Morgunblaðið - 05.04.2008, Page 54
54 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR FRÉTTIR
Elsku amma.
Það er ekki búið að
vera auðvelt hjá þér
síðustu mánuðina, þú ert búin að
vera svo mikið veik. Þú varst alveg
einstök kona, alltaf svo glæsileg
og falleg. Ég á alveg fullt af minn-
ingum um þig, og allar eru þær
góðar. Hvað þú nenntir að hafa
mikið fyrir okkur Guggu frænku,
útilegurnar í Galtalæk þar sem þú
vaktir eftir okkur eftir skemmt-
unina með upphitað tjaldið. Allar
strætóferðirnar, ein ferð í Hafn-
arfjörð að skoða hraunið, göngu-
ferð á Þorláksmessu niður Lauga-
veginn og á kaffihús í kakó á eftir.
Ég gæti haldið endalaust áfram, já
og Ameríkuferðin okkar stendur
upp úr. Þar skemmtum við okkur
konunglega, vorum varla lentar og
þá varst þú komin á séns. Fólkið
sem við hittum á leiðinni ætlaði
varla að trúa því að þú værir
amma mín. Hver hefði trúað því að
það gæti verið svona gaman að
ferðast með ömmu sinni, ég bara
19 ára þá, en svona varstu. Mér
fannst alltaf gaman að vera með
þér. Þú varst alltaf svo góð við mig
og ég var ótrúlega heppin að hafa
fengið þig sem ömmu.
Elsku amma, þín verður sárt
saknað og alveg eins og ég sagði
hér að framan varstu alveg ein-
stök og ég var stolt að eiga þig að.
En nú ertu komin á betri stað og
ég veit að afi Pétur og Oddur hafa
tekið vel á móti þér.
Þitt barnabarn,
Ágústa Einarsdóttir.
Það er einkum tvennt sem kem-
ur upp í hugann þegar við hugsum
um ömmu, jólin og sumarbústað-
urinn. Á jólunum átti amma af-
mæli. Hún skiptist á að vera með
okkur á aðfangadagskvöld og hjá
Lindu og í minningunni var það
alltaf mikið tilhlökkunarefni ef
hún átti að vera hjá okkur. Amma
átti reyndar yfirleitt flesta pakk-
ana og fékk oftast möndluna en
það var alltaf gaman þegar hún
var nálægt.
Sumarbústaðurinn er staðurinn
sem tengir alla fjölskylduna sam-
an, hann stendur á landinu sem
amma ólst upp á og þar eyddum
við æsku okkar á sumrin. Flestar
stundir ömmu þar fóru í að labba
um landið og planta og skoða
hríslurnar hennar sem nú eru að
verða fínustu tré. Sérstaklega er
minnisstætt þegar amma fór með
okkur frændsystkinin í heila viku
upp í bústað þar sem hún kynnti
okkur fyrir sveitinni sinni og þeim
stöðum þar sem hún lék sér í æsku
með bein og leggi.
Amma Bagga var ekta amma.
Hún átti alltaf góðgæti handa
manni, hún var amma sem fór með
mann í Kolaportið og Kringluna
og hún var amma sem prjónaði á
mann fínustu ullarsokka og lopa-
peysur. Amma hugsaði alltaf vel
um útlitið og leit alltaf mjög vel út
enda stórglæsileg kona. Hún átti
alltaf mjög mikið af slæðum og
öðru fíneríi sem gaman var að
leika sér með. Amma var mjög
hreinskilin og sagði ávallt sína
meiningu en aðeins ef hún var
spurð. Hún var aldrei fyrir það að
trana sinni skoðun fram heldur
gerði hún yfirleitt allt á mjög hóg-
væran hátt. Amma gat verið mjög
fyndin, t.d með því einu að hrista
hausinn yfir einhverri vitleysu og
ef einhver var með skot á hana eða
hennar fólk þá átti hún alltaf svör
á reiðum höndum.
