Morgunblaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 30
vináttuheimsókn 30 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Ókeypis hleðsla: Bankastræti • Kringlan • Smáralind ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 4 02 96 0 4/ 08 Ókeypis áfylling á bílinn alla daga! H afnarstræti og svæðið þar í kring er í mikilli mótun. Þetta er ein elsta gata bæjarins og státar af gömlum og virðulegum húsum. Ber þar hæst Hafnarstræti 16, sem búið er að endurnýja mjög fagurlega. „Það er ekki hægt að segja að skipulagi Hafnarstrætis sé lokið, því er raunar aldrei alveg lokið fremur en skipulagi hverfa yfirleitt, sagan sýnir að það koma alltaf nýjar áherslur,“ segir Jóhannes Kjarval arktitekt hjá skipulags- og bygging- arsviði Reykjavíkur. Hann kvað nýbúið að sveigja aust- urenda Hafnarstrætis inn í Tryggvagötu. „Þetta er undirbúningur að end- anlegri mynd á þessu svæði. Nú er í vinnslu seinna þrep í samkeppni um stóra byggingu fyrir starfsemi Landsbankans á milli Tryggvagötu og Geirsgötu. Hugsanlega teygir þessi bygging sig inn á Lækjartorg. Byggingin Hafnarstræti 20 á að hverfa en Hafnarstræti 18 er friðuð bygging, það hús er mjög gamalt á okkar mælikvarða, fyrsta húsið á þeim reit var byggt 1795, en 1854 voru hús á þeirri lóð sameinuð í eina húsastæðu.“ Hafnarstræti 16 er mjög gamalt „Sömuleiðis er Hafnarstræti 16 mjög gamalt. Það er timburhús, byggt 1824 sem skrifstofa, krambúð og pakkhús og varð síðar hótel Alex- andra. Þá var starfrækt þar bæði hótel og veitingasala. Bæði Hafn- arstræti 16 og 18 eru friðuð og eru með elstu húsum í borginni.“ Búið er að gera Hafnarstræti 16 upp á vegum borgarinnar, sem á það hús. En félög í eigu Landsbankans á húsin nr. 18 og 20. Í Hafnarstræti 16 hafa nú aðsetur Samband íslenskra myndlistar- manna og Myndstef, félag um höf- undarrétt mynda. Húsið var að sögn Jóhannesar gert upp í upprunalegri mynd og er sú endurgerð afar vönduð. „En þarna verða senn á þessu svæði stórfelldar breytingar í bein- um tengslum við fyrirhugaðar fram- kvæmdir við nýja tónlistarhúsið,“ sagði Jóhannes Kjarval. Þeir eru ófáir sem hafa lagt leið sína í Hafnarstræti 16. Ekki síst þegar það var hótel – hótel og veit- ingastaðir draga ævinlega að sér Morgunblaðið/RAX Nýklassík Hafnarstræti 16 er gott dæmi um nýklassískan byggingarstíl, húsið er að stofni til frá árinu 1792. Hafnarstræti 16 er mjög gamalt timburhús, byggt 1824 sem skrifstofa, krambúð og pakkhús og varð síðar hótel Alex- andra. Þá var starfrækt þar bæði hótel og veit- ingasala. Hafnarstræti 16, verslun, hótel – Það bætir heldur betur borgarbraginn þegar gömul hús eru gerð myndarlega upp. Hafn- arstræti 16 er eitt slíkt hús. Guðrún Guðlaugs- dóttir gluggaði í sögu hússins og ræddi við Jóhannes Kjarval arki- tekt og Oddnýju Eyj- ólfsdóttur um Hafnar- stræti 16 og umhverfi þess. borgarbragur K atrín Júlíusdóttir þing- kona er nýkomin heim úr vin- áttuheimsókn UNI- CEF til Gíneu-Bissá. Í ferðinni til Gíneu-Bissá átti Katrín meðal annars áhugaverðan fund með þingkonum í landinu í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, en þingkonurnar berjast nú sérstaklega á móti afskræmingu á kynfærum kvenna. „Þegar þær fréttu af því að ís- lensk þingkona væri að koma buðu þær mér strax á þennan fund. Þetta er lítið land eins og Ísland og allt fréttist. Fyrir mig var þetta mjög merkilegur fundur,“ segir Katrín. „Mér fannst í fyrsta lagi merki- legt að það skyldi vera haldinn svona þingkvennafundur. Af 102 þingmönnum eru 14 konur. Það voru flutt fjölmörg baráttuerindi á þessum fundi. Í öðru lagi fannst mér merkilegt hversu kvennabar- áttan er lík því sem við þekkjum hér, nema hvað snertir svokallaðan umskurð á konum sem er mikið vandamál í Gíneu-Bissá. Talið er að 45% kvenna séu um- skorin. Í þinginu er kona sem heitir Nihma Sissé sem mér þótti merki- legt að hlusta á og lesa um. Hún er umskorin og er ein þeirra sem fer fyrir baráttunni gegn þessum hryllingi og talar þar auðvitað af reynslu. Það er erfitt að setja sig í þessi spor. En hún hefur sagt frá því að þegar hún eignaðist fyrsta barnið dó það innan 24 tíma og hún var nærri 3 vikur á sjúkrahúsi vegna gríðarlegra blæðinga. Mæðradauði er mjög mikill þarna og örugglega má tengja það um- skurðinum að einhverju leyti. Eftir umskurðinn er saumað saman og samgróningurinn rifnar upp við fæðingar. Þegar ég sat þennan kvennafund þá varð mér ljóst að baráttumál kvenna í Gíneu-Bissá og á Íslandi eru um margt mjög lík, má þar nefna kröfuna um jöfn laun á við karlmenn, meira aðgengi að fjár- magni og þingkonurnar ræddu það mjög mikið hve erfitt væri að fá konur í framboð vegna þess að konur fara ekki með peningavöld – ekkert frekar en hér. Þess má geta að í þróunarsam- anburði sem Sameinuðu þjóðirnar gera reglulega er Ísland núna í fyrsta sæti en Gínea Bissá í því þriðja neðsta, engu að síður er kvennabaráttan mjög svipuð. Ég er nú komin í gott samband við þessar þingkonur og ætla að halda því sambandi, fylgjast vel með örlögum frumvarps sem á að banna umskurð kvenna þar í landi.“ Þess má geta að UNICEF Ísland hóf stuðning við þróunarverkefni í Gíneu-Bissá fyr- ir fjórum árum og nemur stuðn- ingur við landið frá 2004-2009 nú 3.550.000 Bandaríkjadölum. Með stuðningi einkaaðila á Íslandi, svo sem Baugs Group, FL Group, Fons og annarra aðila líkt og kvenfélaga um allt land, hefur UNICEF getað byggt skóla og leikskóla, eflt heilsugæslu og bætt aðgengi að hreinu vatni, joðbætt salt og dreift malaríunetum. Mörg þúsund börn hafa notið góðs af þessum aðgerð- um. „Við í íslensku sendinefndinni fengum að sjá afrakstur þessara verkefna. Bæði skoðuðum við skóla og heilsugæsluverkefni, sem og venjuleg heimili hjá fjölskyldum í Þekkingin dýrmæt Alþingiskona Katrín Júlíusdóttir fór í vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá sem hafði mikil áhrif á hana. Nýlega kom Katrín Júl- íusdóttur þingkona úr vináttuheimsókn til Gí- neu-Bissá. Guðrún Guð- laugsdóttir ræddi við hana um þetta land og tækifærin þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.