Morgunblaðið - 31.03.2008, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 31. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum til
Alicante 9. apríl. Gríptu tækifærið og tryggðu þér flugsæti á
ótrúlegum kjörum. Takmarkað framboð af sætum á þessu verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Alicante
9. apríl
frá kr. 14.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 14.990
Netverð á mann.
Flugsæti aðra leið (KEF-ALC)
með sköttum, 9. apríl.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 24.990
Netverð á mann.
Flugsæti báðar leiðir með sköttum,
út 9. apríl og heim 10. maí.
ÓLÖF Pétursdóttir, dómstjóri Héraðsdóms Reykja-
ness, var jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík á
laugardag.
Kistuna báru úr kirkju Elsa Haraldsdóttir, Guðbjörg
Kristinsdóttir, Sigþrúður Loftsdóttir, Ólöf Pálsdóttir,
Guðrún Sveinsdóttir, Þorgerður Erlendsdóttir og Hjör-
dís Hákonardóttir. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir jarð-
söng.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Útför Ólafar Pétursdóttur
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
BÆÐI Flugfreyjufélag Íslands og
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
hafa skotið kjaraviðræðum sínum við
flugfélögin til ríkissáttasemjara.
Að sögn Sigrúnar Jónsdóttur, for-
manns Flugfreyjufélagsins, eru það
viðræður við Icelandair og JetX sem
vísað hefur verið til ríkissáttasemj-
ara, en viðræður standa enn yfir við
Iceland Express og Flugfélag Ís-
lands. Viðræður við Iceland Express
ganga ágætlega, en enn hefur lítið
tekist að funda með FÍ.
Margt ber í milli
Sigrún segir deilurnar við Ice-
landair og JetX mjög ólíkar. Í við-
ræðum við Icelandair beri margt í
milli en Sigrún getur ekki greint frá
helstu ágreiningsatriðum að svo
stöddu. Verið er að gera kjarasamn-
inga í fyrsta skipti við JetX og varð
þrautalending að vísa samningum til
sáttasemjara þar sem félagið hafði
ekki tekið þátt í viðræðum sam-
kvæmt áætlun.
Atvinnuflugmenn hafa leitað til
sáttasemjara með samninga við Ice-
landair og Air Atlanta, að sögn Jó-
hannesar Bjarna Guðmundssonar,
formanns félagsins.
Lítið miðar í viðræðum við önnur
félög á meðan, enda hefur myndast
hefð fyrir því að samningarnir við
stóru flugfélögin gefi tóninn fyrir
aðra samninga.
Guðmundur Brynjólfsson, for-
maður samninganefndar Flugvirkja-
félagsins, segir viðræður ganga
hægt. „Miðað við aðstæður í þjóð-
félaginu er skiljanlegt að aðilar reyni
að fara varlega en engu að síður
finnst mér ekki vera nógu mikill vilji
af hálfu flugfélaga til að ná sam-
komulagi. Það er eins og þau óttist
ekki, deilan endi með því að flug-
virkjar þurfi að grípa síðasta
hálmstráið.“
Viðræður hægar
Flugfreyjur og atvinnuflugmenn vísa kjarasamningum til
ríkissáttasemjara Samningar flugvirkja ganga mjög hægt
Í HNOTSKURN
»Flugfreyjur semja við JetX ífyrsta sinn. Flugfélagið hef-
ur ekki tekið þátt í samninga-
viðræðum samkvæmt áætlun.
»Samingar við stóru flug-félögin gefa tóninn fyrir
samninga við minni félög.
»Flugvirkjum þykir skortavilja af hálfu flugfélaganna
til að ná samkomulagi.
BJÖRN Bjarna-
son dómsmála-
ráðherra segir
skipulagsbreyt-
ingar lög- og toll-
gæslu á Suður-
nesjum hafa
verið kynntar
þeim ráðuneytum
sem koma að
rekstri á Kefla-
víkurflugvelli og að ráðuneytið hafi
unnið breytingarnar í samstarfi við
þau.
Segir ráðherra það hafa verið
ákvörðun sína að bregðast við með
skipulagsbreytingunni eftir að sam-
einað löggæsluembætti Suðurnesja
kynnti ráðuneytinu á þessu ári um
200 milljóna króna rekstrarhalla.
Aðspurður um kostnað við skipt-
inguna segir ráðherra kostnaðinn
óverulegan miðað við fjárhagsvanda
embættisins að óbreyttu.
Kostnaður
við skiptingu
óverulegur
Björn Bjarnason
Breytingar viðbragð
við fjárhagsvanda
KONA um þrítugt reyndi að ræna
Select-verslun á Bústaðavegi í
Reykjavík klukkan 7:40 í gær-
morgun. Hún var með tvo hnífa,
hvorn í sinni hendinni, hótaði
starfsfólki og fór fram á að fá
peninga. Henni var sagt að þarna
væri enga peninga að hafa. Þá
hvarf konan á braut akandi bíl og
náðist skráningarnúmer bifreið-
arinnar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu fékk upplýsingar um skrán-
ingarnúmerið og var hún hand-
tekin skömmu síðar í heimahúsi.
Hún var færð í fangageymslur,
en hún mun hafa verið eitthvað
ölvuð.
Ógnuðu með garðklippum
Þá réðust tveir ungir menn inn í
Kaskó-verslun í Vesturbergi í
Breiðholti í Reykjavík seinnipart-
inn á laugardag og ógnuðu
starfsfólki með garðklippum.
Komust þeir undan með ein-
hverja fjármuni.
Þetta er fjórða ránið sem fram-
ið er í Breiðholti á rúmri viku.
