Morgunblaðið - 06.04.2008, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf.
ÞRÚÐVANGI 18 - 850 HELLU
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur Sími 487 5028
JÖRÐ Í RANGÁRÞINGI
Til sölu er jörðin Háfur 2 í Rangárþingi
ytra. Landstærð er um 35 ha, sem allt er
gróið land og grasgefið. Á jörðinni er 295
fm íbúðarhús, sem möguleiki er að hafa 3
íbúðir í, og vélageymsla sem er 289 fm
einangrað stálgrindarhús með steyptu
gólfi. Jörðinni fylgir veiðiréttur í Þjórsá.
Verð kr. 69 milljónir.
Nánari upplýsingar og myndir á
www.fannberg.is og á skrifstofu.
Sími 575 8585 FASTEIGNASALAN ÞÍN www.fmg.is
Spöngin 37, 2. hæð. 112 Reykjavík. Sími 575 8585. Fax 575 8586
OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 15:00 OG 16:00
FLÚÐASEL 44 – ENDARAÐHÚS M. BÍLSKÝLI
Fallegt endaraðhús á 2 hæðum auk stæðis í bílageymslu. Húsið er 149 fm, mjög vel
skipulagt, bjart og opið. Eldhús er stórt og bjart, úr því er útgangur í garð með grill-
verönd, markísa yfir henni. Opið er á milli stofu og eldhúss. Þvottahús er inn af eldhúsi.
Á efri hæð er stórt hjónaherbergi með útgangi á svalir, tvö barnaherbergi, vel hægt að
bæta því þriðja við, sjónvarpshol og baðherbergi, einnig er gestasalerni á neðri hæð.
Fallegar flísar og parket er á gólfum. Verð 36,9 millj.
Sölumaður verður á staðnum.
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 16:00 OG 17:00
ENGIHJALLI 11, BJALLA 3A
Falleg og rúmgóð 3ja herb., 93,8 fm íbúð á 3. hæð. 2 svefnherb. með skápum. Rúmgóð
stofa og borðstofa, vestursvalir með glæsilegu útsýni. Eldhús með fallegri innréttingu,
nýlegri eldavél, nýlegum blöndunartækjum og borðkrók. Flísalagt baðherb. með
glugga, baðkari með sturtuaðstöðu, innréttingu og nýlegum blöndunartækjum. Parket,
flísar og dúkur á gólfum. Sérgeymsla. Verð 20,9 millj.
Sölumaður verður á staðnum.
Laxalind 3 Kópavogi
glæsilegt parhús
Opið hús sunnudag frá kl. 13-16
Í einkasölu glæsil. fullb. ca 210 fm hús á
mjög góðum útsýnisstað. 4 svefnherb.
Fráb. skipul. Rúmg. stofur, glæsil. sér-
míð. innrétt., granít og vönduð tæki,
Glæsil. mjög velhannað hús.
Opið hús verður hjá Eggerti og Ernu í
dag sunnudag frá kl. 13-16. V. 69,8 m.
Ef tímasetningin hentar ekki þá endi-
lega hafið samband við Eggert í síma
821-1402.
www.domus.is
Akureyri I Akranes I Blönduós I Borgarnes I Egilsstaðir I Reyðarfjörður I Reykjavík I Vestmannaeyjar
Domus Blönduós Þverbraut 1 - Sími 440 6170
Allar eignir auglýstar á www.domus.is ı www.mbl.is ı www.visir.is ı www.habil.is
Magnús Ólafsson
viðskiptastjóri
magnuso@domus.is
Rafþjónusta HP er gróið fyrirtæki á Blönduósi, sem annast alhliða raflagna- og rafviðgerða-
þjónustu. Heildarvelta fyrirtækisins á síðasta ári var um 40 millj. kr. og starfsmenn 3-4.
Félagið á eigið húsnæði, sem er 180 fm að stærð og hefur verið innréttað mjög vel fyrir
þennan rekstur og lager tengdan starfseminni. Auk þessa á fyrirtækið ýmsan búnað og
tæki vegna starfseminnar.
