Morgunblaðið - 05.04.2008, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Stakir jakkar
Í mörgum litum og sniðum
STÆRÐIR
40-52
KYNNUM
VOR- OG SUMAR
2008
DAGANA 3.-12. APRÍL
Hverfisgötu 6 101 Reykjavík
sími 562 2862
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
Leggings, kvart og síðar
str. 36 - 56
bæklingurinn kominn
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Glæsileg
sparidress
Mikið úrval - góð verð Englabörnin
outlet - sala
Laugavegi 51 (áður Iðunn)
opnum kl. 10
Í eina viku, komið
og gerið góð kaup
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
RÍKISSAKSÓKNARI hefur
mælst til þess við lögreglustjóra að
þeir afli einungis vottorðs um magn
ávana- og fíkniefna í blóði einstak-
linga sem grunaðir eru um akstur
undir áhrifum, en ekki jafnframt í
þvagi. Þrátt fyrir það hafa mörg
embætti gefið út ákærur byggðar
eingöngu á niðurstöðum þvagsýna.
„Þeir hafa komist að þeirri nið-
urstöðu, að menn séu undir áhrif-
um, þó að þeir séu það í raun ekki,“
segir Brynjar Níelsson lögmaður
sem hefur verið manna ötullastur
við að benda á þann galla á umferð-
arlögum, að hægt sé að sakfella
ökumann fyrir akstur undir áhrif-
um ávana- og fíkniefna, þegar að-
eins finnast umbrotsefni fíkniefna í
þvagi – sem bendir til að viðkom-
andi hafi neytt fíkniefna einhverju
sinni, en ljóst að hann sé ekki leng-
ur undir áhrifum – og hann því fær
um að stjórna ökutæki. „Menn
verða að skilja það, eins og Jakob
Kristinsson, dósent í lyfjafræði,
hefur bent á, að mennirnir eru ekki
undir áhrifum, þó svo að lögin segi
það. Allir skynsamir menn sjá
þetta.“
Um þessar mundir vinnur nefnd
á vegum samgönguráðherra að end-
urskoðun umferðarlaga. Í forsæti
er Róbert R. Spanó lagaprófessor
og segir hann ljóst að við þá vinnu
verði tekin afstaða til þess hvort
breyta eigi orðalagi ákvæða 45. gr.
umferðarlaga, þar sem fram kemur
að ef ávana- og fíkniefni mælast í
blóði eða þvagi ökumanns teljist
hann undir áhrifum.„Leitast verður
við að haga orðalagi ákvæðisins
þannig, að það nái því markmiði
sem að er stefnt með þessum
ákvæðum, þ.e. að koma í veg fyrir
að þeir stjórni ökutækjum sem eru
til þess ófærir, á þeim tíma sem
akstur á sér stað,“ segir Róbert.
Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki
störfum í lok árs.
Í ósamræmi við
dómaframkvæmd
Héraðsdómur Vestfjarða sýknaði
um miðja viku tvo menn af ákæru
um akstur undir áhrifum fíkniefna,
þrátt fyrir að umbrotsefni kannabis
hafi fundist í þvagi þeirra. Er það í
fyrsta skipti sem menn eru sýkn-
aðir í slíkum tilvikum. Í tilefni af
frétt um málin, sem Morgunblaðið
birti sl. fimmtudag, sendi fulltrúi
sýslumannsins á Suðurlandi blaða-
manni tölvupóst. Þar kemur eft-
irfarandi fram:
„Þessir tveir dómar Héraðsdóms
Vestfjarða eru mjög skrýtnir og
alls ekki í samræmi við ríkjandi
dómaframkvæmd í þessum efnum.
Hér hjá okkar embætti hafa ca. 140
mál sem varða akstur undir áhrif-
um fíkniefna verið rekin fyrir hér-
aðsdómi frá því að lagabreytingar
urðu með lögum nr. 66/2006. Í all-
nokkrum þessara mála mældust að-
eins fíkniefni í þvagi ökumanns. Í
öllum þessum málum hafa ákærðir
verið sakfelldir og ökuleyfissvipting
jafnframt dæmd.“
Blóðsýni aðeins könnuð
Fulltrúinn benti jafnframt á að
Hæstiréttur hafi lagt skýra línu í
þessum málum í dómi frá janúar sl.
Í honum segir m.a.: „Við flutning
málsins fyrir Hæstarétti taldi
ákærði að ekki væri unnt að sak-
fella sig fyrir að hafa við aksturinn
verið undir áhrifum kókaíns, þar
sem það hefði einungis mælst í
þvagi en ekki blóði og í matsgerð
rannsóknarstofunnar væri tekið
fram að þetta benti til neyslu á efn-
inu en hann hefði „ekki verið undir
áhrifum þess þegar blóðsýnið var
tekið“ eins og segir í matsgerðinni.
Í 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga er
svo sem fyrr segir tekið fram að
ökumaður teljist hafa verið undir
áhrifum ávana- og fíkniefnis ef það
mælist í þvagi hans. Málsvörn
ákærða sem að þessu lýtur verður
því hafnað.“
Viðmælendum Morgunblaðsins
bar flestum saman um að 2. mgr.
45. gr. a umferðarlaga væri afar
óheppileg. Hjá embætti ríkissak-
sóknara fengust þær upplýsingar
að Bogi Nilsson, fv. ríkissaksókn-
ari, hafi sent lögreglustjórum tvö
bréf vegna dóma af þessu tagi, það
síðara í desember sl. „Þar lagði
hann áherslu á, að það sé hans
mat, að við rannsókn málanna
verði að jafnaði einungis aflað vott-
orðs um magn ávana- og fíkniefna í
blóði,“ segir Ragna Bjarnadóttir,
löglærður fulltrúi hjá embættinu.
„Þetta er línan sem hefur verið
lögð héðan.“
Spurður út í sýknudómana sem
féllu á Vestfjörðum segir Valtýr
Sigurðsson ríkissaksóknari að emb-
ættið sé að skoða hvort þeim verði
áfrýjað til Hæstaréttar. Inntur eftir
því hvort áfrýjun væri ekki í and-
stöðu við álit ríkissaksóknara, sagði
Valtýr enga breytingu hafa orðið á
því áliti.
Álit ríkissaksóknara hunsað
Ríkissaksóknari mæltist til þess að lögreglustjórar öfluðu aðeins vottorðs um magn ávana- og fíkni-
efna í blóði en ekki þvagi Endurskoðun umferðarlaga tekur að öllum líkindum mið af áliti saksóknara
Morgunblaðið/ÞÖK
Blóð Ríkissaksóknari vill að lögreglustjórar noti blóðsýni en ekki þvagsýni
við útgáfu vottorða um magn ávana- og fíkniefna í líkama fólks.
Í HNOTSKURN
»Breytingar á umferðar-lögum (66/2006) voru sam-
þykktar á Alþingi 3. júní
2006.
»Þá var bætt í lögin aðmælist ávana- og fíkniefni
í blóði eða þvagi ökumanns
teljist hann vera undir áhrif-
um ávana- og fíkniefna og
óhæfur til að stjórna ökutæki
örugglega.
»Ef ávana- og fíkniefnimælast aðeins í þvagi, get-
ur viðkomandi ökumaður hins
vegar ekki verið undir áhrif-
um efnanna, þótt hann hafi
vissulega neytt þeirra á ein-
hverjum tímapunkti.
»Til þess verða efnin aðmælast í blóði viðkomandi.