En það er hreint með ólíkindum
Guðbjörg Oddsdóttir
✝ Guðbjörg Odds-dóttir fæddist á
Heiði á Rang-
árvöllum 23. desem-
ber 1921. Hún lést á
líknardeild Landa-
kotsspítala á skír-
dag, 20. mars síðast-
liðinn, og var útför
hennar gerð frá Há-
teigskirkju 28.
mars.
hvað hlutirnir gerast
stundum hratt því
okkur finnst eins og
það hafi verið í gær
þegar amma og Ingi
voru eiturhress á leið
á gömlu dansana, svo
skyndilega hringir
mamma og segir að
amma sé komin á
spítala.
En takk fyrir allt
elsku amma okkar.
Arnar Már, Ing-
unn og Heiður.
Og hér er svo margt að þakka þér
á þessari helgu stund.
Öllum þú vildir gjöra gott
og gleðja á ýmsa lund.
Og árin liðu – og ellin kom.
Öllum er gangan sár,
er heilsan bilar og þróttur þver.
Þung eru reynslutár.
En einn er sá vinur sem allt veit og sér
og örþjáðum réttir hönd.
Kristur hefur nú kallað þig heim
í kærleikans undralönd.
(Sigríður Stefánsd., Hveravöllum.)
Elsku amma Bagga,
Það verður skrítið að geta ekki
heimsótt þig lengur. Það var svo
gott að koma og heimsækja þig.
Við bræðurnir og Heiður vorum
svo heppin að fá að fara með
ömmu og Inga í Sælukot í nokkra
daga. Á meðan amma gekk um og
athugaði hvort ekki væri í lagi
með allar plönturnar, vorum við
frændsystkinin að leika okkur í
læknum og drullumalla í kofanum
góða.
Við gleymum því aldrei þegar
við fórum með mömmu að heim-
sækja hana ömmu upp á spítala
eftir aðra mjaðmaaðgerðina. Við
mamma settumst í stóla en Bjarki
settist til fóta á rúminu. Þegar
hann settist hrópaði amma eins og
hann hefði sest á hana. Bjarka brá
og hoppaði upp úr rúminu. Þá
skellihló amma. Það var aldrei
langt í húmorinn hjá henni.
Aldrei munu gleymast stundirn-
ar í Stórholtinu, þegar við fengum
að gista hjá ömmu. Háaloftið,
smáaurarnir, morgunleikfimin,
strætóferðirnar, skötuveislurnar,
saltkjötið og baunirnar. Allt þetta
og svo miklu meira til er minn-
isstætt.
Elsku amma, þakka þér fyrir
allar stundirnar sem við áttum
með þér. Við metum þær mikils og
þú varst okkur frábær fyrirmynd.
Unnsteinn og Bjarki.
Elsku amma okkar.
Erfitt er að sjá þig fara en þó
léttir fyrir þig vegna veikindanna.
Það voru svo margar yndislegar
stundir sem við áttum með þér.
Hvort sem það voru allar stund-
irnar í Sælukoti, áramótaveislurn-
ar góðu eða skötuveislurnar á Þor-
láksmessu, alltaf geislaðirðu af
glæsileika og góðmennsku. Og töl-
um nú ekki um þegar við vorum að
grípa í hamarinn niður í Sunnu-
hlíð, hvað maður hlakkaði til kaffi-
tímans því þá voru kræsingarnar
bornar á borð. Afi Pétur lést
snemma, en þú kynntist síðan
yndislegum manni, honum Inga-
birni. Við þökkum fyrir allar
stundirnar sem við áttum með þér
og Ingabirni. Við vitum að þú ert
komin á góðan stað, þér líður ef-
laust vel og hefur án vafa fengið
höfðinglegar móttökur.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur af skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum
(Höf. H.J.H.)
Helgi Páll og Pétur Óli.
Í dag kveð ég föðursystur mína,
hana Böggu eins og hún var köll-
uð. Það er alltaf erfitt að kveðja og
minningarnar eru margar. Marg-
ar eru frá æskuheimili mínu,
Heiði, þar sem Bagga og fjöl-
skylda áttu sér sumarbústað sem
þau kölluðu Sælukot.
Eitt sinn var ég hálfgerð ráðs-
kona í örfáa daga hjá föðurbróður
mínum sem þá bjó á Heiði og átti
ég aðeins að sjá um eldhúsverkin.
Bagga var í bústaðnum og hafði
skroppið heim að bæ og fékk ég að
fara með henni er hún fór aftur.
Við vorum bara tvær og við spil-
uðum, spjölluðum og svo kenndi
hún mér einhverja kapla líka.
