Morgunblaðið - 31.03.2008, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2008 35
PETE TRAVIS skapaði eitt eft-
irminnilegasta kvikmyndaatriði
áratugarins – hryðjuverkaárás IRA
á miðbæinn í Omagh í samnefndri
mynd. Það var því full ástæða að
hlakka til Vantage Point, sem tekur
á hliðstæðum atburði, hryðjuverka-
árás á Plaza Major í Salamanca á
Spáni. Þar á að myrða Bandaríkja-
forseta (Hurt), sem er staddur í
borginni til að skrifa undir frið-
arsamninga á milli Vesturlanda og
Arabaheimsins. Nú á hermdar-
verkum að linna.
Fyrsti hluti veldur ekki von-
brigðum, hann heldur áhorfand-
anum á tánum, þar sem aftöku-
augnablikið er grandskoðað frá
mörgum sjónarhornum vitna á
torginu. Þ.á m. eru persónur leikn-
ar af óvenju daufum Quaid, sem fer
með hlutverk lífvarðar forsetans –
hetju sem bjargaði lífi hans fyrir
ári síðan með því að varpa sér í
skotlínuna (að hætti Eastwood).
Whittaker er ferðamaður sem film-
ar atburðarásina; Weaver stjórn-
andi útsendingu fréttasjónvarps
o.s.frv.
Í stuttu máli bregst Travis boga-
listin eftir spennuþrungnar og ógn-
vægilegar upphafsmínúturnar. Sí-
endurtekin atburðarásin gerist
hvimleið en aðalgalli Vantage Point
er sá að myndin missir flugið og
reynt að teygja lopann í lokakafl-
anum með slitnum aðferðum líkt og
útþynntum bílaeltingarleik. Spenna
má síst af öllu fara minnkandi eftir
því sem á líður spennumynd.
Öngþveiti á Aðaltorgi
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYND
Smárabíó, Regnboginn,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Pete Travis. Aðalleikarar:
Dennis Quaid, Matthew Fox, Forest
Whitaker, Sigourney Weaver, William
Hurt. 90 mín. Bandaríkin 2008.
Vantage Point – Kögunarhóll
bbmnn
Endurtekið efni „Síendurtekin atburðarásin gerist hvimleið.“
FIÐLULEIKARINN Sydney
Wells (Alba), hefur verið blind frá
því hún lenti í slysi í bernsku, nú
er hún vel metinn fiðluleikari og
þegar myndin hefst er Sydney að
leggjast undir hnífinn, hefur feng-
ið sjónhimnur frá óþekktum líf-
færagjafa.
Wells fær sjónina aftur, en
böggull fylgir skammrifi, sýnir inn
í heim dauða og tortímingar angra
hana og enginn trúir henni. Sydn-
ey linnir ekki látum fyrr en hún
fær upplýsingar um gefandann og
leyndarmálið sem hann er að
reyna að senda inn í heim lifenda.
Fyrir mörgum árum var sýnd
myndin Blink sem fjallaði um
svipað efni og með hina glæsilegu
en hæfileikalausu Madeleine
Stowe í aðalhlutverki. Alba eru á
svipuðum slóðum hvað getuna
snertir, maður fær litla samúð
með fiðluleikaranum, þó að honum
sæki draugafans og djöflaflokkar
að handan. Útgeislunina vantar og
sami vandi hrjáir aðrar aðal-
persónur The Eye. Hins vegar
sorglegt að sjá Sebedzija (Before
the Rain), vera að drabbast niður í
örhlutverk í lítilsigldum myndum.
Lokakaflinn á landamærunum er
ekki sem verstur en annars er
þessi endurgerð japanskrar eft-
irlíkingar Sjötta skilningarvitsins
og Blink, auðgleymd og áhrifalítil.
Blindur fær sýn inn í annan heim
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYND
Háskólabíó, Laugarásbíó
Leikstjóri: David Moreau og Xavier Pa-
lud. Aðalleikarar: Jessica Alba, Aless-
andro Nivola, Rade Serbedzija. 97 mín.
Bandaríkin 2008.
The Eye
bbnnn
Fiðluleikarinn „Sýnir inn í heim dauða og tortímingar angra hana.“
GOSPELHÁTÍÐIN sem haldin verð-
ur í Hafnarfirði í sumar er sú
stærsta sinnar tegundar á Norð-
urlöndum, enda stendur hún yfir í
tíu daga frá 20.-29. júní. Stanslaus
dagskrá verður allan daginn báðar
helgarnar og öll kvöld á virkum dög-
um.
„Markhópurinn er fjölskyldan,“
segir Baldvin Þór Baldvinsson einn
aðstandenda hátíðarinnar. „Við
gættum þess að hátíðin væri fjöl-
breytt og að allir gætu komið og not-
ið þess að vera hérna.“
Fjöldi innlendra og erlendra lista-
manna taka þátt í hátíðinni og meðal
þeirra er bandaríska söngkonan Sa-
rah Kelly, sem hefur tvisvar verið
tilnefnd til Grammy-verðlauna, og
sænski gospelkórinn Joybells.
Tónleikarnir verða ekki þó ekki
alfarið bundin við gospeltónlist og
verða reggí-tónlistarmenn frá Ja-
maíka á meðal gesta. „Eitt af aðal-
númerum hátíðarinnar er Ziggy So-
ul sem var í hljómsveit með
bassaleikara Bob Marleys. Hann
eignaðist trú og hætti að spila í
nokkur ár, en byrjaði svo aftur með
nýjan grunn undir tónlistinni. Hann
er algjör perla,“ segir Baldvin.
Hátíðin fer fram í Víðistaðakirkju
og á Víðistaðatúni. Klassísk tónlist
verður flutt í kirkjunni en utandyra
verða tónleikar popp-, rokk- og
reggíhljómsveita.
Gospelveisla í sumar
Innlifun Bandaríska gospelsöng-
konan Sarah Kelly heimsækir
Hafnarfjörð í sumar.