Morgunblaðið - 05.04.2008, Síða 55

Morgunblaðið - 05.04.2008, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 55 MESSUR Á MORGUN Það fyrsta sem ég heyrði um séra George var að hann væri einn þeirra manna sem gætu látið nemendur sína hlýða sér án þess að segja orð. Þetta fannst mér krakkan- um stórmerkilegt, en þetta reyndist mikið rétt því löngu seinna þegar ég kynntist séra George gerði ég mér ljóst að hann þarf ekki að tala til að láta í ljós skoðun sína. Hann get- ur gert það með því að horfa eða brosa. Vistarverur, jafnvel stórir salir geta breyst þegar hann gengur inn. Slíkt er fáum gefið. Á seinni hluta síðustu aldar hefur séra George verið einn áhrifamesti maður kaþólsku kirkjunnar á Ís- landi. Á rúmlega 50 ára ferli sem skólamaður, þar af tæpa fjóra ára- tugi skólastjóri hins sögufræga Landakotsskóla sem hann stýrði með miklum myndarbrag og aga. Leiðarljósið var skýrt; að auka og varðveita hróður Landakotsskóla. Árið 1998 lét hann af störfum sem skólastjóri vegna aldurs. Síðan hefur hann verið hægri hönd kaþólska biskupsins hér. Í rúma þrjá áratugi stýrði hann Riftúni í Ölfusi sem var sumardvalarstaður barna á vegum kaþólsku kirkjunnar. Hann var um margra ára skeið yfirmaður Mont- fortprestanna og staðgengill biskups frá 1969. Séra George hefur kynnst mörgum kynslóðum og margar kynslóðir kynnst hon- um, slíkt hlýtur að vera skemmtilegt. Og hver veit nema margir hefðu oft hugsað ann- að og gert annað og verra ef þeir hefðu aldrei kynnst séra George. Hann hefur haft áhrif á svo marga með trú sinni, án þess að tala mikið um hana. Trúin býr í honum, mótar allt tilfinninga- líf hans og afstöðu til allra sem hann hefur mætt á lífsleiðinni. Hann tekur öllum vel sem til hans leita. Eflaust hefur hann kynnst margskonar sál- arlífi. En aldrei er hann mannlyndari en þegar hann rís upp með þeim sem minnst mega sín. Örlögin höguðu því þannig að við vorum nágrannar, aðeins steinsnar á milli húsanna þar sem við bjuggum. Með okkur tókst góð vinátta og tals- verður samgangur. Auk þess að vera sóknarbarn hans hef ég setið með honum í stjórn Caritas til margra ára. Kæri séra George, innilegar ham- ingjuóskir með áttatíu ára afmælið þitt, þakka þér fyrir vináttu þína, góðvild og hjartahlýju. Megi ham- ingjan fylgja þér Sigríður Ingvarsdóttir, formaður Caritas á Íslandi. Sr. George AÐVENTKIRKJAN Reykjavík | Ingólfs- stræti 19. Biblíurannsókn 5. apríl kl. 10 og guðþjónusta kl. 11. Eric Guðmunds- son, prestur kirkjunnar, predikar. Barna- og unglingastarf. Súpa og brauð eftir samkomuna. Bible Study Group in Engl- ish at 10. AÐVENTKIRKJAN Vestmannaeyjum | Brekastíg 17. Biblíurannsókn 5. apríl kl. 10.30 og guðþjónusta kl. 11.30. Halldór Engilbertsson og Monette Indahl sjá um dagskrána. Sérstakt barnastarf. AÐVENTSÖFNUÐURINN Suðurnesjum | Blikabraut 2, Rnb. Biblíurannsókn 5. apríl kl. 11 og guðþjónusta kl. 12. Gavin Ant- hony predikar. Súpa og brauð eftir sam- komuna. AÐVENTSÖFNUÐURINN Árnesi | Eyravegi 67, Selfossi. Biblíurannsókn 5. apríl kl. 10 og guðþjónusta kl. 11. Stefán Rafn Stefánsson predikar. Barnastarf. AÐVENTSÖFNUÐURINN Hafnarfirði | Hólshrauni 3. Fjölskyldusamkoma 5. apríl kl. 11. Barna- og unglingastarf. Eiríkur Ingvarsson, formaður Hjálparstarfs að- ventista, sér um hugleiðinguna. Súpa og brauð að samkomunni lokinni. AKRANESKIRKJA | Fermingarmessur kl. 10.30 og 14. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari. Krizstina Kallo Szklenár er organisti og kórstjóri, kirkjukórinn leiðir almnennan safnaðarsöng. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimilinu. Kirkjukaffi og meðlæti á eftir. Léttmessa kl. 20. Hjónin Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Eyþór Gunnarsson hljómlistarmaður flytja ljúfa tóna. Pétur G. Markan, æskulýðsfulltrúi kirkjunnar, flytur hugvekju. Eftir messuna verður Ice-Step-danshópurinn með fjár- öflun og selur kökusneiðar. For- eldramorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Kyrrðarstund á miðvikudögum kl. 12. Op- ið hús fyrir aldraða kl. 13-16. Spilað, föndrað, lesið, sungið og spjallað. ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Elíasar og Hildar Bjargar. Messa kl. 14. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi í safn- aðarheimilinu að messu lokinni. Sókn- arprestur. ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Helga Þórdís Guðmundsdóttir tónlistar- stjóri stýrir kirkjukórnum og leikur á pí- anóið. Prestur sr. Bára Friðriksdóttir, sóknarnefndarfólk aðstoðar. Sunnudaga- skóli á sama tíma. Landsbyggðarfólk sem hefur flutt í Ásland og Velli er sérstaklega boðið velkomið þennan sunnudag. Kaffi á eftir í safnaðarheimili og tækifæri til að kynnast. BESSASTAÐAKIRKJA | Ferming kl. 10.30. Sameiginlegur sunnudagaskóli Bessastaða- og Garðasóknar í Vídal- ínskirkju kl. 11. Rúta fer frá Álftanesskóla kl. 10.40. Söngur, gleði og samfélag. BORGARNESKIRKJA | Barnaguðsþjón- usta kl. 11.30. Messa kl. 14. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Messa kl. 11. Gunnar Kristjánsson sókn- arprestur. BREIÐHOLTSKIRKJA | Barnaguðsþjón- usta kl. 11 í umsjá Jóhanns Axels, Nínu Bjargar og Lindu Rósar. Fermingarguð- sþjónusta kl. 13.30. Prestar sr. Gísli Jón- asson og sr. Bryndís Malla Elídóttir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Samvera fyrir alla fjölskylduna með söng og fræðslu. Sýnt verður leikritið Vináttan í umsjá Brúðuleikhússins. Foreldrar, afar og ömmur hvött til þátttöku með börn- unum. Ungmennahljómsveit spilar undir stjórn Renötu Ivan. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Kristján Valur Ingólfsson messar, kirkjukór Bústaðasóknar syngur, organisti Renata Ivan. Molasopi eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prest- ur sr. Gunnar Sigurjónsson, organisti Kjartan Sigurjónsson, kór Digraneskirkju, B-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu á neðri hæð. Léttar veitingar í safnaðarsal eftir messu. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson predikar, Dómkórinn syngur, org- anisti er Marteinn Friðriksson. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. EYRARBAKKAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigurður Árni Eyjólfsson, dr.theol. Félagar úr kór Fella- og Hóla- kirkju leiða almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar og Jóns Guðbergs- sonar. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jó- hanna Freyja Björnsdóttir. Aðalsafn- aðarfundur Fella- og Hólabrekkusókna verður þriðjud. 8. apríl kl. 20 í safn- aðarheimili kirkjunnar. FRIÐRIKSKAPELLA | Messa og ferming kl. 14. Organisti Douglas A. Brotchie, prestur Tómas Sveinsson. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagskóli kl. 11. Umsjón hafa Sigríður Kristín, Hera og Skarphéðinn. Englakórinn syngur. Kvöldvaka kl. 20. Gestur kvöldvökunnar verður Margrét Pála Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri Hjallastefnunnar, sem flyt- ur hugleiðingu. Kór og hljómsveit Fríkirkj- unnar leiða sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. Kirkjukórinn býður í kaffi eftir kvöldvökuna. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Kennsla, söngur, leikir o.fl. Almenn samkoma kl. 14, Sigrún Einarsdóttir pre- dikar, lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir. Að samkomu lokinni verður kaffi og sam- félag. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming- armessa kl. 14. Fermd verða tvö ung- menni: Þóra Regína Böðvarsdóttir og Dav- íð Arnar Guðmundsson. Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari og predikar. Tónlistina annast Anna Sigríður Helga- dóttir tónlistastjóri og Helgi Reynir Jóns- son píanóleikari ásamt Fríkirkjukórnum en félagar úr kórnum sjá um forspil og eftirspil. GARÐAKIRKJA | Fermingar laugardaginn 5. apríl kl. 13 og sunnudaginn 6. apríl kl. 13 og 15. GLÆSIBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Söngur fyrir alla fjölskyld- una. Krakkarnir taka þátt í guðsþjónust- unni. Sóknarprestur. GRAFARHOLTSSÓKN | Sunnudagaskóli í Ingunnarskóla kl. 11. Þorgeir og Anna El- ísa sjá um stundina. Fermingarmessa í Árbæjarkirkju kl. 13.30. Prestar eru sr. Sigríður Guðmarsdóttir, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og sr. Ragnheiður Jóns- dóttir. Organisti Friðrik Vignir Stefánsson, meðhjálpari er Aðalsteinn Dalmann Ok- tósson og Sigurður Óskarsson. Kirkjukór Árbæjarkirkju syngur ásamt félögum úr kirkjukór Grafarholtssóknar, kyrtlar: Pál- mey Helga Gísladóttir. GRAFARVOGSKIRKJA | Ferming kl. 10.30 og 13.30. Sr. Vigfús Þór Árnason, sr. Bjarni Þór Bjarnason og sr. Lena Rós Matthíasdóttir. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna, undirleikari Stefán Birkisson. Borgarholtsskóli Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, umsjón Gunnar og Dagný, Barnakór Grafarvogs- kirkju syngur. Stjórnandi Svava Kristín Ingólfsdóttir, Undirleikari Aðalheiður Þor- steinsdóttir. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10, bænastund 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu, Lilju o.fl. Messa kl. 11. Alt- arisganga, samskot til ABC- barnahjálpar. Messuhópur, félagar úr kirkjukór leiða söng, organisti Árni Arinbjarnarson. prest- ur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Guðs- þjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Ólafs- son, sr. Hreinn S. Hákonarson. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Ferming- armessur kl. 10.30 og 14. Prestar sr. Þórhallur Heimisson og sr. Gunnþór Þ. Ingason. Kantor Guðmundur Sigurðsson, Barbörukórinn í Hafnarfirði syngur. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barna- starf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur og hópi messuþjóna. Mót- ettukórinn syngur, organisti Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs: Magn- ea Sverrisdóttir djákni. Stuttur fundur með foreldrum sunnudagaskólabarna eft- ir messu. HÁTEIGSKIRKJA | Barnaguðsþjónusta og messa kl. 11. Umsjón barnag.: Erla Guð- rún og Páll Ágúst. Organisti Douglas A. Brotchie, prestur Tómas Sveinsson. Létt- ar veitingar eftir messu. HJALLAKIRKJA | Fermingarmessur kl. 10.30 og 13.30. Prestar kirkjunnar þjóna. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng, organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskóli í neðri safn- aðarsal kl. 13. Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Sjá einnig á www.hjalla- kirkja.is. HJALLAKIRKJA Ölfusi | Messa kl. 13.30. Fermd verður Katrín Viðarsdóttir, Hjalla- króki. Organisti Hannes Baldursson, kirkjukór Þorláks- og Hjallakirkju. HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Sam- koma kl. 17. Dögg Harðardóttir talar. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam- koma kl. 20. Umsjón hefur Ragnheiður Jóna Ármannsdóttir og Trond Are Schel- ander. Heimilasamband fyrir konur mánu- dag kl. 15. Lofgjörðarsamkoma á fimmtu- dag kl. 20 í umsjá Áslaugar Hauglands. Ræðumaður er Ása Björk Ólafsdóttir prestur. Opið hús kl. 16-17.30 þriðjudaga til laugardaga. HVERAGERÐISKIRKJA | Fermingarmessa kl. 10.30. Fermd verða Anton Bjarni Hall- dórsson Borgarheiði 20, Björgvin Snævar Sigurðsson, Borgarhrauni 17, Davíð Harð- arson, Heiðarbrún 3, Emil Úlfsson, Þórs- mörk 9, Jóna Guðrún Baldursdóttir, Hraunbæ 49, Jóel Dan Nielsen Björns- son, Hraunbæ, og Móeiður Þorvalds- dóttir, Heiðarbrún 6. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Brauðsbrotning kl. 11. International church, bible study in English at 13:00. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður er Mark Brewer, skólastjóri Masters Com- mission í Dallas. Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Aldursskipt barnakirkja fyrir öll 1-13 ára börn. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Fjölbreytt barnastarf kl. 11. Fræðsla fyrir fullorðna. Gestir frá Bandaríkjunum kenna. Sam- koma kl. 20, lofgjörð. Sr. Paul Teske pre- dikar og biður fyrir sjúkum. Keith Reed syngur einsöng. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og á laugardag kl. 18. Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru, Reyðarf. | Messa kl. 11. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30. Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er messa á latínu kl. 8.10. Laugardaga er barnamessa kl. 14 að trú- fræðslu lokinni. Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11. Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mánuði kl. 16. Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í mánuði kl. 16. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laug- ardaga er messa á ensku kl. 18.30. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðviku- daga kl. 20. KÁLFATJARNARKIRKJA | Ferming- armessa kl. 13.30. Organisti Frank Her- lufsen, kór Kálfatjarnarkirkju, prestur sr. Bára Friðriksdóttir. KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Stopp-leikhópurinn flytur leikritið Eldfærin. Gospelmessa kl. 20. Gospelkór Suðurnesja syngur og leikur undir stjórn Elínar Halldórsdóttur, prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. KFUM og KFUK | Lofgjörðarvaka kl. 20. Jón Ómar Gunnarsson flytur hugleiðingu. KÓPAVOGSKIRKJA | Ferming kl. 11 með altarisgöngu. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn organista kirkjunnar, Lenku Mátéovu, prestur sr. Auður Inga Ein- arsdóttir. Sunnudagaskóli í Kópavogs- kirkju kl. 12.30 undir stjórn Sigríðar Stef- ánsdóttur. Þorkell og Örn Ýmir sjá um undirleik og brúðuleikrit. LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landa- koti kl. 14 á stigapalli á 2. hæð. Sr. Kjart- an Örn Sigurbjörnsson og Ingunn Hildur Hauksdóttir organisti. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barna- starf kl. 11. Ferming. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Kór Langholtskirkju syngur. Barnastarfið verður í safn- aðarheimilinu allan tímann með Rut og Steinunni. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Kór Laugarnes- kirkju syngur undir stjórn Gunnars Gunn- arssonar organista, sóknarprestur pre- dikar og þjónar fyrir altari ásamt meðhjálpara og fulltrúum lesarahóps. Að- alsafnaðarfundur Laugarneskirkju er kl. 12.30. Stuttur, markviss og upplýsandi fundur. Allt sóknarfólk hvatt til þátttöku. LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingarguðsþjón- usta kl. 10.30. Prestarnir. LINDASÓKN í Kópavogi | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli í Salaskóla kl. 11. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Keith Reed. Fiðluleikur: Hjörleifur Valsson. Prestur: Guðmundur Karl Brynjarsson. MOSFELLSKIRKJA | Fermingarguðsþjón- usta kl. 13.30. Prestarnir. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Fullorðins- og barnaskírn. Myndrænir og sterkir predikunartextar. Messuhópur þjónar í messunni. Félagar úr Kór Nes- kirkju leiða safnaðarsöng, organisti Stein- grímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jóns- son predikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara síðan til sinna starfa. Umsjón með barnastarfinu hafa þau Sigurvin Jónsson, Björg Jónsdóttir og Ari Agnarsson. Matarhópur reiðir fram súpu, brauð og kaffi á Torginu eftir messu. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri | Sunnudags- kólinn fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju og hefst kl. 11. Ekið frá safnaðarheimilinu kl. 10.55. SALT, kristið samfélag | Samkoma kl. 17, „Viltu verða heill?“ Ræðumaður Har- aldur Jóhannsson, lofgjörð og fyrirbæn. Barnastarf. SAUÐÁRKRÓKSKIRJA | Messa kl. 14. Prestur Sigríður Gunnarsdóttir, kór Sauð- árkrókskirkju leiðir söng, Rögnvaldur Val- bergsson. SELFOSSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11. Kirkjukór Selfoss syngur undir stjórn organistans, Jörgs E. Sondermanns, prestur sr. Gunnar Björnsson. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Söngur, saga og ný mynd. Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórs- son predikar. Fermd verður Rebekka Rún Siggeirsdóttir. Kirkjukórinn leiðir söng, organisti Jón Bjarnason. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða sálmasöng undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar organista. Sunnu- dagaskólinn á sama tíma. Prestur er Sig- urður Grétar Helgason. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa 11. Sóknarprestur. VEGURINN, kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 11. Kennsla fyrir alla aldurshópa, Eiður Einarsson kennir. Létt máltíð að sam- komu lokinni. Bænastund kl. 18.30. Samkoma kl. 19. Högni Valsson predikar. Brauðsbrotning, lofgjörð og fyrirbæn. Samfélag í kaffisal á eftir. www.veg- urinn.is. VÍDALÍNSKIRKJA | Fermingarmessa laug- ardaginn 5. mars kl. 10.30. Sameig- inlegur sunnudagaskóli Bessastaða- og Garðasóknar í Vídalínskirkju kl. 11 á sunnudag. Söngur, gleði og samfélag. Fermingarmessur i Garðakirkju á sunnu- dag. Sjá www.gardasokn.is. VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði | Fjöl- skylduhátíð kl. 11. Sunnudagaskólinn og fjölskylduguðsþjónustan saman í einni stórri fjölskylduhátíð. Stúlknakórinn syng- ur undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Sunnudagskóli kl. 11. Umsjón hefur starfsfólk sunnudaga- skólanna. Heimsókn frá sunnudaga- skólabörnum úr Njarðvíkursókn. Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Dagmar Kunakova organisti stjórnar kór kirkj- unnar. ORÐ DAGSINS: Ég er góði hirðirinn. (Jóh.10) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Glæsibæjarkirkja í Eyjafjarðarsýslu. AFMÆLI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.