Morgunblaðið - 05.04.2008, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 59
Félagsstarf
Ferðaklúbburinn Flækjufótur |
Flækjufótur fer í samvinnu við
Bændaferðir í vikuferð til Þýska-
lands í sept. nk. Leiðsögumaður
verður Steingrímur Gunnarsson.
Uppl. í síma 898-2468.
Félag kennara á eftirlaunum |
Fræðslu- og skemmtifundur hefst
kl. 13.30 í Stangarhyl 4.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla
virka daga er dagskrá kl. 9-16.30,
m.a. opnar vinnustofur, spilasalur,
dans o.fl. Þriðjud. 8. apríl kl. 13
hefst postulínsnámskeið, kennari
Sigurbjörg Sigurjónsd. Mánud. og
miðvikud. kl. 10.30 er sund og leik-
fimiæfingar í Breiðholtslaug. Uppl.
á staðnum, s. 575-7720.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins
og venjulega. Listasmiðjan opin,
félagsvist, skapandi skrif, Bör
Börsson, Müllersæfingar, brids,
þegar amma var ung, leikfimi,
sönghópur Hjördísar Geirs, Stef-
ánsganga o.fl. Bókmenntaferð til
Akureyrar 14.-16. maí. Uppl. í síma
568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ-
landsskóla, Víðigrund kl. 9.30-
10.30. Uppl. í síma 564-1490.
Lífeyrisþegadeild Lands-
sambands lögreglumanna | Fund-
ur á morgun, 6. apríl, kl. 10 á
Grettisgötu 89.
Kirkjustarf
Hallgrímskirkja | Orgelandakt kl.
12. Björn Steinar Sólbergsson leik-
ur á orgelið og sr. Birgir Ásgeirs-
son annast ritningarlestur. Leikin
verða verk tengd páskahátíðinni
eftir Johann Sebastian Bach og
Charles-mari Widor. Aðgangur er
ókeypis.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
David Pawson biblíukennari verð-
ur með opna kennslu kl. 10-14.
Hann kennir um efnið Normal
Christian Birth í aðalsal kirkjunnar.
dagbók
Í dag er laugardagur 5. apríl, 96. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir yður. (1Pt. 5, 7.)
Dyngjan er áfangaheimili fyrirkonur sem lokið hafa áfeng-is- eða vímuefnameðferð.Næstkomandi miðvikudag,
9. apríl, verður Dyngjan 20 ára og verð-
ur af því tilefni opið hús frá 5 til 7 og
gestum boðið upp á kaffisopa.
Edda V. Guðmundsdóttir er for-
stöðukona Dyngjunnar: „Það er gott að
hafa stað eins og Dyngjuna þar sem
gefst svigrúm fyrir skjólstæðingana að
byggja upp allsgáðan og ábyrgan lífs-
stíl,“ segir Edda en um 860 konur hafa
búið í Dyngjunni frá upphafi. „Hér geta
dvalið 14 konur hverju sinni, allt frá
þremur mánuðum upp í ár, og í nokkr-
um tilvikum er reynt að bjóða þann
möguleika að konur geti haft börnin sín
hjá sér.“
Íbúar í Dyngjunni þurfa að fylgja
heimilisreglum sem kveða m.a. á um að
þær sæki þrjá AA-fundi í viku og
stundi samviskusamlega framhalds-
meðferðir. Haldnir eru húsfundir
þrisvar í viku þar sem farið er yfir stöð-
una og línurnar lagðar. Þar læra heim-
ilismenn hver af annarri að byggja sig
upp á ný,“ segir Edda, en um 40 konur
innritast í Dyngjuna á ári hverju. „Þær
velja sjálfar að koma í Dyngjuna og eru
yfirleitt mjög duglegar að vinna að bat-
anum. Hér leggja þær mikið á sig til að
breyta lífsmynstrinu í allsgáðann lífs-
stíl og ábyrgan.“
Það er mikilvægt, að sögn Eddu, að
börn kvennanna geti alltaf heimsótt
mæður sínar „Börnin eru alltaf vel-
komin. Mörg gista hér um helgar og í
sumum tilvikum búa börnin hérna allan
tímann. Til dæmis er einn sex mánaða
snáði hér núna með móður sinni,“ segir
Edda. „Batinn væri svo miklu erfiðari,
ef konurnar hefðu ekki þennan mögu-
leika og byggir starfsemi Dyngjunnar
m.a. á því að veita möguleika á að
skapa eðlilegt fjölskyldulíf að nýju.“
Dyngjan var stofnuð að frumkvæði
hóps kvenna sem unnið höfðu bug á
fíkn og leituðu til borgarinnar um að
opna aðstöðu af þessu tagi. „Það hefur
sýnt sig að starfsemi Dyngjunnar
skiptir sköpum og er þörfin mikil. Sér-
staklega gaman er þegar við fáum
heimsóknir frá fyrrum íbúum sem
leggja stundum leið sína hingað til að
þakka fyrir vistina. Það er líka uppörv-
andi fyrir þær sem hér búa að sjá aðrar
konur sem gengið hafa í gegnum það
sama en hafa náð að vinna sig svona
langt frá þessum sjúkdómi.“
Samfélag | Dyngjan fagnar 20 ára afmæli á miðvikudag og verður með opið hús
Heimili sem skiptir sköpum
Edda V. Guð-
mundsdóttir fædd-
ist í Reykjavík
1943. Hún útskrif-
aðist frá Leiklist-
arskóla Íslands
1977 og starfaði
hjá Alþýðuleikhús-
inu og síðar hjá
Leikfélagi Reykja-
víkur. Edda hóf störf hjá SÁÁ árið
1989 sem áfengisráðgjafi og starfaði
þar til ársins 2002 þegar hún varð for-
stöðukona Dyngjunnar. Eiginmaður
Eddu er Elías Sv. Sveinbjörnsson og
eiga þau tvö börn og tvö barnabörn.
