Morgunblaðið - 05.04.2008, Page 33

Morgunblaðið - 05.04.2008, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 33 ÞAÐ sem Lúðvík vill fyrst og fremst að sé breytt er það að færa vald ráðherra um frjálst val þegar kemur að skipun dóm- ara í hendur Alþingis. Forsætisráðherra á að gera tillögu til þingsins um hvern hann vill skipa sem dómara. Þá á sér- nefnd að gefa skýrslu til þingsins og þetta yrði rætt. Svo þyrftu 2/3 hlutar þingsins að samþykkja skipun dómara. Það gefur augaleið að þetta yrði mjög þungt í vöfum og skip- un dómara gæti hæg- lega orðið flokkspólitísk. Sumir hafa sennilega séð að Sjálfstæð- isflokkurinn miðað við núverandi þingmannafjölda gæti alltaf komið í veg fyrir samþykkt frumvarpsins (1/3 þingmanna) sem er mjög óæskilegt. Miðvikudaginn 27. febrúar sótti ég málstofu í Lögbergi um skipun dómara þar sem fjallað var um hvaða leið væri best í þessu efni. Það sem mér þótti athyglisverðast var það að Eiríkur Tómasson lagaprófessor kom að mínu mati með enn betri tillögu sem mér finnst ekki hafa verið gefin næg athygli í fjölmiðlum. Þingmenn á Alþingi hafa ekki fengið tækifæri til að ræða þetta frumvarp því að það liggur enn hjá allsherjarnefnd. Tillaga Eiríks hefur verið vel tíunduð í Fréttablaðinu fimmtu- daginn 28. feb. á bls. 6, þar sem nánar er hægt að líta á tillöguna. Helsti kostur þessarar tillögu er nefndin sem Eiríkur stingur upp á. Í dag er skipuð nefnd þegar kemur að skipun héraðsdómara en aðeins er leitað álits Hæstaréttar þegar kemur að skipun hæstaréttardóm- ara. En skv. tillögu Eiríks gefur nefndin álit um hvern eigi að skipa í dómaraembætti en til að fara gegn áliti nefndarinnar getur dómsmálaráðherra stungið upp á öðrum aðila í skipun dómara á Al- þingi og þarf þá ¾ hluta atkvæða. Nefnd Eiríks: - 2 hæstaréttardómarar - 1 héraðsdómari - 1 lögmaður skipaður af Lög- mannafélagi Íslands - 2 kosnir hlutfallskosningu* af Alþingi. Ef atkvæði standa á jöfnu ræður formaður nefndar (annar hæsta- réttardómara.) Eins og glöggir menn hafa tekið eftir er þetta keimlíkt dönsku nefndinni. Þó að það sé kannski ekki alltaf heppilegt að líkja eftir grönnum okkar þá verður að gera það í þessu tilviki enda hefur þetta reynst vel í Danmörku eins og Ei- ríkur rakti vel á umræddri mál- stofu. Ég tel mjög brýnt að menn gefi þessu gaum enda tel ég hér um að ræða vel úthugsaða og vandaða meðferð um skipun dómara. Frum- varp Lúðvíks, þó ágætt sé, yrði hreinlega alltof þungt í vöfum. * Hlutfallskosning hefur lengi verið notuð við skipun manna í nefndir á Alþingi og fer eftir d’Hondt-reglunni sem er víðfræg. Fólk áttar sig kannski ekki beint á því hvað hún felur í sér en í örstuttu máli þá gefur þessi regla stjórnarandstöðunni þingmenn í nefndum Alþingis. Þannig að þegar kemur að þessari nefnd Eiríks mundi að öllum líkindum ríkisstjórnin eiga einn þingmann og stjórnarandstaðan hinn. Nánar í 68.gr. laga um þingsköp Al- þingis. Um skipan dómara Jóhann Gunnar Þórarinsson fjallar um framkomnar tillögur um skipan dómara »Höfundur ætlar með þessum pistli sínum að ræða um frumvarp Lúðvíks Bergvinssonar og fl. um breytingar á lög- um um dómstóla. Jóhann Gunnar Þórarinsson Höfundur er nemi við lagadeild HÍ. AÐ BERJA hausnum við steininn er vond stefnumótun. Á hinn bóginn gott orðtak yfir þvermóðsku, sem þessi misserin virð- ist mjög stýra stöfum í Morg- unblaðinu, sbr. leiðara blaðsins í dag (28. febr- úar) undir yfirskriftinni: Málið afgreitt. En þar er af innlifun himinn hönd- um tekinn, umræða um upptöku evru afgreidd sem rugl og vitleysa með ósk um umræðuhreins- un; umræðunni formlega slitið, sagt endanlega lokið, eina ferðina enn, með tilvísunum í