Morgunblaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 18
kostnaðarhækkunar, því eldsneyti
hefur hækkað um liðlega fjörutíu
prósent í krónum talið, frá því sum-
arbæklingurinn okkar kom út. Við
gáfum fólki tækifæri á að koma tólf
dögum eftir að það fékk bréfið til að
gera upp sínar ferðir fyrir hækkun
og margir notfærðu sér það og voru
þakklátir fyrir þann möguleika. Fólk
sýndi þessu mikinn skilning, enda
veit það vel að svona miklar hækk-
anir lenda bæði á fyrirtækinu og
neytendum,“ segir Tómas og bætir
við að engar afbókanir hafi verið í
kjölfarið og að sala gangi vel á nýj-
um ferðum, þó þær hafi hækkað.
„Við höfum farið varlega í þær
hækkanir enda ekki orðið vör við að
dregið hafi úr sölu. Því er þó ekki að
neita að þessi neikvæða þróun á
gengi undanfarið er svakalegt högg
fyrir ferðaskrifstofur.“
khk@mbl.is
Við höfum fengið þó nokkuðaf fyrirspurnum til okkarundanfarið vegna hækk-ana á pakkaferðum til út-
landa sem fólk hefur þegar fest sér.
Síminn hefur ekki stoppað,“ segir
Kristín Einarsdóttir, fulltrúi hjá
Neytendasamtökunum. „Fólk er að-
allega að velta fyrir sér hvort ferða-
skrifstofunum sé stætt á því að
hækka verð á ferð sem það hefur
þegar borgað inn á og keypt í raun á
ákveðnu verði. Sumir hafa fengið
bréf frá ferðaskrifstofunum vegna
þessa en aðrir ekki, enda ber þeim
að tilkynna ef um verulegar breyt-
ingar á alferðum er að ræða. Sam-
kvæmt lögum má hækka ferðirnar,
ef hækkunin er vegna gengisbreyt-
inga og ef það er tekið fram í samn-
ingi. Lögum samkvæmt ber ferða-
skrifstofum að skýra út við hvaða
gengi var miðað þegar ferðin var
verðlögð upphaflega og einnig við
hvaða gengi er miðað í útreikningi á
hækkuninni. En það er einmitt
vandinn, að ferðaskrifstofur virðast
eiga erfitt með að svara við hvaða
gengi þeir miða þegar verð er
ákvarðað.“
Fá prósent geta verið miklar
upphæðir fyrir stóra fjölskyldu
Kristín segir að einnig sé ferða-
skrifstofum heimilt að hækka verð
ferða vegna eldsneytishækkana eða
hækkunar á lendingargjöldum, en
það sé eitthvað sem er auðvelt að út-
skýra fyrir viðskiptavinunum.
„Hins vegar má eingöngu hækka
þá upphæð sem eftir á að greiða, en
ekki þá upphæð sem þegar hefur
verið greidd inn á ferðina. Eins má
ekki hækka ferðina tuttugu dögum
fyrir brottför, enda er gert ráð fyrir
að þá sé fólk búið að greiða ferðina
að fullu. Mér heyrist á þeim sem
leita til okkar að hækkanirnar séu
yfirleitt í bilinu 6,5% til 8,5%.“
Kristín segist hafa fengið fyr-
irspurn frá konu sem fékk bréf frá
ferðaskrifstofu þar sem hún hafði
greitt inn á ferð, og þar var henni til-
kynnt um hækkun um 6,5% á
ógreiddum hluta ferðarinnar. „Þeg-
ar hún kom svo á ferðaskrifstofuna
tveim vikum síðar til að greiða ferð-
ina upp, reyndist hækkunin vera
8,5%. Hún sætti sig ekki við þetta
ósamræmi og nú standa yfir samn-
ingaviðræður vegna þessa máls enda
getur munað um 2% ef um dýrar
ferðir er að ræða og stórar fjöl-
skyldur.“
Ekki einfalt mál
Sævar Skaftason, framkvæmda-
stjóri hjá Bændaferðum, Ferðaþjón-
ustu bænda, segir miklar gengis-
breytingar ekki vera einfalt mál
fyrir ferðaskrifstofur. „Það er búið
að ramma okkur inn í ákveðna lög-
gjöf sem er mjög neytendavæn, en
hún er í raun mjög erfið rekstrar-
lega séð fyrir ferðaskrifstofur. Í lög-
unum segir að nákvæmlega skuli til-
greint hvernig reikna skuli út breytt
verð, en það getur verið erfitt fyrir
okkur, því misjafnt er eftir ferðum
hversu hátt hlutfall erlends gjald-
miðils er í henni. Eins geta ferðir
langt út í heim verið í tveimur eða
þremur gjaldmiðlum. Þetta getur
því orðið mjög flókið þegar gengið
rokkar mikið milli daga, eins og til-
fellið er núna.“
Hann segir viðskiptasamninga
gerða að hausti sem komi jafnvel
ekki til framkvæmda fyrr en sum-
arið eftir. „Í millitíðinni getur gengið
breyst mjög mikið. Það segir sig
sjálft að það er mjög erfitt fyrir okk-
ur og veldur óstöðugleika í rekstr-
inum.“
Sævar segir fyrirtækið þó vilja
halda viðskiptavinum ánægðum.
