Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 72
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 96. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Álver á Bakka
Ætlunin er að nota sömu tækni í
álveri Alcoa á Bakka og nú er notuð
á Reyðarfirði. Hagkvæmast væri að
byggja alveg eins ver og álver
Fjarðaáls, en raforkuframboð ræður
stærð álversins. » Forsíða
Undanþágur bílstjóra
Samgönguráðherra hitti fulltrúa
vörubílstjóra og atvinnurekenda í
gær. Þar var m.a. rætt um hvíldar-
tíma bílstjóra og sektir vegna brota
á honum. » 2
Ósamræmi í dómum
Ákærur um akstur undir áhrifum
fíkniefna hafa verið gefnar út þótt
ekki finnist merki um ávana- eða
fíkniefni í blóðsýni heldur aðeins í
þvagsýni. » 9
Haldið í völdin
Stjórnarflokkurinn í Simbabve
reynir hvað hann getur til að halda
völdum. Efnt verður til annarrar
umferðar í forsetakosningum. » 18
SKOÐANIR»
Stakst.: Er nekt afstætt hugtak?
Forystugreinar: Forvarnardagurinn
Hættulegar skoðanir
UMRÆÐAN»
Hvenær er fötlun fötlun?
Góðir eða gráðugir hirðar
Er verið að hlunnfara eldri borgara?
Í sparnaðarskyni?
Börn: Snædísar saga víðförlu
Langar að syngja í Evróvisjón …
Lesbók: Tækifærið manneskjan
Íslenskan öll?
BÖRN | LESBÓK »
% %4%
4 4
4 %4
4% 4%
5
$6!( /
!, $
7'
"
'!!#!2 ! %4
%4
4
4 4
% 4%%
%4 4
.
82 (
%
4 % 4% 4 4 % 4%
%4 9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(8!8=EA<
A:=(8!8=EA<
(FA(8!8=EA<
(3>((A#!G=<A8>
H<B<A(8?!H@A
(9=
@3=<
7@A7>(3,(>?<;<
Heitast 0°C | Kaldast -6°C
Hæg norðlæg átt og
bjartviðri en norð-
vestan 5-10 m/s, skýj-
að með köflum og
þurrt fyrir norðan. » 10
Virtur höfundur
heimildarkvikmynda
verður heiðurs-
gestur og situr fyrir
svörum á Skjald-
borg 2008. » 66
KVIKMYNDIR»
Maysles
viðstaddur
TÓNLIST»
Wood vill hvíla sig á
’Rolling Stones. » 63
Björn Jörundur
samdi lög fyrir
trúbadorinn John
Hansen, sem flutt
verða í leikritinu
Gítarleikarinn. » 69
TÓNLIST»
Skrýtnir
textar
MORFÍS»
Keppendur í úrslitum
í faðmlögum. » 62
LEIKHÚS»
Ópera um líf Önnu
Nicole Smith. » 67
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Myrti nýfætt barn sitt
2. Ríkislögreglustjóri varar við …
3. Mamma Beckhams brjáluð
4. Vill Aniston í Skaðabætur
Íslenska krónan styrktist um 1,5%
RÖDD Magna Ásgeirssonar mun
hljóma víða um hinn enskumælandi
heim næsta vetur þegar nýjasta
þáttaröðin af Latabæ verður sýnd í
sjónvarpi. Magni var fenginn til
þess að syngja opnunarlag þátt-
anna sem nefnast Lazy Town extra
og eru með öðru sniði en þættirnir
hafa verið hingað til. Lagið sem
Magni syngur er eftir Mána Svav-
arsson og hljómar á undan hverj-
um þætti. | 62
Magni syng-
ur í Latabæ
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Heimsókn Magni kynnti sig fyrir
íbúum Latabæjar í gær.
„ÞAÐ virtist sem
að þegar virðis-
aukaskatturinn
var lækkaður og
vörugjöld afnum-
in 1. mars á síð-
asta ári hafi fólk
jafnvel farið að
kaupa dýrari
mat, því veltan
jókst umfram
verðlækkanirnar,“ segir Emil B.
Karlsson, forstöðumaður Rann-
sóknaseturs verslunarinnar við Há-
skólann á Bifröst. Hans mat er að
haldi matvælaverð áfram að hækka
séu líkur á að þær breytingar sem
urðu á neyslumynstrinu í kjölfar
lækkunarinnar á virðisaukaskatt-
inum muni ganga til baka – neyt-
endur kunni í auknum mæli að snúa
sér að ódýrari matvælum.
Emil bendir á að nauðsynlegt sé
að hafa í huga aðstæður á alþjóð-
legum mörkuðum þegar gagnrýni er
uppi á hendur matvöruverslunum.
