Morgunblaðið - 03.04.2008, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Jóhannes Sæv-ar Jóhann-
esson, fyrrverandi
slökkviliðsmaður,
pípulagningameist-
ari, atvinnurekandi
og umsjónarmaður
reykköfunarbún-
aðar hjá Slökkvi-
liði höfuðborg-
arsvæðisins,
fæddist í Vest-
mannaeyjum 15.
júlí 1941. Hann
lést 20. mars síð-
astliðinn. For-
eldrar hans eru hjónin Þórunn
Alda Björnsdóttir húsmóðir, f.
20. apríl 1915, og Jóhannes
Gunnar Brynjólfsson, fram-
kvæmdastjóri í Vestmanna-
eyjum, f. 20. sept. 1908, d. 27.
maí 1973. Systkini Sævars eru
Lára Halla, f. 25. okt. 1935, gift
Páli Sigurðarsyni, f. 20. ágúst
1934, Birna Valgerður, f. 10.
okt. 1937, gift Jóhanni Inga Ein-
arssyni, f. 29. febr. 1940, Guð-
björg Ásta, f. 8. apríl 1940, gift
Adolf Bjarnasyni, f. 7. mars
1935, og Brynjólfur, f. 21. júní
1953, kvæntur Maríu Björgu Fil-
hóf hann afleysingastörf hjá
Slökkviliði Reykjavíkur. Hann
var fastráðinn af borgarráði 10.
febrúar 1971 og varð aðstoð-
arvarðstjóri 1. janúar 1975.
Hann sinnti formennsku í
Brunavarðafélagi Reykjavíkur
starfsárin 1979-1982 og sat á
sama tíma í stjórn Námsdaga
norrænna slökkviliðsmanna.
Hann var mjög virkur í öðrum
störfum fyrir félagið og á þing-
um Landssambands slökkviliðs-
manna. Sævar sat í fulltrúaráði
Starfsmannafélags Reykjavíkur
fyrir slökkviliðsmenn. sem vara-
maður árin 1974-1980 og að-
almaður 1980-1982. Þá var hann
í samninganefnd félagsins 1980.
Árið 1985 stofnaði hann fyr-
irtækið Prófun ehf. Það rak
hann ásamt konu sinni meðfram
slökkviliðsstörfunum þar til
hann lét af störfum hjá slökkvi-
liðinu vorið 1990 og snéri sér al-
farið að rekstri fyrirtækisins.
Haustið 2001 seldi hann rekst-
urinn til Slökkvitækjaþjónust-
unnar og vann þar til haustsins
2004. Hann starfaði hjá Land-
vélum hf. þar til hann hóf aftur
störf hjá slökkviliðinu vorið
2005 og starfaði þar við eftirlit
á öndunarbúnaði til dauðadags.
Hann gekk í Ingólf, stúku nr. 1 í
Oddfellow-reglunni árið 1987.
Útför Sævars fer fram frá Há-
teigskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
ippusdóttur, f. 15.
nóv. 1954. Hinn 17.
des. 1966 gekk
Sævar að eiga
Ágústu Guðfinnu
Maríu Ágústsdóttur
sjúkraliða, f. 7.
mars 1936. For-
eldrar hennar voru
hjónin Ingibjörg
Svava Jóhann-
esdóttir, f. 15. des.
1901, d. 5. júní
1978, og Ágúst Ein-
arsson Hansen, f. 5.
sept. 1898, d. 7.
feb.1938. Dætur Sævars og
Ágústu eru Svava, framhalds-
skólakennari, f. 18. jan. 1964,
dóttir hennar Jóhanna María, f.
1992, og Alda Lára, húsmóðir,
f. 3. júní 1967, gift Halldóri
Klemenzsyni, framkvæmda-
stjóra, f. 29. júní 1969, dætur
þeirra eru Þórunn Ágústa, f.
1998, Ella, f. 2000, og Anna
Lillý, f. 2005.