„Hjá okkur gildir sú regla að full-
greidd ferð hækkar ekki þrátt fyrir
gengisbreytingar. Aftur á móti mun-
um við senda okkar viðskiptavinum
bréf um hækkanir á ófullgreiddum
ferðum sem hafa verið staðfestar, en
við eigum eftir að reikna út hversu
mikið það verður. Þó munum við
gefa fólki tækifæri til að greiða upp
sínar ferðir án hækkana innan ein-
hverra daga. Mér finnst það sjálf-
sagt mál, til að halda trausti við-
skiptavinanna, en með því tökum við
á okkur stærsta hluta verðhækk-
unarinnar, því væntanlega notfæra
margir sér þennan möguleika. Nýjar
bókanir eru aftur á móti á nýju
verði.“
Engin hækkun hjá okkur
Margrét Helgadóttir, fram-
kvæmdastjóri tekjustýringar hjá
Ferðaskrifstofu Íslands, Úrval–
Útsýn, segir að þar á bæ hafi engar
hækkanir orðið vegna gengislækk-
ana. „Við ákváðum að hlaupa ekki
upp til handa og fóta og hækka,
heldur bíða og sjá hvernig málin
þróast. Kannski fer gengið aftur
upp. Fólk hefur drifið sig og komið
til að greiða upp sínar ferðir en
reyndar eru okkar skilmálar þannig
að flestir borga ferðir upp við bókun,
þannig að hér er ekki mikið úti-
standandi. Þessir greiðsluskilmálar
eru í raun mjög jákvæðir fyrir neyt-
endur, það sýnir sig núna í þessari
gengisfellingu. Við höfum ekki held-
ur hækkað nýjar ferðir,“ segir Mar-
grét og bætir við að sama eigi við um
Plúsferðir og Sumarferðir sem eru
dótturfyrirtæki Úrvals–Útsýnar.
Fólk sýnir skilning
Tómas Gestsson framkvæmda-
stjóri hjá Heimsferðum og Terra
Nova segir að hjá þeim hafi verið
send út bréf til viðskiptavina fyrir
meira en tveimur vikum þar sem út-
skýrt hafi verið hvers vegna hækkun
á ógreiddum hluta fargjalda hafi
verið nauðsynleg. „Hækkunin er á
bilinu 6,5% til 8,5%, eftir gjald-
miðlum, því dollarinn hefur til dæm-
is hækkað minna en evran. Við tök-
um þó á okkur meira en helming
Reuters
Sumarfrí Margt má sér til dundurs gera á ströndinni í sumarfríinu, sleikja
sólina eða ríða út. Það kostar þó sitt, ekki síst á tímum fallandi gengis.
Þeir, sem hafa staðfest pakkaferðir með fjölskylduna til útlanda í sumar,
hafa undanfarið orðið varir við að von sé á hækkunum á ógreiddum
hluta ferða vegna neikvæðrar þróunar á gengi og olíuverði. Kristín
Heiða Kristinsdóttir heyrði í nokkrum aðilum er málið varðar.
Sumarfríið hækkar
í verði sums staðar
Lögum samkvæmt ber
ferðaskrifstofum að skýra
út við hvaða gengi var mið-
að þegar ferðin var verð-
lögð upphaflega og einnig
við hvaða gengi er miðað í
útreikningi á hækkuninni.
fjármál fjölskyldunnar
18 MÁNUDAGUR 31. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
á bæ. Þó að Víkverji sé
of upptekinn (latur) við
að sækja fyrirlestrana
er eitthvað svo
skemmtilegt að fylgjast
með gróskunni og fjöl-
breytninni sem fylgir
háskólastarfinu.
Augu Víkverja
hvarfla undantekn-
ingalítið upp í hægra
horn heimasíðunnar, en
þar birtast spurningar
sem sendar hafa verið á
Vísindavef háskólans.
