Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 19

Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 19
uðust upp á götum úti ákvað Örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna, fyrir til- stilli Bandaríkjanna, að draga saman í friðargæsluliði sínu. Hermönnum var fækkað um 90% og einungis 250 friðargsæsluliðar urðu eftir. Skilaboðin voru skýr: Tútsar yrðu sjálfir að mæta eigin örlögum. Áhrif Sómalíu Um það leyti sem Bosco gekk í Föðurlandsfylkinguna enduðu inn- grip í Sómalíu með drápi á 18 banda- rískum hermönnum og skelfilegar fréttamyndir fóru eins og eldur í sinu um heiminn. Aðgerðirnar voru illa skipulagðar og lítt úthugsaðar en bandaríska stjórnin undir forrystu Bills Clintons var brennd, vildi ekki skipta sér af í Rúanda og beitti sér markvisst gegn afskiptum annarra. Það að löndin væru ólík og aðstæð- urnar sömuleiðis skipti litlu. Sómalía kallaði einnig fram gæsahúð hjá öðr- um Vesturveldum. Þrátt fyrir allt tal um „aldrei aft- ur“ – og þrátt fyrir sáttmála SÞ sem leggur skyldur á hendur aðildarríkj- um sínum að koma í veg fyrir þjóð- armorð hvar sem slíkt vofir yfir – sat heimsbyggðin hjá meðan ríkisher Rúanda og öfgafullir hútúar slátruðu að minnsta kosti 800.000 tútsum og hófsömum hútuum sem samúð höfðu með tútsum. Rúandíska stjórnin seg- ir töluna vera yfir eina milljón. Með nánast alla utanaðkomandi horfna á brott – og án afskipta Sam- einuðu þjóðanna eða nokkurra ríkja – voru hútúar frjálsir að því að myrða að vild. Hraðinn á morðunum var gríðarlegur – miklu meiri en í gasklefunum í Þýskalandi. Það tók ekki nema 100 daga að myrða allt þetta fólk. Ein milljón látinna er mik- ið á hvaða mælikvarða sem er – en það er einnig hlutfallslega mjög mik- ið í litlu landi þar sem einungis bjuggu um átta milljónir áður. Hver myrti og hver ekki? Að lokum var það Föðurlandsfylk- ingin sem tókst að steypa hútúa- stjórninni, ná höfuðborginni og stöðva morðin. Þótt þá hafi hútúar verið ansi nærri því að fullkomna ætlunarverk sitt. Bosco hafði óttast hið versta – enda áform um að losa sig við tútsa engin launungarmál – en aldrei nokkurn tímann hafði hann grunað að hútúar kæmust upp með að myrða meirihluta allra tútsa í Rú- anda. Þegar hútúa-stjórnin var fallin urðu hútúar fórnarlömb á einni nóttu. Eða slík voru að minnsta kosti hughrifin sem vöknuðu við að sjá fréttamyndir af hútúum streyma til Kongós, dauðhræddir við að tútsar myndu hefna sín. Kólerufaraldur braust út á meðal flóttafólksins og þúsundir létu lífið. Mikið af fólkinu var venjulegt fólk sem í skelfingu sinni hafði látið morðæðið viðgang- ast en á meðal þess voru einnig allir þeir fjölmörgu sem murkað höfðu líf- ið úr öðrum. Loksins þegar ríki heims rönkuðu við sér og sýndu við- brögð við atburðunum í Rúanda – með því að hjálpa flóttafólkinu í Kongó – lentu þau í stórri siðferði- legi klemmu: Hverja voru þau eig- inlega að fæða og klæða í flótta- mannabúðunum? Vopn frá Frakklandi Þegar ég hitti Bosco í Rúanda á nýrri öld er friður í landinu og mikil uppbygging hefur átt sér stað. For- setinn er tútsi og bæði hútúar og tútsar í stjórninni. En Bosco er reiður: Reiður út í morðingjana. Reiður út í alla hú- túana sem ekki tóku beinan þátt í morðunum en létu þau viðgangast. Þriðjungur myrtra var börn. Reiður út í ríki heims fyrir afskiptaleysið meðan bræðrum þeirra og systrum var slátrað með skipulögðum hætti. Reiðastur er hann þó út í frönsku