Um tvítugt fór Sævar til
Reykjavíkur og nam pípulagnir
hjá Sigurði Þorkelssyni. Hann
tók sveinspróf 1964 og fékk
meistarabréf 1968. Vorið 1969
Elsku pabbi. Það er svo sárt og erf-
itt að hugsa til þess að þú sért farinn,
aðeins 66 ára. Að setjast niður og
reyna að skrifa minningargrein um
þig er svo óraunverulegt. Minning-
arnar streyma frá því við vorum litlar
stelpur og allt fram til dagsins í dag,
því þú tókst þátt í öllu okkar lífi, bæði
gleði og sorg. Þær minningar geym-
um við í hjarta okkar og yljum okkur
við. Elsku pabbi, ljóðið sem skrautrit-
að var inn í Biblíuna sem Jóhanna
María fékk í fermingargjöf gefi okkur
öllum styrk og þér líka í nýjum heim-
kynnum.
Þegar eitthvað fer úrskeiðis
eins og stundum gerist,
þegar vegurinn sem þú ferð eftir
virðist allur upp í móti,
þegar afraksturinn er lítill
og væntingarnar miklar,
þegar þig langar til að brosa
en neyðist til að andvarpa,
þegar áhyggjurnar
verða þrúgandi,
þá hvíldu þig
en gefstu ekki upp!
(Höf. ókunnur.)
Við þökkum fyrir að hafa átt þig að.
Guð geymi þig.
Þínar,
Svava og Alda Lára.
Það er erfitt að finna réttu orðin á
stundu sem þessari. Takk er þó það
fyrsta sem kemur upp í hugann.
Ég horfi til baka og segi takk.
Takk fyrir öll góðu árin.
Ég horfi til baka og segi takk.
Takk fyrir öll þerruðu tárin.
Ég horfi til baka og segi takk.
Takk fyrir öll góðu minnin.
Ég horfi til baka og segi takk.
Takk fyrir öll góðu kynnin.
Ég horfi til baka og segi takk.
Takk fyrir allt sem þú gafst mér.
Nú lít ég til framtíðar og enn segi takk.
Takk fyrir allt sem hún ber með sér.
Hvíl í friði.
Halldór Klemenzson.
Elsku bróðir, ó hvað ég sakna þín.
Þú varst svo ljúfur og hjálplegur og
vildir öllum vel.
Lífið lék ekki alltaf við þig Sævar
minn. Sem ungur drengur veiktist þú
á mjöðm og þurftir að dvelja lang-
dvölum á spítala, ekki man ég eftir að
hafa heyrt þig kvarta.
Við ólumst upp í Vestmannaeyjum,
vorum fimm systkinin. Pabbi og
mamma byggðu sér hús í túni afa og
ömmu.
Við vorum samheldin systkini og
erum enn. Sem unglingar fórum við
Sævar, Birna og ég til Skotlands og er
sú ferð eftirminnileg.
Þú fluttir ungur til Reykjavíkur,
eignaðist yndislega fjölskyldu, góða
konu, tvær dætur og fjórar afastelpur
sem þú elskaðir og dáðir.
Þú varst mikill áhugamaður um
rósarækt og hafðir yndi af því að vera
í garðinum bæði heima og í bústaðn-
um. Þú fórst á námskeið í silfursmíði
og eru margir fallegir skartgripir til
eftir þig.
Sumarbústaðurinn var ykkar sælu-
reitur og langþráður dagur rann upp.
Á skírdag fóruð þið austur en þar sem
þið eruð að koma ykkur fyrir hnígur
þú örendur niður.
Ég bið Guð að taka þig í arma sína
og styrkja okkur öll í sorginni.
Þín systir
Ásta.
Elsku hjartans bróðir minn.
