Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 38
38 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
SKULDATRYGGINGAÁLAG,
vogunarsjóður, áhættuvextir, lausa-
fjárkreppa, gjaldeyrissjóður, jökla-
bréf, gengissig, afleiður, fasteigna-
viðskipti, snöggkólnun
markaðar, heimsmark-
aðsverð og aukin verð-
bólga. Allt eru þetta
hugtök sem sjá má á
forsíðum blaðanna í
vikunni.
Minna er talað um
hvernig þeir fátæku
þoli þetta efnahags-
ástand í okurþjóð-
félaginu Íslandi, né
heldur hvernig eigi að
bregðast við vanda
þeirra. Vandi bank-
anna er hins vegar
ræddur umtalsvert.
Hvað þýðir slæmt efnahags-
ástand, verðbólga og háir vextir
fyrir aðra en bankana? Ástandið
bitnar á flestum og verst á þeim
sem eru verst settir fjárhagslega
og með þyngstu skuldabyrðina. Sé
ástandið metið út frá hagsmunum
borgarbúa má segja að tugir þeirra
finni fyrir ástandinu þegar þeir
kaupa í matinn, fylla bílinn af elds-
neyti og eða versla einhverjar þær
vörur sem kaupmenn hafa leyft sér
að hækka um 15-40%.
Þrír til fjórir tugir þúsunda
Reykvíkinga finna enn frekar fyrir
þessu. Þeir Reykvíkingar sem eru
mjög tekjulágir og hafa varla náð
endum saman hingað
til. Við núverandi
ástand ná þeir ekki
endum saman.
Nokkur þúsund
Reykvíkinga búa við
allra verstu kjörin.
Þeir búa við óvið-
unandi húsnæð-
isaðstæður og 750
þeirra eru á biðlista
eftir félagslegu hús-
næði. Á hverju ári eru
síðan um 2.500 Reyk-
víkingar sem fá fjár-
hagsaðstoð. Hún er
lægri en 100 þúsund krónur á mán-
uði.
Fjárhagsaðstoð dregst aftur úr
Samkvæmt lögum um fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga skulu
sveitarfélög: ,,tryggja að þeir (íbú-
arnir) geti séð fyrir sér og sínum.
Aðstoð og þjónusta skal jöfnum
höndum vera til þess fallin að bæta
úr vanda og koma í veg fyrir að
einstaklingar og fjölskyldur komist
í þá aðstöðu að geta ekki ráðið
fram úr málum sínum sjálf.“ Fé-
lagsmálaráðuneytið gefur út leið-
beinandi reglur til sveitarfélaga um
fjárhagsaðstoð þar sem viðmiðunar-
upphæð er gefin upp og er hún
ákvörðuð í samráði við félagsmála-
stjóra sveitarfélaganna sem jafn-
framt eru þeir sem þurfa að fjár-
magna aðstoðina. Þetta
gagnrýnisverða fyrirkomulag er við
lýði á meðan ekki er til staðar lág-
marksframfærslustuðull sem hægt
er að vinna út frá. Fjárhagsaðstoð
sveitarfélaganna er þó ætíð lægsta
mögulega aðstoðin, enda er henni
ætlað að vera tímabundin þegar
ekki koma til atvinnuleysisbætur
eða greiðslur frá almannatrygg-
ingum.
Í dag er framfærsluaðstoð
Reykjavíkurborgar 99.329 krónur á
mánuði. Á síðustu árum, sér-
staklega frá árinu 2006, hefur
framfærslustyrkur sveitarfélag-
anna, þ.á m. Reykjavíkurborgar,
dregist mjög aftur úr greiðslum al-
mannatrygginga og atvinnuleys-
isbótum. Fjárhagsaðstoðin hækkar
1. janúar ár hvert en lífeyr-
isgreiðslur almannatrygginga og
atvinnuleysisbætur hafa sem betur
fer hækkað nokkuð síðustu misseri
í tengslum við gerð kjarasamninga
og við sérstakar aðgerðir rík-
isstjórnar 2007 og nú á þessu ári.
Í dag eru upphæðirnar þessar:
Fjárhagsaðstoð
Reykjavíkurborgar = 99.329
Fullur ellilífeyrir = 135.928
Aldurstengd örorka = 163.904
Atvinnuleysisbætur = 136.015
Fjárhagsaðstoð einstaklinga er
nú 36% lægri en ellilífeyrir og at-
vinnuleysisbætur. Árin 2003 og
2005 voru atvinnuleysisbætur ein-
ungis 8–9% hærri en fjárhags-
aðstoðin og lífeyrisgreiðslur voru
24–32% hærri, áður en tekið er til-
lit til aldurstengdrar örorku.
Munurinn á framfærslu hjóna og
Fjárhagsaðstoð í
slæmu árferði
Björk Vilhelmsdóttir skrifar
um efnahagsástandið » Á síðustu árum hefur
framfærslustyrkur
Reykjavíkurborgar
dregist mjög aftur úr
greiðslum almanna-
trygginga og atvinnu-
leysisbóta.
