Morgunblaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2008 19
UMRÆÐAN
Safnaðu
Vildarpunktum
Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
Það hefur aldrei verið hagstæðara fyrir barnafjölskyldur að ferðast til útlanda saman.
Frá 31. mars til og með 4. apríl bjóðum við 50% barnaafslátt af öllum Economy og Best
Price fargjöldum okkar fyrir börn 11 ára og yngri til allra áfangastaða okkar erlendis.
Afslátturinn reiknast af fargjaldi án flugvallarskatta og barnaflugvallarskattar
bætast svo við.
Nýtið einstakt tækifæri! Njótið þess að fljúga saman!
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
17
18
03
/0
8
50%
AFSLÁTTUR
FYRIR BÖRN
SÖLUTÍMABIL 31. MARS–4. APRÍL
FERÐATÍMABIL TIL OG MEÐ
31. DESEMBER
24 ÁFANGASTAÐIR
+ Bókaðu ferð á www.icelandair.is
ÞAÐ var athyglisvert að horfa á þá
Steingrím J. Sigfússon og Pétur
Blöndal ræða efnahagsmálin í Kast-
ljósinu sl. þriðjudag. Steingrímur var
rökfastur að vanda en risið var lágt á
talsmanni Sjálfstæðisflokksins. Sá
flokkur hefur stýrt efnahagsmálum
landsmanna í rúman hálfan annan
áratug. Steingrímur benti réttilega á
að efnahagsvandinn og óreiðan væru
fyrst og fremst heimatilbúin.
Á sínum tíma var talað um ógn-
arjafnvægi í efnahagsmálum þegar
stóriðjuframkvæmdir fóru á fullt,
samtímis því að skattar voru lækk-
aðir á hátekjufólki og bankarnir voru
einkavinavæddir.
Í ökkla eða í eyra
Seðlabankinn hefur hækkað stýri-
vexti stanslaust síðan árið 2004. Til
hvers? Jú, til að berjast gegn verð-
bólgu eins og honum er ætlað, berjast
gegn þenslu. Samt hefur hann aldrei
náð verðbólgumarkmiðum sínum
þennan tíma.
Hvað hefur ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokksins gert til að slá á þensluna?
Jú, af stórhug sínum frestaði hún
vegaframkvæmdum á Vestfjörðum!
Hún einkavæddi bankana alla í einu
og afhenti þá pólitískum vildarvinum
á silfurfati. Hún lækkaði skatta á há-
tekjufólk og fyrirtæki. Hún réðst í
hömlulausar stóriðjuframkvæmdir
fyrir fleiri hundruð milljarða króna á
örfáum misserum. Bankar og fjár-
málastofnanir veðsettu íslenskt at-
vinnulíf og þutu með fjármunina í „út-
rás“ á einkaþotum um heiminn. Það
hlaut eitthvað að bresta.
„Ógnarjafnvægi“ á einkaþotum
um heiminn
Forsvarsmenn Seðlabankans vör-
uðu stjórnvöld þá við og töluðu um
„ógnarjafnvægi í efnahagsmálum“.
Það kæmi að skuldadögum. „Fram-
kvæmdir við virkjanir og álbræðslur,
sem til samans slaga að umfangi upp í
þriðjung landsframleiðslu eins árs,
fela í sér meira umrót í þjóðar-
búskapnum en nokkurt annað land
sem hagar peningastefnunni með
svipuðum hætti hefur þurft að glíma
við“ (Seðlabankinn, 18. febr. 2005).
Haustið 2005 kveður svo við enn
harðari tón hjá bankanum: „ Ójafn-
vægi í þjóðarbúskapnum hefur aukist
verulega“.
Þá var Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, en honum þótti í þann tíma
ekki ástæða til að taka mark á aðvör-
unum Seðlabankans. Þá var varafor-
maðurinn Geir Haarde fjár-
málaráðherra og jafn aðgerðalítill og
nú.
Ég bíð spenntur eftir því að ágætir
fréttamenn á fjölmiðlum sjái í gegn-
um spilið. Þeir gætu t.d. spurt þá
Davíð og Geir, sem farið hafa með
stjórn efnahagsmála öll þessi ár,
hvort nú sé ekki einmitt að koma
fram það sem spáð var fyrir 3–4 árum
að óbreyttri stjórnarstefnu.