Það er svo sárt að þú skulir vera
farinn frá okkur, en við geymum þig í
hjarta okkar. Ég man svo vel þegar
þú varst aðeins fimm ára gamall á
sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum
vegna þess að þú varst veikur í
mjöðm og lást á stóru stofunni. Flest-
ir þarna voru fullorðnir karlmenn. Þú
áttir strax gott með að tala við fólk á
öllum aldri. Hjúkrunarkonurnar báru
þig á höndum sér, fóru með þig út á
svalir þegar sólin skein. Það var til-
breyting því þú varst á sjúkrahúsi í
rúmt ár í gipsi. Þegar elsta systir okk-
ar var fermd, máttir þú fara úr
göngugrindinni sem þú varst búinn að
vera bundinn við í rúmt ár, en það
gekk ekki. Þú gast ekki gengið án
hennar. Það tók tíma fyrir þig að æfa
þig en þú varst svo duglegur, aðeins 6
ára gamall. Og aldrei kvartaðir þú.
Elsku bróðir. Heimili þitt var þér
allt. Ágústa þín, Svava, Alda Lára,
Halldór og afabörnin Jóhanna María,
Þórunn Ágústa, Ella og Anna Lillý.
Öll elskuðu þig og virtu enda ekki
annað hægt. Þú varst svo mikill heim-
ilisfaðir. Það sama má segja hvernig
þú hugsaðir alltaf um mömmu okkar,
sem nú má sjá á eftir synir sínum,
orðin 93 ára gömul.
Þú áttir líka þín áhugamál. Allar
rósirnar þínar sem þú hafðir öll nöfn
á, sumarbústaðurinn í yndislegu
langi, einnig allt sem þú varst búinn
að gróðursetja. Þú varst einmitt
staddur á þessum óskastað þínum
þegar líf þitt á þessar jörð endaði.
Góður Guð geymi þig og varðveiti
elsku bróðir. Sjáumst síðar. Góða
nótt. Þín systir Birna Valgerður.
Elsku Ágústa, Svava, Jóhanna
María, Alda Lára, Halldór, Þórunn
Ágústa, Ella, Anna Lillý og mamma.
Ég bið algóðan Guð að gefa ykkur
styrk til að ganga í gegnum þessa
miklu sorg. Guð varðveiti ykkur og
blessi.
Birna og Ingi.
Góður drengur hefur kvatt okkur
svo allt of fljótt og allt of snögglega,
þvílíkt reiðarslag. Hann Sævar sem
var svo stór og sterkur hlekkur í fjöl-
skyldukeðjunni, hefur verið tekinn
brott. Ég efast ekki um að honum
hefur verið ætlað mikið starf en við
höfðum líka mikla þörf fyrir hann
lengur en við fáum engu ráðið.
Ég hitti þennan góða dreng fyrir
32 árum (ótrúlegt), ég man það eins
og það hafi gerst í gær þar sem ég var
stödd í herbergi kærasta míns (Binna
litla bróður hans), sat þar í sófanum í
mesta sakleysi þegar hann stormaði
inn og kynnti sig með þéttu handtaki
sem mér er minnisstætt. En ég var
svo yfirþyrmandi feimin að ég þorði
ekki að líta á manninn, hef eflaust
bara horft á gólfið, í það minnsta man
ég mjög vel eftir tíkinni hans, henni
Perlu, og litlu stelpunni sem stóð við
hlið hans (og er í dag þriggja afas-
telpna móðir). En síðan eru liðin
mörg ár og ég átti eftir að kynnast
þessum mági mínum vel og hef alltaf
verið að kynnast því betur og betur
hversu stórkostlegur hann var. Það
er alveg sama hvað hann tók sér fyrir
hendur þessi drengur, það lék allt í
höndum hans, að byggja sér hús var
leikur einn, halda heimili, þrífa, þvo
þvotta, töfra fram matarveislur, út-
búa yndisleg jól, skreyta, baka smá-
kökur, aðhlynning sjúkra. Allt þetta
var leikur einn og þar fyrir utan var
hann heilsteyptur og ljúfur einstak-
lingur. Það var mér mikill styrkur í
haust er leið að geta leitað til mágs
míns, þegar uppgötvaðist sami sjúk-
dómur hjáeiginmanni mínum og
hann sjálfur hafði uppgötvast með
fyrir 15 árum síðan og gengið í gegn-
um stóra aðgerð þar að lútandi. Nú
var sem sagt komið að því að litli
bróðir skyldi ganga í gegnum það
sama. Það var gott að eiga þig að
elsku Sævar og leita ráða og uppörv-
unar, sjá hvað þér hafði gengið vel,
það var okkur gott haldreipi. Ég átti
alltaf eftir að þakka þér nógu vel fyr-
ir.
