Morgunblaðið - 05.04.2008, Page 8
8 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LANDSSAMTÖK hjartasjúklinga,
sem nú heita Hjartaheill, voru stofn-
uð þann 8.október 1983. Á tíu ára af-
mæli sínu höfðu
samtökin frum-
kvæði að því að
bæklingurinn
,,Hjarta-
sjúkdómar, varn-
ir – lækning –
endurhæfing“
varð til. Í tilefni
af 25 ára afmæli
samtakanna í ár
kemur nú út 5. útgáfa þessa fræðslu-
efnis. Í bæklingnum er í stuttu máli
fjallað um áhættuþætti æðakölk-
unar, hjartasjúkdóma, einkenni,
rannsóknir og meðferð. Þá er lögð
áhersla á hjartaendurhæfingu. Við
undirbúning útgáfunnar var lögð
áhersla á nýjungar í hjartalyflækn-
ingum og hjartaskurðlækningum.
Hjartabækl-
ingur í 5. sinn
DAGUR Andri Friðgeirsson, 13
ára, og Hallgerður H. Þorsteins-
dóttir, 15 ára, sem jöfn urðu í efsta
sæti á dögunum
á Unglingameist-
aramóti Reykja-
víkur, háðu ein-
vígi um
Unglingameist-
aratitil Reykja-
víkur í Skákhöll-
inni á
fimmtudag.
Fyrst voru
tefldar tvær
skákir með 15
mínútna um-
hugsunartíma,
sama tíma og í
mótinu. Lauk
þeirri viðureign
svo að bæði náðu sigri með hvítu og
voru því enn jöfn. Var þá umhugs-
unartíminn styttur í tíu mínútur og
náði Dagur Andri að knýja fram
sigur í báðum skákunum og ljúka
þar með einvíginu með 3-1 sigri.
Dagur Andri er fæddur í janúar
1995 og er sterkasti skákmaður
landsins í sínum aldursflokki, segir
í frétt frá TR. Verðlaun voru afhent
af mótsstjóranum Óttari Felix
Haukssyni, formanni TR. | 59
Sigur eftir
bráðabana
Dagur Andri
Friðgeirsson
EINAR K. Guð-
finnsson, sjávar-
útvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra, verður
á opnum fundi í
Valhöll í dag,
laugardag,
klukkan 10.30.
Ráðherrann ræð-
ir um sjávar-
útvegs- og land-
búnaðarmál og stjórnmálaástandið
almennt. Fundurinn er á vegum
Sjálfstæðisflokksins og Málfunda-
félagsins Óðins en formaður Óðins,
Theodór Bender, verður fund-
arstjóri.
Ræðir stjórn-
málaástandið
Einar K.
Guðfinnsson
STUTT
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
BREYTINGAR á verkaskiptingu
milli ríkis og sveitarfélaga eru eitt
stærsta viðfangsefnið sem unnið er
að á vettvangi Sambands íslenskra
sveitarfélaga um þessar mundir.
Fjallað var um undirbúning þessara
flutninga sem snúa að málefnum
fatlaðra og þjónustu við aldraða á
aðalfundi sambandsins sem haldinn
var í gær. Ef tekið er mið af fjár-
lögum 2008 þarf að flytja 30 millj-
arða frá ríki til sveitarfélaganna
vegna beggja málaflokkanna.
Halldór Halldórsson, formaður
sambandsins, segir að undirbúning-
ur vegna flutnings málefna fatlaðra
sé mun lengra á veg kominn. „Ef all-
ir samningar takast erum við að
vonast til að hægt verði að taka þau
yfir eftir tvö ár. Við erum komnir
skemmra á veg varðandi málefni
aldraðra en þar erum við að horfa til
þess, að ef samningar takast, verði
yfirtaka þess verkefnis eftir 5 til 7
ár,“ segir Halldór. Hann segir að
stefnumörkun um þessa risastóru
yfirfærslu verkefna til sveitarfélaga
hafi verið mörkuð á þingi sambands-
ins 2006. ,,Sveitarfélögin eru með
um 30% af opinberum umsvifum í
dag en þau færu vel yfir 40% ef bæði
verkefnin verða flutt til sveitarfélag-
anna.“
Í inngangserindi sínu á þinginu
gerði Halldór grein fyrir samráðs-
fundi ríkis og sveitarfélaga sem
haldinn var sl. miðvikudag. Þar varð
m.a. að samkomulagi að skipa nefnd
til eins árs til að auka traust og
formfestu í samskiptum ríkis og
sveitarfélaga og á hún m.a. að fjalla
um álitamál um kostnaðarskiptingu
o.fl.
