Morgunblaðið - 03.04.2008, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 43
- kemur þér við
Ölfusingar mótmæla
peningalyktinni
Hjálparstofnanir
undirbúa kreppu
SigríðurVíðis borðaði
íslenskt súkkulaði
í Sviss
Allir tapa á
bankakreppu
Pólverjar taka yfir
sal borgarstjórnar
Ásdís Rán seilist í
milljón dollarana
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
A Ð A L F U N D U R C C P H F .
Aðalfundur CCP hf. verður haldinn föstudaginn 4. apríl 2008 á skrifstofu
félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík og hefst kl. 17:00.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar félagsins um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda,
lagður fram til samþykktar.
Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á reikningsárinu.
Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
Tillaga stjórnar CCP hf. um að veita stjórn félagsins heimild í samþykktum
félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að kr. 400.000 að nafnvirði með
útgáfu nýrra hluta. Heimildin gildi í 5 ár og má einungis nota í tengslum við
efndir kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins, dótturfyrirtækja eða
fyrirtækja innan sömu fyrirtækjasamstæðu. Hluthafar skulu ekki hafa
forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum.
Tillaga stjórnar CCP hf. um að veita stjórn félagsins heimild í samþykktum
félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að kr. 1.000.000 að nafnvirði
með útgáfu nýrra hluta. Heimildin gildi í 2 ár og skulu hluthafar ekki hafa
forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum.
Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
Kosning stjórnar.
Kosning endurskoðanda.
Önnur mál, sem löglega eru upp borin.
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
CCP hf. skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en 5
sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, sbr. 63. gr. (a) hlutafélagalaga nr.
2/1995. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðalfundarstörf munu fara fram á ensku.
Reykjavík, 20. mars 2008
Stjórn CCP hf.
I.
II.
III.
IV.
V.
VI.
VII.
VIII.
IX.
X.
KOMIÐ hefur í ljós að grein
sem birtist í gær um aprílgabb
var ekki með öllu nákvæm. Í
því ágæta riti Sögu daganna er
ranglega sagt að fyrsta apr-
ílgabb fjölmiðils á Íslandi hafi
verið gabb Ríkisútvarpsins
1957 um fljótaskipið Vanadís.
Reykavík — Akranes
Líklegra er að Mogginn hafi
átt fyrsta gabbið, þegar hann
birti fréttina hér að ofan árið
1953 „af flugvél, er var á
sveimi hér yfir borginni. Þetta
er fjögurra hreyfla farþega- og
flutningavél af nýjustu gerð.
Hefir komið til mála að flugvél
þessarar tegundar verði fengin
til þess að halda uppi sam-
göngum milli Reykjavíkur og
Akraness – Myndin er að sjálf-
sögðu tekin úr annarri flug-
vél.“ – Segir með myndinni.
Einnig varð sá ruglingur í
myndatexta að pilturinn sem
skoðar „Silfur Egils“ með Guð-
mundi Árnasyni er Guð-
mundur Jónsson stórbóndi (en
ekki Jón Guðmundsson) og eru
þeir ekki feðgar, þó því væri
haldið fram í gögnum mynda-
safns.
Allir í flugstrætó
Aprílgabb Morgun-
blaðsins nokkrum
árum eldra en
gabb RÚV
Háfleygt Þurft hefur mikið föndur til að gera aprílgabbið 1953 að veruleika.