Morgunblaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 31. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ er ekki auðvelt að vera nán- asti aðstandandi einstaklings sem ekki á húsaskjól eða heimili og hefur ekki getað fótað sig í lífinu. Í grein Rósu í Morgunblaðinu í gær lýsir hún upplifun sinni af viðtali sem hún átti við mig á skrifstofu minni þann 13. mars síðastliðinn. Ég ætla ekki að leiðrétta rang- færslurnar sem þar koma fram, samtal okkar var ekki með þeim hætti sem hún lýsir. Í Gistiskýlinu er tek- ið við heimilislausum Reykvíkingum eins lengi og pláss er fyrir hendi en þar eru 16 pláss. Til að tryggja svefnfrið og ró fyrir þá sem þangað leita eru ákveðnar umgengnisreglur sem m.a. kveða á um að bannað sé að vera með ónæði að nóttu til. Ef reglurnar eru ítrekað brotnar getur það orðið til þess að hlutaðeigandi einstaklingi er vísað út úr Gistiskýlinu í skamman tíma. Ekki er um það að ræða að við- komandi sé „í banni“ um lengri tíma eins og Rósa virðist halda. Undanfarin ár hefur Reykjavík- urborg unnið markvisst að því að bæta aðbúnað Reykvíkinga sem telj- ast heimilislausir. Almennt er talið að um 40-60 einstaklingar séu heim- ilislausir í Reykjavík á hverjum tíma. Undanfarin sex ár hafa þrjú heimili verið sett á laggirnar í Reykjavík sem nýtast þeim.Alls er þar um að ræða þjónustu við 24 einstaklinga á hverj- um tíma. Eitt af þessum heimilum er ætlað ein- staklingum sem vilja hætta í áfengis- og/eða vímuefnaneyslu og eiga að baki margar tilraunir í þá veru. Um er að ræða áfangaheimili þar sem einstaklingurinn getur fengið stuðning við að ná betri tökum á lífi sínu. Hægt er að dveljast á þessu heimili í allt að 2 ár. Hin tvö heimilin eru ætluð fyrir einstaklinga sem dvalist hafa lang- dvölum í Gistiskýlinu án þess að hafa getað nýtt sér þá þjónustu sem í boði er til að ná tökum á lífi sínu. Ekki er gert að skilyrði að viðkomandi hætti neyslu og um er að ræða heimili þar sem hlutaðeigandi einstaklingur get- ur dvalist langdvölum. Til að bæta þjónustuna sem veitt er í Gistiskýlinu var ákveðið í byrjun árs 2007 að 2 ráðgjafar frá Þjónustumið- stöð Miðborgar-Hlíða myndu koma reglulega í Gistiskýlið og veita sér- fræðistuðning til þeirra sem í Gisti- skýlið leita. Markmið með þessari styrkingu er að tryggja að þeir ein- staklingar sem eru á götunni og leita í Gistiskýlið fái sem fyrst ráðgjafa á þjónustumiðstöð sem veita þeim markvissan stuðning, upplýsingar og aðstoð við að nýta þau úrræði sem við eiga til að ná betri tökum á lífi sínu. Á sl. ári var ennfremur ákveðið að mót- uð skyldi stefna í málefnum utan- garðsfólks af báðum kynjum og skip- aður sérstakur starfshópur sem koma á með tillögur að stefnu í þess- um málaflokki. Til að geta áfram unn- ið markvisst í þessum málaflokki með heildarsýn að leiðarljósi er nauðsyn- legt að hafa ákveðna stefnu til lengri tíma. Umræddur starfshópur mun bráðlega skila tillögum. Því til við- bótar hefur verið unnið að því að auka enn fjölbreytni í úrræðum til handa heimilislausum með svonefndum smáhýsum fyrir einstaklinga og hjón í þessari stöðu. Verið er að leita að heppilegri lóð fyrir smáhýsin. Eins og sjá má af þessari upptaln- ingu hefur heilmikið verið gert í mál- efnum heimilislausra Reykvíkinga undanfarin ár og verður svo áfram. Það er þó því miður ekki svo að tekist hafi að leysa vanda allra heimilis- lausra Reykvíkinga. Upptalningin sýnir þó að mikið hefur áunnist. En