Kannski er það best fyrir þann sem
kveður að fara snöggt og losna við
kvöl, þjáningar og kvíða en fyrir þá
sem eftir lifa er það afar sárt. Okkur
er ekki tamt að vera svona dagsdag-
lega að þakka þeim sem okkur þykir
vænt um fyrir að vera bara til og fyrir
allt sem þeir hafa fyrir okkur gert, við
ætlum bara að gera það þegar réttur
tími gefst til en allt í einu er það bara
of seint.
Elsku Sævar, ég reyni í huga mín-
um að senda þér þakkir fyrir það sem
þú hefur verið mér og minni fjöl-
skyldu og trúi því að við hittumst síð-
ar. Ég sakna þín en óska þér alls góðs
í nýjum heimkynnum og samgleðst
þér, hversu vel mun verða tekið á
móti þér. Ég veit að þú munt síðar
taka vel á móti okkur.
Jóhannes Sævar
Jóhannesson ✝ Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
GUÐRÚN LILJA HALLDÓRSDÓTTIR
íþróttakennari,
Barðaströnd 10,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju
föstudaginn 4. apríl kl. 15.00.
Örn Ármann Sigurðsson,
Halldór Ármann Sigurðsson,
Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir,
Magnús Ármann Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg vinkona okkar,
ÞÓRA VIGFÚSDÓTTIR,
síðast til heimilis að Gullsmára 11,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn
29. mars.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 4. apríl kl. 15.00.
Sendum starfsfólki í Gullsmára okkar bestu þakkir fyrir umönnunina.
Ragnhildur Gunnarsdóttir, Gunnar Sigurðsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
TÓMAS TÓMASSON
fyrrverandi sparisjóðsstjóri
í Sparisjóði Keflavíkur,
Langholti 14,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn
28. mars.
Útför hans verður gerð frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 4. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Hjartaheill.
Halldís Bergþórsdóttir,
Ásgerður Kormáksdóttir, Jón R. Jóhannsson,
Jórunn Tómasdóttir, Skúli Thoroddsen,
Halla Tómasdóttir, Pálmi B. Einarsson,
Bergþóra Tómasdóttir, Stefán Eyjólfsson,
Tómas Tómasson, Svala B. Reynisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓNÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Ólafsvegi 19,
Ólafsfirði,
lést á sjúkradeild Hornbrekku, Ólafsfirði,
sunnudaginn 30. mars.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 5. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á að láta dvalarheimilið Hornbrekku njóta þess.
Sigurður Guðmundsson, Birna Friðgeirsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Gunnhildur Guðmundsdóttir,
börn og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
LÁRUS KONRÁÐSSON
frá Brúsastöðum,
Vatnsdal,
lést aðfaranótt föstudagsins 28. mars á
Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi.
Útförin verður gerð frá Blönduóskirkju laugar-
daginn 5. apríl kl. 13.00.
Jarðsett verður í Undirfellskirkjugarði.
Ragnheiður Blöndal,
Benedikt Blöndal Lárusson, Svala Runólfsdóttir,
Sigurlaug Björg Lárusdóttir, Þórir Haraldsson,
Gróa Margrét Lárusdóttir, Sigurður Ólafsson,
afabörn og langafabörn.