Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 12

Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 12
12 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ skýrir hann. Málrómurinn minnir lít- ið eitt á Bobby heitinn Fischer enda þótt Grossman sé mun yfirvegaðri í frásögn. „Fólk tekur ákvarðanir til að hámarka ávinning sinn gagnvart takmörkuðum auðlindum og líka vegna þess að það hefur frelsi til þess. Þannig velur fólk að reykja, það velur að neyta áfengis og það velur að borða óhollan mat. Það velur líka hvort það leitar til læknis eður ei. Í þessum skilningi er heilsa fólks upp að vissu marki bundin við ákvarð- anir. Fyrir vikið liggur hún vel við aðferðum hagfræðinnar,“ segir Grossman. Að greina ákvarðanir Hann bætir við að vissulega hafi ýmsir ófyrirsjáanlegir þættir líka áhrif á heilsu fólks og þess vegna sé ekki auðvelt að spá fyrir um heilsu- far. „En það er hægt að greina ákvarðanir fólks og það var einmitt sú hlið mála sem heillaði mig þegar ég ákvað að leggja heilsuhagfræði fyrir mig.“ Margir heilsuhagfræðingar ein- blína á heilbrigðiskerfið og kostn- aðinn sem það þarf að bera. Grossm- an kveðst vissulega hafa gefið þeirri hlið gaum gegnum árin en ær hans og kýr eru aftur á móti áhrif ut- anaðkomandi þátta á heilsu manna, svo sem reykinga, áfengis og mat- aræðis. „Í mínum huga snýst heilsu- hagfræði ekki bara um kostnaðinn við að reka heilbrigðiskerfi heldur ekki síður um þá þætti sem hafa áhrif á heilsufar.“ Feimnislegt bros færist yfir andlit Grossmans þegar ég kveðst hafa heimildir fyrir því að hann sé meðal frumkvöðla á þessu sviði í heiminum. „Eigi veit ég það svo ofboðslega gjörla,“ segir hann. „Vissulega er ég orðinn gamall í hettunni, byrjaði að kynna mér þessi mál á ofanverðum sjöunda áratugnum og lauk dokt- orsprófi árið 1970 en það voru aðrir starfandi á þessu sviði á undan mér. Heilsuhagfræði var lítið svið innan hagfræðinnar á þeim tíma en hefur svo sannarlega fært út kvíarnar síð- an. Ég hef því fylgst með sviðinu vaxa og dafna en það eru þín orð að ég sé frumkvöðull,“ segir hann og hlær. Heilsuframleiðslulíkanið Eitt helsta líkan heilsuhagfræð- innar hverfist um framleiðslu og er sannarlega runnið undan rifjum Grossmans. Hefur það haft mikil áhrif á greinina allar götur frá því hann setti það fram árið 1972. Í stuttu máli snýst það um það hvernig við framleiðum heilsu sjálf en kaup- um hana ekki. Heilsuna framleiðum við með aðföngum sem við kaupum til framleiðslunnar. Við kaupum ekki heilsuna sjálfa heldur hluti til þess að framleiða hana, s.s. hlaupaskó, lækn- isþjónustu og fleira sem við njótum kannski ekki í sjálfu sér. „Ég á nú ekki allan heiðurinn af þessu líkani. Ég fékk góða hjálp frá nóbelsverðlaunahafanum Gary Bec- ker sem mun sækja Ísland heim í sumar,“ segir Grossman og vísar þar til þess að heilsuframleiðslulíkanið er að hluta byggt á hugmynd Beckers um heimaframleiðslu á neysluvörum. „Það er ekki mitt að meta hversu merkilegt þetta líkan er en það hefur vissulega haft áhrif á ýmsar rann- sóknir síðan.