Morgunblaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 2
Í HNOTSKURN
»Sýningin Matur 2008 frestastfram á haust og verður lík-
lega með breyttu sniði til að
bregðast við nýjum aðstæðum á
markaði.
»Líklega fellur Golfsýningin2008 niður en Ferðatorg
verður haldið nær sumri og einn-
ig með breyttu sniði.
»Skipuleggjendur sýningannasegja ljóst að fyrirtæki hafi
minni fjármuni til að verja í sýn-
ingahald.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
VEGNA núverandi aðstæðna á
markaði hafa skipuleggjendur sýn-
inganna Matur 2008 og Ferða- og
golfsýningarinnar 2008 þurft að
fresta sýningunum.
Virðast hafa úr minna að spila
Gunnar Rafn Birgisson er fram-
kvæmdastjóri Íslandsmóta, sem sjá
um framkvæmd og skipulagningu
sýninganna og segir hann ákvörð-
unina hafa verið tekna í samráði
við sýnendur: „Við höfum fundið
fyrir því að áhugi seljenda fyrir
sýningahaldi er ekki eins mikill og
verið hefur hingað til. Þau fyrir-
tæki sem tekið hafa þátt í fyrri
sýningum hugðust ýmist sleppa
þátttöku eða hafa mun minni bása
en þau hafa haft hingað til, svo
ekki reyndist lengur nægilegur
grundvöllur fyrir sýningarhaldinu,“
útskýrði Gunnar Rafn í samtali við
blaðamann en í tilkynningu frá fyr-
irtækinu kemur fram að ljóst sé að
fyrirtæki hafi minni fjármuni til
fjárfestinga í markaðs- og kynning-
arstarfi í tengslum við sýningahald
á innlendum markaði en á undan-
förnum árum.
Sýningin Matur 2008 er í eigu
Kópavogsbæjar og segir Gunnar
Rafn unnið að breytingum á sýn-
ingunni til að bregðast við núver-
andi aðstæðum. Fyrirhugað er að
halda sýninguna í vetrarbyrjun og
væntanlega með öðrum áherslum
en hingað til, svo að nálgast megi
betur þarfir markaðarins eins og
þær eru í dag.
Gunnar Rafn segir óvíst hvort
Ferða- og golfsýningin verði haldin
í ár. Þó er fyrirhugað að efna til
Ferðatorgs þegar nær dregur
sumri, samt með öðru sniði en áð-
ur.
Urðu að fresta vöru-
og þjónustusýningum
Morgunblaðið/ÞÖK
Forvitnilegt Ekki var nægur áhugi meðal seljenda til að stæði undir sams-
konar sýningahaldi og fyrri ár. Myndin er frá sýningunni Matur 2006.
Fyrirtæki virðast
hafa minna svig-
rúm til kynninga
2 MÁNUDAGUR 31. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
LEIKHÓPURINN Perlan fagnar 25 ára leikaf-
mæli um þessar mundir. Afmælið verður haldið
með sýningu á Nýja sviði Borgarleikhússins
sunnudaginn 6. apríl. Þar verða frumsýnd tvö ný
leikverk: Mídas konungur er með asnaeyru og
Ljón og mýs, en bæði verkin eru í leikgerð og
leikstjórn Sigríðar Eyþórsdóttur. Perlan sýnir
líka dansverkið Body-Slap eftir Láru Stefáns-
dóttur, undir hennar stjórn. Þá verða sýnd
myndbönd svo sem Svefn-genglar Sigurrós og
Perlan. Í Perlunni eru 11 manns og sýna þau öll
á afmælissýningunni. Þrír í Perlunni eru búnir
að vera frá upphafi en umsjónarmaður og leik-
stjóri frá byrjun er Sigríður Eyþórsdóttir. Kynn-
ar á afmælissýningunni verða Bergljót Arnalds
og Benedikt Erlingsson leikarar.
Á myndinni eru frá vinstri: Sigríður Eyþórs-
dóttir, Sigrún Árnadóttir, Hildur Davíðsdóttir,
Matthías Arnalds, Garðar Hreinsson, Bryndís
Hilmarsdóttir, Hreinn Hafliðason, Sigfús Svan-
bergsson, Neðri röð: Gerður Jónsdóttir, Ingi-
björg Árnadóttir, Ragnar Ragnarsson, Eva
Donaldsdóttir, Birgitta Harðardóttir og Guðrún
Ósk Ingvarsdóttir.
Morgunblaðið/Ómar
Perlan á bráðum stórafmæli
ENGAR tilkynn-
ingar um hópupp-
sagnir höfðu bor-
ist Vinnumála-
stofnun í lok
síðustu viku, að
sögn Gissurar
Péturssonar, for-
stjóra stofnunar-
innar.