Tilvalið tækifæri fyrir rafvirkjameistara til að eignast eigin rekstur. Gott mannlíf er á
Blönduósi, sem er mitt á milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Gróið fyrirtæki til sölu
Tækifæri til eigin reksturs
ÞESSA dagana auglýsa símafyr-
irtækin mikið. Þau keppa einkum
um hylli farsímanot-
enda og þeirra sem
vilja geta notað símann
sinn um allt land; jafnt
í byggð, í óbyggðum, á
þjóðvegakerfinu og á
fiskimiðunum við
strendur landsins. Þau
segja sum frá því að
þau séu með ,,stærsta
dreifikerfið“ og
ánægða viðskiptavini.
Þetta eru vissulega
ánægjuleg tíðindi fyrir
notendur fjarskipt-
anna og ég vona að
ánægja viðskiptavinanna fari vax-
andi, bæði með útbreiðsluna og
verðið. En hvað er hér á ferðinni?
Samkeppnin á fjarskipta-
markaði er að aukast
Það sem er að gerast er mjög ör
tækniþróun og aukin samkeppni á
fjarskiptamarkaði. Með
ákvæðum í fjar-
skiptalögum og aðgerð-
um Fjarskiptasjóðs
hefur tekist að efla
samkeppni milli síma-
fyrirtækjanna, sem
kemur neytendum til
góða. Samkeppnin nær
ekki einungis til þeirra
sem eru á þétt-
býlissvæðunum heldur
eru símafyrirtækin nú
að keppast um að veita
þjónustu um landið allt
og einnig við sjófar-
endur. Þessi staða sýnir að ákvæði
fjarskiptalaga, samþykkt fjar-
skiptaáætlunar og stofnun Fjar-
skiptasjóðs voru þær aðgerðir sem
tryggja best hagsmuni neytenda um
allt land. Raunveruleg samkeppni er
besta tryggingin fyrir notendur fjar-
skiptaþjónustunnar. Það eru fjar-
skiptafyrirtækin nú að sýna með
aukinni og bættri þjónustu. En allt
hefur sinn tíma.
Ríkisrekstur í
fjarskiptum er liðin tíð
Til eru stjórnmálamenn sem enn
tala um nauðsyn þess að endurreisa
ríkisrekstur í fjarskipum. Það er
mikill misskilningur að ríkisrekstur í
fjarskiptaþjónustu tryggi best hags-
Góð tíðindi á fjarskiptamarkaði
Sturla Böðvarsson skrifar
um fjarskipti » Það er mikill mis-
skilningur að rík-
isrekstur í fjarskipta-
þjónustu tryggi best
hagsmuni neytenda
Sturla Böðvarsson
OFT kemur það fyrir að valdhafar
beita þvaðri sem vopni í baráttunni
fyrir málstað sínum. Með þvaðri,
loðnum tilsvörum og með því að
koma sér hjá því að svara spurn-
ingum er almenningur gjarnan af-
vegaleiddur af þeim sem valdið hafa.
Valdhafar beita líka hálfsannleika
eða segja einungis hálfa
söguna svo skekkt
mynd af veruleikanum
situr eftir hjá þeim sem
á hlýðir. Þá reynir sér-
staklega á aðhalds-
stofnanir samfélagsins
og ekki síður á okkur
hin að sjá í gegnum
þokuna og krefjast
heiðarlegra svara.
Það er til að mynda
þvaður hjá Geir
Haarde að ríkisstjórnin
eigi enga aðkomu að
stóriðjuverkefnum
lengur, þar sé einungis um viðskipta-
legar ákvarðanir viðkomandi fyr-
irtækja að ræða án aðkomu stjórn-
málanna. Þessi klifun ráðherra
nýrrar ríkisstjórnar er orðin æði
hvimleið og nauðsynlegt að fjölmiðar
og kjósendur átti sig á þessum
ábyrgðarlausa hvítþvotti.
Bein aðild að stóriðju
Ríkisstjórnin á aðild að báðum ál-
versverkefnunum sem nú eru lengst
komin í undirbúningi, það eru áform-
in í Helguvík og Bakka við Húsavík.
