Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 18
18 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
sigridurv@mbl.is
Bosco var einungis unglings-strákur þegar hann ákvaðað fara frá Úganda, þaðansem hann hafði alist upp,
yfir til nágrannaríkisins Rúanda.
Hann leit á Rúanda sem heimaland
sitt, þótt hann hefði aldrei komið
þangað. Foreldrar hans höfðu flúið
frá Rúanda mörgum árum áður –
þau voru tútsar.
Bosco leist ekki á blikuna í landinu
og vildi eins og hann orðaði það
„reyna að stöðva yfirgang hútúa“
sem þar voru við völd. Þetta var árið
1993 og Bosco gekk til liðs við Föð-
urlandsfylkingu Rúanda (RPF). Í
henni var mikið af ungum tútsum
eins og honum, sem alist höfðu upp í
útlegð og vildu snúa „aftur heim“.
Strákurinn sem hafði búið á venju-
legu heimili í Úganda var skyndilega
farinn að þvælast um skóga Rúanda
með vopn í hendi. „Þetta var klikkun,
hræðilegt alveg,“ sagði hann mér
löngu síðar. „Við borðuðum stundum
ekki í nokkra daga og hvíldumst oft
ekki í marga sólarhringa.“
Líflátshótunum útvarpað
Löngu áður en Bosco hóf að
þramma um þykka skóga með byss-
una sína var Rúanda þýsk nýlenda.
Eftir fyrri heimsstyrjöldina kom
landið í hlut Belga. Hútúar eru í
miklum meirihluta í Rúanda og túts-
ar í minnihluta en ekki endilega
hægt að segja hver er hvað af útlitinu
einu saman. Fólkið býr hlið við hlið
og talar sama tungumál.
Það var undir stjórn Belga sem
það hver var hútúi og hver var tútsi
tók að skipta verulegu máli. Belgíska
stjórnin gaf út nafnspjöld þar sem
uppruni Rúandabúa var tilgreindur
– nafnspjöld sem síðar gegndu mik-
ilvægu hlutverki í þjóðarmorðinu:
Var viðkomandi tútsi og þar með
réttdræpur, eður ei?
Tútsar fóru með völdin fyrir ný-
lenduherrana en árið 1959 gerðu
hútúar uppreisn gegn ofríki tútsa,
sem þeir sáu svo – og kröfðust valda.
Þegar landið fékk sjálfstæði fóru
völdin til hútúa, þúsundir tútsa voru
drepnar og enn fleiri enduðu í útlegð.
Félagar Boscos í Föðurlandsfylk-
ingunni réðust inn í Rúanda árið
1990, frá fyrrum bresku nýlendunni
Úganda, og freistuðu þess að fella
hútúa-stjórnina. Stjórn Frakka var
fljót að senda vopn og hermenn hútu-
um til varnar. Það skipti máli að við-
halda frönskum áhrifum í Afríku.
Ekki tókst að fella stjórnina en
niðurstaðan varð sáttmáli um valda-
skiptingu á milli hútúa og tútsa.
Öfgafullir hútúar voru ekki par sáttir
við samkomulagið og raddir þeirra
urðu æ háværari: Best væri að af-
greiða „tútsa-vandamálið“ í eitt
skipti fyrir öll og tortíma öllum túts-
um. Hugmyndinni heyrðist æ oftar
fleygt og þegar hafði fjöldi tútsa
raunar lent í gröfinni. Fyrrihluta árs
1994 var áróðri gegn tútsum útvarp-
að svo vikum skipti í gegnum út-
varpsstöð sem fjölskylda forsetans
átti hlut í.
Það var ekkert óvænt við þjóðar-
morðið sem hófst í apríl sama ár.
Dauðasveitir af stað
Þegar flugvél forseta landsins,
hútúans Juvenals Habyarimana,
brotlenti á dularfullan hátt hinn 6.
apríl gafst ástæðan sem margir
höfðu beðið eftir: Að hefja útrým-
inguna. Það varð að refsa tútsum
fyrir að skjóta niður forsetann, ekki
satt? Margir bentu reyndar á að lík-
legast hefðu öfgafullir hútúar grand-
að honum sjálfir til að geta hafið ætl-
unarverk sitt.
Dauðasveitir hútúa héldu strax af
stað í leit að fórnarlömbum og ein-
ungis nokkrum dögum síðar lágu
þúsundir tútsa í valnum. Þjóðir
heims lögðu áherslu á að bjarga er-
lendu starfsfólki í burtu og sendu
sveit franskra, ítalskra og belgískra
hermanna til verksins. Að aðstoða
tútsa var ekki í hennar verkahring.
Á sama tíma og illa farin lík hrönn-
Skiptir dauður tútsi máli?
REUTERS
Safn Einn þeirra sem lifðu þjóðarmorðið í Rúanda 1994. Í forgrunni eru höfuðkúpur fólks sem drepið var.
ÞJÓÐARMORл
Í HNOTSKURN
» Í Rúanda búa hútúar og túts-ar – hútúar eru í miklum
meirihluta og tútsar í minni-
hluta.
» Árið 1994 myrtu öfgafullirhútúar að minnsta kosti
800.000 tútsa og hófsama hútúa,
án afskipta ríkja heims.
Sjötti apríl 1994 var örlagaríkur dagur í Rúanda. Flugvél forsetans brotlenti á dularfullan hátt – og
þjóðarmorð hútúa á tútsum hófust. Á 100 dögum voru að minnsta kosti 800.000 manneskjur myrtar.
Þjóðarmorð | Með nánast alla utanaðkomandi horfna á brott – og án afskipta Sameinuðu þjóðanna eða nokkurra
ríkja – voru hútúar frjálsir að því að myrða að vild. Gabb |Ekki voru allar furðufréttir 1. apríl gabb eða grín. Hrað-
lestur | Meðallestrarhraði með fullum skilningi er 250 - 350 orð á mínútu. Tónlist | Nýr ópus R.E.M. er afturhvarf til rokkaðri tíma.