Ók á brott eftir
árangurslaust
rán í Select
FULLBÓKAÐ
er á opinn fund
um umhverfismál
með Al Gore,
fyrrverandi vara-
forseti Banda-
ríkjanna, í Há-
skólabíói
þriðjudaginn 8.
apríl. Var fundur-
inn, sem er á veg-
um Glitnis og Há-
skóla Íslands, kynntur í
blaðaauglýsingu í fyrradag en á há-
degi í gær var hann fullbókaður.
Verður ósóttum pöntunum ráðstafað
eftir 4. apríl.
Már Másson, forstöðumaður
kynningarmála hjá Glitni, sagði, að
viðbrögðin væru mikið ánægjuefni
en kæmu þó ekki á óvart. Al Gore
væri meðal mestu áhrifamanna í
heiminum í umhverfismálum og því
eðlilegt að mörgum léki hugur á
kynnast skoðunum hans. Sagði Már,
að fundurinn væri mikilvægur þátt-
ur í markaðsstarfi Glitnis á sviði end-
urnýjanlegra orkugjafa en umsvif
bankans á þeim vettvangi væru mjög
vaxandi í Bandaríkjunum.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, verður fundarstjóri á
fundinum.
Fullbókað á
fund Al Gore
Al Gore, fyrrv.
varaforseti
MJÖG mikil hálka skapaðist á
götum Akureyrar seinnipartinn í
gær og urðu þar fimm umferð-
aróhöpp á um tveimur klukku-
stundum. Snjókoman byrjaði í
fyrrakvöld og snjóaði jafnt og
þétt í allan gærdag og var kom-
inn 7-10 sentimetra jafnfallinn
snjór í gærkvöldi og þæfingsfærð
inni í bænum.
Í öllum tilvikum nema einu var
um minniháttar óhöpp að ræða,
en alvarlegastur var árekstur
fólksbíls og jeppa á mótum
Strandgötu og Glerárgötu. Far-
þegi sem sat aftur í fólksbílnum
slasaðist lítilsháttar, en fólksbíll-
inn er talinn ónýtur.
Fimm óhöpp
á Akureyri
♦♦♦
GUNNAR Örn Gunn-
arsson listmálari lést sl.
föstudag á bráðadeild
Landspítalans 61 árs að
aldri. Gunnar fæddist í
Reykjavík 2. desember
1946. Foreldrar hans
voru Guðríður M. Pét-
ursdóttir húsmóðir og
Gunnar Óskarsson
móttökustjóri. Gunnar
hélt sína fyrstu einka-
sýningu í Unuhúsi 1970
en alls urðu einkasýn-
ingar hans hér á landi
og erlendis á sjötta tug.
Gunnar tók þátt í fjölda
samsýninga hér á landi, á öllum Norð-
urlöndunum, víða um Evrópu, í New
York, Chicago, Sao Paulo og Tókýó.
Hann var fulltrúi Íslands á Tvíær-
ingnum í Feneyjum 1988. Verk hans
eru í eigu safna víða um heim, m.a. í
eigu Listasafns Íslands, Listasafns
Reykjavíkur, Listasafns
Keflavíkur, Listasafns
ASÍ, Listasafns Háskól-
ans í Reykjavík, Lista-
safns Háskóla Íslands,
Guggenheim Museum í
New York, Sabu Mu-
seum í Tókýó, Moderna
Museet og National Mu-
seum í Stokkhólmi.
Gunnar stofnaði og rak
til dauðadags alþjóðlegt
gallerí, Galleri Kamb, á
heimili sínu á Kambi í
Holta- og Landsveit,
Rangárvallarsýslu, og
stóð þar fyrir fjölda sýn-
inga íslenskra og erlendra lista-
manna. Gunnar hlaut Menningar-
verðlaun DV 1987. Eftirlifandi
eiginkona Gunnars er Þórdís Ingólfs-
dóttir heilsuhjúkrunarfræðingur.
Hann lætur eftir sig sex börn og níu
barnabörn.
Andlát
Gunnar Örn
Gunnarsson
VEGURINN um Ólafsfjarðarmúla
var ófær í gær vegna snjóflóðs
sem féll á veginn. Vegagerð-
armenn unnu að því að opna veg-
inn í gærdag, en hættu þegar
annað snjóflóð féll. Var vegurinn
lokaður í gærkveldi og óljóst hve-
nær hann yrði opnaður sam-
kvæmt upplýsingum Vegagerð-
arinnar.
Fjallvegir um Steingrímsfjarð-
arheiði og Klettháls á Vest-
fjörðum voru einnig ófærir í gær
og var hætt mokstri þar. Þá var
Þverárfjall milli Blönduóss og
Sauðárkróks þungfært og slæmt
skyggni þar og mjög hvasst og
stórhríð í kringum Laugabakka í
Miðfirði. Þæfingsfærð var víða á
Norðurlandi, en víðast annars
staðar var greiðfært á landinu.
Snjófljóð
í Múlanum
ELDUR kviknaði í snjóplógi sem
var að ryðja vegi uppi á Fjarð-
arheiði í gær.
Ökumaður plógsins varð var við
reykjarlykt og brá sér út úr hon-
um og sá þá að eldur var byrjaður
að loga innan við annað fram-
hjólið. Varð töluverður eldur í far-
artækinu og reyndi ökumaðurinn
árangurslaust að slökkva eldinn.
Slökkvibíll kom á staðinn og
slökkti og er plógurinn nokkuð
skemmdur.
Að sögn lögreglu lék grunur á
að ökumaðurinn hefði fengið snert
af reykeitrun er hann reyndi að
ráða niðurlögum eldsins og færði
vinnuveitandi hans hann á heilsu-
gæslustöð til skoðunar.
Logandi
snjóplógur