um- mæli Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Manuels Barroso, for- seta framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, sem góða þulu vandkvæða um upptöku evru á Íslandi. Morgunblaðið eins og fleiri skyldi ganga hægt um gleðinnar dyr í um- fjöllun um útlit í efnahagsmálum, sem berst á ljóshraða um allar jarðir, ekki síður en í umfjöllun um túlkun á póli- tískum ummælum. Evrópusambandið heldur sig skilj- anlega við stefnu sína um efnahags- leg skilyrði fyrir upptöku evru til að auka stöðugleika í Evrópu á sviði efnahagsmála. Ekkert síður en á sviði öryggismála. Ríkisstjórnin, fulltrúar almennings í málinu skiljanlega og eðlilega mjög á varðbergi gagnvart umræðu um evru því hér er í allmörg horn að líta, ekki síður pólitísk en hagræn; ekki síst útliti um fjár- mögnun fjármálafyrirtækja á næsta ári, sem og frumvarpi við- skiptaráðherrans um sértryggð skuldabréf, sbr. grein ráðherrans í Mbl. í gær (27. febrúar). Þvert á skoðun leiðarahöfundar Mbl. er mikils um vert að umræða um allar hliðar málsins haldi áfram og því ástæða til að benda á það augljósa: fjölmiðlum ber að stuðla að umræðu, ekki þagga umræðu niður. Evruvæðing er auðvitað þegar hafin á Íslandi: með upp- gjörum fyrirtækja og ársreikningagerð í evrum; með útborg- un launa í evrum, að hluta eða öllu leyti; síðast en ekki síst huglægt og tengist líðan og sálarlífi ef ekki skjátlast: síaukinn sam- anburður við okkar góðu frænd- þjóðir og aðrar þjóðir Evrópu og veldur vaxandi óþoli almennings á Íslandi gagnvart mismunun aðila á markaði, okrinu í vaxtakjörum og ógagnsæi verðlags. Er þá ónefnd umræða hérlendis, utan ódáinsgarðs Morgunblaðsins, í kjölfar heimsókna erlendra hag- fræðinga og sérfræðinga hingað til lands, sem sjálfstætt segja okkur satt og rétt, t.d. um tengingu krónu við evru: upptöku evrukrónu, ekr. Umræða um evrukrónu virðist hafa lent í þöggun; þessari taktík fjölmiðlanna sem er einn af vondum vísnaháttum ritskoðunar, eins kon- ar ofbeldi fyrir allra augum sem ekkert sjá. Spurt er: Hvaða króna er evr- ukrónan? Svar: Fasttenging gengis krónu við gengi evru. Aðgerð sem ekki er upp- taka evru, með öllu sem fylgir, heldur yfirlýsing stjórnvalda og seðlabanka gagnvart umheiminum um að frá og með tilteknum tímapunkti sveiflist gengi íslenskrar krónu eins og gengi evru. Rétt eins og danska krónan og sænska krónan gera nú. Þyngsta og eina almennilega rök- semdin gegn tengingu íslenskrar krónu við evru/annan gjaldmiðil á ekki lengur við, þ.e. sjálfstæða hand- aflið um smíði og framkvæmd ís- lenskrar gengisstefnu sem mest er jafnvægislist á vatnskrana, höndum stjórnvalda og seðlabanka, mest eftir útliti um hagvöxt og þróun við- skiptakjara við útlönd. Ástæðan ein- föld og flókin: Í opnu hagkerfi er gengisstýring með handafli í besta falli óskynsamleg en í versta falli stórhættuleg, því þá er marsérað gegn eðlilegu samhengi í markaðs- starfsemi, þ.e. þess krafist að árlækir og fljótin renni upp á við. Evrutenging ýtir út hugmyndum um breytingu/afnám verðbólgumark- miða Seðlabankans. Þau markmið fá sjálfkrafa aukið vægi við evruteng- ingu, með hliðsjón af markmiðum Seðlabanka Evrópu. Um leið má ætla að aukinn kraftur færist í stefnumót- un sem miðar að því að uppfylla skil- yrði Evrópusambandsins um efna- hagslega frammistöðu Íslands, ekki síst til að vera engir eftirbátar ann- arra og tryggja að við komumst í hóp Evrópusambandsríkja þegar og ef það hentar. Til viðbótar yrðu fyrr en síðar að veruleika brýnar leiðréttingar á ís- lensku viðskiptaumhverfi, t.d. löngu löngu tímabær útstrikun þáttar eignabreytinga burt úr vísitölu neysluverðs. Myndi þá skána sam- ræmið við evrópuvísitölu neysluverðs og sambærilegar landsvísitölur þjóða Evrópu. Önnur leiðrétting er síðan afnám verðtryggingar. Heiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, sagði í viðtali við Mbl. í gær (27. febrúar): „Ef ég væri seðla- bankastjóri þá væri mitt fyrsta verk að afnema verðtrygginguna.