Mörg allt of fámenn
Í ávarpi sínu á þinginu í gær vék
Kristján L. Möller samgönguráð-
herra að umræðu um eflingu sveit-
arstjórnarstigsins með sameiningu
og stækkun sveitarfélaga. Sagðist
hann vera mikill áhugamaður um
þetta viðfangsefni „og þó vissulega
hafi náðst góður árangur í að
stækka sveitarfélögin á umliðnum
árum má færa rök fyrir því að sveit-
arfélögin á Íslandi séu enn of mörg
og mörg þeirra alltof fámenn miðað
við þær skyldur sem á þeim hvíla,“
sagði Kristján.
„Ég hef sett af stað sérstaka skoð-
un á framkvæmd og áhrifum af
átaksverkefni stjórnvalda og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga um
sameiningu sveitarfélaga og eflingu
sveitarstjórnarstigsins sem stóð frá
árinu 2004 og fram til sveitarstjórn-
arkosninga 2006. Markmiðið er að
meta árangur af áðurnefndu átaks-
verkefni, en einnig að leggja fram
hugmyndir/tillögur að því hvernig
best sé að standa að frekari eflingu
sveitarstjórnarstigsins í komandi
framtíð.
Ég vil hér með opna á þessa um-
ræðu með ykkur, kæru sveitar-
stjórnarmenn. Ég tel að við verðum
m.a. að spyrja okkur þeirrar spurn-
ingar, hvort ekki sé tímabært að
hækka lágmarksíbúafjölda sem
samkvæmt sveitarstjórnarlögum er
50. Öllum má ljóst vera að mikið
vatn hefur runnið til sjávar síðan
þetta ákvæði var lögfest fyrir 22 ár-
um síðan, starfsemi, skyldur og um-
fang sveitarfélaganna er með öðrum
hætti nú en þá. Eins og ykkur er ef-
laust mörgum kunnugt um hef ég
verið meðflutningsmaður að tillög-
um á Alþingi að hækka bæri lág-
marksíbúafjölda í eitt þúsund. Ég er
enn þeirrar skoðunar að það beri að
gera, og því kalla ég eftir umræðu á
þessu landsþingi um þetta mál.
Ég kom inn á þetta atriði í viðtali í
Sveitarstjórnarmálum fyrir skömmu
og viðbrögðin voru mjög jákvæð, ég
fékk mörg samtöl um þetta mál og
hvatningu. Þannig að þessi sjónar-
mið eiga greinilega góðan hljóm-
grunn víða,“ sagði ráðherrann.
Gjáin minnkar
Spurður um fjárhagsstöðu sveit-
arfélaganna um þessar mundir sagði
Halldór að ef á heildina sé litið sýni
ársreikningar að sl. þrjú ár hafi ver-
ið ívið betri en árin þar á undan. „Ef
marka má fjárhagsáætlanir fyrir ár-
ið 2008 þá mun þessi svokallaða gjá
á milli ríkustu sveitarfélaganna og
þeirra verst settu minnka ef áætl-
anir ganga eftir. Betri afkoma verði
hjá sveitarfélögum utan vaxtar-
svæðanna og ívið verri afkoma á höf-
uðborgarsvæðinu en árið á undan.“
Vonast til að mál fatlaðra verði
flutt til sveitarfélaga eftir tvö ár
Morgunblaðið/Valdís Thor
Spurt og svarað Landsþing sveitarfélaga fór fram á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu í gær. Kristján L. Möller
samgönguráðherra, og Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, sátu fyrir svörum að loknu ávarpi ráðherrans.
Í HNOTSKURN
»Á landsþingi Sambands ísl.sveitarfélaga eiga seturétt
155 fulltrúar sveitarfélaganna 79
auk framkvæmdastjóra sveitar-
félaga, þ.e. bæjar- og sveitar-
stjóra, og formanna og fram-
kvæmdastjóra landshluta-
samtaka.
»Tilflutningur þjónustu viðfatlaða og aldraða til sveitar-
félaga er talinn geta kostað 30
milljarða á ársgrundvelli.
»Þingið afgreiddi stefnu- ogaðgerðaráætlun til ársins
2010.
Ráðherra vekur
máls á hækkun
lágmarksíbúafjölda
Á FUNDI stjórnar Bifreiðastjóra-
félagsins Frama á fimmtudag var
þeirri miklu álagningu sem er á
eldsneyti í dag harðlega mótmælt.
Leigubifreiðastjórar hafa ekki
hækkað ökutaxta sinn eins mikið og
þyrfti til þess að mæta hækkun á
eldsneyti og öðrum auknum álög-
um sem orðið hafa. Þessum hækk-
unum ásamt fleiri hækkunum sem
hafa orðið á rekstri leigubifreiða
hafa þeir orðið að taka á sig með
lækkun launa sinna, segir í frétt frá
Frama. Stjórnin skorar á stjórnvöld
og forsvarsmenn olíufélaganna að
lækka nú þegar verð á eldsneyti.
Frami mót-
mælir álögum