betur má ef duga skal og því hefur verið lögð áhersla á að móta stefnu til langs tíma eins og ég hef gert grein fyrir. Heimilislausir einstaklingar í Reykjavík þurfa á fjölbreyttum úr- ræðum og markvissum stuðningi að halda, bakgrunnur, heilsufar og fé- lagslegar aðstæður þessara einstak- linga eru mismunandi og því þurfa þeir á mismunandi úrræðum að halda. Síðan er það alltaf svo að ákveðinn hluti hópsins er ekki tilbú- inn að þiggja þá þjónustu og stuðning sem í boði er, en eftir sem áður munu tilboð um þjónustu og úrræði hjá Reykjavíkurborg standa þeim til boða. Aðbúnaður heimil- islausra í Reykjavík Jórunn Frímannsdóttir svarar grein Rósu Ólafar Ólafíudóttur »Undanfarin ár hefur Reykjavíkurborg unnið markvisst að því að bæta aðbúnað Reyk- víkinga sem teljast heimilislausir. Jórunn Frímannsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og formaður Velferðarráðs. Í GREIN í Morgunblaðinu hinn 17. mars síðastliðinn segir Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, orð mín um minnkandi mun á kostn- aði á lagningu jarðstrengja og há- spennulína byggð á reginmisskiln- ingi. Sé um misskilning að ræða á hann uppruna sinn í skrifum starfs- manna Landsnets síðustu ár en sam- kvæmt þeim hefur munur á kostnaði háspennulína og jarðstrengja minnkað verulega. Mér er fullljóst að lagning jarðstrengja er dýrari en loftlína en hversu mikið byggist á upplýsingum forsvarsmanna Lands- nets hverju sinni. Lækkandi verð á jarðstrengjum Í samtali við Morgunblaðið 24. september 2006 sagði Þorgeir J. Andrésson, skrifstofustjóri Lands- nets, að kostnaður við lagningu öfl- ugra háspennustrengja í jörðu væri allt að tíu sinnum meiri en með því að reisa möstur. Í febrúar 2007 er haft eftir forsvarsmönnum Lands- nets að kostnaður vegna lagninga öflugra jarðstrengja sé allt að nífald- ur. Í svargrein sinni segir forstjóri Landsnets kostnaðaraukningu við lagningu jarðstrengja með mikla flutningsgetu í stað háspennulína vera allt að sjöfalda. Að sögn for- svarsmanna Landsnets hefur kostn- aðarmunur á þessum valkostum við raf- orkuflutninga því minnkað verulega frá haustinu 2006 eða úr tíföldu í sjöfalt. Um framtíð- arverðlag segir for- stjóri Landsnets í Morgunblaðinu 21. desember síðastliðinn: „… þó undanfarið hafi verð strengja hækkað umtalsvert … Eigi að síður má ætla að verð fari lækkandi í fram- tíðinni svo jarðstrengir verði fýsi- legri kostur þegar kemur að end- urnýjun núverandi línukerfis.“ Er það von mín að það rætist. Kostir jarðstrengja Vissulega hefur verð á jarð- strengjum hækkað bæði vegna auk- innar eftirspurnar og hækkandi hrá- efnisverðs, sérstaklega á kopar sem skiptir sköpum í verði og gæðum jarðstrengja. Kostir jarðstrengja eru hins vegar margir og vega á móti hærra innkaupsverði. Orkutap í flutningum er allt að 30% minna þar sem kopar er afbragðsleiðari. Bilanatíðni hefur reynst mun lægri en í línulögnum. Þá eru jarðstrengir almennt taldir um- hverfisvænni því sjón- ræn áhrif eru nær eng- in og lagningu fylgir almennt minna rask. Til að mæta hækkandi hráefniskostnaði og vaxandi umhverf- iskröfum á sér nú stað mikil þróunarvinna hjá framleiðendum jarð- strengjanna til að finna ódýrari og betri lausnir (málma í leiðara og ein- angrun án blýs eða ha- logenefna)1. Framtíðarsýn í raforkuflutningum Forstjóri Landsnets kallar eftir stefnu um raforkuflutninga. Stefna mín er skýr og tekur mið af um- hverfisþáttum, sérstaklega sjón- rænum. Leitast skal við, að teknu tilliti til aðstæðna hverju sinni, að leggja flutningsleiðir raforku í jörð. Auðvitað fylgir viðbótarkostnaður aukinni notkun jarðstrengja en ef samfélagið er reiðubúið að greiða þann kostnað er það ekki hlutverk Landsnets að standa gegn þeirri kröfu. Eða eins og stjórnarformaður Landsnets orðaði það á aðalfundi fé- lagsins í fyrra: „Þegar horft er til framtíðar má hins vegar gera ráð fyrir að jarðstrengir muni smám saman vinna á og að samfélagið muni í vaxandi mæli krefjast lausna, sem hafa minni sjónræn áhrif.“ Framtíðarsýn stjórnarmanna Landsnets virðist því í góðu sam- ræmi við framtíðarsýn varafor- manns stjórnar OR. http://tdworld.com/undergro- und_transmission_distribution/ power_european_community_anno- unces/ Og http://www.leonardo- energy.org/ Munur á kostnaði við að leggja loftlínur og jarðstrengi minnkar Ásta Þorleifsdóttir svarar grein Þórðar Guðmundssonar » Að sögn forsvars- manna Landsnets hefur munur á kostnaði á raforkuflutningum með jarðstrengjum og loftlínum minnkað veru- lega, úr tíföldu í sjöfalt. Ásta Þorleifsdóttir Höfundur er varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Í NÝLEGRI úttekt hins ameríska Bloomberg kemur fram að stjórnvöld á Íslandi séu enn aðgerðalaus þrátt fyrir gengishrun og nú fær aðgerða- leysi ríkisstjórnarinnar þá einkunn að þykja í meira lagi undarlegt. Viðmælandi fréttamanns Bloom- berg, sérfræðingur hjá BNP Paribas SA sem er stærsti banki Frakk- lands, notar reyndar hugtakið „somewhat bizarre“ sem ég eft- irlæt stjórnarliðum þessa lands að þýða eft- ir eigin smekk. Reykja- víkurbréf Morg- unblaðsins um páskana tekur í sama streng og hvarvetna heyrast nú áhyggjur af þyrnirós- arsvefni ríkisstjórn- arinnar. Svefnmóki sem við framsókn- armenn höfum í mán- uði vakið athygli á. Öðrum að kenna! Skilaboð ríkisstjórn- arinnar eru þau ein að efnahagsvandinn sé öðrum að kenna og eig- inlega ekkert hægt við honum að gera. Á með- an æðir verðbólgan upp, vaxtasvipa Seðlabankans er þanin til hins ýtrasta og trúverð- ugleiki íslenskra viðskipta á heims- vísu hangir á bláþræði. Að ekki sé hér talað um hlutafjármarkaðinn. Það er vissulega rétt sem komið hefur fram hjá bæði forsætisráð- herra og fjármálaráðherra að hin al- þjóðlega efnahagskreppa sem nú ríð- ur yfir hefur mikil áhrif hér á landi og ef allt væri með felldu á heimsmark- aði hlutabréfa þá væru vandamálin hér heima vel viðráðanleg. En það breytir ekki því að sólarmerki þeirrar kreppu sáust fyrir misserum síðan og stjórnvöld gátu gripið til aðgerða strax á síðasta ári en gerðu það ekki og það er þegar farið að valda þjóð- arbúinu ómældum fjárhagslegum skaða. Áframhaldandi aðgerðaleysi er þjóðarbúinu háskalegt. Það er ekki rétt sem hinir úrræðalausu ráðherrar segja – að ekkert sé hægt að gera. Samhljómur við hagstjórn Það hefur mikið skort á samstöðu innan ríkisstjórnarinnar og víst er að þrálátar upphrópanir um Evrópu- sambandsaðild hafa ekki verið til að styrkja samstarfið. Í reynd er landsstjórnin þríklofin þar sem eru Samfylk- ing, Sjálfstæðisflokkur og Seðlabanki Íslands. Það er alveg ljóst að við núverandi aðstæður verður ríkisstjórnin að ná samhljómi við Seðla- bankann jafnvel þó að það þýði breytingar þar. Það er beinlínis háskalegt að Seðlabanki og ríkisstjórn gangi ekki í takt á við- sjártímum. Þar ber rík- isstjórnin mikla ábyrgð, einkanlega þegar hér var farið fram með gassaleg og