Myndlist
Norræna húsið | „Norrænar hugrenn-
ingar frá Mexíkó“ er titillinn á sýningu
dönsku textíllistakonunnar Trine El-
litsgaard. Listakonan hefur verið bú-
sett í Mexíkó sl. tuttugu ár og bera
verkin á sýningunni það með sér. Síð-
asta sýningarhelgi. Sjá nánar
www.nordice.is.
Skriðuklaustur | Sýningu Handverks
og hönnunar, Trjálífi, lýkur nú um
helgina. Í dag og sunnudaginn 6. apríl
verður opið kl. 13-17.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í
Breiðfirðingabúð 6. apríl kl. 14. Fjórði
dagur í þriggja daga keppni. Sjá nánar
á heimasíðu Breiðfirðingafélagsins,
www.bf.is.
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum | op-
ið hús Waldorfskólanum í Lækj-
arbotnum og leikskólanum Yl kl. 13-17.
Hægt verður að fá innsýn í námskrá
skólans og leikskólans og í boði verður
að reyna á sig í hinum ýmsu hand-
verks- og listgreinum. Kaffisala og
myndasýning.
Fyrirlestrar og fundir
Kringlukráin | Paris, félag þeirra sem
eru einir, heldur aprílfund kl. 11.30. Nýir
félagar velkomnir.
Styrkur | Samtök krabbameinssjúkl-
inga og aðstandenda þeirra halda að-
alfund þriðjudaginn 8. apríl kl. 20 í
húsi Krabbameinsfélagsins í Skóg-
arhlíð 8, Reykjavík. Hefðbundin aðal-
fundarstörf.
ÞRÁTT fyrir góða spretti hafa
þeir bræður Björn og Bragi Þor-
finnssynir ekki alveg fundið „fjölina
sína“ á Scandinavian open-mótinu
sem stendur yfir í Kaupmannahöfn.
Þeir hafa báðir 3½ vinning úr átta
skákum og liggja í 8.-12. sæti. Sverr-
ir Þorgeirsson sem er stigalægsti
keppandinn er í 14. sæti með 1½
vinning. Henrik Danielssn er hins-
vegar greinilega á heimavelli og er í
baráttunni um efsta sætið og hefur
hlotið 5½ vinning úr átta skákum og
er í 2.-3. sæti ásamt danska FIDE-
meistaranum Nikolaj Mikkelsen.
Danski stórmeistarinn Lars Schan-
dorff er efstur með 6 vinninga.
Þeir bræður Björn og Bragi voru í
sviðsljósinu á Reykjavíkurmótinu á
dögunum hafa teflt margar athygl-
isverðar skákir. Björn Þorfinnsson
byrjaði með látum þegar hann lagði
sænska stórmeistarann Stellan Bry-
nell í fyrstu umferð. Hver þrumuleik-
urinn á fætur öðrum gaf tilefni til að
ætla að Björn væri „hrokkinn“ eins
og það er stundum orðað á golfmáli:
Scandianavian open; 1. umferð:
Stellan Brynell – Björn Þorfinns-
son
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Bxc6 dxc6 5. 0-0 Dd6 6. d4 f6
Björn svarar uppskiptaafbrigði
spænska leiksins á fremur óvenju-
legan hátt. Hér er 6. … exd4 lang-
algengast.
7. dxe5 fxe5 8. Rbd2 b5 9. a4 Rf6
10. b3 Bg4 11. Ba3 De6 12. Bxf8
Hxf8 13. De1 Rh5!
Hvítur hefur teflt byrjunina frem-
ur ómarkvisst og að hófst með upp-
skiptunum á e5. Nú stefnir riddar-
inn á f4-reitinn þar sem hann ógnar
kóngsstöðu hvíts.
14. De3 Rf4 15. Rh4 Hd8 16. Rf5
Dg6!
Framkallar veikingu á kóngsstöð-
unni og mun sterkara en 16. … Bxf5
sem kom þó einnig til greina. )
17. g3 Rh3+ 18. Kg2 Rg5! 19.
