Morgunblaðið - 03.04.2008, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Nonni er kominn á limmanum sínum að ná í þig, herra.
Full ástæða er til að taka undir orðSteingríms J. Sigfússonar um að
það sé ámælisvert að utanríkis-
ráðherra skuli hundsa lögbundna
samráðsskyldu
sína við utanríkis-
málanefnd Al-
þingis og Alþingi.
Steingrímursegist hafa
óskað eftir fundi
með ráðherra áð-
ur en farið yrði á
leiðtogafund
Atlantshafsbandalagsins, sem nú
stendur yfir í Búkarest í Rúmeníu,
þannig að kostur gæfist á því að
ræða og koma fram sjónarmiðum
um þá afstöðu sem þar yrði tekin
fyrir Íslands hönd.
Ekki hafi reynst unnt að koma áslíkum fundi!
Og þegar kom til reglubundinsfundar utanríkismálanefndar í
gærmorgun voru utanríkisráðherra
og forsætisráðherra á leið til út-
landa.
Það er óvenjulegt að tveir stjórn-arþingmenn, sem jafnframt sitja
í utanríkismálanefnd, taka undir
með stjórnarandstöðunni. Ragnheið-
ur Elín Árnadóttir segist telja góðan
brag að því að gera það að reglu að
utanríkismálanefnd fái utanríkis-
ráðherra á sinn fund fyrir svona
stóra fundi.
Árni Páll Árnason sagði að hand-vömm virtist hafa orðið í und-
irbúningi þessa máls og rétt væri að
harma það. „Við bindum vonir við að
funda með utanríkisráðherra þegar
ráðherrarnir koma heim af fund-
inum.“
Varla býst hann við að utanrík-ismálanefnd þingsins láti sér
nægja „að binda vonir við“ að hitta
utanríkisráðherrann eftir leiðtoga-
fundinn?
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Ámælisverð vinnubrögð
VEÐUR
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
! !
! !
" #
! !
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
"$ #
%
&"'$%
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
!
!
!
!
!
!
!
! !
*$BC
! "# $ %
& ' ! #! *!
$$B *!
( )
*
$
)
$
% '$ + '
<2
<! <2
<! <2
( %$* ,#- ." '/
D
$
B
"2
(
!
$ % *
/
+ !
! ,
- " ) ! ' !
.# ,
<7
/!
0 1
/!' !
) * ' ! +!
0
01 '22 '$ 3
' "' ,#
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Jón Bjarnason | 2. apríl
… í einkaþotu á
herráðsfund Nató
Formenn stjórnarflokk-
anna ásamt fylgdarliði
eru á förum með einka-
þotu á fund herráðs
Nató. Almenningur hef-
ur verið beðinn um að
herða sultarólina og
sýna „þotuliðinu“ samúð í erfiðleik-
unum.
Rætt er um að efna til samskota
fyrir liðið enda hafa þeir farið með
gróða undanfarinna ára að stórum
hluta úr landi, þangað sem ekki …
Meira: jonbjarnason.blog.is
Karl Tómasson | 2. apríl
Fuglaskoðunarhús
Fuglaskoðunarhús eru
þekkt víða um heim, þar
sem fólk kemur saman
til að skoða fugla. Hér á
landi eru þau fá en virð-
ist þó sem nokkur vakn-
ing sé nú að eiga sér
stað. Þetta segir Jóhann Óli Hilm-
arsson sem hefur mikla þekkingu á
þessu sviði.
Á fundi atvinnu- og ferðamála-
nefndar var í gær samþykkt að hafin
yrði smíði á fuglaskoðunarhúsi sem
komið yrði fyrir í Leiruvogi...
Meira: ktomm.blog.is
Herbert Guðmundsson | 2. apríl
Þorsteinn breytir
fjallskilum
Fjaðrafokið um skipun
Þorsteins Davíðssonar
sem héraðsdómara á
Norðurlandi eystra og
Austurlandi blossar enn
upp af og til. Sérstak-
lega embættisfærsla
setts dómsmálaráðherra, Árna Mat-
hiesen, sem skipaði Þorstein í emb-
ættið. Þorsteinn var skipaður frá og
með síðustu áramótum og er farinn að
láta til sín taka, eins og efni standa til.
