Morgunblaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2008 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Ný peysusending Hverfisgötu 6 101 Reykjavík sími 562 2862 VERÐLAUN voru veitt í gær í stærðfræðikeppni nemenda í 8. til 10. bekk, sem Menntaskólinn í Reykjavík efndi til á dögunum. Keppnin var núna haldin í 7. sinn, og tóku alls þátt 275 nemendur úr 8 grunnskólum. „Tilgangurinn með keppninni er að auka áhuga ungra nemenda á stærðfræði og efla tengslin við skólana í næsta nágrenni Mennta- skólans,“ segir Yngvi Pétursson, rektor við MR. „Ljóst er að krakk- arnir hafa mikinn áhuga á keppn- inni. Mörg þeirra keppa ár eftir ár og bæta árangur sinn í hvert skipti.“ Hver árgangur keppti í eigin flokki, og hlutu efstu þrír í hverjum árgangi vegleg peningaverðlaun í boði Sparisjóðs Reykjavíkur. Í efstu sætum voru, í 8. bekk: Stefanía Bergljót Stefánsdóttir, Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir og Sólveig Ásta Einarsdóttir. Í 9. bekk: Karl Þorláksson, Halla B. Sigurþórsdóttir og Kristján Ingi Mikaelsson. Í 10. bekk: Auður Tinna Aðalbjarn- ardóttir og Haukur Óskar Þorgeirs- son, en Árni Sturluson og Hall- gerður Helga Þorsteinsdóttir deildu 3. sæti. Morgunblaðið/G.Rúnar Klár Þeir sem best stóðu sig í stærðfræðikeppni grunnskólanema hlutu vegleg peningaverðlaun. Betri með hverju árinu Stærðfræðikeppni grunnskólanema haldin í MR SENDINEFND frá Montana kom hingað í seinustu viku að kynna sér virkjunarmöguleika jarðhitunar. Í hópnum var m.a. Jeff Essmann öld- ungadeildarþingmaður á þingi Montana og Brady Wiseman sem á sæti á fulltrúaþingi ríkisins. Ferð hópsins hingað til lands kem- ur í framhaldi af heimsókn íslenskr- ar viðskiptasendinefndar til Mont- ana og Utah á síðasta ári. „Montanaríki býr að öllum þeim náttúruauðlindum sem nota má til orkuframleiðslu, hvort sem það eru kol, olía, vatnsföll eða vindur. Það var hins vegar ekki fyrr en íslenska sendinefndin kom til okkar að við gerðum okkur grein fyrir möguleik- um jarðhitans,“ segir Brady Wise- man. Margir möguleikar Thomas Kaizerski, verkefnastjóri hjá viðskiptaráði Montana, segir rík- ið auðugt af jarðhita og bendir m.a. á að hluti af Yellowstone-þjóðgarðin- um liggi um þeirra svæði, en garð- urinn er eitthvert virkasta goshvera- svæði í heimi. „Ljóst er að margir þróunarmöguleikar eru í stöðunni,“ segir hann. Þingmaðurinn Jeff Essmann kveðst fullur hrifningar yfir því sem fyrir augu hefur borið í ferðinni. Þó verði að hafa í huga að notkun Ís- lendinga á heitu vatni til orkusköp- unar og húshitunar sé ávöxtur ára- tugalangrar vinnu, fjárfestingar og rannsókna: „Það verkefni sem bíður okkar þegar heim er komið er að rannsaka nánar jarðhitasvæði ríkis- ins til að fá skýrari hugmynd um virkjunarmöguleika og virkjunar- getu,“ segir hann. „Það er ljóst að byrjunarkostnaður við virkjun yrði hár, og því gengur ekki að fara strax af stað með borinn. Að sama skapi er ljóst að fjárfestingin getur verið skynsamleg, enda orkan ódýr þegar virkjunin er risin.“ Þekktu ekki mögu- leika jarðhitans Fulltrúar frá Montana fræðast um jarðhitanotkun á Íslandi Morgunblaðið/Ómar Vongóðir Thomas Kaiserski, Jeff Essmann og Brady Wiseman segja Mont- ana hafa mikla möguleika til jarðhitanotkunar. NIÐURSTÖÐUR verkefnis um opnun aðgengis að Þríhnúkagíg verða væntanlega kynntar á opnum fundi fyrir næsta haust, samkvæmt upplýsingum VSÓ Ráðgjafar. Fyrir- tækið hefur birt upplýsingar um stöðu verkefnisins á heimasíðu sinni en undirbúningur er kominn vel á veg. Settar hafa verið upp öryggisgirð- ingar við gígopið til að tryggja ör- yggi göngufólks og náttúruskoð- enda. Var það gert í samræmi við samning Þríhnúka ehf. við Kópa- vogsbæ. Einnig hefur félagið afmarkað gönguleiðir á og við gíginn til þess að koma í veg fyrir átroðning og ónær- gætna umgengni á viðkvæmum jarð- myndunum og gróðri. Þá hafa Þrí- hnúkar ehf. að eigin frumkvæði hannað og reist upplýsingaskilti um gíginn göngufólki til ánægju og upp- lýsingar. Þríhnúkar ehf. hafa aflað mikilla upplýsinga og álits sérfræð- inga varðandi aukið aðgengi að gígn- um. Uppmælingu á gígnum er lokið og gerðar hafa verið rannsóknir á jarðfræði hans, vatnafari og gróður- fari við hann. Þá hafa verið teknar saman upplýsingar um hella í Strompahrauni og þeir kortlagðir. Gerð hefur verið skýrsla um tæki- færi til ferðaþjónustu í sambandi við opnun Þríhnúkagígs, gerðar tillögur að aðkomuleiðum að gígnum auk þess sem nemar á háskólastigi hafa gert skýrslur tengdar aðgengi Þrí- hnúkagígs. Hugmyndin um að opna aðgengi að Þríhnúkagíg hefur einnig verið kynnt helstu hagsmunaaðilum og leyfisveitendum. „Tillögur um opnun gígsins, að- komu og skipulag munu byggjast á niðurstöðum náttúrufarsrannsókna, samráði við helstu hagsmunaaðila og úttektum sem gerðar hafa verið í tengslum við verkefnið. Forsendur innan Bláfjallafólkvangs hafa verið skoðaðar með tilliti til samnýtingar þjónustu og lagna, auk þess sem ferðamannaleiðir í nágrenni hafa verið kortlagðar. Markmið verkefn- isins er að skilgreina hvernig stýra megi framkvæmdum við opnun Þrí- hnúkagígs þannig að sem minnst röskun verði á aðliggjandi landi og á hvern hátt koma megi mannvirkjum fyrir þannig að sem best falli að landslagi. Til að skaða náttúrufyrir- bærið sem minnst, upplifa stærð og mikilfengleik sýna rannsóknir að að- koma og upplifun ferðamannsins verði best útfærð með aðkomugöng- um inn í miðjan gíginn,“ segir m.a. í upplýsingum VSÓ Ráðgjafar. Ljósmynd/Kristján Maack Gersemi Þríhnúkagígur þykir ægifögur og nær ósnortin náttúrugersemi í næsta nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Niðurstöður um Þrí- hnúkagíg fyrir haustið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.