Morgunblaðið - 03.04.2008, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 03.04.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 11 DÚFUR halda til við Iðnó og Ráð- hús Reykjavíkur og njóta góðs af molunum sem verða afgangs af andabrauðinu. Jóhann Óli Hilm- arsson, sem fylgst hefur með fuglalífi við Tjörnina um árabil, segir að á þessum slóðum séu að jafnaði 20-40 dúfur. Þær sitja gjarnan á brík framan á Iðnó og fylgjast vökulum augum með þeim sem koma færandi hendi á tjarn- arbakkann. Annar dúfnahópur heldur sig í kringum korngeymsl- urnar í Sundahöfn. Eins munu dúf- ur hafa komið í húsdýragarðinn í Laugardal og fengið sér þar í gogginn. Austur á landi verpa bjargdúfur en þær munu vera náskyldar húsa- dúfunum í höfuðborginni. Jóhann Óli sagði að bjargdúfurnar yrpu m.a. á Norðfirði, Mjóafirði, Eski- firði, Reyðarfirði og Berufirði. Þá munu villtar dúfur verpa á Síðunni. Dúfum hefur fækkað mikið í miðborginni frá árum áður og eins mun það orðið sjaldgæft að krakk- ar reisi dúfnakofa og haldi þar dúf- ur sér til ánægju. Bréfdúfna- samband Íslands er þó í fullu fjöri en það er félag áhugamanna um bréfdúfnaflug (www.brefdufur.is). Eigendur bréfdúfna þjálfa þær til flugs og keppni sem felst í því að dúfunum er sleppt fjarri heimili sínu og síðan fljúga þær heim.Morgunblaðið/Ómar Vakað yfir molunum FAROE Ship, dótturfélag Eimskips í Færeyjum, hefur tekið í notkun nýjan hafnarkrana. Tilkoma nýja kranans er hluti af nýju og end- urbættu siglingakerfi sem tekið var í notkun um síðustu áramót og styð- ur vel við vaxandi starfsemi félags- ins á svæðinu. Krananum hefur verið gefið nafnið Greppur, sem þýðir risinn. Greppur vegur um 415 tonn, er um 35 metra hár og sá stærsti í Færeyjum. Þá hefur hann mjög breitt vinnslusvið sem nýtist vel í vinnu við losun og lestun gáma- skipa. Kraninn er búinn öllum helstu þægindum og nýjungum, t.d myndavél í bómu og loftkælingu, segir í tilkynningu. Þar kemur einnig fram að fyr- irtækið er meðal stærstu atvinnu- rekenda í Færeyjum, með um 170 manns í vinnu. Greppur vegur um 415 tonn XXII. landsþing Sambands ís- lenskra sveitarfélaga verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík á morgun, föstudaginn 4. apríl. Þingið verður sett kl. 9 og er gert ráð fyrir að því ljúki kl. 15. Aðalumræðuefni landsþingsins er staðan í viðræðum um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga og drög að stefnu og aðgerð- aráætlun sambandsins 2008-2010. Þingið hefst með ræðu formanns sambandsins, Halldórs Halldórs- sonar, og síðan mun Kristján L. Möller, ráðherra sveitarstjórnar- mála, ávarpa þingið. Verkaskipt- ing rædd á landsþingi · við veitum faglega ráðgjöf við val á víni með mat · við aðstoðum við að ákvarða magn fyrir veisluhöld · við erum reglulega til aðstoðar í vínbúðinni þinni · við skrifum fróðleik um vín á vinbud.is · við höfum alþjóðlega gráðu frá vínskólanum WSET í London vinbud.is E N N E M M / S ÍA / N M 3 0 4 0 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.