Svigrúm verslunarinnar til að taka á
sig hækkanir sé þröngt. „Það er
kannski einkum vegna nýrra kjara-
samninga sem koma illa niður á
versluninni, vegna þess að í versl-
unum eru láglaunastörf og það voru
þær stéttir sem hækkuðu mest,“
segir Emil. Því fari fjarri að allir séu
sammála um að matvælaverð kunni
að hækka um 20-30%. Slíkar að-
stæður geti orðið til þess að erlendar
ofurlágvöruverðsverslanir hasli sér
völl hérlendis. | Miðopna
Kaupa ódýr-
ari matvæli
Emil B. Karlsson
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
LÖGREGLAN á Akranesi hyggst
boða fyrrum leigjendur íbúðar, þar
sem köttur var skilinn eftir við
flutninga, í skýrslutöku á næstunni
vegna brota á dýraverndarlögum.
Lögreglan fékk í vikunni ábend-
ingu um að kötturinn væri van-
ræktur og yfirgefinn í íbúðinni og
þurftu lögreglumenn að klifra utan
á húsinu til að komast í íbúðina inn
um svalir á 3. hæð. Kötturinn var
þar inni og hafði mjálmað mikið í
einverunni við sívaxandi hungur.
Hann var grindhoraður og nær
dauða en lífi þegar að var komið og
var komið í hendur dýraeftirlits-
manns sem lógaði dýrinu síðar.
Brot á dýraverndarlögum
Lögreglan segir að hér sé um að
ræða brot á dýraverndarlögum
með því að skilja köttinn eftir í
reiðileysi. Málið er nú í formlegri
rannsókn lögreglunnar en skýrslu-
tökur eru ekki hafnar.
Að sögn lögreglunnar er afar
leitt þegar dýr eru látin sæta
annarri eins meðferð og hér um
ræddi.
Samkvæmt dýraverndarlögum
frá 1994 er skylt að fara vel með
öll dýr. Eigendum eða umráða-
mönnum dýra ber að sjá þeim fyrir
viðunandi vistarverum og fullnægj-
andi fóðri, drykk og umhirðu.
Leiki grunur á að um sé að ræða
alvarlegt brot gegn lögunum, get-
ur lögregla fyrirvaralaust tekið
dýr úr vörslu eiganda eða umsjón-
armanns. Í þessu skyni má lög-
regla fara inn í íbúðarhús án dóms-
úrskurðar ef brýn hætta er á að
bið eftir úrskurði valdi dýrunum
heilsutjóni.
Allt að tveggja ára fangelsi ligg-
ur við brotum á dýraverndarlög-
um.
Hafi maður gerst sekur um stór-
fellt eða ítrekað brot á lögunum
má svipta hann með dómi heimild
til að hafa dýr í umsjá sinni, versla
með þau eða sýsla með þau með
öðrum hætti.
Málið hefur vakið nokkra athygli
í bloggheimum á mbl.is og lýsa
höfundar þar vanþóknun sinni á
meðferð kattarins.
Aflífa varð köttinn
Grindhoraður og innilokaður köttur á Akranesi lifði ekki
vistina af og var lógað Málið rannsakað hjá lögreglunni
EFTIR tveggja ára bið tryggðu Keflvíkingar sér Ís-
landsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna á nýjan
leik í gærkvöldi. Þá lögðu þær KR 91:90 í þriðja leik lið-
anna í úrslitarimmunni og liðið fór í gegnum úrslita-
keppnina án þess að tapa leik. Í undanúrslitum unnu
þær ríkjandi Íslandsmeistara Hauka einnig 3:0.
Pálína M. Gunnlaugsdóttir, sem er hér fyrir miðri
mynd, varð þar með Íslandsmeistari þriðja árið í röð en
hún er uppalin í Haukum og varð meistari með þeim
tvö síðustu árin. | Íþróttir
Keflvíkingar Íslandsmeistarar á nýjan leik
Taplausar í úrslitakeppninni
Ljósmynd/Jón Björn Ólafsson
♦♦♦
Hófý Sig.
Mannvonska eða
kæruleysi?
Hvers konar fólk lokar dýr inni til að
svelta í hel? Ótrúleg mannvonska eða
svona yfirgengilegt kæruleysi, ég skil
ekki hvað fólk er að pæla.
Meira: hofyan.blog.is
Katrín Björg Hannesdóttir
Hjartaverkur
Ég fæ verk í mitt litla hjarta að lesa
þessa frétt! Hvernig getur fólk gert
þetta, skilið varnarlaus dýr eftir án
matar í marga daga? Mér finnst það
eigi að taka harðar á dýramisnotkun
og vonandi fær þessi „eigandi“ ein-
hverja refsingu.
Meira: katan.blog.is/blog
Linda litla
Langar að gráta
Hvernig getur fólk gert þetta? Þetta er
hræðilegt, mig sem dýravin langar
hreinlega að gráta yfir þessu.Meira:
Meira: bestalitla.blog.is