745252. www.dietkur.is
Lr-kúrinn er fyrir allar konur og
karla. Langar þig að vita hvernig ég
léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuð-
um? www.dietkur.is - Dóra 869 2024.
Húsnæði í boði
Atvinnuhúsnæði á Akranesi
Til leigu 241 fermetra húsnæði með
stórum innkeyrsludyrum og góðum
gluggum í tvær áttir. Húsnæðið er að
hluta til á tveimur hæðum, 50 fm,
þar sem er skrifstofa, salerni, kaffi-
stofa og lager.
Húsnæðið er einnig til sölu.
Upplýsingar í símum 893 4800 og
891 7565
Húsnæði óskast
Óska eftir íbúð.
Ung kona með barn óskar eftir íbúð á
höfuðborgarsvæðinu til
langtímaleigu. Er í fastri vinnu og
reglusöm. Greiðslugeta um 80 þús.
Uppl. í síma: 865-5938
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús .
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Heilsárshús ehf, Fiskislóð 22
Tökum að okkur að smíða sumarhús í
öllum stærðum og gerðum. Eigum til
nokkrar teikningar, gott verð.
Uppl. í síma 893 4180 og 893 1712,
fax 552 5815
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Iðnaðarmenn
Málningarþjónusta
Mjög vandaðir málarar geta bætt við
sig verkum. Tökum að okkur allar teg-
undir málningar og spartslvinnu. K.G
Málverk. S. 616 2757 og 551 6569.
Námskeið
LJÓSMYNDANÁMSKEIÐ
Spennandi námskeið fyrir stafrænar
myndavélar þar sem farið er í allar
helstu stillingar á myndavélinni,
útskýrðar ýmsar myndatökur og farið
í tölvumálin. Einnig Photoshop og
stúdíó myndatökur. Fyrir byrjendur og
lengra komna. Verð frá kr. 13.900.
Leiðbeinandi Pálmi Guðmundsson.
Skráning á:
www.ljosmyndari.is
Sími 898 3911.
Enska!
Einstætt enskunámskeið fyrir þá sem
vilja þjálfa talmál og styrkja
enskugrunninn. Námskeið á 19 cd
diskum, vinnubók með enska og
íslenska textanum. Námsleiðbein.
Aðstoð frá kennara á námstímanum.
Nánari upplýsingar á tungumal.is.
Skráning í síma 540 8400 og 8203799
Tómstundir
Fjarstýrðir rafmagns- og bensínbílar
í miklu úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
Til sölu
Tékkneskar og slóvenskar
handslípaðar kristal- ljósakrónur.
Mikið úrval. Frábært verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Þjónusta
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Gormun
580 7820
580 7820
LJÓSAKASSAR
Vönduð og þægileg dömustígvél
úr mjúku leðri.
Litir: brúnt og svart
Stærðir: 36 - 41. Verð: 14.500.-
Litur: brúnt
Stærðir: 36 - 41. Verð: 14.500.-
Hægt er að víkka þau að ofan.
Litur: svart stærðir: 36 - 42
Verð: 16.750.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18,
og laugardaga 10-14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Volare húðvörur
Er að selja frábærar húðvörur frá
Volare. Hringið í síma 662 6560.
Helga, sjálfstæður söluráðgjafi
hjá Volare.
Hópstjóri Lydía.
Vefhýsing og heimasíðugerð
Svissnesk gæði á ótrúlegu verði.
50GB á 115 evrur. Við erum að tala
um ársverð .... lestu meira hér á
netsíðu: www.icedesign.ch
SKÁKDEILD K.R.
Aðalfundur skákdeildarinnar fyrir árið
2007 verður haldinn í skákstöð
félagsins í K.R. heimilinu við Frosta-
skjól mánud. 4. mars n.k. kl. 19:15.
Fundarefni: Tillaga um breytingar á
samþykktum skákdeildar er taka mið
af að félagið verði deild.
Veiði
Stangveiðimenn athugið.
Hörðudalsá í Dölum er laus til leigu.
Leigutími ár hvert er frá og með 1.
júlí, til og með 9. september í allt að
þrjú ár. Upplýsingar gefa Hörður í
síma 434 1331 eða Logi í síma
565 4373 eftir kl. 20. Tilboðum skal
skilað í síðasta lagi 28. febrúar 2008
á netfang vifl@simnet.is eða í pósti
til Veiðifélags Hörðudalsár,
Vífilsdal 371 Búðardalur.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Vinnuvélar
Traktorsgrafa í skiptum fyrir bát.
Vil kaupa traktorsgröfu sem mætti
greiðast með bát. Verð 2 til 4 millj.
