Morgunblaðið - 05.04.2008, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 05.04.2008, Qupperneq 62
Ég heyrði sögusagnir um endurfundi. Verst að sólarhringurinn er ekki nógu langur … 63 » reykjavíkreykjavík LIÐ Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans í Hamrahlíð mæla með og á móti áróðri í úrslitakeppni MORFÍS í Háskólabíói í kvöld kl. 20. Ræðuliðin hafa háð stríð seinustu daga og hefur þar ýmsum bola- brögðum verið beitt, misgrófum þó. Lá því beinast við að blaðamaður Morgunblaðsins skoraði á liðin að hittast degi fyrir keppni og faðmast. Keppnisskapið er liðsmönnum greinilega í blóð borið því bæði liðin tóku áskoruninni. Jón Benediktsson, úr ræðuliði MR, átti nokkuð erfitt með að rifja upp þá grikki sem MR-ingar hafa gert MH-ingum en rifjaði þó upp nokkra, m.a. rán á forseta nemenda- félags MH. „Við merktum MH stöf- um MR nokkrum sinnum og stærsti hrekkurinn okkar átti að vera þegar MR-ingar færu í Kastljósið og þætt- ust vera MH-ingar líka, en það mis- tókst,“ segir Jón. Gervilimur á Aþenu Talsmaður MORFÍS-liðs MH, Lárus Jón Björnsson, virðist ann- aðhvort muna hrekki sinna manna betur eða þá að MH-ingar eru hrekkjóttari en MR-ingar. „Við reistum níðstöng fyrir framan MR og fórum með níð. Svo höfðu þeir sömu nótt komið MR-fána fyrir upp við MH og við tókum hann niður, skiluðum honum og migum á hann fyrir framan MR, gamla skólann. Síðan fórum við með vatnsbyssur niður í bæ og ætluðum að sprauta á einhverja MR-inga fyrir framan skólann en það vildi svo óheppilega til að það var sprautað á MORFÍS- liðið sjálft,“ segir Lárus Jón. MR- ingar hafi á móti klifrað upp á þak MH til að merkja skólann MR og ætluðu í kjölfarið að taka loftmyndir af því úr þyrlu. „Við böstuðum þá þegar þeir voru uppi á þaki og tók- um stigann sem þeir notuðu til að komast upp. Þannig að þeir voru þarna, þrír MR-ingar, hálfgerðir gíslar uppi á þaki.“ Síðast en ekki síst hafi MH-ingar límt gervilim á styttuna af Aþenu sem stendur við MR og byggt handa MR-ingum nýtt íþróttahús sem var afhent á trébretti og vígt af forseta nemendafélags MH. Níðstöng og forsetarán Morgunblaðið/Valdís Thor Vinir? Frá vinstri: Hugi Leifsson (MH) Ari Guðjónsson (MR), Arnmundur Bachmann (MH), Jón Benediktsson (MR), Lárus Jón Björnsson (MH), Arnar Ólafsson (MR), Birkir Ingólfsson (MH) og Guðmundur Árnason (MR). MH og MR mæt- ast í úrslitum MORFÍS í kvöld  Eins og fram hefur komið er uppsetning Vest- urports á Komm- únunni á leiðinni til Mexíkós, en þar verður verkið sett upp sex sinnum. Til stóð að sýn- ing á verkinu í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi yrði sú síðasta hér á landi, en vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við sýningum þegar leikhópurinn snýr aftur til landsins. Mexíkóski leik- arinn Gael Garcia Bernal mun þó ekki snúa aftur á svið Borgarleik- hússins, enda hefur kappinn nóg að gera við kvikmyndaleik í Holly- wood. Enginn hefur verið ráðinn í hans stað. Kommúnan fer aftur á svið án Bernals  Vilhelm Anton Jónsson, betur þekktur sem Villi Naglbítur, opnar málverkasýningu í dag á veit- ingastaðnum Sólon. Þar sýnir hann sjö ný málverk sem unnin eru sér- staklega fyrir sýninguna og tengja borgina við samfélag manna, eins og Villi orðar það. Meðal verkanna verður stórt verk sem fólki gefst kostur á að kaupa hluta úr. Að sýn- ingu lokinni verður verkið bútað niður og afhent réttum eigendum. Viltu bút eftir Villa? Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „MÉR var sýndur sá heiður að fá að kíkja inn í Latabæ í smástund og raula eitt lag,“ segir tón- listarmaðurinn Magni Ásgeirsson sem syngur opnunarlagið í nýjustu Latabæjarþáttunum sem eru í framleiðslu um þessar mundir. Nýju þætt- irnir heita Lazy Town extra og verða með fremur óhefðbundnu sniði en þeir verða líklega frumsýndir í Bretlandi í september. Í kjölfarið verða þættirnir sýndir víða um heim og mun Magni hljóma í öllum enskumælandi löndunum. „Magnús Scheving kom mér einu sinni enn á óvart. Það er ekki nóg með að hann sé dugleg- asti maður á Íslandi heldur kom í ljós að hann er helvíti fínn „producer“ líka, þegar kemur að því að útskýra hvað hann vill,“ segir Magni en lagið sem hann syngur er eftir Mána Svav- arsson. Vinsæll í Kanada Annars er nóg að gera hjá Magna um þessar mundir. „Ég er byrjaður að æfa fyrir Queen- show með kór Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ég er sem sagt einsöngvari með kór og er að berj- ast við að reyna að ná Freddie Mercury,“ segir Magni en verkið verður sýnt í íþróttahúsi FSu á Selfossi hinn 21. maí. „Það er nú bara stefnt að þessari einu sýningu, enda er þetta 800 manna hús. En ef allt verður brjálað verður þetta örugglega sett upp aftur.“ Nýverið hélt Magni svo tvenna tónleika í Tor- onto í Kanada ásamt hljómsveit sinni en tónleik- arnir voru hluti af Iceland Naturally hátíðinni sem haldin var í borginni dagana 10. til 16. mars. Aðspurður segir Magni tónleikana hafa gengið gríðarlega vel. „Kanadamenn virðast muna mjög vel eftir mér, enda horfðu þeir næstum því jafnmikið á Rock Star og Íslend- ingar. Lukas Rossi sem vann er náttúrulega Kanadabúi, auk þess sem J.D. Fortune sem vann Rock Star INXS er líka frá Kanada,“ út- skýrir Magni sem útilokar ekki að hann muni spila meira í Kanada á næstunni. Hvað Á móti sól varðar segir Magni styttast í nýja plötu frá sveitinni en þeir félagar hafa nú þegar pantað hljóðver í Danmörku í lok júní. Það er því engin lognmolla í kringum Magna, frekar en venju- lega. „Ég er líka alltaf að spila svona þrisvar til fjórum sinnum í viku. Ég var meira að segja að spila klukkan átta í morgun [gærmorgun], í skóla í Garðabæ með henni Birgittu minni. Þannig að það er nóg að gera.“ Rokkstjarna í Latabæ Magni Ásgeirsson syngur titillagið í hinum gríðarlega vinsælu sjónvarpsþáttum Morgunblaðið/Jón Svavarsson Góður félagsskapur Magni Ásgeirsson brá á leik með félögum sínum í Latabæ í gær. Hann syngur opnunarlagið í nýrri þáttaröð um Íþróttaálfinn, vini hans og illmennið Glanna glæp. GERÐUBERG www.gerduberg.is Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16. Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is Unglingabókin - meira en brjóst og bólur? Barna- og unglingabókaráðstefna í dag 5. apríl kl. 10.30-14.00. Fyrirlesarar: Ármann Jakobsson, Anna Þorbjörg Ingólfs- dóttir og Ragnheiður Gestsdóttir. Dagskrárstjórnandi er Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson Stefnumót við safnara III Hljómfagurt stefnumót við tónlistarmenn og hljóðfærasafnara! Sýningarstjórn: Anik Todd og Una Stígsdóttir Sjö landa sýn María Loftsdóttir, alþýðulistakona, sýnir vatnslitastemmningar frá ferðalögum sínum um Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Ísland, Japan, Perú og Skotland. Hið breiða holt Ljósmyndasýning þar sem unglingar eiga stefnumót við afa sína eða ömmur! Sýningarstjóri: Berglind Jóna Hlynsdóttir. Styrktaraðili: Beco Vissir þú... ...að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur? Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns. Sjá nánari upplýsingar: www.gerduberg.is, s. 575 7700.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.