Rh4 Dh5 20. Hfe1
Sjá stöðumynd
20. … Hxd2! 21. Dxd2 Rf3 22.
Dc3
Ekki 22. Rxf3 Bxf3+ og 23.
… Dh3 og vinnur.
22. … g5! 23. Hed1 gxh4 24.
Dxc6+ Kf7 25. Dxc7+ Kg8 26. Hd8
Bh3+!27. Kh1
27. Kxh3 strandar á 27. … Rg5+
28. Kg2 Df3+ 29. Kg1 Dxf2+ 30.
Kh1 Df3+ 31. Kg1 Re2 mát.
27. … Rd4 28. g4 Bg2+!
Aftur fórnar Björn biskupinum.
Sé hann tekinn mátar svartur á
sama hátt og áður.
29. Kg1 Dxg4 30. Hxf8+ Kxf8 31.
Dd6+ Kf7 32. Dd5+ Re6
– og Brynell gafst upp.
Kristján og Björn efstir
á skákmóti öðlinga
Kristján Guðmundsson og Björn
Þorsteinsson hafa tekið forystu á
skákmóti öðlinga, sjö umferða móti
þar sem teflt er á miðvikudags-
kvöldum í hverri viku. Þeir hafa báð-
ir unnið tvær fyrstu skákir sínar.
Alls tekur 21 skákmaður þátt í
mótinu. Björn Þorsteinsson varð Ís-
landsmeistari árið 1967 og 1975 og
Kristján var lengi í farabroddi
ungra skákmanna í TR á árunum í
kringum 1970. Hann var liðsstjóri
íslenska ólympíuliðsins á gullaldar-
árum þess frá 1984 til 1992. Í 3.-5.
sæti á öðlingamótinu með 1½ vinn-
ing koma Jóhann Örn Sigurjónsson,
Eiríkur Björnsson og Magnús
Gunnarsson.
Dagur Andri unglingameistari
Reykjavíkur
Dagur Andri Friðgeirsson og
Hallgerður H. Þorsteinsdóttir, sem
urðu jöfn efsta sæti á Unglinga-
meistaramóti Reykjavíkur, háðu
einvígi um titilinn Unglingameist-
aratitil Reykjavíkur í Skákhöllinni á
fimmtudagskvöld. Tefldar voru tvær
skákir með fimmtán mínútna um-
hugsunartíma. Eftir þær skákin var
enn jafnt með þeim, 1:1 og var þá
umhugsunartíminn styttur í tíu mín-
útur. Dagur vann báðar skákirnar
og því samanlagt 3:1.
Rimaskóli Reykjavíkurmeistari
grunnskóla með yfirburðum
Skáksveit Rimaskóla skipuð þeim
Hjörvari Steini Grétarssyni, Herði
Aroni Haukssyni, Sigríði Björgu
Helgadóttur og Hrund Hauksdóttir
hafði mikla yfirburði á Reykjavík-
urmóti grunnskóla sem fram fór í
húsakynnum TR í Faxafeni sl. mið-
vikudag. Rimaskóli missti niður að-
eins ½ vinning og hlaut 13½ vinning
af 24 mögulegum. Í 2. sæti varð A-
sveit Laugalækjarskóla með 17
vinninga, Laugarlækjarskóli B-sveit
var í 3. sæti eð 13½ vinning og C-
sveit Rimaskóla í 4. sæti með 13
vinninga. Í 5.-7. sæti komu B-sveit
Rimaskóla, Húsaskóli og Hóla-
brekkuskóli með 12½ vinning hver
sveit. Tefldar voru sjö umferðir.
Björn byrjaði með lát-
um í Kaupmannahöfn
SKÁK
Kaupmannahöfn
Scandinavian open
29. mars-6. apríl
Morgunblaðið/Ómar
Frískleg taflmennska Björn Þor-
finnsson að tafli á síðasta Reykja-
víkurskákmóti.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Rhodos
7. júní og 14. júní
frá kr. 59.990
Aðeins örfáar íbúðir í boði!
Bjóðum nú frábært sértilboð á einum af okkar vinsælasta gististað á Rhodos,
Hotel Forum, með hálfu fæði. Njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað
Heimsferða. Íbúðahótelið Forum stendur aðeins um 100 m. frá ströndinni.
Á hótelinu er góð sundlaug, barir og veitingastaður. Góð aðstaða er fyrir börn
s.s. barnalaug, leikaðstaða, billiard, pílukast, borðtennis o.fl. Á daginn og
kvöldin er skemmtidagskrá fyrir bæði börn og fullorðna.
Örfáar íbúðir í boði á þessu frábæra verði.
Verð kr. 59.990 - hálft fæði
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi í viku.
M
bl
9
91
27
3
Sértilboð á Forum ***
- með hálfu fæði
Verð kr. 71.990 - hálft fæði
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi í viku.
Fáðu
úrslitin
send í
símann þinn