Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 26
mannlíf
26 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að er ekki að ófyrirsynju
að þessi staður er á lista
yfir sjö víti veraldar.
Ekki er vitað með
vissu hversu margar
fjölskyldur búa á ruslahaugunum í
Managua en borgarómyndin á nafn
og kallast La Chureca. Íbúafjöldinn
breytist frá einum tíma til annars en
varlega áætlað er talið að um 2.400-
5.000 manns búi á jaðri hauganna.
Þar hafa þeir hróflað upp hreysum
með bárujárnsplötum, umbúða-
pappa, krossviði og plasti.
Kastað á haugana
Fyrir sárafátækt fólk í Níkaragva
án atvinnu og án peninga er búseta á
öskuhaugunum ef til vill illskásta úr-
ræðið til að halda lífi. Þrauka. Þar er
hægt að finna fataleppa og matar-
afganga og þar er enginn sem rukk-
ar um leigu, engin fasteignagjöld,
engir rafmagns- eða vatnsreikn-
ingar. Reyndar heldur engin mann-
leg reisn eða að minnsta kosti lítil.
Það er ekki hægt að verjast þeirri
hugsun að samfélagið hafi kastað
þessu fólki á haugana eins og hverju
öðru sorpi.
Sjö daga vikunnar frá því árla
dags og fram í myrkur er leitað að
einhverju verðmætu, áldósum og
flöskum og öðru dóti sem má selja til
endurvinnslu. Þá daga sem ekki er
unnið er heldur ekkert borðað.
Lífsgæði er hugtak sem á alls ekki
við um La Chureca. Heilsugæsla er
Borgin á haugunum – La Chureca
Ruslahaugarnir í
Managua eru risavaxn-
ir. Þar eru fjöll af úr-
gangi og haugarnir ná
yfir mörg hundruð fer-
kílómetra á fögrum
stað skammt frá sögu-
frægum hluta höf-
uðborgarinnar á bökk-
um Managua-stöðu-
vatnsins. Ljósmyndir
Gunnars Salvarssonar
sýna að fegurðin er
löngu horfin. Ekki að-
eins í reyk, svækju og
óþef heldur miklu
fremur í líflausum aug-
um og steinrunnum,
sótugum andlitum fólks
sem þarf að kalla haug-
ana heimili.
Íbúi á haugunum Ung stúlka sem býr í
borginni á haugunum í Managua.
Leikur Börnin leika sér í sólinni, sótsvört og kámug frá toppi til táar.
Öldungur „Hér þjáist fólk af öllu sem hægt er að þjást af, ég hef séð of mik-
ið á langri ævi og vil deyja,“ sagði þessi öldungur, 103 ára. Æskan Steinrunnið andlit og köld augu, ungur drengur í La Chureca
Betl Algeng sjón í La Chureca, ung kona biður um peninga eða mat. Þefa fyrst, borða svo Ungar stúlkur úr höfuðborginni koma á haugana í
leit að einhverju ætilegu.