“ Grossman hefur aðallega rann- sakað bandarískt samfélag en fyrir fáeinum árum tók hann þátt í stórri rannsókn sem byggði á vestur- evrópskum gögnum. Hún fjallaði um áhrif stefnu í áfengismálum á ofbeld- is- og glæpahneigð. Þá hefur hann nýverið rannsakað áhrif menntunar foreldra á heilsufar barna í Taívan. „Til skemmri tíma litið hef ég ekki áform um að rannsaka evrópsk gögn frekar en það kemur vel til álita að gera það síðar. Annars er ég að verða svo gamall,“ segir hann sposkur. Offita færst óvenjuhratt í vöxt Offita hefur aukist til muna í Bandaríkjunum og víðar undanfar- inn aldarfjórðung eða svo og segir Grossman það hafa hvatt heilsu- hagfræðinga til að beina sjónum að áhrifum hennar á hagkerfið. Þessar rannsóknir voru umfangsmestar í kringum árþúsundamótin. „Offita hefur færst óvenjuhratt í vöxt í Bandaríkjunum, og raunar víðar, undanfarna þrjá áratugi og enda þótt skýra megi það að hluta með erfða- fræðilegum þáttum kemur fleira til. Við fórum því að skoða þætti á borð við heimilisaðstæður fólks, fé- lagslega stöðu þess og efnahag.“ Safnað var saman upplýsingum um neysluvenjur fólks, hvað það væri að láta ofan í sig, og fljótlega kom í ljós aukið vægi skyndibitafæðu í mat- aræði almennings. Að sögn Grossm- ans hefur það greinilega þýðingu. „Annað sem við skoðuðum eru breyttir samfélagshættir en á sjö- unda og áttunda áratugnum hófu konur að streyma út á vinnumark- aðinn í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Það má alls ekki skilja það þannig að aukin atvinnuþátttaka giftra kvenna hafi með beinum hætti leitt til aukinnar offitu meðal þjóð- arinnar en svo virðist sem hún hafi leitt til þess að fjölskyldur neyti í auknum mæli skyndibitafæðu. Það er ósköp eðlilegt, tíminn til að elda mat heima er minni en áður.“ Hér kemur prófessor Grossman inn á þætti sem dr. Tinna Laufey Ás- Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Frumkvöðull Michael Grossman hefur lagt stund á heilsuhagfræði í 40 ár. »Hagfræði snýst að hluta um val og ákvarðanir fólks D r. Tinna Laufey Ásgeirs- dóttir, sem hefur umsjón með MS-námi í heilsu- hagfræði við Háskóla Ís- lands, segir greinina unga hér á landi en verið sé að plægja akurinn. „Ég hef heyrt fólk velta því fyrir sér hvort það sé yfirhöfuð móralskt rétt að setja heilsu og hagfræði saman í sömu setninguna, hvað þá í sama orðið. Það er misskilningur enda eru heilbrigðismál langstærsti hluti útgjalda ríkisins. Það hefur heldur ekki farið framhjá nokkrum manni að mikil umskipti eru fram- undan í heilbrigðiskerfinu og heilsuhagfræðingar munu koma þar mjög við sögu – eins og raunar er hart lagt að íslenskum stjórn- völdum að gera í nýútgefinni OECD-skýrslu,“ segir Tinna Laufey og bætir við að sama hafi verið uppi á teningnum víða erlendis „Þessi hópur fræðimanna hefur komið með ný viðhorf inn í heilbrigðismál, hvaða nafni sem þau nefnast. Í viss- um skilningi má líkja starfi heilsu- hagfræðinga við „byltingu“ innan kerfisins, svo mikið hefur kveðið að starfi þeirra.“ Tekist er á við áhugaverð efni innan heilsuhagfræði í náminu í Há- skóla Íslands. Fræðasviðið fjallar um ýmsa þætti er varða heilsu, hvernig skuli framleiða hana, í hvaða magni, fyrir hvern og af hverjum – ef hámarka á hagsæld samfélagsins. Markmið námsins er að gefa nemendum góðan grunn til þess að gera hagfræðilegar greiningar á hinum ýmsu málum er tengjast heil- brigði. Auk þess er því ætlað að gera nemendur gjaldgenga í um- fjöllun um heilsuhagfræði og stefnumótun í heilbrigðismálum. Að loknu náminu eiga nemendur að vera færir um að: Taka þátt í stefnumótun stjórnvalda á sviði