Björk Vilhelmsdóttir
197 fm einbýlishús með 30 fm bílskúr eða samtals 227 fm. Húsið
er á tveimur hæðum, hæð og ris, mjög opið og bjart. Á neðri hæð
er forstofa, setustofa, borðstofa, arinstofa, eldhús, búr, þvottahús,
svefnherbergi og salerni með sturtu. Á efri hæð eru fjögur svefn-
herbergi, baðherbergi og sjónvarpshol. Góður garður, endurnýjuð
hellulögn að hluta til. Að utan er húsið klætt hvítum steini sem er
mjög fallegur og kallar ekki á neitt viðhald. Sérstæður bílskúr með
nýju epoxí gólfi. Gott hús í góðu standi. Verð 60,0 milljónir.
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.
☎564 1500
30 ára
EIGNABORG
Fasteignasala
Hæðarsel 12 Reykjavík
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
STEINÁS - GARÐABÆ
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu glæsilegt einbýlishús á einni
hæð 196,1 fm vel staðsett í Ásahverfi í Gbæ. Húsið er innréttað á mjög
smekklegan hátt m/vönduðum innréttingum, lýsingu og gólfefnum. Eignin skiptist í
forstofu, skála, gestasnyrtingu, stofu, borðstofu, eldhús, 3 herbergi, hjónah,
vinnurými, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Fallegur garður með
afgirtum sólpalli, hellulögðu plani og gangstéttum.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður. 896-0058.
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 - FAX 512 1213
Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali
LINDARGATA 57, 101 RVK
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is
Góð 2ja herbergja íbúð á 8. hæð með einstöku sjávarútsýni. Íbúðin er
48,1 fm. Anddyri með fataskáp. Eldhús og stofa í björtu alrými. Eldhús
með hvítri innréttingu. Úr stofu er útgengt á svalir sem snúa til norðurs
með góðu útsýni. Baðherbergi með hvítri innréttingu og sturtu. Rúmgott
svefnherbergi með skápum. Í húsinu rekur Reykjavíkurborg þjónustu-
miðstöð fyrir eldri borgara. Þar er bæði matstofa og félagsleg þjónusta
af ýmsu tagi. Í íbúðinni er öryggishnappur. Sérgeymsla er í kjallara.
Áhvílandi ca 11 milljónir með 4,15% vöxtum. Verð 20,5 milljónir
Sigrún tekur vel á móti væntanlegum kaupendum
í dag sunnudag frá kl. 14-16.
Lindargata 57, 101 Reykjavík, íbúð 802.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505 • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17
Netfang: fastmark@fastmark.is • Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali • Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Laufásvegur 19
4ra herb. útsýnisíbúð á efstu hæð
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Góð 4ra herb. útsýnisíbúð á efstu hæð í
þessu reisulega steinhúsi í Þingholtunum.
Forstofa/gangur, björt og rúmgóð stofa
með fallegu útsýni yfir Tjörnina, rúmgott
eldhús með uppgerðum innréttingum og
góðri borðaðstöðu, búr/geymsla innaf eld-
húsi 3 rúmgóð herbergi og nýlega
endurnýjað baðherbergi með þvotta-
aðstöðu. Verð 29,9 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verið velkomin.
Hringbraut 47
3ja herb. íbúð með aukaherbergi í risi
Opið hús í dag frá kl. 13-16
Góð 79 fm endaíbúð á 3.hæðásamt 9,6 fm
herbergi í risi með aðgengi að wc og 7,9 fm
sér geymslu í kjallara. Útgangur úr stofu á
suðursvalir. Allt gler sem snýr að Hring-
braut og Furumel er nýtt og hljóðein-
angrandi. Sameign nýlega endurnýjuð og
hús nýlega tekið í gegn að utan.
Góð íbúð nálægt Háskólanum og
Þjóðarbókhlöðu. Næg bílastæði. Laus
strax. Verð 26,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 13-16.
ÍBÚÐ MERKT 0302. Verið velkomin.
Sumarbústaður í Skorradal
Vatnsendahlíð nr. 30
Opið hús í dag, frá kl. 13-15
52 fm sumarbústaður við Vatnsendahlíð nr.
30 í Skorradal í fjórðu röð frá vatni með
frábæru útsýni yfir vatn og fjöll.
Bústaðurinn er vel skipulagður og skiptist í
þrjú herb., rúmgóða stofu með arinofni, vel
innréttað eldhús tengt stofu og baðherb.
með sturtu auk geymslu. 40 fm verönd við
bústaðinn, að hluta yfirbyggð. Húsbúnaður
fylgir. Einnig fylgja bátur og utanborðs-
mótor, björgunarvesti, grill og útihúsgögn.
Golfvöllur í næsta nágrenni. Nýr leigu-
samningur til 20 ára. Verðtilboð.
Eignin verður til sýnis í dag sunnudag
frá kl. 13-15. Verið velkomin.
Nánari upplýsingar í síma 893-3207.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Sími 551 3010
Hárgreiðslustofan
www.sjofnhar.is