Spurningarnar eru
yfirleitt hinar ótrúleg-
ustu og sjaldnast býst
Víkverji við skyn-
samlegum svörum, en það skrítna er
að alltaf virðast finnast skynsamleg
svör.
Á Vísindavefinn er hægt að senda
spurningar við því sem mann hefur
alltaf langað að vita, en aldrei haft
kjark til að spyrja um. Reyndar verð-
ur að gefa upp nafn svo nokkurs hug-
rekkis er krafist. Spurningunum er
svarað á greinargóðan hátt af fróðum
starfsmönnum háskólans. Dæmi um
spurningar eru „hver er þessi rauði
þráður?“ … mjög greinargott svar
var gefið við því. Eða þá „hvað þarf
að flytja mikið af erfðaefni úr mönn-
um í apa til að þeir teljist til manna?“
sem líffræðiprófessor svaraði með
tilhlýðilegum rökum og vangavelt-
um.
Víkverji virðist ætlaað koma prýðilega
undan vetri. Hann er
glaður yfir að daginn sé
nú tekið að lengja og að
vorið láti senn á sér
kræla. Allt sem við-
kemur veðri skyldi þó
vissulega tekið með
fyrirvara á Íslandi,
enginn veit jú hvað ger-
ist á morgun í þeim efn-
um, en smábjartsýni
sakar víst ekki.
Með hækkandi sól og
minnkandi snjó verður
skemmtilegra að lyfta
sér upp á fríkvöldum
og það gerði Víkverji
einmitt í góðra vina hópi um helgina.
Gerviaugnhár, kyssilegir (eða ókyssi-
legir) alþingismenn og gæludýr voru
meðal þess sem bar á góma í fjörlegu
samkvæminu og var það kærkomin
tilbreyting frá svartsýnishjalinu sem
einkennir íslenskan hversdag um
þessar mundir.
x x x
En að skynsamlegri málum. Vík-verji skoðar sig reglulega um á
netinu og verða gjarnan sömu síð-
urnar fyrir valinu. Hann reynir að
bæta við og breyta en gamli rúnt-
urinn verður oftast fyrir valinu.
Ein síðan er heimasíða háskólans,
þar sem fræðast má um spennandi
fyrirlestra eða aðrar uppákomur þar
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
SANNAÐ þykir nú að svefnleysi
eykur líkurnar á því að ganga í
svefni. Talið er að 4% jarðarbúa
séu svokallaðir svefngenglar en
það að ganga í svefni hefur verið
tengt við árásargirni og aðra skað-
lega hegðun.
Fréttavefur BBC sagði nýlega
frá rannsókn Montréal-háskólans í
Kanada sem náði til 40 ein-
staklinga sem höfðu upplifað það
að ganga í svefni. Fólkið var látið
sofa yfir nótt á rannsóknarstof-
unni og athafnir þess athugaðar á
meðan á svefninum stóð. Næsta
dag fór það til sinna daglegu
starfa en um kvöldið skyldi það
fara aftur á stofuna þar sem því
var haldið vakandi alla næstu nótt.
Morguninn eftir, eftir 25 tíma
vöku, fékk fólkið leyfi til að leggj-
ast til svefns og allt athæfi fólks-
ins skráð. Í ljós kom að helmingur
rannsóknarhópsins varð fyrir ein-
hvers konar truflun á eðlilega
svefntímanum fyrstu nóttina en
hlutfallið jókst í 90% eftir langa
vökutímann hjá úrvinda fólki.
Fremja morð í svefni
Talið er að fólk gangi í djúp-
svefninum sem er mikilvægur
heilsu fólks. Rannsóknin sýndi
fram á að svefnleysi eykur lík-
urnar á því að fólk flakki á milli
svefnstiga og sé þá skemur í djúp-
svefni. Haft er eftir sérfræðingi í
svefnrannsóknum að margir telji
svefngöngu léttvægt vandamál og
það komi bara fram hjá börnum en
hann bendir hins vegar á að
vandamálið geti haft alvarlegar af-
leiðingar, fólk geti stórslasast við
það að ganga í svefni og sumir
svefngenglar hafi t.a.m. framið
morð. Góður nætursvefn sé ávallt
mikilvægur en því miður þjáist sí-
fellt fleiri af svefngöngu, í sam-
félagi þar sem margir eru síþreytt-
ir og vansvefta.
Úrvinda svefngenglar
Í draumahöll Áhangendur enska landsliðsins í fótbolta úrvinda af þreytu.
Ljóst þykir að svefnleysi auki líkurnar á því að fólk gangi í svefni.
Reuters