Tíminn flaug hratt frá okkur og ég
steingleymdi „ráðskonuskyldun-
um“ um kvöldið. „Ohh, þeir hafa
bjargað sér,“ sagði Bagga þegar
ég mundi eftir hlutverki mínu og
sá að ég var orðin alltof sein. Það
var líka alveg rétt hjá henni.
Á námsárunum í Kennó og einn-
ig eftir að ég fluttist síðar í Norð-
urmýrina leit ég stundum við í
Stórholtinu á meðan Bagga bjó
þar. Það var alltaf gott að koma til
hennar og þiggja kaffisopa og
segja og spyrja frétta af fólkinu
okkar.
Ég er þakklát fyrir að hafa lagt
leið mína á Landspítalann við
Hringbraut einn föstudaginn í sl.
mánuði á arkinu heim úr vinnu og
fengið tækifæri til að hitta á
frænku mína. Mér var það alveg
ljóst að hún var mikið veik og það
væri jafnvel ekki langt eftir hjá
henni. Samt gat ég ekki annað en
dáðst að því hversu teinrétt og
tignarleg hún var með sitt fallega
hvíta hár eins og geislabaug.
Samúðarkveðjur til allra að-
standendanna.
Anna Sigríður Hjaltadóttir.
Hann sá hana fyrst á 63 ára af-
mælisdaginn sinn. Þau voru á
gömlu dönsunum. Honum datt
ekki í hug að hún myndi líta við
honum, hún sem var svo falleg og
glæsileg. Svona segir pabbi frá
þegar hann talar um það hvernig
hann og sambýliskona hans, hún
Guðbjörg, kynntust. Það fór svo
að henni fannst hann líka alveg
ágætur og nokkru seinna fóru þau
að búa saman og eru búin að vera
óaðskiljanleg síðastliðin 17 ár.
Hún Bagga, eins og hún var alltaf
kölluð, var ekki bara falleg heldur
var hún líka mjög góð og ljúf
manneskja, alveg nákvæmlega sú
manneskja sem hann hafði óskað
sér að finna. Saman fóru þau á böll
og dönsuðu, fóru í ferðalög með
tjaldvagninn í eftirdragi, skruppu
til útlanda og nutu þess sem lífið
hafði að bjóða þeim. Þegar Bagga
varð áttræð varð einu barna-
barninu að orði: Ég vil verða eins
og amma Bagga og afi þegar ég
verð gamall. Það var svo augljóst
hvað þau áttu vel saman og hvað
hún var honum mikils virði. Við
eigum öll eftir að sakna þessarar
góðu konu sem kom inn í líf okkar
dansandi og gaf okkur öllum svo
mikið. Þó ekki hafi hún verið fyrir
það að trana sér fram þá fór nær-
vera hennar ekki fram hjá neinum,
hæversk, hlý og gamansöm.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Að leiðarlokum þökkum við ljúf-
ar samverustundir og óskum
henni góðrar ferðar á nýjar slóðir.
Einnig vottum við börnum hennar
og afkomendum samúð okkar og
megi algóður Guð styrkja þau á
þessari erfiðu stundu.
Jóhann, Árni, Sigríður,
Kristmundur, Ólafur,
Hlíf og fjölskyldur.
Á AÐALFUNDI Evrópusamtakanna
á miðvikudag var kosin ný stjórn.
Hana skipa: Andrés Pétursson skrif-
stofustjóri formaður, Guðmundur
Hallgrímsson lyfjafræðingur vara-
formaður, Anna Kristinsdóttir MPA-
nemi og stjórnmálafræðingur, Ing-
ólfur Margeirsson blaðamaður, Jón-
as Jóhannsson tölvunarfræðingur,
Björn Friðfinnsson, lögfræðingur og
fyrrverandi ráðuneytisstjóri.
Í varastjórn eru Gunnar Hólm-
steinn Ársælsson stjórnmálafræð-
ingur, Pétur Snæbjörnsson fram-
kvæmdastjóri og Ari Skúlason
hagfræðingur.
Aðalerindi fundarins ,,Evrópa og
Ísland“ flutti Árni Páll Árnason
þingmaður.