“ Nefndi hann síðan enn eitt öfugsnúið dæmi af íslenskum fjármálamarkaði: hækk- un vísitölu neysluverðs (þ.e. verð- bólgu) sem veldur lækkun vaxta á nýjum útgefnum verðtryggðum skuldabréfum og lægri ávöxt- unarkröfu. Klárt öfugmæli skulda- bréfamörkuðum, en engu síður satt og rétt hérlendis. Verðtryggingin hangir á bláþræði; hangir á trúar- bragðinu einu saman: sannleikur annarra okkar öfugmæli. Þvermóðska á auðvitað stundum við; flestir þekkja þó afleiðinguna af því að slá ítrekað hausnum við stein- inn: Þá dregst þeim mun lengur að hausverkurinn skáni. Evruvæðing: Málið afgreitt? Jónas Gunnar Einarsson fjallar um efnahagsmál » Þvert á skoðun leið- arahöfundar er mik- ils um vert að umræðan haldi áfram … fjöl- miðlum ber að stuðla að umræðu, ekki þagga umræðu niður. Jónas Gunnar Einarsson Höfundur er rithöfundur. HVAÐ ætla atvinnubílstjórar að gera þegar umhverfisvernd- arsinnar leggjast fyrir bíla þeirra eða hlekkja sig við þá, til að koma í veg fyrir umhverfisspjöll eða brennslu eldsneytis? Eiga menn alltaf rétt á að beita aðra ofbeldi til þess að ná sínu fram? Ef ekki, hverjir mega það og hverjir ekki? Skiptir máli hver hefur rétt fyrir sér? Hver ákveður það? Ég tek fram að ég er hjart- anlega sammála málstað bílstjór- anna sem hafa verið að stöðva umferð að undanförnu. Ég bið þá bara að taka upp friðsamlegri að- ferðir. Það er sjálfsagt að láta í sér heyra og láta flautur blása, en ekki beita ofbeldi. Fordæmi þeirra er slæmt. Gunnlaugur Jónsson Hnefaréttur Höfundur er framkvæmdastjóri. Móvað 47 – 110 Reykjavík Opið hús milli kl. 14:00 og 15:00 Berg fasteignasala, Bolholt 4 Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is Pétur Pétursson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali Fágað og glæsilegt 219 fm einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr. Vandað hefur verið til allra þátta við hönnun hússins og engu til sparað í sérsmíðuðum innréttingum, vönduðum gólfefnum, lýsingu, tækjum og í lóð. Húsið skiptist í 3-4 svefn- herbergi, stofu, eldhús, gestasalerni, þvottahús, sjónvarpsstofu og baðherbergi. Í húsinu er mikil lofthæð og stórir gluggar í stofu sem hleypa fallegri birtu inn. Lóð er með steyptum flísum og skjól- girðingu úr harðvið og steypu. Heitur pottur. Um er að ræða eign sem uppfyllir allar nútímakröfur. V. 79 millj. Grétar J. Stephensen Löggiltur fasteignasali verður á staðnum. M b l 9 90 29 1 Lögg. fasteignasali Hrafnhildur Bridde Agnar Agnarsson Sigurberg Guðjónsson hdl. Hrafnhildur Bridde, lögg.fasteignasali 821 4400 534 2000 www.storhus.is Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001 • www.storhus.is OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 15 - 15:30. BERGSTAÐASTRÆTI 43, 101 RVK. RÚMGÓÐ OG VEL SKIPULÖGÐ EFSTA HÆÐ ( 2.HÆÐ ) Í TVÍBÝLISHÚSI ÁSAMT BÍLSKÚR. Tvö svefnherbergi. Rúm- góð stofa með góðum gluggum og er eldhúsið opið inn í stofuna. Suð- vestur svalir með útsýni. Baðherbergi m/baðkari. Hátt til lofts. Heildarstærð m/bílskúr er 112,2 fm. VERÐ 36,9 MILLJ. ATH ! MÖGULEGT ER AÐ KAUPA BÁÐAR ÍBÚÐIRNAR Í HÚSINU ! BERGSTAÐASTRÆTI 43, 101 RVK. HÆÐ. 4ra herb, 106,2 fm íbúð á 1.hæð auk 17,7 fm geym- slu á jarðhæð. Sér herb. m/snyrtingu á stigapalli. Íbúðin sjálf skiptist í tvö svefnherb, stofu, eldhús og endurnýjað baðher- bergi. Suður svalir. Mögulegt er að yfirtaka leigusamning. VERÐ 32,8 MILLJ. ÁHV.UM 17.MILLJ GÓÐ LÁN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.