Morgunblaðið - 19.02.2008, Side 36

Morgunblaðið - 19.02.2008, Side 36
Hún minnir á Goldie Hawn í gamla daga, full af fjöri … 38 » reykjavíkreykjavík EINS og greint var frá í Morgunblaðinu í síð- ustu viku var búist við því að breska leik- konan Keira Knightley myndi verja Valent- ínusardeginum hér á landi, en kærasti hennar Rupert Friend átti að hafa komið henni á óvart með því að bjóða henni hingað til lands. Þetta kom meðal annars fram á slúðurfrétt- aveitunni Bang Showbiz. Skemmst er frá því að segja að ekkert hefur sést til leikkonunnar og líklegt verður að teljast að hún hafi hætt við Íslandsförina eða þá að aldrei hafi staðið til að hún kæmi hingað til lands. Þessar fréttir minna um margt á fréttir frá því í mars árið 2003, en þá gengu þær sögur fjöllunum hærra að breski leikarinn Jude Law hefði komið hingað til lands. Aðdáendur kappans fjölmenntu á helstu skemmtistaði Reykjavíkur í von um að berja leikarann aug- um en gripu í tómt. Aðdáendur Keiru Knightley geta þó hugg- að sig við það að þeir geta enn séð leikkonuna á hvíta tjaldinu, en hún fer með aðal- hlutverkið í hinni margrómuðu Atonement sem sýnd er í kvikmyndahúsum landsins um þessar mundir. Kom Keira Knightley ekki? Reuters Íslandsvinur? Keira Knightley kom líklega ekki til landsins.  Ummæli Pálma Guðmundssonar, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2, í Fréttablaðinu í gær um að Skjár- Einn hafi misst niður áhorf, fóru heldur betur fyrir brjóstið á forsvarsmönnum Skjás- Eins, ef marka má fréttatilkynn- ingu sem SkjárEinn sendi frá sér í gær. Þar segir að stöðin auki áhorf sitt um 34% frá könnun síðasta árs þegar meðaláhorf er skoðað og það hafi Capacent Gallup staðfest á kynningu sinni fyrir helgi. Sigríður Margrét Oddsdóttir, fram- kvæmdastjóri Skjás miðla ehf., seg- ir í fréttatilkynningunni að hún velti því fyrir sér hvort það vaki fyrir Stöð 2 að blekkja auglýsendur og fjárfesta með slíku tali. Pálmi Guðmundsson svaraði þessu svo í samtali við vísi.is í gærdag og sagði að sannarlega hefðu allar stöðvar aukið áhorf sitt en bilið milli stöðv- anna hafi hinsvegar breikkað. Stöð 2 væri að taka stærri sneið af kök- unni og vikulegt áhorf fólks á aldr- inum 12 - 80 ára í mínútum sýndi að Stöð 2 væri með 97% meira áhorf en SkjárEinn og munurinn á milli stöðvanna hafi ekki verið meiri um árabil. Áhorf á SkjáEinn eykst líkt og hjá öðrum  Útvarpskönnun Capacent Gallup hefur hins vegar minni athygli fengið en þar eru mjög áhugaverð- ar niðurstöður að finna. Til að mynda virðist klassíska stöðin Rondo vera svo gott sem dauð og Rás 1 hefur aðeins 6.4 % hlutdeild á útvarpsmarkaði þegar kemur að aldursbilinu 12 - 49 ára. Klassíkin að deyja út Eftir Rósu Björk Brynjólfsdóttur KVIKMYNDAHÁTÍÐIN verður haldin í byrjun júni, stendur yfir í þrjá daga og hefur hlotið nafnið Air d’Islande sem mætti útleggjast sem Íslenskir vindar. Frönsk kvik- myndagerð er heimsþekkt og Par- ís er oft nefnd bíóborgin vegna ríkrar og langrar kvikmynda- hefðar. Í borginni sjálfri eru um 400 kvikmyndasalir þar sem gríð- arlegt úrval kvikmynda hvaðan- æva úr heiminum stendur borg- arbúum til boða hverju sinni. Íslenskar kvikmyndir eru þó sjald- séðar í allri flórunni og því liggur beinast við að spyrja kvikmynda- gerðarmanninn Ara hvers vegna hann telji að íslenskar kvikmyndir