Á fundinum tók Eiður Snorri
Bjarnason við viðurkenningu fyrir
hönd afa síns Þorvaldar Gylfasonar
prófessors. Þorvaldur var útnefndur
„Evrópumaður ársins 2006“ af Evr-
ópusamtökunum en aldrei hafði gef-
ist tækifæri til að afhenda honum
viðurkenninguna formlega. Þar sem
Þorvaldur var staddur í Botsvana
tók sonarsonur hans, Eiður Snorri,
við viðurkenningunni. Eiður Snorri
er 5 ára en er mikill alþjóðasinni og
hefur einkum áhuga á málefnum
Afríku, segir í frétt frá Evrópusam-
tökunum.
Viðurkenning Eiður Snorri með Jóni Baldvini Hannibalssyni, fyrrverandi
utanríkisráðherra, og Árna Páli Árnasyni, aðalræðumanni fundarins.
Ný stjórn Evrópu-
samtakanna
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá þingflokki
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs:
„Þingflokkur Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs harmar þá
ákvörðun umhverfisráðherra Þór-
unnar Sveinbjarnardóttur að greiða
götu álversframkvæmda í Helguvík.
Með því að staðfesta fyrri ákvörðun
Skipulagsstofnunar um umhverfis-
mat fyrir álver í Helguvík hunsar
ráðherra náttúruvernd í landinu og
svíkur öll fyrri loforð um stóriðjuhlé.
Það er æðsta hlutverk umhverf-
isráðherra að standa vörð um nátt-
úru landsins og framfylgja ábyrgri
umhverfisstefnu. Það er óforsvaran-
legt að ráðherrann úrskurði gegn
umhverfi og náttúruvernd og hafni
þeirri eðlilegu kröfu Landverndar
að fram fari heildarumhverfismat
fyrir álver, virkjanir og flutnings-
línur. Þá vekur furðu að ráðherra
treysti sér ekki einu sinni til að taka
efnislega afstöðu til málsins í heild
heldur vísi öðrum megin þætti þess
frá, þrátt fyrir að málið sé búið að
velkjast í ráðuneytinu og embættis-
mannakerfinu í marga mánuði.
Umhverfisráðherra hefur nú setið
á ráðherrastóli í tíu mánuði og hefur
á þeim tíma haft gnótt tækifæra til
að leggja fram breytingar á lögum
og reglum, endurskoða vinnubrögð
og taka ákvarðanir til að treysta
betur náttúruvernd í landinu. Það er
til lítils fyrir valdhafa að segjast
vera ósáttur við eigin ákvarðanir
eða nefna í orði kveðnu óljósar
stjórnarskrárbreytingar í framtíð-
inni ef í reynd er ekkert að gert til
að stöðva stóriðjuáætlanir og nátt-
úrueyðileggingu. Það er hægur
vandi að skipta um stefnu án stjórn-
arskrárbreytinga ef raunverulegur
vilji er fyrir hendi innan ríkisstjórn-
arinnar.
Í kosningabaráttunni síðastliðið
vor hamraði Samfylkingin á loforð-
um sínum um stóriðjuhlé. Þingflokk-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs krefst skýringa á svikun-
um og skorar á ríkisstjórnina að
hverfa frá þjónkun við hina blindu
stóriðjustefnu með tilheyrandi nátt-
úruspjöllum, þensluáhrifum í efna-
hagsmálum og neikvæðum ruðn-
ingsáhrifum gagnvart öðru
atvinnulífi. Það er enn ekki of seint
fyrir Samfylkinguna að standa við
gefin loforð og framfylgja ábyrgri
umhverfisstefnu í anda sjálfbærrar
þróunar, en nú eru síðustu forvöð og
trúverðugleiki flokksins í umhverf-
ismálum er í húfi í heild sinni.“
Þingflokkur VG
harmar ákvörðun
umhverfisráðherra
Ruglingur varð
við vinnslu á upp-
röðun andlits-
mynda sem
fylgdu grein á
blaðsíðu 4 í Morg-
unblaðinu í gær,
föstudaginn 4.
apríl. Meðfylgj-
andi eru mynd-
irnar með réttum
myndatextum. Viðkomandi eru
beðnir velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Bergur
Sigurðsson
Ragnar
Guðmundsson
Árni Sigfússon
Rangir myndatextar