heilbrigðismála; vinna að ýmsum sérhæfðum verkefnum fyrir stjórn- völd og fyrirtæki á heilbrigðissviði; gera rannsóknir og úttektir á heilsuhagfræðilegum efnum, þar með talið kostnaðar- og ábatagrein- ingar og greina rannsóknar- niðurstöður og meta gildi þeirra. Námið ætti að nýtast vel hverjum þeim sem áhuga hefur á heilsu og/ eða stefnumótun í heilbrigð- ismálum, hvort heldur sem þau mál varða forvarnarstarf, heilbrigð- iskerfið í heild sinni, rekstur heil- brigðisstofnana eða aðra heilsu- tengda þætti. Ekki bara þorskur „Það hefur lítið verið lagt upp úr heilsuhagfræði hér á landi gegnum tíðina og þegar ég fór utan til Bandaríkjanna í framhaldsnám í lok síðustu aldar vissi ég ekki einu sinni að þetta væri til sem und- irgrein hagfræðinnar. Fyrirmynd- irnar héðan frá Íslandi voru mikið til auðlindahagfræðingar sem fjöll- uðu helst um þorsk þegar brugðið var frá því að fjalla um verðbólgu, atvinnuleysi og stýrivexti,“ segir Tinna Laufey og brosir. Greinin vakti strax áhuga henn- ar, enda er hún mikil áhugamann- eskja um heilsu og heilsutengd mál- efni, og árið 2006 varði hún doktorsritgerð sína í heilsu- hagfræði við háskólann í Miami. Einnig hefur Tinna Laufey lagt stund á rannsóknir við The Nation- al Bureau of Economic Research (NBER) í New York og við Háskóla Íslands eftir að hún flutti heim fyrir tæpum tveimur árum. Leiðir þeirra Michaels Grossmans og Tinnu Lauf- eyjar lágu einmitt saman á NBER árið 2006. Tinna Laufey segir nem- endur í viðskipta- og hagfræðideild hafa sýnt greininni mikinn áhuga undanfarna tvo vetur; hópurinn sé blandaður fólki með ólíka reynslu. „Fagið er það nýtt að fáir hafa enn sem komið er útskrifast. Þeir sem hafa gert það hefur gengið vel og fengið skemmtileg verkefni við að glíma, verkefni þar sem námið hefur nýst þeim vel.“ Hún segir ekki nauðsynlegt að nemendur í heilsuhagfræði hafi yf- irgripsmikla þekkingu á heilbrigð- isvísindum enda þótt það spilli vita- skuld ekki fyrir; áhuginn á viðfangsefninu sé lykilatriði. „Sjálf hafði ég enga sérþekkingu á þessu sviði, hafði starfað sem lík- amsræktarþjálfari til margra ára. En það skiptir ekki sköpum, mér er til dæmis til efs að margir fiski- hagfræðingar kunni að sigla skipi eða slægja fisk. Síðustu tveir nem- endurnir sem útskrifuðust úr meist- aranáminu hér voru læknir og við- skiptafræðingur, þannig að fólk kemur úr ýmsum áttum.“ Stjórnvöld hafa áhuga Tinna Laufey segir íslensk stjórnvöld hafa sýnt heilsuhagfræði áhuga og skilning að undanförnu og í raun meiri skilning en vænta mætti á upphafsárum námsins. „Stjórnvöld og embættismenn líta á þetta sem aðferðafræði til að taka ákvarðanir byggðar á hag- fræði sem er ákaflega stefnumiðað fag. Vandamálið hefur á hinn bóg- inn verið skortur á fólki. Það hafa ekki verið heilsuhagfræðingar til að leita til sem hafa getað unnið vinnuna. Ég er enn sem komið er eini aðilinn með doktorspróf í fag- inu en nokkrir aðilar hafa útskrif- ast með meistaragráðu hér heima og erlendis. Þannig að þetta er smám saman að breytast en tæki- færin eru gríðarlega mörg á þessu sviði.“ „BYLTING“ INNAN KERFISINS Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Lektorinn Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, doktor í heilsuhagfræði. HEILSUHAGFRÆÐI OG OFFITA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.