Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 10
10 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HEILSUHAGFRÆÐI OG OFFITA
Þ
að er skondin tilviljun
að einn virtasti
fræðimaður heims á
sviði rannsókna á
áhrifum offitu á hag-
kerfið skuli heita
Michael Grossman. Í
holdlegum skilningi
stendur þessi geðþekki Bandaríkja-
maður þó ekki undir nafni. Hann er
lágvaxinn og grannur. Og greinilega
hógvær líka. „Þér er frjálst að spyrja
mig um hvað sem er en ég veit ekki
hvort ég hef svörin,“ segir hann kím-
inn þegar fundum okkar ber saman á
skrifstofu hans í Odda, þar sem hann
hefur verið gestur viðskipta- og hag-
fræðideildar Háskóla Íslands í vik-
unni og lagt náminu í heilsuhagfræði
lið með fyrirlestrum sínum. Ég hlæ
kurteislega og velti fyrir mér hvort
það verði ekki örugglega á hinn veg-
inn, að spurningarnar verði svör-
unum ekki samboðnar.
Dr. Grossman, sem er prófessor
við City University of New York, er
fyrst spurður að því hvers vegna
hann sé yfirhöfuð að velta heilsu-
málum fyrir sér, í hugum flestra
hverfist hagfræði nefnilega um verð-
bólgu og vexti.
„Hagfræði snýst að hluta um
val og ákvarðanir fólks,“ út-
© Milk Photographie/Corbis
AÐ KOMAST Í FEITT
Offita er vaxandi vandamál á Vesturlöndum.
Ísland er þar engin undantekning. Meirihluti
fullorðinna Íslendinga er yfir kjörþyngd og
hlutfall þeirra sem eru í offituflokki er komið
yfir þau mörk sem Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin (WHO) skilgreinir sem offitufaraldur.
Yfirleitt er fjallað um offitu sem lýðheilsu- eða
fagurfræðilegt vandamál en hún er ekki síður
viðfangsefni fyrir atferlisvísindi og hagfræði.
Það er því engin tilviljun að undirgrein hag-
fræðinnar sem kennd er við heilsu hafi vaxið
fiskur um hrygg á liðnum árum og misserum.
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
!" #$ %& '( ) *
+
,& - ) &.
/
0 1 20 21 30 314 50
,. 6784977+7
:;50
(7(..73000<3005
, =7! 7.6>7
7300?
12