Gissur segir að
þó gæti einhverra hreyfinga, t.d. í
byggingariðnaði, og hafi allmargir út-
lendingar úr þeim geira lagt leið sína
á skrifstofur Vinnumálastofnunar
upp á síðkastið til að fræðast um rétt-
indi sín.
Byggingarfyrirtækið Stafnás sagði
upp 95 starfsmönnum í byrjun mán-
aðarins, en Gissur bendir á að þær
uppsagnir geti ekki allar skrifast á þá
efnahagslægð sem nú virðist hafin:
„Það er þó klárt að lítil hreyfing í sölu
eigna mun væntanlega valda því að
hægir á í byggingariðnaði á næstu
mánuðum,“ segir Gissur.
Bitnar fyrst á útlendingum
Atvinnuleysi mælist enn mjög lítið,
og spáir Gissur að ef þrengingar
verða á vinnumarkaði muni það fyrst
bitna á erlendu vinnuafli. „Þeir hafa
margir viljað kynna sér möguleika á
að nýta í heimalandi sínu áunnin bóta-
réttindi. Eins er sennilegt að geng-
isfall krónunnar snerti sérstaklega
illa þá sem senda hluta af launum sín-
um til heimalandsins, og mögulega
verða til þess að sumir þessara starfs-
manna sjái sér ekki hag í að stunda
frekari störf á landinu.“
Útlending-
ar spyrja
um bótarétt
Gissur Pétursson
Engar hópuppsagnir
hafa verið boðaðar
BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs-
ing frá Kaupþingi, þar sem orðrómi
þess efnis að bankinn hafi vísvitandi
reynt að stuðla að veikingu krónunn-
ar er vísað algerlega á bug.
Yfirlýsingin er svohljóðandi:
„Kaupþing hefur margoft gefið upp í
tengslum við birtingu uppgjöra að
gjaldeyristengdar eignir eru um-
fram gjaldeyristengdar skuldir til
þess að verja eiginfjárhlutfall bank-
ans fyrir veikingu íslensku krónunn-
ar. Einnig er send skýrsla daglega til
Seðlabanka Íslands sem sýnir gjald-
eyrisviðskipti bankans við viðskipta-
vini sína. Með þessu móti ríkir fullt
gegnsæi á gjaldeyrisviðskiptum
Kaupþings með íslensku krónuna.
Kaupþing vísar algerlega á bug orð-
rómi þess efnis að bankinn hafi vís-
vitandi reynt að stuðla að veikingu
krónunnar í viðskiptum sínum á
gjaldeyrismarkaði,“ segir í yfirlýs-
ingu Kaupþings.
Vísar orð-
rómi á bug
♦♦♦
BANASLYS varð
á Fjarðarheiði á
laugardag þegar
vélsleði fór fram
af snjóhengju og
lenti ofan í gili.
Hinn látni hét
Birgir Vilhjálms-
son og var 48 ára,
til heimilis á
Reynivöllum 12 á Egilsstöðum. Birg-
ir lætur eftir sig eiginkonu og fjögur
uppkomin börn.
Lést í
vélsleðaslysi
♦♦♦
DÁLKAHÖFUNDUR í Financial
Times, Wolfgang Munchau, ritar í
grein í gær að illkvittinn orðrómur
um íslenskt efnahagslíf sé ekki rétt-
lætanlegur. Í greininni kveður við
öllu jákvæðari tón en sést hefur í
umfjöllun erlendra fjölmiðla um Ís-
land að undanförnu. Telur Munchau
meiri ástæðu fyrir alþjóðlega fjár-
festa til að hafa áhyggjur af aukinni
verðbólgu í Bandaríkjunum eða
samdrætti í Bretlandi heldur en Ís-
landi.
Munchau telur ýmsa hagvísa sýna
að íslenskt hagkerfi sé traust, m.a.
vel menntað og sveigjanlegt vinnu-
afl, lítið atvinnuleysi og traustir líf-
eyrissjóðir. Vandi hagkerfisins sé
ekki fjármálageirinn, heldur miklu
frekar innra ójafnvægi í efnahagslíf-
inu, sem komi í veg fyrir að peninga-
málastefnan virki. Er verðtrygging-
in þar nefnd til sögunnar og hvernig
ríkisrekinn íbúðalánasjóður heldur
einkareknum bönkum frá þeim
markaði.
Vitnar dálkahöfundurinn m.a. til
skýrslu Richard Portes og Friðriks
Más Baldurssonar, þar sem segi m.a.
að íslensku bankarnir standist vel
samanburð við sambærilega evr-
ópska banka. Dregur hann í efa að
hátt skuldatryggingarálag þeirra sé
réttlætanlegt. Væri svo ættu þeir að
vera orðnir gjaldþrota.
Íslenskt
hagkerfi
traust
Orðrómur um Ísland
ekki réttlætanlegur,
segir í grein í FT