Hann er auðvitað til að byrja með á æf-
ingasvæðinu, við einfaldari úrlausnir,
en er þó búinn að kveða upp tímamóta-
dóm um fjallskilaskyldu. Sá dómur
kann að enda hjá Hæstarétti, en að
svo komnu hefur hann vakið gríðarlega
athygli innan bændastéttarinnar og
meðal stjórnenda sveitarfélaga sem
koma að fjallskilum sauðfjár - en þar á
móti virðast fjölmiðlar ekki hafa fattað
hver dæmdi!
19. mars 2008
Y-2/2007 Héraðsdómur Norður-
lands eystra
Þorsteinn Davíðsson héraðsdómari
„Losnaði undan fjallskilaskyldu.
Landeigandi á Norðurlandi ...
Meira: herb.blog.is
Hrannar Baldursson | 2. apríl
Dystópía eða veru-
leiki: Hvað ef Ísland
verður gjaldþrota?
Veruleikinn
Skilaboðin til fólksins
í landinu eru vægast
sagt vafasöm. Seðla-
bankastjóri talar einn
daginn um að innlendir
aðilar hafa valdið geng-
isfellingu með spákaupmennsku sem
þeir hafa hagnast gríðarlega á. Sem
sagt bankarán framkvæmt af Íslend-
ingum. Næsta dag talar hann um að
erlendir fjárglæframenn hafi verið að
gera árás á krónuna. Sem sagt banka-
rán framkvæmt af erlendum aðilum.
Gárungar segja að ástæðan fyrir
þessari miklu gengisfellingu sé ein-
faldlega sú að íslensku bankarnir
tóku sér allir gífurlega mikinn gjaldeyri
í evrum á sama tíma og með því sviptu
þeir teppinu undan íslensku krónunni.
Næstu helgi á eftir birtist fjár-
málaráðherra sjálfur í Silfri Egils.
Hann er spurður um þessi mál og
hans svar er að ef bankarnir lenda í
erfiðleikum mun íslenska ríkið taka
lán til að bjarga þeim. Eins og allir vita
er íslenska ríkið ekkert annað en sam-
eign íslensku þjóðarinnar. Meðal ann-
ars mín. Ég er mjög ósáttur við það ef
bankarnir hafa sinnt ábyrgð sinni illa,
að í stað þess að málin séu rann-
sökuð strax ofan í kjölinn, eru þau
þöguð í hel og fullyrt að ef íslenskur
banki lendir í vandræðum komi ís-
lenska þjóðin honum til bjargar. En at-
hugið, íslenskir bankar eru ekki ríkis-
reknir!
En hvað ef íslenska þjóðin getur
ekki meira?
Ég veit til þess að íslenskir náms-
menn erlendis koma ekki aftur heim
vegna gífurlega mikils kostnaðar við
íbúðarkaup og þar sem lánin á Íslandi
eru óhagstæð í samanburði við það
sem gengur og gerist annars staðar í
Evrópu. Ég veit líka af fólki sem er að
flytja til útlanda þessa dagana, ein-
faldlega vegna þess að það getur ekki
búið á Íslandi – leiga á íbúðum er of
dýr miðað við laun og of erfitt er að
kaupa sér nýja fasteign, meðal ann-
ars vegna stimpilgjalda. Ég þekki eng-
an gífurlegan fjölda af fólki og velti fyr-
ir mér hvort þetta geti verið alvöru-
vandi.
Ef við missum fólk úr landi sem hef-
ur lokið háskólanámi erum við að
missa mannauð sem skapað getur Ís-
lendingum margfalt fleiri tækifæri en
nokkur íslenskur banka- eða stjórn-
málamaður getur ímyndað sér. Við
megum ekki missa þetta fólk í burtu –
en það eru sumir að fara og aðrir farn-
ir. Að missa eina vel menntaða mann-
eskju af slíkri ástæðu er einni mann-
eskju of mikið.
Ég vil reyndar hrósa Björgvini G. Sig-
urðssyni fyrir að leggja fram frumvarp í
gær til niðurfellingar stimpilgjalda fyrir
kaupum á fyrstu íbúð. Mér finnst
þetta frumvarp samt ekki ganga nógu
langt, finnst að fella ætti niður öll
stimpilgjöld strax og uppgreiðslu-
kostnað lána að auki, …
Meira: don.blog.is
BLOG.IS