VIKUSPEGILL»
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
Hrekkjusvín, prakkarar ogbrandarakallar voru íessinu sínu á þriðjudag-inn og héldu með mis-
munandi hætti upp á sinn eftirlæt-
isdag ársins: 1. apríl. Dagur flónanna
er hann víða kallaður enda eini dagur
ársins þar sem fólki bæði líðst og er
oftast fyrirgefið að atast í öðru fólki
og láta það hlaupa apríl út um allar
trissur eða ljúga það fullt af bulli og
bábiljum.
Þennan dag liggja fjölmiðlar held-
ur ekki á liði sínu við að spinna upp
farsakenndar sögur og fjalla um
óvæntar uppákomur út um borg og
bý. Þangað mæta svo grandalausir,
oft í von um eitthvað á borð við gróða,
góð kaup eða í það minnsta að berja
augum heimsfræga persónu.
Lífið lyginni líkast
Sumt aprílgabbið í áranna rás hef-
ur þótt svo fyndið og frumlegt að þau
eru löngu skráð á spjöld sögunnar.
En stundum virðist lífið sjálft lyginni
líkast eins og BBC, breska rík-
isútvarpið, sýndi fram á dag einn í
vikunni, nánar tiltekið á degi flón-
anna 1. apríl. Á vef þess má lesa
nokkrar býsna fjarstæðukenndar
fréttir sem birtust í nokkrum bresk-
um fjölmiðlum og voru hvorki gabb
né grín þótt 1. apríl væri. Að einni
undanskilinni að vísu. Kannski er
hægðarleikur að giska rétt – eða
hvað?
1. Ný útfararþjónusta, svokölluð
„pay per view“ (borgið fyrir útsýni)
verður sett á laggirnar í dag. The
Daily Mail sagði þjónustu lík-
brennsluhússins í Southampton
ganga út á að gefa syrgjendum kost á
að fylgjast með athöfninni á netinu.
2. Skjaldbaka er háð nikótíni, Hún
ánetjaðist eftir að hafa tínt upp log-
andi sígarettustubba í garði eiganda
síns í Kouqian í Kína og fer í fýlu ef
hún fær ekki eitrið. The Daily Ex-
press, sem fékk frásögnina frá kín-
versku fréttastofunni Xinhua, birti
mynd af skjaldbökunni með fréttinni.
3. Breytingaskeið kvenna á rætur
að rekja til aldagamallar baráttu á
milli eiginkvenna og tengdamæðra,
upplýsti The Times. Fyrir allt að 50
til 300 þúsund árum var samkeppni
fjölskyldunnar um mat barátta sem
yngri konurnar unnu. Eldri konurnar
misstu hæfileikann til að eignast
börn. Þar sem svona erfitt var um
mataraðdrætti sneru tengdamæð-
urnar sér að því að ala barnabörn sín
upp frekar en að ala sjálfar börn.
4. Sprauta sem stækkar hinn dul-
arfulla G-blett kvenna og gerir þeim
kleift að fá meiri og betri fullnægingu
kemur á markaðinn í Bretlandi, að
sögn The Sun. Kollagen-stungan
kostar 800 pund, eða tæpar 120 þús-
und krónur, aðgerðin tekur aðeins
hálftíma og er sjúklingurinn svæfður.
5. Fyrirhugað er að fá stærri skóla-
borð og -stóla til að koma til móts við
æ þyngri bresk skólabörn, sagði The
Express. Venjuleg bresk börn eru
einum sentimetra stærri en þau voru
fyrir tíu árum og fleiri krakkar eiga
við offitu að stríða en áður.
6. Vindmyllur eða sólarrafhlöður,
sem bresk fyrirtæki framleiða, gætu
orðið framlag Breta til endurnýt-
anlegrar orku í heiminum, sam-
kvæmt The Financial Times.
7. Fólk getur senn fengið tattú á
tennurnar, sagði The Sun. Tann-
læknirinn Steve Heward, sem er
upphafsmaður þessa tískuæðis í
Bandaríkjunum, hyggst flytja það til
Bretlands.
8. Hin hefðbundna kínverska bar-
Reuters
Furðufréttir BBC upplýsti að mör-
gæsir gætu flogið.
GABB»
Dagur flónanna Í HNOTSKURN»1957 Sjónvarpsþátturinn Panorama á BBC sýndi Svisslendingatína spagettí af trjám. Fjöldi fólks vildi vita hvar hægt væri að fá
svona tré.
» 1962 Fyrir daga litasjónvarpsins var tilkynnt á einu sjónvarps-stöðinni í Svíþjóð að ný tækni gerði áhorfendum kleift að sjá dag-
skrána í lit. Þúsundir manna létu nælonsokk yfir skjáinn eins og mælt
var fyrir um.
» 1992 Í útvarpsþættinum Talk of the Nation sagði að Richard Nix-on gæfi aftur kost á sér sem forseti Bandaríkjanna og slagorð
hans væru: „Ég gerði ekkert rangt, og ég ætla ekki að gera það aft-
ur“.
» 1996 Allt ætlaði af göflunum að ganga þegar veitingahúsakeðjanTaco Bell tilkynnti um kaup sín á Frelsisbjöllunni í Fíladelfíu og
að framvegis yrði hún kölluð Taco-frelsisbjallan.
» 1998 Burger King auglýsti sérhannaða hamborgara fyrir örv-henta á heilsíðu í USA Today. Þeir voru sagðir hannaðir þannig
að sósur og krydd lækju niður hægra megin. Margir bitu á agnið.