Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 27
Sumar 2008Fífunni í Kópavogi 4.–6. apríl 2008
Upplifðu sumarið með okkur
á sýningunni í Fífunni 4.-6. apríl!
Kynningar, fræðsla og skemmtun
fyrir alla fjölskylduna
Sýningin er opin sem hér segir:
Föstudag 4. apríl kl. 16:00 – 19:00, laugardag 5. apríl
kl. 11:00 – 19:00 og sunnudag 6. apríl kl. 11:00 – 18:00
Tugir sýnenda, hundruð áhugaverðra hluta og þúsundir hugmynda
Málþing um nýja sjónvarpstilskipun ESB
Menntamálaráðuneyti efnir til málþings um nýja tilskipun ESB um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.
Íslensk stjórnvöld þurfa að innleiða tilskipunina fyrir lok árs 2009. Á málþinginu verður fjallað um helstu
þætti tilskipunarinnar, fyrirsjáanlegar breytingar á lögum auk þess sem hagsmunaaðilar munu ræða málin í
pallborði.
Málþingið verður haldið í Þjóðminjasafninu kl. 13.00 þann 10. apríl n.k. Aðgangur er ókeypis og eru allir
velkomnir.
DAGSKRÁ
13.00 Menntamálaráðherra flytur opnunarávarp.
13.15 Oliver Schenk frá framkvæmdastjórn ESB fjallar um tilskipun 2007/65/EBE
og svarar spurningum.
14.15 Karl Axelsson, hrl. og dósent við lagadeild Háskóla Íslands fjallar um
fjölmiðlalöggjöf hér á landi.
14.30 Kaffihlé.
14.50 Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri í menntamálaráðuneyti fjallar um ákvæði er
varðar auglýsingar í tilskipuninni og kynnir niðurstöður kannana á auglýsingum
og viðhorfum til breytinga á auglýsingalöggjöf í íslensku sjónvarpi.
15.30 Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, fjallar um verkefni, sem
unnið hefur verið að, um að takmarka markaðssókn gagnvart börnum.
15.45 Pallborðsumræður þar sem fjallað er um nýja tilskipun ESB undir stjórn
Benedikts Bogasonar, formanns útvarpsréttarnefndar. Í pallborði verða
Ari Edwald, forstjóri 365, Páll Magnússon, útvarpsstjóri, Sigríður Margrét
Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins, Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri í men
ntamálaráðuneyti og Elva Björk Sverrisdóttir, stjórnarmaður í Blaðamannafélagi
Íslands og blaðamaður á Morgunblaðinu.
Menntamálaráðuneyti, 6. apríl 2008.
menntamalaraduneyti.is
Oliver Schenk
Karl Axelsson, hrl.
Elfa Ýr Gylfadóttir
Margrét María
Sigurðardóttir
Menntamálaráðherra
Bústaðir Íbúarnir á haugunum koma sér upp hreysum úr bárujárns-
plötum, krossviði og umbúðapappa.
Fjölskylda Okkur var boðið inn á svæði þar sem tveir bræður og fjöl-
skyldur þeirra búa í La Chureca. Á myndinni er eiginkona annars bróð-
urins og fjögur börn úr báðum fjölskyldum.
Höfundur er útgáfu- og kynning-
arstjóri Þróunarsamvinnustofnunar
Íslands en ljósmyndir hans frá þróun-
arlöndum eru á sýningu í Fótógrafí á
Skólavörðustíg 4 í Reykjavík.
engin en sjúkdómar algengir, ekki
síst öndunarfærasjúkdómar og önn-
ur veikindi sem stafa af reykjar-
stybbunni sem fólkið andar að sér
daga og nætur. Vannæring er þekkt
vandamál, eins húðsjúkdómar, nið-
urgangur og bakteríusýkingar. Kyn-
sjúkdómar eru algengir og stúlkur á
öllum aldri selja sig fyrir smáaura.
Margir ánetjast skóáburði og sniffa
slík efni til að deyfa veruleikann og
slá á svengdina. Rafmagn og renn-
andi vatn er óþekktur munaður, hvað
þá nútímaleg afþreying, sjónvarp,
tölvur eða annað sem við teljum
ranglega til nauðsynja.
Hér býr fólk
Óraunverulegt er að koma inn í
þessa veröld á ægifögrum sólardegi
og vera skyndilega eins og staddur á
Hellisheiðinni í niðaþoku nema hvað
hér er ekki þoka heldur reykur,
skyggnið takmarkað og svækjan
óskapleg, lifandi smáeldar á víð og
dreif vegna metangassins undir niðri
og kofaþyrpingar til beggja handa.
Skyndilega birtist barn í fataræflum,
berfætt innan um glerbrotin og svart
í framan af ryki og skít – og þá áttar
maður sig fyrst á því að hér býr fólk.
Og það koma fleiri börn og fleiri kon-
ur og fleiri karlmenn, öll óhrein í
tötrum með vonleysi í augum. Samt
má sjá vott af lífi í augum barnanna,
einstaka bros meira að segja.
Augljóst er að stór hluti íbúa La
Chureca er börn. Átakanlegt að
horfa upp á þau í þessum ömurlegu
aðstæðum fátæktar, barnaþrælk-
unar og fáfræði. Sagt er að jafnvel
þótt börnunum bjóðist skólavist telja
foreldrarnir sig þurfa á starfs-
kröftum þeirra að halda við söfnun
verðmæta eða í fæðisleit.
Okkur þætti maturinn sem finnst
á sorphaugunum í Managua ekki
ætilegur en börnin í La Chureca og
önnur börn úr borginni sem sökum
fátæktar leita á haugana komast þó
ekki upp með neina matvendni. Þau
gera sér nánast allt að góðu. Þefa
fyrst og borða svo ef lyktin er ekki
því verri. En þau eru ekki ein um að
leita sér að fæði, alls kyns fjórfæt-
lingar, frá rottum upp í nautgripi, að
ógleymdum gömmum og öðrum mis-
fríðum fuglum himinsins eru í sömu
erindagjörðum í þessu veraldarvíti:
finna eitthvað til að seðja sárasta
hungrið.
Innar á svæðinu er handagangur í
öskjunni, mörg hundruð manns á öll-
um aldri með dulu fyrir vitum bíða
átekta eftir að sorpbíll losi farminn
og þegar það gerist er atgangurinn
mikill. En fólkið berst ekki aðeins
innbyrðis heldur blanda hrægammar
og ferfætlingar sér í slaginn. Þegar
um hægist er rótað áfram í haugnum
í voninni um að finna eitthvað verð-
mætt. Að horfa upp á þetta sjón-
arspil, sem er í huga viðstaddra
grimmur hversdagsleiki, er líkast því
að vera lentur í svæsinni martröð.
Sviðinn í augunum hverfur eftir
skamma stund en aðrar minningar
frá borg hauganna hverfa ekki.
Viðurværið Hundruð íbúa Managua koma á degi hverjum á sorphaugana í leit að verðmætum.
» Augljóst er að stór hluti íbúa La Chureca er börn.
Átakanlegt að horfa upp á þau í þessum ömurlegu
aðstæðum fátæktar, barnaþrælkunar og fáfræði.