eigi eftir að vekja forvitni franskra bíógesta. „Frakkar eru forvitnir um allt sem er íslenskt og við hjá Air d’Is- lande stefnum að því að svala þeirri forvitni. Hugmyndir Frakka um Ísland eru líka almennt óljósar og landið er sveipað mystík í þeirra huga. Íslensk tónlist hefur hingað til höfðað mjög til Frakka, svo að ég efast ekki um að þeir eigi eftir að kolfalla fyrir íslensk- um kvikmyndum líka. Þess vegna er gaman að segja frá því að við ætlum að sameina þetta tvennt og halda tónleika með íslensku tón- listarfólki meðfram hátíðinni.“ Ari segir að markmiðið með há- tíðinni Air d’Islande sé þó ekki eingöngu að kynna íslenskar kvik- myndir fyrir frönsku kvikmynda- áhugafólki. Tilgangurinn sé einnig sá að ná til þeirra sem starfa innan kvikmyndaiðnaðarins. Búa til við- skiptatengsl milli Íslendinga og Frakka, fá franska kvikmynda- framleiðendur til Íslands með því að vekja athygli á þeirri staðreynd að íslensk yfirvöld hafa á undan- förnum árum reynt að laða er- lenda kvikmyndaframleiðendur til landsins og vonandi opna fyrir dreifingu á íslenskum kvikmynd- um í Frakklandi. Áhersla á nýjar myndir „Ætlunin er að halda ráðstefnu á hátíðinni sem miðar að því að sýna möguleikana til kvikmynda- framleiðslu á Íslandi fyrir franska framleiðendur með því að kynna hina opinberu skattaend- urgreiðslu, segja frá nýjum, ís- lenskum kvikmyndum sem eru í framleiðslu og fá kvikmynda- framleiðendur sem hafa reynslu af samstarfi milli Íslands og Frakk- lands til að deila reynslu sinni með öðrum,“ segir Ari. En hvaða íslensku myndir fá svo franskir bíógestir að sjá á Air d’Is- lande? „Við viljum leggja áherslu á nýj- ar, íslenskar kvikmyndir og gefa gestum hugmyndir um fjölbreyti- leika íslenskrar kvikmyndagerðar. Þess vegna höfum við ákveðið að sýna myndir eins og Heima, tón- leikakvikmynd Sigur Rósar, Hlemm eftir Ólaf Sveinsson og Lalli Johns eftir Þorfinn Guðna- son. Svo eru fleiri nýlegar myndir og perlur íslenskrar kvikmynda- sögu að bætast í þennan fríða hóp,“ segir hinn önnum kafni kvikmyndagerðarmaður í París. Íslensk gjóla í París Ljósmynd/Ómar Jabali Ari Allansson Íslenskur andvari mun svífa yfir vötnum á kvikmyndahátíð- inni Air d’Islande sem hefst í París í byrjun júní á þessu ári. Ari Allansson vinnur þessa dagana ásamt frönsku samstarfsfólki sínu að því að leggja lokahönd á íslenska kvikmyndahátíð í kvikmyndaborginni París þar sem hann býr og starfar. Vefsíða kvikmyndahátíðarinnar Air d’Islande: www.airdislande.com ■ Fim. 21. febrúar kl. 19.30 – Örfá sæti laus Sellósnillingur í toppformi Daniel Müller-Schott, ein skærasta stjarna sellóheimsins í dag, leikur einleik í byltingarkenndum konsert Haydns. Einnig eru á dagskrá forleikur Töfraflautunnar eftir Mozart og Sveitasinfónía Beethovens. Stjórnandi: Eyvind Aadland Einleikari: Daniel Müller-Schott Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á Hótel sögu kl. 18. fyrir tónleikana. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir. ■ Fim. 28. febrúar kl. 19.30 Liszt og Bruckner Tveir stórmeistarar hvor á sínu sviði. Flutt verða píanókonsert eftir Liszt og sinfónía eftir Bruckner. ■ Fim. 6. mars kl. 19.30 Gamalt og nýtt Enginn vill missa af Sigrúnu Eðvaldsdóttur leika hinn magnaða fiðlukonsert Albans Berg. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.