ábyrgð- arlaus fjárlög á haust- dögum. Þjóðin öll sýpur nú seyðið af þeirri eyðslustefnu sem ný ríkisstjórn ákvað að framfylgja þvert á alla skynsemi en fjárlög hafa ekki hækkað við- líka milli ára síðan fyrir tíma þjóðarsáttar. Fjárlögin voru þannig andstæð markmiðum Seðlabanka, andstæð ráðleggingum hagfræðinga og and- stæð ráðum stjórnarandstöðu. En þau gengu líka þvert á kosn- ingastefnur stjórnarflokkanna beggja þar sem m.a. var gert ráð fyr- ir jafnvægi og ábyrgð í hagkerfinu til þess að vextir og verðbólga gætu lækkað. Við fjárlagagerðina í desem- ber síðastliðnum varð hver stjórn- arliði að fá að leika hinn gjafmilda og ábyrgðarlausa jólasvein og það veld- ur miklu um hversu erfið staðan er í dag. Aðgerðir strax! En talandi um núninginn sem greinilegur er milli ríkisstjórnar og Seðlabanka þá eru vitaskuld á því máli tvær hliðar þar sem viljaleysi til samstarfs hefur löngum virst gagn- kvæmt. En einnig þar ber stjórnin ábyrgð. Það er í hennar valdi og verkahring að haga málum þannig innan Seðlabanka að gott samstarf ríki milli aðila. Það er löngu augljóst að stjórnvöld verða að færa verð- bólgumarkmiðin nær raunveruleik- anum og endurskoða stýrivaxtavopn- ið en sú stefna að berja gengið upp með vöxtum er háskaleg gagnvart skuldsettum almenningi og ekki far- sæl. Þá þarf ríkissjóður að gefa hressilega á garða í sjóði Seðlabanka og saman verða ríkissjóður og Seðla- banki að liðka eftir mætti til fyrir við- skiptabönkunum. Á sama tíma verða stjórnvöld að gíra verðbólguna niður sem er hægt með lækkun á hverskyns neyslutoll- um á matvælum, eldsneyti og ýmsum öðrum varningi. Slíkar aðgerðir geta skilað árangri ef um leið er kallað eft- ir samstöðu og skilningi allra lands- manna. Með aðgerðum sem þessum má verja skuldugan almenning, hús- næðiseigendur og fyrirtækin fyrir verðbólgubáli. Í landi þar sem önnur hver króna rennur í ríkissjóð er fráleitt að halda því fram að ríkið geti ekki haft áhrif á verðlag. Það er vissulega gott að eiga traustan ríkissjóð en ef allt annað brennur upp í verðbólgubáli er það til lítils. Ríkissjóður er ekki sjálfbær til langframa og verður því aðeins traustur að undirstaða hans sé traust í fyrirtækjum og heimilum lands- manna. Því getur verið meira virði að voga innistæðu ríkissjóðs til þess að halda þjóðarbúinu í viðunandi stöðu. Er þá ekkert hægt að gera? Bjarni Harðarson vill aðgerðir í efnahagsmálum nú þegar Bjarni Harðarson » Í landi þar sem önnur hver króna rennur í rík- issjóð er fráleitt að halda því fram að ríkið geti ekki haft áhrif á verð- lag … Höfundur er alþingismaður. MORGUNBLAÐIÐ er með í notkun móttökukerfi fyrir aðsend- ar greinar. Formið er að finna við opnun forsíðu fréttavefjarins mbl.is vinstra megin á skjánum undir Morgunblaðshausnum þar sem stendur Senda inn efni, eða neðarlega á forsíðu fréttavefjarins mbl.is undir liðnum Sendu inn efni. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er not- að þarf notandinn að skrá sig inn í kerfið með kennitölu, nafni og net- fangi, sem fyllt er út í þar til gerða reiti. Næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lyk- ilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt. Þeir, sem hafa hug á að senda blaðinu greinar í umræðuna eða minningargreinar, eru vinsamleg- ast beðnir að nota þetta kerfi. Nán- ari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttökukerfi aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.