S. 864 4589
Þjónustuauglýsingar 5691100
NORÐURLANDAMÓT í skóla-
skák, einstaklingskeppni, er horn-
steinn norrænnar samvinnu á
skáksviðinu. Þetta mót hefur verið
haldið á hverju ári í tæpa þrjá áratugi
og þar hafa margir íslenskir skák-
menn stigið sín fyrstu spor í keppni á
erlendri grundu. Um síðustu helgi fór
mótið fram í Tjeleskólanum sem er í
Viborg á Jótlandi. Tíu íslenskir skák-
menn tóku þátt í fimm aldursflokk-
um, tveir í hverjum en alls voru tólf
keppendur í hverjum flokki. Gengi ís-
lensku keppendanna var með ágæt-
um og var einum Norðurlandameist-
aratitli landað. Guðmundur
Kjartansson (2307) varð Norður-
landameistari í elsta flokknum en
hann varð efstur í flokknum ásamt
færeyska alþjóðlega meistaranum
Helga Dam Ziska (2406) en Guð-
mundur varð meistari eftir stigaút-
reikning.
Eftir á að hyggja var mikilvægasta
sigurskák Guðmundar á mótinu þeg-
ar hann lagði Færeyinginn sterka að
velli í annarri umferð. Skákin var
feikilega vel tefld af hálfu Guðmund-
ar. Hann beitti Caro–Kann vörn með
svörtu og náði að halda jafnvæginu í
byrjun tafls þó að sá færeyski reyndi
að slá ryk í augu hans með vali á
sjaldgæfu afbrigði. Þegar hvítur
hafði leikið sínum 22. leik kom eft-
irfarandi staða upp:
Þessi staða virðist í dýnamísku
jafnvægi en þó má ljóst að vera að
hvítur hótar nú g2–g4 í sumum til-
vikum. Guðmundur fann snjalla og
kraftmikla leið til að svara þeirri hót-
un. 22… g5! 23. Rf5 Bxf5 24. Hxf5
Rd7!
Svartur tryggir nú fótfestuna á
miðborðinu enn frekar með f7–f6
framrásinni og við það verður erfitt
fyrir hvíta biskupaparið að njóta sín.
25. Hf1 f6 26. Dd1 Rf4 27. Bc2 Kg7
28. Be3 Rg6 29. Bb3 c5! 30. dxc5
Rxc5 31. Bxc5’!
Eftir þetta má segja að hvíta stað-
an verði afar erfið þar sem svörtu
reitirnir verða veikir.
31…Bxc5 32. H5f3 Hd8 33. Dc2
Db6 34. g3 h5! 35. Hd3 h4 36. gxh4
Rxh4 37. Rf3 Rg6 38. Re1 Rf4 39.
Hg3 Hh8 40. Hff3 Da6 41. Kh2 Da1
42. Rd3
Svartur hefur teflt eins og herfor-
ingi og klykkir nú út með leikfléttu
sem tryggir sigurinn.
42… Hxh3+! og hvítur gafst upp
enda yrði hann mát eftir 43. Hxh3
Dg1#.
Samtals fengu íslensku keppend-
urnir 35½ vinning af 60 mögulegum á
mótinu og voru það eingöngu Norð-
menn sem fengu fleiri vinninga eða 38
talsins. Svíar fengu 32 vinninga og
Finnar 31½ v. en Danir og Færeyjar
ráku lestina með 22½ v. annars vegar
og 21½ v. hins vegar. Gengi íslensku
keppendanna í einstökum flokkum
varð þessi:
A–flokkur (17–20 ára)
1. Guðmundur Kjartansson (2307) 4½ v. af 6
mögulegum.
6.–9. Atli Freyr Kristjánsson (2019) 3 v.
B–flokkur (15–16 ára)
2. Sverrir Þorgeirsson (2120) 4 v.
3. Daði Ómarsson (1999) 3½ v.
C–flokkur (13–14 ára)
4. Patrekur Maron Magnússon (1785) 4 v.
10. Svanberg Már Pálsson (1820) 2 v.
D–flokkur (11–12 ára)
2. Dagur Andri Friðgeirsson (1798) 4½ v.
4. Friðrik Þjálfi Stefánsson (1455) 3½ v.
E–flokkur (10 ára og yngri)
4. Dagur Ragnarsson 3½ v.
5.–8. Kristófer Gautason (1245) 3 v.
Af framangreindri upptalningu má
sjá að tvenn silfurverðlaun féllu í
skaut íslensku keppendanna og ein
bronsverðlaun. Fararstjórarnir Páll
Sigurðsson og Davíð Ólafsson mega
því vera ánægðir með árangur sinna
manna. Það var vel til fundið að sá
síðarnefndi sendi frá sér læsilega
pistla um gang mála sem birtust á
www.skak.blog.is. Á bloggsíðu Karls
Gauta Hjaltasonar var einnig að finna
upplýsingar um ferðalag íslensku
keppendanna ásamt því sem að
heimasíða mótshaldara var prýðileg,
http://www.skoleskak.dk/nm2008/.
Guðmundur Norðurlandameistari
SKÁK
Tjele í Danmörku
NORÐURLANDAMÓTIÐ Í SKÓLASKÁK
2008
13.–17. febrúar 2008
Helgi Áss Grétarsson
Norðurlandameistari Guðmundur
Kjartansson hefur nokkrum sinn-
um unnið NM í skólaskák.
daggi@internet.is