Morgunblaðið - 05.04.2008, Qupperneq 27
setubekk úr hnotunni sem passar
einkar vel á móti glanshvítri eldhús-
innréttingunni. Rut hannaði nýja
lýsingu inn í allar vistarverurnar í
samvinnu við þá Lúmex-menn.
Gardínurnar, sem húsfreyjan segir
að séu algjör snilld, fundust svo í
versluninni Nútíma, en þær eru al-
gjörlega lausar við ryksöfnun.
Gott að sofna við
lækjarniðinn
„Við vorum lengi búin að leita að
rétta fjölskylduvæna húsinu þegar
við duttum niður á þetta góða hús á
þessum líka rólega stað. Hér rennur
meira að segja bæjarlækur fram hjá
sem gott er að sofna við séu gluggar
eða svaladyr á herbergjum hafðar
opnar. Svo finnst okkur þægilegt að
búa í húsi á tveimur hæðum og
myndum alls ekki vilja hafa það
öðruvísi,“ segir húsmóðirin að lok-
um.
Hjónaherbergið Undir súðina var smíðuð innrétting með djúpum skúffum beggja vegna rúmsins, sem eykur
geymslurýmið í herberginu til muna. Skáparnir eru háglanshvítir með hnotuhirslum að innan.
Veggteppið Móðir húsfreyjunnar saumaði þetta
veggteppi fyrir fjölmörgum árum og það fær að
njóta sín á góðum stað við stigann.
Uppgangan Bókaskápurinn er ómissandi og
málverkið, sem er eftir Línu Rut, fékk húsmóð-
irin í fertugsafmælisgjöf frá húsbóndanum.
Baðherbergið Sveppabrúnir vaskar, sem einu sinni þóttu
svakalega flottir, fengu að víkja fyrir hvítum hreinlætistækjum
og nýtísku blöndunartækjum frá Vola og Stark.
Borðstofan Borðstofuhúsgögnin eru líklega meðal elstu
húsmuna fjölskyldunnar, en fengu að halda hlutverki sínu
eftir breytingu. Málverkið er eftir Dagmar Agnarsdóttur.
Hlýlegt Öll alvöru heimili þurfa að eiga píanó. Stólarnir eru úr Öndvegi.
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 27
efnum miðbæjarins.
Slík umræða var raun-
ar þegar hafin á síðustu
öld og minnist Víkverji
þess vel að á þeim tíma
fengu borgaryfirvöld
breska arkitektaskrif-
stofu til að vinna tillögu
að lífvænlegri skipt-
ingu íbúabyggðar,
verslana og veitinga-
húsa á svæðinu til að
forða yfirvofandi and-
láti miðbæjarins. Sú
vinna skilaði af sér
breytingartillögu á
skilgreiningu miðborg-
arsvæðisins samkvæmt
þáverandi að-
alskipulagi, sem samþykkt var í
borgaráði. En henni var ætlað að
skipta miðborginni niður í landnotk-
unarflokka svo betri stjórn mætti
hafa á þróun svæðisins.
x x x
Á þeim níu árum sem liðin eru fráþví að tillagan var samþykkt
hefur Víkverji oft velt því fyrir sér
hverju hún hafi skilað. Honum virð-
ist árangurinn ekki sérlega sýni-
legur, en hvað veit Víkverji svo sem?
Kannski væri lágreisti miðbærinn
sem honum þykir svo vænt um nú
þegar horfinn undir græna torfu –
eða öllu heldur steinsteypta háhýsa-
byggð – hefði breytingartillagan
ekki verið samþykkt.
Víkverji hefur fylgstaf miklum áhuga
með umræðunni um
yfirgefnu húsin í mið-
bænum enda búsettur í
þeim hluta borg-
arinnar. Og þar er allt
að fara til helvítis – að
minnsta kosti ef mark
er takandi á þeim vin-
um og kunningjum
Víkverja sem búsettir
eru í öðrum bæj-
arhlutum. „Ósköp eru
að sjá miðbæinn.“„En
hvað ásýnd Laug-
arvegarins er hræði-
leg,“ segja þeir og
hrista hausinn eftir að
hafa slitið sig frá verslunarmiðstöðv-
unum einn laugardagseftirmiðdag
eða svo til að bregða sér í sérstaka
skoðunarferð um miðbæinn.
x x x
Jú, Víkverji verður að viðurkennaað Laugavegurinn hefur oft ver-
ið hressilegri ásýndar, þó hann sjái
samt ekki alveg þá dómsdagsmynd
sem blasir við úthverfafélögunum –
en það er kannski bara af því að
þetta er það útsýni sem hann sér
dag hvern.
x x x
Hann er engu að síður sammálaþví að það er löngu orðið tíma-
bært að gerður sé skurkur í mál-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Grafarholtssókn
Sunnudaginn, 6. apríl, kl. 13:30
í Árbæjarkirkju.
Prestar séra Sigríður Guðmarsdóttir
og séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.
Fermd verða:
Agnes Gróa Jónsdóttir,
Gvendargeisla 21, 113 Reykjavík.
Andri Ingason,
Maríubaugi 105, 113 Reykjavík.
Arney Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir,
Gvendargeisla 2, 113 Reykjavík.
Aron Heimisson,
Ólafsgeisla 101, 113 Reykjavík.
Brynjar Jósef Óskarsson,
Grænlandsleið 17, 113 Reykjavík.
Chanel Björk Sturludóttir,
Þorláksgeisla 29, 113 Reykjavík.
Íris Svava Pálmadóttir,
Andrésbrunni 7, 113 Reykjavík.
Laura Núpdal Carrasco,
Þórðarsveig 32, 113 Reykjavík.
Róbert Sigurðsson,
Kirkjustétt 24, 113 Reykjavík.
Sólbjört Jóhannesdóttir,
Þorláksgeisla 116, Reykjavík.
Særún María Brynjarsdóttir,
Gvendargeisla 68, 113 Reykjavík.
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100