stjórnina. „Hún hafði ekki einungis útvegað hútúum hergögn í mörg ár heldur líka þjálfað ríkisherinn – sama her- inn og gegndi lykilhlutverki í morð- unum. Og vopn héldu áfram að ber- ast í gegnum Frakkland eftir að morðin hófust,“ segir hann og rang- hvolfir í sér augunum. Ráðamenn í Rúanda hafa raunar lengi fullyrt það sama en franska stjórnin segir fjarri lagi að hún hafi stutt hútúa í gjörðum sínum þótt náið samband hafi verið við hútúa-stjórnina. „Það er hagur allra þeirra sem ekki gerðu neitt til að stoppa þjóð- armorðið að mála þá mynd að það hafi verið óvænt og óskipulagt – og þar með ekki hægt að afstýra því,“ segir Bosco annan dag. Síðan heldur hann áfram: „Ég er löngu hættur að hlusta á eitthvert „aldrei aftur“-tal. Sjáðu bara Darfur. Menn ganga á milli þegar þeim hentar en þegar þeir hafa engra hagsmuna að gæta er þeim sama. Síðan þegar allt er um garð gengið leyfa allir sér að harma það sem gerðist.“ REUTERS Andvaraleysi Uppreisnarmenn í Rúanda og hermenn SÞ með bláa hjálma gæta flóttafólks í landinu árið 1994, en SÞ sættu harðri gagn- rýni fyrir að hafa ekki séð teikn á lofti um voðaverkin og grípa ekki inn í atburðarrásina. » Belgíska stjórnin gafút nafnspjöld þar sem uppruni Rúanda- búa var tilgreindur – nafnspjöld sem síðar gegndu lykilhlutverki í þjóðarmorðunum: Var viðkomandi tútsi og þar með rétt- dræpur, eður ei? MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 19 H 2 h ö n n u n Viltu auka samkeppnishæfni þína á vinnumarkaði? Kynning um MBA nám í Háskóla Íslands fimmtudaginn 17. apríl Kynningarnar verða tvær - kl. 12-13 og kl. 17-18 í MBA stofunni á nýju Háskólatorgi Þeir sem kynna námið eru Jón Snorri Snorrason forstöðumaður námsins og Þórhallur Ö. Guðlaugsson formaður stjórnar MBA námsins og auk þess verða kennarar og nemendur námsins til að svara spurningum. > Mikil tengsl við íslenskt atvinulíf > Sér aðstaða fyrir nemendur > Námsferð og námsgögn innifalin > Greiður aðgangur að kennurum > Erlendir fyrirlesara > Nám með alþjóðlegt viðmið Allir velkomnir – léttar veitingar Umsóknarfrestur er til 2. maí nk. Nánari upplýsingar á mba.is H 2 h ö n n u n dagalist T’ ai Chi getur gagnast við sykursýki, tilkynnti The Daily Mail. Hafa rannsóknarmenn fundið út að hreyfingarnar og djúpur and- ardráttur geta valdið lækkun á blóð- sykrinum. 9. Þjófur gekk út úr fjölmennu norsku sædýrasafni með krókódíl, sem var meira en 60 cm á lengd, sagði The Independent. 10. Drykkjumönnum hefur verið bannað að kalla bardömur „elskuna“. Daily Star var æft yfir þessari ós- vinnu og sagði ný lög mismuna fólki og þýða að bareigendur, sem leyfi byttum að spjalla við starfsfólk sitt, geti verið dregnir fyrir dómstóla. Að endingu flokkaði BBC eigin frétt með þessum fjarstæðukenndu fréttum og upplýsti um mörgæsir, sem gætu flogið. Með fylgdi mynd- skeið af hópi mörgæsa, sem hóf sig á loft og flaug vængjum þöndum upp í himinbláma suðurskautsins. Ekki er öll vitleysan eins, kemur fyrst upp í hugann við lestur sumra þessara frétta. Svo gæti hvarflað að einhverjum að sumir fjölmiðlar væru ekki allir trúverðugir upp á tíu fingur og alla krossaða, hvorki 1. apríl né aðra daga. Eina gabbfréttin reyndist vera frétt BBC um fljúgandi mörgæsir. Skjaldbökur geta aftur á móti orðið háðar nikótíni og hægt er að labba út af sædýrasafni með rúmlega 60 cm langan krókódíl – að sögn …

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.