Tillögur Vinstri grænna
Um þessa stefnu ríkisstjórn-
arinnar stóð slagurinn á Alþingi milli
þingmanna Vinstri grænna og Sjálf-
stæðisflokksins. Ástæða er til að
benda á tillögur þingmanna Vinstri
grænna „Um aðgerðir til að tryggja
efnahagslegan stöðugleika“ sem
fluttar voru bæði 2005, 2006, 2007 og
nú síðast 2008. Ef þeim hefði verið
fylgt væri staða þjóðarbúsins nú önn-
ur og betri. Steingrímur vitnaði ein-
mitt til þessara tillagna í Kast-
ljósþættinum.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins
þykist hins vegar vera stödd á eins
konar kappleik og kennir krónunni
eða danskinum um þegar illa fer.
Ópíumilmur og Afganistan
Sl. þriðjudag var svo komið að
Seðlabankinn þorði ekki að láta fjár-
málamarkaði opnast án þess að grípa
fyrst til neyðaraðgerða. Bankinn varð
að bregðast við heimskulegum og óá-
byrgum yfirlýsingum forystumanna
ríkisstjórnarinnar síðustu daga. Geir
Haarde þrástagaðist á því að útlend-
ingar skildu ekki íslenskt efnahagslíf,
Danir væru vondir en
hann mundi í rósemd sitja
á vaktinni og gera ekki
neitt.
Fjármálaráðherrann er
eins og þorskur á þurru
landi, heimtaði nýtt álver
til að slá á þensluna.
Formaður Samfylking-
arinnar var enn með flug-
riðu eftir Afganistan-
förina: „hér gæti í raun-
inni dropið smjör af
hverju strái,“ sagði utan-
ríkisráðherrann í hrifn-
ingarvímu eftir að hafa litið yfir val-
múaakrana þar sem ópíumilmurinn
mun nú vera jafnvel enn höfugri en
hann var fyrir innrás-
ina í landið.
Persónur og leik-
endur dagsins
Á námsárum sín-
um sló Davíð Odds-
son í gegn sem
„Bubbi kóngur“ í
skólaleikriti. Síðar
varð hann æðstráð-
andi á Íslandi, eins
konar Bubbi kóngur,
og hefur sem slíkur
oftsinnis tekið sviðið,
nú síðast með nýju Íslandsmeti í
vaxtahækkunum.
Ef handriti þessa sjónarspils verð-
ur ekki breytt hið snarasta verður
slegið heimsmet í vaxtaokri enda
bauðst seðlabankastjórinn til að gera
enn betur ef víman og dofinn rynnu
ekki af ríkisstjórninni.
Svo allt væri nú á sínum stað hnýtti
hann um leið í bankana (les Kaup-
þing) fyrir að gera atlögu að krónunni
sér til ávinnings.
Aumt var að sjá oddvita ríkis-
stjórnarinnar koma í fjölmiðla eins og
rakka í bandi „kóngsins“. En á leik-
sviði dagsins var víst hver á sinni fjöl.
Sami kóngur og sama hirð og und-
anfarin 17 ár. Spurning er hvort þessi
sýning sé trúverðug mikið lengur.
Auðvitað átti Seðlabankinn ekki
annarra kosta völ en freista þess að
grípa inn í atburðarásina.
Vandinn er sá að hann læknar eng-
in mein einn og sér. Öll umgjörðin
verður að breytast og þar þarf til
samhæft átak.
Nú borgar almenningur brúsann
fyrir duglausa ríkisstjórn sem ham-
ast við að gera ekki neitt.
Ónýt ríkisstjórn, allt Danskinum að kenna!
Jón Bjarnason skrifar
um efnahagsmálin »Ástæða er til að
benda á tillögur þing-
manna VG í efnahags-
málum undanfarin ár. Ef
þeim hefði verið fylgt
væri staða þjóðarbúsins
nú önnur og betri.
Jón Bjarnason
Höfundur er þingmaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs.