Morgunblaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Þriðjudaginn 1. apríl kl. 9:00-13:30 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2
Að skrifa samkeppnishæfa umsókn í
7. rannsóknaáætlun ESB
N Á M S K E I Ð
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Leiðbeinandi verður Dr. Sean McCarthy frá Hyperion sem er einn eftirsóttasti ráðgjafi á þessu sviði í Evrópu.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Þátttökugjald er 18.000 kr. Innifalin eru námskeiðsgögn og veitingar.
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Skráningarfrestur er til 31. mars 2008. Skráning á rannis@rannis.is eða í síma 515 5800.
Dagskrá:
l Yfirlit yfir 7. rannsóknaáætlun ESB
l Markmið og forgangssvið
l Tegundir verkefnastyrkja
l Hvernig á að finna samstarfsaðila
l Mat á umsóknum
l Undirbúningur og hugmyndir
l Áætlanagerð
l Umsóknarskrif
Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • www.rannis.is
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is
www.utflutningsrad.is
Að loknum framsöguerindum verða veitingar í boði Útflutningsráðs Íslands.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til skrifstofu Útflutningsráðs Íslands
í síma 511 4000 eða með tölvupósti utflutningsrad@utflutningsrad.is
Ársfundur
Útflutningsráðs Íslands 2008
haldinn mánudaginn 7. apríl kl.15.00 til 17.00
á Grand Hótel, Reykjavík
Landvinningar
íslenskrar verslunar
Erindi
Fundurinn er öllum opinn.
Fundarefni:
P
IP
A
R
S
ÍA
8
06
39
Fundarsetning
Valur Valsson, forma›ur stjórnar
Ávarp
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
utanríkisrá›herra
Lars Egenäs – Deloitte, Svífljó›
Gunnar S. Sigur›sson – Baugur Group
Lárus Jóhannesson – 12 Tónar
ÞVÍ var haldið fram í breska blaðinu
Sunday Times í gær að þarlendir
sparifjáreigendur væru farnir að
taka út innistæður sínar á netreikn-
ingum Landsbankans og Kaupþings
vegna ótta við að íslenska banka-
kerfið væri að hrynja.
Sagði blaðið að Bretar hefðu í
stórum stíl flutt peninga af Icesave
reikningi Landsbankans og Kaup-
thing Edge reikningnum og þaðan
yfir á reikninga breskra banka.
Guðni Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri fjárstýringar Kaupþings, segir
í samtali við Morgunblaðið að fréttin
sé alröng hvað Kaupþing varðar,
bankinn hafi ekki orðið var við neitt
útflæði af reikningnum. Þannig hafi
síðasta vika verið sú besta frá opnun
Kaupthing Edge í Bretlandi.
Hafa breytt innistæðum sínum
Hjá Landsbankanum fengust þau
svör að frétt Sunday Times gæfi ekki
rétta mynd af þróuninni, eins og oft
væri reyndin með fréttaflutning af
Íslandi, og blaðið hefði ekki leitað
upplýsinga hjá bankanum. Breskir
sparifjáreigendur væru ekki að flýja
Icesave, þvert á móti hefði umsókn-
um verið að fjölga.
Hins vegar væru sparifjáreigend-
ur almennt að breyta innistæðum
sínum meira frá opnum reikningum
yfir í bundin innlán og einnig lækkað
innistæður sínar nær þeim 35 þús-
und sterlingspundum sem er sú fjár-
hæð sem innlánatryggingu í Bret-
landi nemur.
Ekki borið á úttektum í Bretlandi
Bretland Íslenskir bankar í vanda?
ÞETTA HELST ...
● BRESKI fjárfestirinn Robert
Tchenguiz, sem á m.a. stóra hlui í
Exista og Kaupþingi, gagnrýnir í þar-
lendum blöðum stjórnir versl-
anakeðjunnar J. Sainsbury og kráa-
keðjunnar Mitchells & Butlers fyrir
að hafa ekki náð að hámarka verð-
mæti þessara félaga fyrir hluthaf-
anna. Gagnrýnir hann m.a. einstakar
fjárfestingar og ákvarðanir stjórn-
armanna. Er Tchenguiz sagður hafa
tapað stórum fjárhæðum á fjárfest-
ingum í félögunum en haft er eftir
honum að hann ætli þó að halda
bréfum sínum þar. Á hann 10% hlut í
Sainsbury og 23% í M&B, auk 15%
hlutar í hugbúnaðarfyrirtækinu SCi
Entertainment. Er verðmæti þess-
ara eigna hans talið hafa rýrnað um
700 milljónir punda, jafnvirði um
108 milljarða króna.
Tchenguiz tapar stórt
á breskum félögum
● FINNUR Ingólfsson var kjörinn nýr
stjórnarmaður í Samvinnusjóðnum
og Andvöku á aðalfundi þeirra á
föstudaginn, en
Þórólfur Gíslason
gekk úr stjórnum
félaganna. Finnur
var jafnframt kjör-
inn formaður
stjórna félaganna
tveggja.
Í stjórnum fé-
laganna sitja því
nú auk Finns,
Benedikt Sigurðarson, Guðsteinn
Einarsson, Helgi S. Guðmundsson
og Ólafur Friðriksson.
Benedikt sagði í samtali við
Morgunblaðið að niðurstöðu skila-
nefndar vegna skipta Sam-
vinnutrygginga sf. væri að vænta
eftir um mánuð.
Finnur kjörinn
stjórnarformaður
Finnur Ingólfsson
● EGLA, eignarhaldsfélag í eigu
Ólafs Ólafssonar í Samskipum og
fleiri fjárfesta, hagnaðist um 4,3
milljarða króna á síðasta ári, en um
17 milljarða árið 2006. Eignir félags-
ins hækkuðu um 37,5 milljarða á
síðasta ári og námu 112 milljörðum
í árslok en heildarskuldir jukust um
33 milljarða og námu 55,7 millj-
örðum um síðustu áramót, þar af fyr-
ir um 50 milljarða í evrum. Eigið fé
jókst um 4,3 milljarða á árinu. Egla
er skráð fyrir hlutum í þremur fé-
lögum í kauphöllinni; í Kaupþingi
(9,9%), Alfesca (39,7%) og Exista
(0,5%). Fram kemur í ársreikningi að
markaðsvirði þessara félaga hafi
rýrnað um átta milljarða króna í
eignasafni Eglu frá áramótum. Í til-
kynningu til kauphallar segir að eig-
infjárstaða Eglu sé sterk og félagið
sé vel í stakk búið til að takast á við
fjármálaumhverfið á þessu ári.
Lækkanir í kauphöll
hafa bitnað á Eglu
● SMÁRALIND
ehf., félagið sem
rekur samnefnda
verslunarmið-
stöð, hagnaðist
um 156 milljónir
króna á síðasta
ári, borið saman
við 238 milljóna
hagnað árið áður.
EBITDA-hagnaður
nam 797 millj-
ónum króna og jókst um 7,5% milli
ára. Heildareignir Smáralindar námu
15,2 milljörðum króna í árslok og
eigið fé nam 6,4 milljörðum. Gestum
Smáralindar fjölgaði um 9% á síð-
asta ári og samkvæmt tilkynningu til
kauphallar er það næstmesta fjölg-
un gesta milli ára frá opnun versl-
unarmiðstöðvarinnar. Velta í versl-
unum Smáralindar er einnig sögð
hafa aukist. Þá kemur fram að bygg-
ingu Norðurturnsins muni ljúka
haustið 2009. Þar verða um 800
stæði í bílastæðahúsi á þremur
hæðum en Norðurturninn verður
tengdur Smáralind með tveggja
hæða byggingu.
Smáralind hagnaðist
um 156 milljónir
Gestum Smáralind-
ar fjölgaði um 9%.
ÞÝSKA fjármálaeftirlitið, BaFin,
hefur samkvæmt frétt Spiegel reikn-
að það út að tap banka og fjármála-
stofnana á lausafjárkreppunni, sem
hófst með vanskilum á ótryggum
lánum í Bandaríkjunum, geti á
heimsvísu numið um 600 milljörðum
dollara. Það jafngildir um 46.800
milljörðum króna á núvirði.
Hefur Spiegel komist yfir skýrslu
frá BaFin sem sýnir þennan útreikn-
ing, og fyrrnefnd tala er miðuð við
verstu mögulegu niðurstöðu. Telja
Þjóðverjarnir líklegri tölu, miðað við
núverandi stöðu á mörkuðum, um
430 milljarða dollara, eða um 33.500
milljarða króna. Skýrslan telur einn-
ig upp þær fjárhæðir sem fjármála-
stofnanir hafa þegar gefið upp um
afskriftir vegna lausafjárkreppunn-
ar, eða alls um 295 milljarða dollara,
og hlutur þýskra banka af þeirri fjár-
hæð sé um 10%. Tap þeirra muni á
endanum verða um 60 milljarðar
dollara. Þá séu vogunarsjóðir, trygg-
ingafélög og lífeyrissjóðir í hættu.
Um 46.800
milljarða
króna tap?
Kreppa Milljarðarnir hafa fokið út
um gluggann um allan heim.