Morgunblaðið - 05.04.2008, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 63
RAPPARINN 50 Cent hefur óskað eftir því að
dómari úrskurði að 10 ára sonur hans og
barnsmóðir skuli borin út úr húsi hans á Long
Island í New York-fylki. Í febrúar á þessu ári
hafði dómari úrskurðað að meðlag rapparans
yrði lækkað úr 25 þúsund dölum í tæplega 7
þúsund dali á þeim forsendum að fundið yrði
nýtt hús fyrir mæðginin. 50 Cent heldur því
hins vegar fram núna að barnsmóðir hans
Shaniqua Tompkins hafi aldrei reynt að leita
að nýju húsi og á meðan greiði hann alla
reikninga er lúta að húsinu. Talið er að lög-
maður Tompkins muni færa rök fyrir því að
ekki sé hægt að bera Tompkins og son þeirra
út þar eð hún var aldrei leigjandi í húsinu. Þá
muni 50 Cent hafa lofað henni húsinu þegar
þau skildu að skiptum en skipt svo um skoðun
á síðustu stundu.
Vill soninn
út úr húsinu
Reuters
Engin miskunn 50 Cent er harður í horn að taka og blóðtengsl skipta hann greinilega litlu máli.
LEIKARINN Daniel Craig hefur
heitið því að leika James Bond fram
á elliárin. Craig, sem er fertugur,
samdi við framleiðendur Bond-
myndanna um að túlka leyniþjón-
ustumanninn í þremur myndum en
haft var eftir Craig á dögunum að
hann hefði ekki í hyggju að hætta
eftir að samningurinn rennur út.
Um þessar mundir standa yfir tök-
ur á næstu Bond-mynd, Quantum of
Solace, sem frumsýnd verður hér á
landi hinn 7. nóvember næstkom-
andi. Eins og margir muna eftir
vakti Craig mikla athygli kvenþjóð-
arinnar fyrir hraustlegt útlit í síð-
ustu Bond-mynd en allar líkur eru á
því að vöxtur Craigs fái einnig að
njóta sín í Quantum of Solace.
Reuters
Bond Daniel Craig fékk mikið lof
fyrir túlkun sína í síðustu mynd.
Vill verða
gamall
Bond
RONNIE Wood, gítarleikari Roll-
ing Stones, vill taka sér hvíld frá
hljómsveitinni og hóa í meðlimi
Faces, gömlu hljómsveitarinnar
sem hann var í áður.
Meðlimir Faces, m.a. Rod Stew-
art, segjast spenntir fyrir endur-
fundum ef þeir finna tíma til þess.
„Ég heyrði sögusagnir um endur-
fundi hjá okkur. Verst að sólar-
hringurinn er ekki nógu langur. En
við myndum svo sannarlega
stökkva á þetta ef tækifæri gæfist,“
sagði Wood.
Trommari sveitarinnar, Kenney
Jones, sagði á síðasta ári að mögu-
leiki væri á endurfundum. Hann
hitti Rod Stewart sem lýsti yfir
miklum áhuga á því að gera endur-
fundina að veruleika.
Hljómsveitin var stofnuð árið
1969 og gaf út fjórar plötur áður en
Wood gekk til liðs við The Rolling
Stones árið 1975.
Reuters
Stopp! Wood búinn að fá nóg í bili
af félögum sínum í Stones.
Vill hvíld
frá Stones