Það var Valgerður Sverrisdóttir, iðn-
aðarráðherra í síðustu ríkisstjórn
Geirs Haarde, sem undirritaði sam-
komulag við Alcoa um orkusölu til ál-
vers á Bakka 1. mars
2006. Og hvað varðar
Helguvík þá eru Út-
flutningsráð og Mark-
aðsskrifstofa iðn-
aðarráðuneytisins
„Invest in Iceland“ að-
ilar að samningi við
Norðurál um uppbygg-
ingu álvers þar.
Þá áætlar rík-
isstjórnin að leggja 350
milljónir króna í djúp-
borunarverkefni orku-
fyrirtækjanna á tíma-
bilinu 2009-2010, til að
auðvelda þeim að margfalda orku-
framleiðslu sína. Framleiðsluaukn-
ingin er að sjálfsögðu hugsuð til stór-
iðju. Upplýsingar um þetta má fá í
fjáraukalögum ársins 2007.
Svo má ekki gleyma því að orku-
fyrirtækin eru nær alfarið í eigu op-
inberra aðila og Landsvirkjun sem
dregið hefur vagninn í orkusölu til
stórnotenda er alfarið í eigu ríkisins.
Þá hvílir ábyrgðin á lánum fyrirtæk-
isins vegna orkuöflunar til stóriðju-
fyrirtækja á ríkinu. Þjóðlendurnar,
þar sem flestar virkjanir eru áform-
aðar, eru í umsjá og á forræði rík-
isins og loks eru stóriðjufyrirtækin
háð losunarheimildum sem er í
verkahring ríkisstjórnarinnar að út-
hluta. Svo leyfa ráðherrar sér að klifa
á þessari vitleysu að ákvarðanir um
stóriðju séu ekki lengur í höndum
ríkisstjórnarinnar!
Meira að segja umhverfisráðherra
hefur sagt að aðkoma stjórnvalda að
þessum áformum sé engin; Lands-
virkjun og Alcan séu bara fyrirtæki á
markaði og verði að ná sínum samn-
ingum eins og aðrir. Þannig orðaði
hún það m.a. í fréttum Stöðvar 2
þann 26. júní 2007, aðeins nokkrum
vikum eftir að ný ríkisstjórn tók við
völdum með Fagra Ísland og fögur
loforð um stóriðjuhlé í farteskinu.
Olía í stað náttúruverndar?
Loks má nefna að ríkisstjórnin
hyggst leggja tugi ef ekki hundruð
milljóna króna í olíuleit á Dreka-
svæðinu við Jan Mayen-hrygg, rétt
eins og hún sjái fyrir sér að olíu-
vinnsla taki við af sjávarútvegi sem
ein af grunnstoðum atvinnulífs í
landinu. Í því augnamiði var 55 millj-
ónum króna bætt við fjárveitingu
Orkustofnunar á fjáraukalögum
2007. Umhverfisstofnun fékk líka
sérstaka fjárveitingu til að gefa út
starfsleyfi vegna olíuleitar, á sama
tíma og þeirri stofnun var synjað um
aukið framlag til náttúruverndar og
landvörslu.
Tækifæri sem aldrei fyrr
Þegar öllu er á botninn hvolft þá
ber ríkisstjórnin mikla ábyrgð á upp-
byggingu stóriðju í landinu nú sem
fyrr. Það er nauðsynlegt að fjöl-
miðlar og aðrir sem veita eiga ráða-
mönnum samfélagslegt aðhald
sporni við því að valdhafar þvaðri um
hlutina, hvítþvoi sig og firri sig
ábyrgð.
Náttúra Íslands þarf á hugrekki
og skilningi að halda en hvorki sýnd-
armennsku né blekkingum. Fram-
sækin náttúruvernd, ábyrg umhverf-
isstefna og hlé á uppbyggingu
stóriðju eru tæki sem ríkisstjórnin
hefur í hendi sér. Ég skora á stjórn-
völd að nýta völd sín til að hrinda í
framkvæmd framsækinni umhverf-
isstefnu. Ég skora líka á þau að segja
satt og rétt frá og axla ábyrgð á
gjörðum sínum.
Stóriðja á ábyrgð ríkisstjórnar
Kolbrún Halldórsdóttir
skrifar um stóriðju »Náttúra Íslands þarf
á hugrekki og skiln-
ingi að halda en hvorki
sýndarmennsku né
blekkingum.
Kolbrún Halldórsdóttir
Höfundur er þingmaður.